Morgunblaðið - 25.03.1997, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 25.03.1997, Blaðsíða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ MENNTUN Endurskoðun aðalnámskráa grunn- og framhaldsskólanna hafin hjá ráðuneytinu Tækifæri til að hafa áhrif á skólaþróun Ný aðalnámskrá grunn- og framhaldsskólanna, sem er grunnurínn að skólastarfí í landinu, er í undirbúningi. Hildur Friðriksdóttir kannaði á hvaða stigi undirbúningurinn er og komst að því að innan tíðar eiga menn að geta fylgst með framvindu mála á alnetinu og komið með innlegg í umræðuna. Morgunblaðið/Úr myndasafni HAUSTIÐ 1998 mun æska landsins væntanlega hefja nám sitt í grunn- og framhaldsskólum út frá nýjum áherslum með tilkomu nýrra aðalnámskráa. VINNA við aðalnámskrá grunn- og framhalds- skólastigsins miðar sam- kvæmt áætlun og mun stefnumótunarnefnd skila tillögum sínum í næsta mánuði, að sögn Jónmundar Guðmarssonar verk- efnisstjóra. Nefndin er ráðgefandi fyrir menntamálaráðherra og í henni sitja fulltrúar frá öllum stjórnmála- flokkum á Alþingi. Samþykki ráð- herra tillögur hennar liggja fyrir ákveðnir leiðarvísar sem nýskipað- ir, faglegir forvinnuhópar hafa til hliðsjónar. Síðsta heildarendur- skoðun á aðalnámskrá grunnskóia lauk árið 1989 en árið 1990 á að- alnámskrá framhaldsskóla. Aðalnámskrár grunn- og fram- haldsskóla eru á ábyrgð mennta- málaráðherra og er þar mælt fyrir um starfshætti skóla og námsmat, þar með talin próf og vitnisburðir. Þar koma einnig fram hvaða kröfur nemandi þarf að uppfylla, til þess að hann teljist hafa lokið einstökum áföngum náms með fullnægjandi árangri, og lágmarkskröfur til þess að standast tiltekin lokapróf. Hverjum skóla ber síðan að útbúa eigin námskrá, þar sem áherslur hans koma fram, en henni ber þó að taka mið af aðalnámskrá. Á sjötta tug í nefndum Endurskoðun aðalnámskránna er gríðarlega viðamikið verkefni, einkum þar sem verið er að taka bæði skólastigin fyrir. Málefnið snertir marga og nú þegar koma tæplega 70 manns beint að undir- búningi með störfum í nefndum. Hugmyndir ráðuneytisins eru að sem flestir hafi tök á að leggja eitthvað til málanna. Þannig hvatti Björn Bjarnason menntamálaráð- herra meðal annars til þess í jan- úar síðastliðnum, að fagfélög kenn- ara gengjust fyrir málþingum um stöðu greina sinna og hét liðsinni ráðuneytisins til þess. Benti hann á að umræða innan fagfélaga væri verðugt innlegg í umfjöllunina. Um síðustu helgi var haldið málþing raungreinakennara og félaga fé- lagsfræðikennara. Fleiri málþing eru framundan. Framvinda mála Undirbúningur að vinnu aðal- námskránna hófst í menntamála- ráðuneytinu í maí 1996. í júlílok samþykkti ríkisstjórnin skipulag og verkáætlun menntamálaráðherra. I kjölfarið var auglýst eftir átta umsjónarmönnum til að halda utan um starf vinnuhópa. Frá því í september hafa þessir starfsmenn verið að kynna sér stefnumótun ráðuneytisins, hvernig verkefnið er hugsað, til hvers er ætlast af þeim, afla sér gagna o.fl. Upp úr áramótum má segja að skipt hafí verið frá undirbúnings- og skipulagsstigi yfir í framkvæmd- ir, þar sem lokið hafði verið við meginskipulagningu og ákvarðana- töku og séð var fyrir endann á þver- pólitísku starfi nefnda. Eins og fyrr segir mun stefnumót.unamefnd, sem hefur verið að störfum frá því í október, skila áliti sínu í næsta mánuði. Meginhlutverk hennar hef- ur verið að fjalla um ákveðin álita- efni sem verkefnisstjórn endurskoð- unarinnar lagði fyrir hana. „Þetta eru menntapólitísk mál, s.s. ýmis álitaefni sem komið hafa fram í kjölfar nýrra laga,“ sagði Jónmund- ur Guðmarsson. Hægt að senda tölvupóst Upp úr áramótum tóku til starfa átta forvinnuhópar á níu námssvið- um, þ.e. móðurmáli, stærðfræði, náttúrufræði, erlendum málum, samfélagsfræði, listmennt, starfs- mennt, tæknimennt og fræðslumál- um, en íþróttahópur tekur ekki til starfa fyrr en í vor. Þessum hópum er á næstu mánuðum ætlað að vinna að faglegri stefnumótun ráðuneytisins. í forvinnuhópum sitja 6-8 nefndarmenn, sem að meirihluta eru tilnefndir af kenn- arafélögunum en að minnihluta skipaðir af ráðherra. Markmiðið með samsetningu hópanna er sam- kvæmt upplýsingum Jónmundar Guðmarssonar að búa til vettvang fyrir almenna, breiða, óhlutlæga umræðu um stöðu þessara greina og hvert beri að stefna. Hugmyndin er að vinna for- vinnustarfið fyrir opnum tjöldum. Hefur í því skyni verið komið upp heimasíðu aðalnámskár: http:// www.ismennt,is/vefir/namskra/ þar sem hægt verður að fylgjast með framvindu starfsins. Hafi menn eitthvað til málanna að leggja geta þeir sent viðkomandi umsjón- armanni eða verkefnisstjóra tölvu- póst. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins hefur tölvuvinna tafist nokkuð vegna tæknilegra örðugleika. Þó eru komnar ein- hverjar upplýsingar frá náttúru- fræðihópi, listamenntahópi og tæknimenntahópi en mismunandi ítarlegar. Einnig er þar að finna upplýsingar frá verkefnisstjórn. Áherslur ráðuneytisins Á heimasíðunni má einnig sjá áherslur menntamálaráðuneytis í endurskoðun á námskránum. Þar kemur meðal annars fram að lögð skuli áhersla á íslensku, sögu og þjóðmenningu, vísindalæsi, tækni- menntun, símenntun, eflingu fjar- kennslu, endurskoðun kennslu- hátta, mat og eftirlit, almenna lífs- leikni, að draga úr brottfalli í fram- haldsskólum, samfellu í námi o.fl. Að sögn Jónmundar eru þetta ekki endanlegar áherslur, því fleiri munu bætast við eftir því sem líður á endurskoðunina. Þegar forvinnuhópar hafa lagt fram tillögur sínar, sem væntanlega verður næsta sumar, mun ráðuneyt- ið leggja þær fyrir til umsagnar. Að því loknu verður tekin ákvörðun um stefnumótun og í kjölfar þess koma til starfa vinnuhópar, sem skrá niður lýsingu á viðkomandi grein fyrir bæði skólastigin. Þeir munu starfa fram á sumarið 1998 en þá munu nýjar endurskoðaðar aðalnámskrár koma út. Þróunarverkefni milli Hlíðarbergs og Setbergsskóla Bilið brúað milli skólastiga Morgunblaðið/Kristinn BÖRNIN á leikskólanum Hlíðarbergi sem hefja eiga skóla- göngu í Setbergsskóla í Hafnarfirði næsta haust eru þátttakend- ur í sameiginlegri skemmtun yngstu barna skólans. SAMSTARF leikskóla og grunn- skóla heitir þróunarverkefni, sem fram hefur farið milli leik- skólans Hlíðarbergs og Set- bergsskóla í Hafnarfirði undan- farin tvö skólaár. Markmiðið er að auka samvinnu milli skóla- stiganna og auðvelda börnum að hefja skólagöngu. Áð sögn Sigurborgar Krist- jánsdóttur leikskólastjóra eru fimm ára börn í leikskólanum undirbúin undir skólagönguna í gegnum leikinn. Unnið er með börnin í stórum hópi, þar sem markmiðið er að efla málvitund þeirra, málskilning, auka orða- forða, auk þess að þjálfa þau í að hlusta, fara eftir fyrirmælum, halda einbeitingu og geta unnið í stórum hóp. Börnunum er kennt að ganga frá verkefnum og lögð áhersla á að þau fullklári verkefni sem lögð eru fyrir. Börnin eru mis- jafnlega lengi að vinna og þau sem eru fljót fá að fara í „stafa- súpuna", þ.e. að vinna með stafi sem búnir hafa verið til úr plasti. „Þau læra stafina í gegnum leiki t.d. að finna hver á hvaða staf og teikna upp eftir stafnum. Við fylgjumst með að þau fari rétt að, skrifi frá vinstri til hægri og að þau hafi rétt grip,“ sagði Sigurborg. Að vori síðasta leikskólaársins fá væntanlegir nemendur að fara einn dag í heimsókn í Set- bergsskóla. Þar taka þau þátt í fullum skóladegi, s.s. að útbúa verkefnamöppu, fara út í frímín- útur og borða nesti. Þau búa til myndir, sem eru rammaðar inn og hengdar upp á vegg, þannig að þegar þau hefja skólagöngu að hausti sjá þau strax eitthvað frá sjálfum sér. Þá fara börnin þrjá daga í vor- skóla og eru kennarar Setbergs- skóla sammála um að þau séu öruggari með sig en þau börn sem þekkja ekki skólann. Einnig séu þau almennt félagslega sterk þar sem þau þekkja um- hverfið og hafa jafnvel kynnst kennurunum. Samvinnan snýst einnig um að 6 ára börn í Setbergsskóla fá að fara í heimsókn í Hlíðarberg á haustin. „Mörg þeirra eru ósátt við að fara í skóla en þegar þau sjá að nýir krakkar eru komnir í leikskólann og jafnvel nýtt starfsfólk þá verða þau sáttari við grunnskólann," sagði Sigur- borg. Gagnkvæmar heim- sóknir kennara Samstarfið við Setbergsskóla hefur meðal annars byggst upp á því að leikskólakennarar hafa kynnt sér starf kennaranna og öfugt með því að fara í heim- sóknir og halda sameiginlega fundi. „Þetta hefur verið sér- staklega ánægjulegt samstarf, því í heildina hefur grunnskólinn ekki vitað nægilega hvað leik- skólinn er að fást við og öfugt,“ sagði Kristrún Óskarsdóttir kennari í Setbergsskóla. Hún ítrekaði mikilvægi samstarfs skólastiganna, þar sem grunn- skólinn væri að byggja ofan á starf leikskólanna. Hún hefur kynnst báðum skóiastigum af eigin raun, því hún starfaði sem aðstoðarmaður barnasálfræðings á leikskóla áður en hún hóf starf sem grunn- skólakennari. Hún segir það mikið stökk að hefja nám i skóla meðal annars vegna þess að að- eins einn kennari sjái um jafn stóran hóp barna og þrír leik- skólakennarar hafi gert áður. Hún kveðst lengi hafa talað fyr- ir því að tveir kennarar væru með 1. bekk og annar af þeim væri leikskólakennari. „Þeir kenna í gegnum leiki og eru sérfræðingar í því. Þó að við séum að reyna, stendur leikurinn okkur ekki eins nærri því við höfum ekki sömu þjálfun og leikni og leikskólakennarar," sagði Kristrún Óskarsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.