Morgunblaðið - 25.03.1997, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1997 43
JON EYJOLFUR
G UÐMUNDSSON
+ Jón Eyjólfur
Guðmundsson
fæddist á Hvamms-
tanga 13. septem-
ber 1928. Hann lést
á sjúkrahúsinu á
Hvammstanga 16.
mars síðastliðinn.
Foreldrar Jóns
voru Ingibjörg
Lára Guðmanns-
dóttir frá Krossa-
nesi og Guðmundur
Jónsson frá Stóra
Hvarfi. Þau bjuggu
á Vesturhópshólum í Þverár-
hreppi allan sinn búskap og
eignuðust þar sjö börn. Hinn
1. júlí 1952 kvæntist Jón Ölmu
Levý Ágústsdóttur frá Ósum á
Vatnsnesi. Foreldrar Ölmu
voru Helga Jónsdóttir frá Ána-
stöðum og Ágúst Frimann Jak-
obsson frá Neðri-Þverá. Alma
fæddist 24. ágúst 1929 í Ána-
staðaseli, en var kornung tekin
í fóstur af hjónunum Ögn Levý
Guðmannsdóttir frá Krossanesi
og Eggert Levý Jónssyni frá
Tjöm. Börn Jóns og Ölmu em:
1) Agnar Eggert, f. 19.2. 1952,
í sambúð með Elísabetu Bjarna-
dóttur, f. 24.2.1949. Börn hans:
Eyjólfur, f. 3.10. 1973, Bj[örg-
vin, f. 3.9. 1980, Sandra Ögn,
f. 18.11. 1988. 2) Lára Helga,
f. 7.1. 1957, gift
Benjamín Kristins-
syni, f. 7.6. 1956.
Börn þeirra: Ingi-
björg Alma, f. 15.2.
1975, Sonur hennar
Benjamín Páll, f.
28.9. 1993. Jón
Rafnar, f. 27.3.
1980, Sólveig
Hulda, f. 3.12. 1987,
Kristinn Arnar, f.
17.4. 1991. 3) Guð-
mundur, f. 4.12.
1960, kvæntur Ernu
Magnúsdóttur, f. 5.7. 1964.
Dætur þeirra: Lilja, 1.12. 1990,
Björk, 19.10.1993. 4) Hólmfríð-
ur Sigríður, f. 23.11. 1963, í
sambúð með Sigurði Þórissyni,
f. 28.03. 1963. Dóttir þeirra:
Guðrún Þóra, f. 13.2. 1993. 5)
Ágúst Þormar, f. 7.3. 1972, í
sambúð með Aðalbjörgu
Signýju Sigurvaldadóttur, f.
19.9. 1974. Dóttir þeirra: Jóna
Guðbjörg, f. 25.12. 1996. Jón
og Alma hófu búskap á Þorf-
innsstöðum í Þverárhreppi 25.
maí 1952. Þar bjuggu þau í 44
ár eða allt fram til 8. júní á
síðasta ári er þau bmgðu búi
og fluttust til Hvammstanga.
Útför Jóns fer fram frá Vest-
urhópshólakirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskiinaðar viðkvæm stund.
Vinimir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stnð.
(V. Briem.)
Mig langar að minnast elskulegs
tengdaföður míns sem lést eftir
erfið veikindi. Það er margt sem
kemur upp í hugann, en fyrst og
fremst þakklæti fyrir að hafa feng-
ið að kynnast þér svona náið. Þú
varst einstaklega ljúfur og
skemmtilegur maður sem tókst á
við hlutina af miklu jafnaðargeði.
Ég man alltaf þegar ég kom fyrst
norður í sveitina aðeins 16 ára
gömul. Kvíðatilfinning hafði gert
vart við sig hjá mér á leiðinni. En
þegar ég hafði verið kynnt fyrir
ykkur hjónum hvarf allur kvíði, og
ég fann hlýjuna sem streymdi frá
ykkur. Þið tókuð mér strax sem
dóttur.
Það var oft glatt á hjalla á Þor-
fmnsstöðum, þú sast við eldhús-
borðið og sagðir gamansögur frá
gamalli tíð, hinir fjölskyldumeðlim-
irnir hlógu dátt svo undir tók í
húsinu. Þú gafst þér alltaf tíma til
þess að setjast niður og spjalla við
gesti þótt annir væru miklar við
búskap. Síðastliðið sumar varð mik-
il breyting, þegar þið fluttuð í litla
húsið á Hvammstanga. En það var
alltaf sama notalega tilfmningin að
koma til ykkar, þótt þið væruð ekki
lengur í sveitinni. Því miður náðir
þú ekki að njóta þess lengi að búa
í litla húsinu ykkar, því veikindin
gerðu fljótlega vart við sig. Það er
sorglegt og óréttlátt að þegar þið
Alma ætluðuð að fara að hægja á,
eftir mikla vinnu alla tíð ert þú
farinn allt of fljótt. Elsku Alma
mín, þú stóðst eins og klettur við
hliðina á Jóni allt fram á síðasta
dag. Guð styrki þig og fjölskylduna
í sorginni. Söknuðurinn er mikill,
en minningarnar um einstakan
mann geymum við í hjörtum okkar.
Erna.
Elsku Jón, við vorum nágrannar
í sjö ár. Vinátta og virðing ein-
kenndu öll okkar samskipti. Jón
minn, hvíl þú í friði, ástkæri vinur.
Og því vard allt svo hljótt við helfregn þína
sem hefði klökkur gígjustrengur brostið.
Og enn ég veit margt hjarta harmi lostið,
sem hugsar til þín alla daga sína.
En meðan árin þreyta hjörtu hinna
sem horfðu eftir þér í sárum trega,
þá blómgast enn, og blómgast ævinlega,
þitt bjarta vor í hugum vina þinna.
Sem sjálfur Drottinn mildum lófum lyki
um lifsins perlu í gullnu augnabliki.
(Tómas Guðmundsson)
Alma mín og fjölskylda, okkar
dýpstu samúðarkveðjur.
Edda, Pétur, Edda Mary,
Ósk Laufey og Stefania.
„Heldurðu að þú kallir hana
Kristínu okkar Stínu," sagði hann
með nokkrum þunga við mann á
miðjum aldri sem leitaði frænku
sinnar og hafði nefnt hana þessu
gælunafni frá bernskuárunum.
Frændanum varð svarafátt en hafði
orð á þessu við fólkið sitt er hann
kom heim: Að bóndanum á bænum
þar sem skólinn hennar Stínu
frænku var hafi ekki fundist hann
sýna nógu mikla kurteisi er hann
spurði um hana! Það er ekki ama-
legt að eiga slíkan bakhjarl!
Kynni okkar hófust í garðinum
við skólastjórabústaðinn. Handtak-
ið hlýtt og viðmótið hressilegt og
konan hans áréttaði kveðjuna. Síð-
an eru liðin tæplega átta ár, ár ein-
lægrar vináttu og trausts nábýlis.
Hann var einn af þessum bændum
sem eiga aðdáun mína og margra
annarra. Vel máli farinn, menntað-
ur þótt óskólagenginn væri, víðles-
inn, heiðarlegur og nægjusamur.
Hafði skoðanir og lá ekki á þeim,
lét sig annað fólk varða.
Hann hét Jón Eyjólfur Gumunds-
son, borinn og barnfæddur Þver-
hreppingur og Þverhreppingur var
hann til dauðadags. Hann ólst upp
í foreldrahúsum í Vesturhópshólum,
þar sem lengst af var bændakirkja
í Húnaþingi, keypti nærliggjandi
jörð, Þorfinnsstaði, 17 ára gamall
og hóf þar búskap nokkrum árum
síðar. En hann var ekki einn, því
hann kvæntist fósturdóttur hrepp-
stjórahjónanna á Ósum í sömu sveit,
Ölmu Á. Levy og þau gengu saman
æviveginn, samstíga. Þau byggðu
upp jörðina smám saman, af hug-
kvæmni og varfærni, unnu hörðum
höndum: Ekki að flana að neinu,
ekki að skulda neinum neitt. En
gestrisin og greiðasöm. Það varð
þeirra lífsstíll. Þeu eignuðust 5 börn
sem þau komu til mennta og bera
uppeldinu og foreldrum sínum gott
vitni.
Jón unni sveit sinni og naut hún
þess því hann vann henni og sam-
ferðafólkinu allt það gagn sem hann
mátti. Hann gegndi ýmsum trúnað-
arstörfum í þágu hreppsins að
ógleymdu því sem hann lagði af
mörkum til menntunar ungviðisins
en hann vann af áræði ásamt öðrum
við að byggja skóla í Þverárhreppi,
gaf land undir bygginguna og var
vakinn og sofinn við hana alla tíð.
Við njótum skólans í dag, hann er
„hjarta sveitarinnar" og enginn
vildi án hans vera.
Bregðumst aldrei bróðurheiti.
Bresti aldrei kærleiksþel.
Sérhver öðrum aðstoð veiti,
öll vor störf þá lánast vel.
Þegar góðvild geði stjómar,
göfgar jafnvel minnsta verk,
þegar viljinn þjónar, fómar,
þá er sveit vor heil og sterk.
(Pétur Siprðsson)
Já, hann var trúr í því sem hann
tók sér fyrir hendur, hann fórnaði
og þjónaði en hin síðari ár hefði
hann viljað sjá sveitina heilli og
sterkari, margir bæir komnir í eyði
og íbúunum fækkar stöðugt. það
olli honum áhyggjum og hann hefði
viljað lifa bættan hag bændastéttar-
innar, því hann var bóndi af Guðs
náð, unni skepnum og öllu lífi og
vann störf sín með hugarfari sem
margur mætti læra af.
Komin er kveðjustund. Við Einar
og börnin okkar kveðjum kæran vin
með þakklæti og virðingu og biðjum
honum Guðs blessunar í eilífri náð-
inni. Megi Drottin Guð styrkja og
hugga Ölmu og afkomendur alla.
Kristin Árnadóttir.
+
Bróöir minn og mágur,
JÓHANNESJÓNSSON
frá Kjalvegi,
Ennisbraut 18, ^
Ólafsvík,
lést á sjúkrahúsinu í Stykkishólmi 22. mars.
Kristfn Jónsdóttir,
Guðjón Bjarnason.
+
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móöir og amma,
BERTHA HELGA KRISTINSDÓTTIR,
Grensásvegi 47,
andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur að morgni
23. mars.
Halldór Þ. Nikulásson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR,
áður til heimilis
I Breiðumörk 5,
Hveragerði,
lést á Hrafnistu ( Reykjavík laugardaginn
22. mars.
Guðmundur Bjamason,
Steinunn Bjarnadóttir, Ingi Sæmundsson,
Hafsteinn Bjarnason,
Birgir Bjarnason,
Hildur Bjarnadóttir,
Guðrún Bjarnadóttir,
Björk Bjarnadóttir,
Kolbrún Bjarnadóttir,
Valdís Steingrímsdóttir,
Jónas Helgason,
Sigurjón Björnsson,
Morten Ottesen,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
INGVAR EINARSSON,
Hraunbraut 27,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju mið-
vikudaginn 26. mars kl. 13.30.
Þeir, sem vilja minnast hans, láti Krabba-
meinsfélagið njóta þess.
Anna V. Gissurardóttir,
Ingvar G. Ingvarsson,
Jóna Ingvarsdóttir,
Gróa Ingunn Ingvarsdóttir,
örn Ingi Ingvarsson,
Einar Ingvarsson,
Hrefna Ingvarsdóttir,
Sigurður Grlmsson,
Alan Ford,
Kristjana Ragnarsdóttir,
Kristfn Rut Haraldsdóttir,
Ólafur Hilmarsson,
barnabörn og barnabamaböm.
+
Systir okkar,
BIRNA S. BJÖRNSDÓTTIR,
sem búið hefur [ Danmörku, andaðist 22. mars
síðastliðinn.
Hildur Bjömsdóttir,
Arndís Björnsdóttir,
Gunnvör Braga Björnsdóttir,
Einar N. Björnsson,
Guðbjörg Halla Bjömsdóttir,
Kolbrún Þóra Björnsdóttir,
Hjalti Þór Bjömsson,
Sigurður Benedikt Björnsson.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
BENEDIKT JÓNSSON,
Skúlagötu 3,
Stykkishólmi,
lést á St. Fransiskus sjúkrahúsinu í Stykkis-
hólmi sunnudaginn 16. mars.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug.
Fjóla Edilonsdóttir,
Jón Benediktsson, Margrét Annie Guðbergsdóttir,
Elfn Edda Benediktsdóttir,
Guðrún Benediktsdóttir, Baldvin Indriðason
og barnabörn.
+
Eiginmaður minn og faðir okkar,
SIGVALDI ÞORLEIFSSON
útgerðarmaður,
Hornbrekkuvegi 9,
Ólafsfirði,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
20. mars.
Sigríður Gunnlaugsdóttir og synir.