Morgunblaðið - 25.03.1997, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 25.03.1997, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1997 9 FRÉTTIR Reykjavíkurlistinn Samþykkia áfram- haldandi KJÖRDÆMISRÁÐ Alþýðubanda- lagsfélaganna í Reykjavík, Fram- sóknarflokkurinn og Kvennalistinn í Reykjavík, hafa samþykkt að standa sameiginlega að framboði Reykjavík- urlistans við borgarstjórnarkosning- amar, sem fram fara vorið 1998. Jafnframt var samþykkt að skora á Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur að gefa áfram kost á sér, sem borgar- stjóri í Reykjavík. Kjördæmisráð Alþýðubandalags- félaganna, samþykkti jafnframt að tilnefna fulltrúa í samráð skipað fulltrúm flokkanna, en ráðið mun samstarf ganga frá tillögum að uppstillingu á listann. Að sögn Sigrúnar Magnúsdóttur borgarfulltrúa samþykkti Fram- sóknarflokkurinn að taka þátt í framboði með svipuðu sniði og við síðustu kosningar, það er kösninga- bandalag fjögurra flokka auk þess sem óháðu stuðningsfólki eða fimmta aflinu yrði boðið að taka þátt í viðræðunum. Pétur Jónsson borgarfulltrúi sagði að fulltrúarráð Alþýðuflokksins kæmi saman til fundar eftir páska, þar sem tekin yrði ákvörðun um framboð. Unglingar inni á vínveitingastað EFTIRLITSMENN með vínveit- ingastöðunum fundu nokkra ungl- inga á aldrinum 14-16 ára inni á vínveitingastað í Reykjavík á laug- ardagskvöldið. Þeim var ýmist vís- að út eða færðir á lögreglustöð og sóttir þangað af foreldrum sínum. Skýrsla var rituð á málið, en umræddur veitingastaður hefur nokkrum sinnum sætt áminningum og lokunum vegna brota á áfengis- löggjöfinni. Auk þess bíða þijú slík mál afgreiðslu og tvö önnur eru í vinnslu. Lögreglumenn fóru ásamt starfsfólki ÍTR og útideildar um hverfi í austurborginni á föstu- dags- og laugardagskvöld til eftir- lits með börnum og unglingum. Athvarf var haft opið og stóð til að flytja þangað þá, sem næðist til. Engin afskipti þurfti að hafa af unglingum undir 16 ára aldri, hvorki í hverfum austurborgarinn- ar né í öðrum hverfum. Hins vegar höfðu lögreglumenn afskipti af 25 ungmennum vegna meðferðar áfengis. Morgunblaðið/Kristinn Afmælishátíð í Sundhöllinni BÖRN á aldrinum 6-8 ára úr sunddeild Armanns sýndu sund- tökin í Sundhöll Reykjavíkur á sunnudag þegar þess var minnst að 60 ár eru liðin frá því laugin var tekin í notkun. Auk þess sýndu aldraðir vatnsleikfimi og sýnt var ungbarnasund. Sett hefur verið upp sýning á teikningum og uppdráttum Guðjóns Samúelssonar arki- tekts af Sundhöllinni og ljós- myndum frá byggingartíma. „Hér var fullt út á bakka,“ sagði Björg Snjólfsdóttir forstjóri. Hefur sótt laugina í 60 ár Flutt voru ávörp og meðal þeirra, sem töluðu var Jón Múli Arnason en hann stóð í biðröðinni daginn, sem laugin var opnuð og hefur sótt hana reglulega síðan. Um 500 gestir koma í laugina dag hvern auk þeirra barna sem sækja skólasund. Meðal gjafa, sem bárust var skjöldur frá Sundsambandi íslands og í tilefni afmælisins hefur verið keyptur farandbikar, sem keppt verður um á sprettsundmóti Ármanns og KR. Bikarinn verður geymdur í Sundhöllinni. Vélsleðamaður lenti í snjóflóði í Húsavíkurfjalli „Fékk sjokk enda dýrt leikfang“ SNJÓFLÓÐ féll úr Dagmálalág í Húsavíkurfjalli um Qögurleytið á laugardag. Eyþór Viðarsson vél- sleðamaður var á ferð í fjallinu þegar snjófleki losnaði undan hon- um. Hann henti sér af sleðanum, rann góðan spöl í kjölfar flóðsins og lenti meðal annars á höfðinu. Flóðið var 40-50 metra breitt og rann á annað hundrað metra. Eyþór, sem er á 29. ári, var búinn að fara nokkrar ferðir í fjall- inu, meðal annars upp á topp, með hundinn sinn. „Ég fór heim með Pílu því ég var búinn að þruma með hana nógu lengi framan á sleðanum. Þegar ég var búinn að því ákvað ég að taka einn hring enn, þetta er svo hrikalega gam- an, og æddi upp.“ Hann segir að snjóflekinn hafi brotnað undan sleðanum þegar hann var „að spóla“. „Ég fékk sjokk, því þetta er dýrt leikfang. Sleðinn fylgdi flóðinu og ég rann að honum og náði að grípa í hann,“ segir Eyþór, sem búinn var að rífa sleðann í sundur til viðgerða þegar Morgunblaðið náði tali af honum sama dag. Hann lenti í öðru snjó- flóði í fyrra á Reykjaheiði en sigldi þá á milli tveggja fleka og sakaði ekki. Setti flekann af stað Tilkynning barst um snjóflóðið rétt fyrir fjögur á laugardag og segir lögreglan á Húsavík að vél- sleðamaðurinn hafi sett flekann af stað. „Hann keyrir upp lágina, sem er mjög.brött, og beygir þvert á brekkuna með þeim afleiðingum Morgunblaðið/Helga Kristín EYÞÓR Viðarsson og Píla, sem er blanda af labrador og skosku kyni. að hann sker sundur flekann. Það er hann sem setur flóðið af stað,“ segir lögreglumaður á Húsavík. Farið var með Eyþór á spítala en hann reyndist óbrotinn og kenndi sér einskis meins. Heimaslátrað á vörubílspalli Gestgjafi réð ekki við gestina LÖGREGLAN stöðvaði vörubifreið á leið til borgarinnar aðfaranótt mánu- dags, en á palli hennar reyndust vera 2 fiskikör, 9 lambaskrokkar og hluti tveggja nauta ásamt bensín- brúsum. Eitthvað þótti athugavert við þennan farm og voru ökumaður og bifreið færð á lögreglustöð og bif- reiðin kyrrsett. Við nánari athugun kom í ljós að þessar kjötbirgðir voru af heima- slátruðu og var fulltrúi heilbrigðis- eftiriitsins kvaddur á staðinn. Öku- maðurinn var að koma frá Vestur- landi með matarforða fyrir íjölskyld- una, að eigin sögn. VEISLA í húsi í Mosfellsbæ fór úr böndunum aðfaranótt laugar- dags og bárust lögreglu margvís- legar kvartanir um hávaða og ónæði af þeim sökum. Þar hafði 16 ára piltur haldið samkvæmi og virtist lítil ölvun vera á meðal samkomugesta þeg- ar lögreglan fór á staðinn til að skakka leikinn, en vísa þurfti u.þ.b. 20 manns þaðan út að beiðni piltsins. Klukkustund síðar var aftur kvartað yfir hávaða frá staðnum. Þá höfðu 10 manns bæst í partíið og ölvun aukist. Þeim var vísað út, enda réð hinn ungi veisluhöldur ekkert við ástand mála. 18 ára seldi landa Sama kvöld var átján ára piltur gripinn við sölu á landa í Mos- fellsbæ. I bifreið hans fundust 7 lítrar af þeim vökva. Pilturinn var færður á lögreglustöð til skýrslu- töku. / •• NYJAR YORUR hj&^ýGuftthiUi Engjateigi 5. sími 581 2141. Opið virka daga frá kl. 10.00-18.30, laugardaga frá kl. 10.00-15.00. TÍSKUVERSLUN Kringlunni Simi: 553 3300 Mikið úrval af fallegum vorvörum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.