Morgunblaðið - 25.03.1997, Side 26

Morgunblaðið - 25.03.1997, Side 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Djöflaeyjan verðlaunuð í Rúðuborg Friðrik braut verðlauna- styttuna í mót- mælaskyni Fríðrik Þór Fríðriksson hlaut um helgina verðlaun ungra áhorfenda fyrír Djöflaeyjuna á norrænni kvikmyndahátíð í Rúðuborg. Þórunn Þórsdóttir hitti Friðrik á hátíðinni og horfði á nokkrar bíómyndir. Meðal þeirra Hamsun sem fékk aðalverðlaunin. Morgunblaðið/Þórdís Ágústsdóttir Friðrik Þór Friðriksson hampar verðlaunagripnum áður en hann arkaði af sviðinu og henti honum í gólfið til að mótmæla fálæti franskra gagnvart íslenzkri kvikmyndagerð. NORRÆNA kvikmyndahá- tíðin í Rúðuborg státar af mikilli aðsókn ungs fólks og það var einmitt þessi hópur sem taldi Djöflaeyjuna eftir Friðrik Þór Friðriksson bestu myndina í ár. Aðrir áhorfendur verðlaunuðu norsku myndina Sunnudagsengla eftir Berit Otto Nesheim. Dóm- nefnd skipuð fagfólki valdi Hamsun eftir Danann Jan Troell, myndina þar sem Max von Sydow leikur rit- höfundinn og Ghita Nörby konu hans. Sydow endurtók við blaðamenn í Rouen það sem hann segir í mynd- inni: Samskiptin við Þjóðveija hefðu verið mikill misskilningur, skáldið hafi alltaf viljað Noregi vel. „Ættjarðarást er almennt mjög sterk í Norðmönnum og ég, Svíinn, var hálfhræddur við að taka þessu hlutverki. En það var skrifað fyrir mig og ég held að útkoman sé ágæt. Loksins þegar við létum til skarar skríða, tuttugu árum eftir að fyrst var rætt um myndina." Dómnefndinni þótti hin unga Marie Theisen besta leikkonan, en hún fer með aðalhlutverkið í Sunnudagsenglum. Félagarnir Thomas Bo Larsen og Ulrich Thomsen deildu verðlaunum nefnd- arinnar fyrir besta leik karls. Þeir eru mestu hetjurnar í samnefndri danskri mynd eftir Thomas Vinter- berg. Hátíðinni lauk á sunnudag eftir tólf daga úthald. Kvikmyndir frá Norðurlöndum og Eystrasaltsríkj- um voru sýndar í fimm bíóum í borginni og voru sex sýningar í hveiju þeirra yfír daginn, frá 10 á morgnana fram á kvöld. Alls munu um þúsund myndir hafa verið á tjöldum kvikmyndahúsanna þessa daga. Og áhorfendur yfir 30.000 á þessu tíunda afmælisári hátíðarinn- ar. Átta myndir af hátíðinni verða sýndar í París (Cinema de Cineast- es) fram til 8. apríl. Þeirra á meðal Ingaló eftir Ásdísi Thoroddsen, sem hlaut verðlaun dómnefndar 1993. Skapsveiflur leikstjórans Verðlaunin voru afhent á laugar- dagskvöldið og athygli vakti fram- ganga Friðriks Þórs. Hann kom síðastur til athafnarinnar, brúna- þungur og hampaði styttunni sinni, sem Þorfinnur Omarsson, formaður Kvikmyndasjóðs, hafði þegar veitt viðtöku. Eftir stutta stund arkaði Friðrik af sviðinu og henti verð- launagripnum í gólfið á útleiðinni. Einhveijum brá við þetta en aðrir tóku uppákomunni létt. Friðrik seg- ist hafa verið óánægður með hlut íslands á hátíðinni. Hún hafi löng- um verið gangrýnd fyrir ónóga kynningu I frönskum fjölmiðlum og nú hafi átt að bæta úr því. Blaðamenn hafi verið sendir frá Frakklandi til skandinavísku land- anna fjögurra, en ekki til íslands. Þannig hafi ísland verið algjörlega sniðgengið í umfjöllun fjölmiðla. Þetta hafí komið illa við hann. Friðrik kom með Baltasari Kor- máki til Rúðuborgar og ræddi við blaðamenn og áhorfendur. Hann sagði Morgunblaðinu að hátíðin væri býsna misjöfn að gæðum ár frá ári, nokkuð góð í þetta sinn. Sama sögðu þeir viðmælendur aðr- ir sem hafa sótt hátíðina í mörg ár. Friðriki finnst að hún ætti að vera í París, ekki „í felum“ á Nor- mandí. Hann gaf lítið fyrir þá skoð- unm blaðamanns að ef til vill myndi hátíðin týnast í París líka, í öllum þeim grúa kvikmyndahátíða sem þar eru haldnar. „Ég er alltaf eitthvað að fram- leiða,“ segir Friðrik aðspurður um verkefni dagsins. „Nú eru það Perl- ur og svín eftir Óskar Jónasson. Svo er ég að fitla í Lofoten á næsta ári, og aðra sem stendur til að gera á írlandi á næstu mánuðum. Hún er dálítið innblásin af Börnum náttúrunnar. Það stendur til að ég leikstýri þessum myndum. Og svo eru það Englar alheimsins heima. Þar er einn framleiðenda Peter Aalberg Jensen sem líka stóð að Breking the Waves.“ Friðrik er aftur kominn í gott skap. Hann segir í gríni svolítið skemmtilegt að geta náð sér niðri á Jan Troell. „Eg sit nefnilega í dómnefnd hátíðar í Istanbúl þar sem Hamsun er í keppni. Þar kem- ur krókur á móti bragði.“ Sjálfsmorðs- læknirinn mál- ar dauðann JACK Kevorkian er þekktur sem „sjálfsmorðslæknirinn“, en reynir um þessar mundir fyrir sér í málverkinu. Kevorkian hefur hjálpað 46 manns að fremja sjálfsmorð og dauðinn er einnig rauði þráðurinn í myndlistar- sýningu hans sem nú stendur yfir í Detroit. Þar eru 13 málverk og sýna þau afskorin höfuð og rotnandi lík. Sagt er að í eitt málverkið, sem lýsir þjóðarmorði, hafi hann notað eigið blóð. Þar sjást tvær hendur halda búklausu höfði á lofti á hárinu. Hönd- in til hægri á myndinni stendur fram úr grárri ermi, sem merkt er SS-sveit- um nasista, hakakrossi og ártalinu 1945. Á hún að minna á helför gyð- inga. Höndin til vinstri er I brúnni ermi og á henni er hálfmáni, bjúgs- verð og ártalið 1915, sem er tilvísun í fjöldamorð Tyrkja á Armenum. Kevorkian selur tölvuútprentanir og veggspjöld af myndum sínum á allt að 15 þúsund krónur, en upprunalegu verkunum ætlar hann að halda. Hið óútskýranlega mikilvægast Morgunblaðið/Kristinn „ÞAÐ borgar sig ekki að segja of mikið; maður gæti þá alveg eins snúið sér að skriftum," segir Eyjólfur Einarsson sem sýnir olíumálverk og steinþrykk í Lista- safni Kópavogs - Gerðarsafni. EYJÓLFUR Einars- son listmálari sýnir tólf olíumálverk og fjórar grafíkmyndir í vestursal Gerðar- safns í Kópavogi. Þetta er 21 einkasýn- ing Eyjólfs. Lista- maðurinn hóf feril sinn í byijun sjöunda áratugarins og mál- verk hans voru ab- strakt lengi framan af. Laust eftir 1980 tóku hlutir úr veru- leikanum að birtast í málverkum Eyjólfs og upp frá þvi hefur hann málað fígúra- tíft. Goðsöguleg skip, strengjabrúður og hugleiðingar um tim- ann eru meginvið- fangsefni Iistamanns- ins að þessu sinni. Verkin sveija sig í ætt við súr- realisma með óræðum tíma, ann- arlegu rými og eyðilegu lands- lagi. „Já, það er súrrealískur heim- ur í þessum verkum," segir Eyj- ólfur. „Ég hef lengi verið á mörk- um þessa heims og hins raun- verulega en er nú kannski kom- inn yfir strikið." Strengjabrúðumyndir Eyjólfs fjalla um vald og lýsa jafnvel ótta við vald og sókn eftir frelsi undan því. Myndimar sýna strengina sem festir eru í brúð- urnar en brúðurnar sjálfar em ósýnilegar, inni í húsi, bak við vegg eða fjallshlið. „Ég hef ekki farið mjög djúpt ofan í þessi við- fangsefni mín en það má segja að þetta sé allsherjar hugleiðing um frelsi og vald. Og kannski um óljós mörkin þarna á milli. Brúðumar sjást ekki sem gefur til kynna að á endum strengjanna getur verið hvað sem er. Eða hver sem er. Ég vil ekki segja nánar frá viðfangsefnum minum. Þá væri ég kominn inn á þetta svæði sem STRENGJABRÚÐUMYNDIR Eyjólfs fjalla um vald og lýsa jafn- vel ótta við vald og sókn eftir frelsi undan því. ég vil að sé óútfyllt í myndlist, svæðið þar sem áhorfandinn fær að njóta sín og lesa i verkið. Einn besti listamaður aldarinnar, Braque, sagði einmitt að það mikilvægasta í myndlist væri hið óútskýranlega. Það borgar sig ekki að segja of mikið; maður gæti þá alveg eins snúið sér að skriftum." Sýningunni lýkur mánudaginn 31. mars sem er annar í páskum. Hún verður lokuð á föstudaginn langa og á páskadag. Annars er opið alla daga, nema mánudaga, frá 12-18.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.