Morgunblaðið - 18.02.1997, Síða 72

Morgunblaðið - 18.02.1997, Síða 72
Strokið um strengi Sinfóníunnar Sölumiðstöðin eykur umsvif sín í Rússlandi Unnið að samningi um útgerð og afurðasölu GRÆNLENSK skólaböra í Nuuk þyrptust upp á svið Menn- ingarhússins þar í bæ eftir skólatónleika Sinfóníuhljóm- sveitar Islands í gær og fengu að skoða hijóðfærin stór og smá, meðal annars sellóið hjá Ingu Rós Ingólfsdóttur. A tón- leikunum lék hljómsveitin verk, sem danski tónlistarprófessor- inn Jens 0stergaard valdi og kynnti, en hann er sjónvarps- áhorfendum kunnur vegna stjómar sinnar á spuminga- þáttunum Kontrapunkti, þar sem fulltrúar Norðurlandanna spreyta sig á að þekkja ýmis tóndæmi. Sinfóníuhþ'ómsveitin leikur einnig fyrir skólaböm í dag og í kvöld koma eldri áhorf- endur til að hlýða á Eddu Er- lendsdóttur leika með hljóm- sveitinni píanókonsert eftir Gri- eg. Runólfur Birgir Leifsson, framkvæmdasljóri Sinfóníu- hljómsveitarinnar, segir dag- skrána nokkuð stranga, en afar ánægjulegt fyrir hljómsveitina að fá að taka þátt í vígsluhátíð hins glæsilega Menningarhúss. ■ Húsið sem slær/26 SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrystihúsanna er nú að auka verulega umsvif sín í Rússlandi. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er þar um að ræða stjórnun útgerðar vinnsluskipa og frystitogara, vinnslustjórnun og sölu afurða þeirra. Stjórnendur SH vilja ekki tjá sig um málið að svo stöddu. Fram hefur komið að SH hyggst á næstunni opna sölu- og þjónustu- skrifstofu í Rússlandi vegna aukinna viðskipta þar. Bæði er um að ræða sölu fiskafurða, einkum síldar og loðnu til Rússlands, en ennfremur sölu afurða rússneskra útgerða. SH selur nú þegar afurðir frá mörgum erlendum frystitogurum og fer þeim fjölgandi. Þar munar mest um tog- ara frá Eystrasaltslöndunum og Rússlandi. Eftir því sem næst verður komizt hefur SH verið að vinna að nokkrum verkefnum 5 Rússlandi, sem snúa að afurðasölu og stjórnun útgerðar og vinnslu. Heimildir Morgunblaðs- ins herma að þar sé meðal annars um að ræða fyrirtæki, sem gerir bæði út verksmiðjuskip, frystitogara og fleiri veiðiskip á Norður-Kyrra- hafí við austurströnd Rússlands, Kamtsjatka og Vladivostok og einn- ig á innhafinu Okhotskhafi. A þess- um slóðum er mikil veiði á alaska- ufsa auk fleiri tegunda. Þarna mun vera um verulegt magn fiskafurða að ræða. Morgunblaðið/RAX Óvissa ríkir um stækkun Járnblendifélagsins á Grundartanga Ákvörðun um stækkun frestað um þrjár vikur LANDSVIRKJUN féllst í gær á ósk stjórnar íslenska járnblendifé- lagsins hf. á Grundartanga um að fá frest til 8. mars til að taka ákvörðun um stækkun verksmiðj- unnar. Þetta er í annað sinn sem Landsvirkjun veitir Járnblendifé- laginu frest. í fréttatilkynningu frá Landsvirkjun segir að ekki verði gefinn lengri frestur. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins hefur Elkem í Noregi, sem á 30% í Jámblendiverksmiðjunni, sett það skilyrði fyrir stækkun verksmiðjunnar að það eignist meirihluta í henni. Fulltrúar Islands í stjórn verksmiðjunnar hafa lýst sig tilbúna til að fallast á að ís- lenska ríkið minnki hlut sinn, en mikill ágreiningur er hins vegar um hvað Elkem eigi að greiða fyr- ir hlutinn. Þessi ágreiningur er meginástæðan fyrir því að ekki hefur tekist samkomulag milli eig- enda verksmiðjunnar um stækkun hennar. Samningamenn íslands könn- uðu fyrir helgina hvort grundvöll- ur væri fyrir samkomulagi milli eigenda um að taka ákvörðun um stækkun Járnblendiverksmiðjunn- ar og taka síðar ákvörðun um breytingar á eignaraðild. Elkem hafnaði þessari tillögu. Breytt eignaraðild skilyrði stækkunar Að sögn heimildarmanna blaðs- ins er reiknað með því að samn- ingamenn íslands muni á næstu dögum leggja fyrir Elkem tilboð um breytta eignaraðild. Hafni Elkem þessu tilboði er talið allt eins líklegt að áform um stækkun verksmiðjunnar verði lögð til hliðar. í dag verða opnuð hjá Lands- virkjun tilboð í vinnu við gerð Hágöngumiðlunar og í næstu viku verða opnuð tilboð í fyrsta áfanga Sultartangavirkjunar. Verði ekki búið að taka ákvörðun um stækk- un Jámblendiverksmiðjunnar fyrir 8. mars kann það að hafa áhrif á þessar framkvæmdir. ■ Tekist er á um/6 Formaður LÍÚ hlynnt- ur einhliða kvóta Vill veiða 30.000 tonn í Smugunni KRISTJÁN Ragnarsson, formaður Landsambands íslenzkra útvegs- manna, segist hlynntur því að sett- ur verði einhliða kvóti á veiðar Is- lendinga í Smugunni í Barentshafi, semjist ekki á næstunni. Hann telur eðlilegt að þessi kvóti yrði um 30.000 tonn. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra segir að náist ekki samn- ingar í Smugudeilunni á næstu vik- um eða mánuðum hljóti íslenzk stjórnvöld að íhuga að setja einhliða kvóta á veiðarnar. „Að mínu mati væri mælikvarð- inn sá að við höfum fiskað þarna tvisvar sinnum 35 þúsund tonn á undanförnum þremur árum og einu sinni 22 þúsund. Kvótinn væri því rúmlega 30.000 tonn og við mynd- um með því tryggja að lengra yrði ekki gengið," segir Kristján Ragn- arsson. ■ Afléttir ekki skyIdu/37 ------» ♦ ♦----- Formlegar viðræður hafnar um Kolbeinsey FORMLEGAR samningaviðræður danskra og íslenzkra stjómvalda um afmörkun fiskveiðilögsagna ríkj- anna hófust í Kaupmannahöfn í gær. Embættismenn frá báðum ríkj- um funduðu þar um afmörkun lög- sögumarka milli íslands og Græn- lands annars vegar og milli íslands og Færeyja hins vegar. Að sögn Tómasar H. Heiðar, að- stoðarþjóðréttarfræðings, sem tók þátt í viðræðunum fyrir íslands hönd ásamt Róbert Trausta Árna- syni, sendiherra í Kaupmannahöfn, voru viðræðurnar jákvæðar og gagnlegar. Til þessa hafa fundir embættis- manna verið óformlegir og velt hef- ur verið upp ýmsum hliðum á ágreiningi ríkjanna um lögsögu- mörkin. Danir viðurkenna hvorki Kolbeinsey né Hvalbak sem grunn- línupunkta íslenzku efnahagslög- sögunnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.