Morgunblaðið - 25.03.1997, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
MENNTUIM
ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1997 31
Háskóli íslands
Fj öldatakmörk-
un í lyfjafræði
FJ ÖLD AT AKMÖRKUNU M verður
beitt meðal nýnema í lyfjafræði frá
og með næsta skólaári. Munu aðeins
12 nemendur fá að halda áfram
námi að loknum prófum. Einnig
verður sú breyting í læknadeild að
36 læknanemar fá að halda áfram
að loknum samkeppnisprófum í des-
ember 1997 í stað 30 áður.
Að sögn Þorsteins Loftssonar pró-
fessors er ástæðan fyrir fjöldatak-
mörkunum í lyfjafræði sú, að Evr-
ópusambandið gerir ófrávíkjanlegar
kröfur um að lyfjafræðinemar hafi
hlotið sex mánaða starfsþjálfun í
apóteki. Samhliða því eru nú gerðar
auknar kröfur til apóteka sem vista
lyfjafræðinema, þannig að ekki þótti
öruggt um fleiri stöður en tólf á
ári. Þar fyrir utan hefur aðsókn í
námið aukist verulega að undan-
förnu.
Heimild hefur verið í reglugerð
Háskóla íslands fyrir fjöldatakmörk-
unum til margra ára en ekki verið
beitt fyrr en nú. „Við fengum munn-
legar athugasemdir frá Norðmönn-
um um skipan starfsnámsins og eft-
ir að hafa rætt við heilbrigðis- og
tryggingaráðuneytið töldum við okk-
ur ekki fært annað en að takmarka
inn í deildina," sagði Þorsteinn. Áður
fyrr gátu nemendur fengið stærri
hluta þjálfunar sinnar hjá ýmsum
fyrirtækjum í lyfjaiðnaði en nú er.
í öðrum deildum, þar sem fjölda-
takmarkanir hafa verið, er tekinn
inn sami nemendafjöldi og áður.
MA-nám í opin-
berri stefnumótun
og sljórnsýslu
STJÓRNMÁLAFRÆÐISKOR fé-
lagsvísindadeildar Háskóla íslands
mun frá og með komandi hausti
bjóða upp á MA-nám i fyrsta sinn.
Um er að ræða tveggja ára nám í
opinberri stefnumótun og stjórn-
sýslu.
„Tilgangur námsins er m.a. að
búa nemendur undir hvers konar
störf, sem tengjast stjórnsýslu og
stefnumótun hjá ríkisvaldinu, sveit-
arfélögum, einkaaðilum og víðar,“
segir Gunnar Helgi Kristinsson,
dósent í stjórnmálafræði. „Eftir því,
sem gerðar eru meiri kröfur í opin-
berri stjórnsýslu verður meiri þörf
fyrir fólk, sem hefur tiltölulega al-
hliða stjórnsýslumenntun; hefur
Alþjóðleg
prófí
spænsku
ALÞJÓÐLEG próf í spænsku verða
í fyrsta skipti haldin hér á landi 9.
maí 1997. Spænskudeild Háskóla
íslands annast framkvæmd próf-
anna fyrir hönd Menningarmála-
stofnunar Spánar og háskólans í
Salamanca. Að sögn Margrétar
Jónsdóttur lektors í HÍ verður farið
yfir prófin á Spáni. Frestur til að
innrita sig rennur út 4. apríl.
Prófað verður í tveimur þyngdar-
stigum; „Certificado inicial de
espanol“ og „Diploma básico de
espanol“. Miðað er við að nemendur
sem lagt hafa stund á spænsku í
menntaskóla í eitt og hálft ár ráði
við fyrra prófið. Til að ráða við síð-
ara prófið þarf minnst að hafa lokið
áföngum 600 eða 700 í mennta-
skóla, dvalið í spænskumælandi
landi í lengri eða skemmri tíma eða
lagt stund á spænsku á háskólastigi.
„Diploma superior de espanol" er
erfiðasta prófið og verður ekki hald-
ið fyrr en í nóvember nk. Margrét
segir að markmiðið með prófunum
sé að setja greininni alþjóðleg viðm-
ið. Nemendum muni framvegis bjóð-
ast að þreyta prófin tvisvar á ári.
„Þannig vita menntaskóla- og há-
skólakennarar nákvæmlega hvað
nemendur eiga að kunna þegar
ákveðnum áfanga í námi þeirra er
náð. Alþjóðlegar kannanir um hæfni
og færni nemenda munu því ekki
koma spænskukennurum á óvart í
framtíðinni, auk þess sem niðurstöð-
ur prófanna segja til um það starf
sem fram fer í skólunum,“ sagði
Margrét.
lært dálítið um skipulag og lög,
dálítið um efnahagsmál, rekstur og
hagfræðilega ákvarðanatöku og
dálítið um stjórnkerfið og stjórn-
mál. Fyrst og fremst er þetta auðvit-
að stjórnmálafræðinám."
Gert er ráð fyrir að þeir, sem
sækja um inntöku í MA-námið, hafi
lokið BA-gráðu frá HÍ eða sambæri-
legu námi. Gunnar Helgi segir ekki
nauðsynlegt að stúdentar komi úr
félagsvísindadeild, allt eins geti ver-
ið styrkur að hafa numið viðskipta-
fræði eða lögfræði. Hins vegar geti
umsjónarnefnd námsins gert kröfu
um að nemandi afli sér ákveðinnar
grunnþekkingar í stjórnmálafræði,
félagsfræði eða aðferðafræði.
í náminu er, burtséð frá hagnýt-
um þáttum, sterk fræðileg áherzla.
Nemendur kynnast meðal annars
helztu fræðahefðum í opinberri
stjórnsýslu og stefnumótun og læra
undirstöðuatriði rannsóknarvinnu.
Gunnar Helgi segir þessa þjálfun
gagnlega við hvers konar rannsókn-
arstörf eða í frekara framhalds-
námi, auk þess sem hún nýtist við
lausn hvers konar stjórnsýslu- og
stefnumótunarverkefna.
Gert er ráð fyrir að nemendur
verði teknir inn annað hvert ár fyrst
um sinn og fjöldi verði takmarkaður
við 5-10. Umsóknarfrestur rennur
út 1. april nk.
skólar/námskeið
__________ýmislegt_______________
■ Fullorðinsfræðslan
matshæft nám
Fornáms-og
framhaldsskólastig.
Prófáfangar og námskeið.
Skólanám og fjarnám.
ENS, DAN, SÆN, NOR, ÞÝS, SPÆ,
HOLL, ARAB, STÆ, TÖL, EÐL, EFN,
ÍSL og ICELANDIC.
Námskeið fyrir samræmdu prófin.
Námskeið fyrir atvinnulausa.
Námsaðstoð. Sími 557 1155.
rtir-rni
fullopðinsfræðslan
tungumál
■ International Pen Friends
útvegar þér a.m.k. 14 jafnaldra pennavini
frá ýmsum löndum.
Fáðu umsóknareyðublað.
I.P.F., pósthólf 4276, 124 Rvík,
simi 881 8181.