Morgunblaðið - 24.04.1997, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 24.04.1997, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Forseti ASÍ um mögulega úrsögn VR úr Landssambandi verslunarmanna Harma þetta mál því sam- staða skilar mestum árangri GRÉTAR Þorsteinsson, forseti ASÍ, segist von- ast til að ekki komi til þess að Verzlunarmanna- félag Reykjavíkur segi skilið við Landssamband íslenskra verslunarmanna, en úrsögn félagsins úr LÍV hefði í för með sér að VR gengi jafn- framt úr ASÍ. „Ég harma að þetta mál skuli vera komið upp,“ segir Grétar. „Ég vona að mönnum takist að ná sáttum. Viðfangsefnið í verkalýðshreyfing- unni er að þétta raðirnar en ekki að leiðir skilji. Ég vona að okkur takist að hafa að leiðarljósi að samstaðan skilar mestum og bestum ár- angri,“ segir hann. Aðspurður segir Grétar að þrátt fyrir ágrein- ing um kjaramálastefnuna innan LÍV í vetur, hafi allt yfírbragðið á kjarasamningsgerðinni verið með svipuðum hætti og oft áður innan Alþýðusambandsins. „Landssamböndin fóru með samningsumboð og nokkur stór félög fóru með sín mál. Þetta er nánast sama mynstur og í samningunum árið 1995 og raunar oft áður. Það var vitað að það var uppi ágreiningur milli VR Formaður LÍV segir málið mjög alvarlegt og landssambandsins í aðdraganda samning- anna. Á síðasta Alþýðusambandsþingi kom upp nokkuð grimmur ágreiningur. Ég hef treyst því að menn myndu una þeim niðurstöðum, að sá árekstur væri lærdómur fyrir okkur öll í verka- lýðshreyfingunni og að við myndum sameinast um að koma í veg fyrir að slíkt endurtæki sig,“ segir Grétar. Sambandsstjórn LÍV boðuð til fundar Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, formaður LÍV, segir að þetta sé mjög alvarlegt mál og kveðst vonast til að það verði leyst utan fjölmiðla. „Ég vona að þessi umræða fari fram innan lands- sambandsins. Sambandsstjórnin hefur verið boðuð til fundar 24. til 25. maí til þess að taka á innri málefnunum. Landssambandið frestaði hins vegar þingi sambandsins sem halda átti 9. til 11. maí, fram á haust. Ástæðan var með- al annars tímaþröng vegna kjarasamninganna og það hjálpaði ekki til að þessi ágreiningur var uppi, því það þarf að taka á honum,“ segir Ingibjörg. Hún vill að málsaðilar setjist niður og kanni hvort ekki sé hægt að brúa það bil sem er á milli VR og LÍV. „Það hefur hins vegar ekki verið eingöngu ágreiningur og má benda á að á síðasta Alþýðusambandsþingi var samstaða verslunarmanna fullkomin og gekk ekki hnífur- inn á milli. Hið sama má segja um gerð kjara- samninganna 1995,“ segir hún. Ingibjörg segist vonast til að VR verði áfram aðili að LIV. Hún segist sjálf koma úr röðum VR og segir það rangt sem haldið hefur verið fram að verslunarmenn eigi ekki aðild að yfir- stjórn ASÍ en sjálf er hún varaforseti ASI og bendir hún á að tveir meðstjórnarmenn komi úr röðum forystusveitar VR. Náttúru- öflin á sýningu NEMENDUR í Fossvogsskóla í Reykjavík hafa í vetur unnið að þemaverkefni þar sem fjall- að er um náttúruna frá ýmsum hliðum. Yngstu börnin settu upp sýningu um náttúruöflin en eldri nemendur skiptu sér í hópa sem fjölluðu m.a. um fjöll, lækningajurtir í náttúru Islands, óbyggðir, örnefni og tröll, ströndina, náttúrusögur, landnytjar; vatn og náttúru- hamfarir. I gær, síðasta vetr- ardag, var foreldrum og öðr- um aðstandendum barnanna boðið að skoða vinnu vetrar- ins. Morgunblaðið/Kristinn Annar hópur Júgóslava í sumar PÁLL Pétursson félagsmála- ráðherra mun innan skamms leggja fyrir ríkisstjórnina til- lögur um móttöku á hópi flóttamanna frá Júgóslavíu en málið hefur verið í undirbún- ingi í félagsmálaráðuneytinu. Pjöldi flóttamannanna verður svipaður og síðast, eða 25-30 manns. Ráðherrann segir að gert sé ráð fyrir að hópurinn komi til landsins áður en langt verður liðið á sumarið, svo að tími gefist fyrir fjölskyldurnar að aðlagast áður en skólar hefjast. I samtali við Morgunblaðið sagði Páll að gert væri ráð fyrir að standa að móttökunni með svipuðum hætti og gert var síðast enda hefði það tek- ist vel og öll framkvæmd ver- ið Isfirðingum til sóma. Páll sagði að auglýst yrði eftir sveitarfélögum sem til- búin væru að taka á móti flóttamönnunum. Uppselt á Skunk Anansie UPPSELT er á tónleika bresku rokkhljómsveitarinnar Skunk Anansie sem haldnir verða í Laugardalshöllinni 10. maí nk. Ingvar Þórðarson, einn af aðstandendum tónleikanna, segir að ekki hafi selst jafn- hratt upp á nokkra tónleika síðan Led Zeppelin kom hing- að til lands fyrir um aldar- fjórðungi. Fimm þúsund manns verða í Laugardalshöllinni á tónleik- unum og meðal erlendra gesta sem boðað hafa komu sína eru upptökuiið frá sjónvarps- stöðvunum MTV og BBC. Landssamband íslenskra verslunarmanna var dæmt inn í Alþýðusambandið árið 1962 VERZLUN ARM ANNAFELAG Reykjavíkur er langstærsta stéttarfélagið innan Landssam- bands íslenskra verslunarmanna en af um 15.800 skattskyldum félagsmönnum LÍV í dag eru skatt- skyldir VR-félagar tæplega 12.000. Verslunarmenn eru fjórð- ungur fullgildra félagsmanna í ASÍ og er því ljóst að ef VR segir skil- ið við LÍV, eins og nú er til skoðun- ar, og gengur úr ASÍ, getur það haft veruleg áhrif á stöðu þessara stærstu launþegasamtaka á ís- landi. LÍV er 40 ára á þessu ári en það var stofnað árið 1957 og sótt- ist fljótlega eftir aðild að ASÍ. Félagsmenn LÍV voru þá nokkuð á fjórða þúsund talsins. Saga ASÍ hefur einkennst af miklum pólitísk- um átökum um áhrif, sem aðallega stóðu á milli verkalýðsflokkanna, sósíalista og krata, en vinstri arm- ur hreyfingarinnar fór með völdin frá 1954 þegar Hannibal Valdi- marsson var kosinn forseti ASÍ. Sjálfstæðismenn voru um þessar mundir í forystu í flest- ______ um félögum verslunar- manna og höfðu einnig komist til áhrifa innan nokkurra ASÍ-félaga. Alþýðusambandsþing ' árið 1960 hafnaði aðild verslunar- manna og höfðaði landssambandið þá mál fyrir Félagsdómi. Dómur- inn klofnaði en hinn 12. nóvember 1962 felldi meirihluti Félagsdóms Pólitísk átök urðu __ um aðild LÍV að ASÍ Mikil pólitísk átök urðu um aðild Landssambands verslunarmanna að ASÍ fyrír 35 árum en þeir atburðir eru taldir upphafíð að því „þjóðstjómarfyrirkomulagi“ og valdahlutföllum stjórnmálaflokk- anna, sem einkennt hafa forystu verkalýðshreyfíngarinnar. Ómar Friðriksson rifjar upp þessi átök. Hótuðu að lýsa ASÍ-þing ið ólöglegt þann úrskurð að ASÍ væri skylt að veita LÍV inngöngu í samband- ið með fullum og óskoruðum rétt- indum sem stéttarfélagasamband. Tveir dómarar skiluðu sératkvæði og vildu sýkna ASÍ af kröfum _______ verslunarmanna. For- maður LÍV á þessum tíma var Sverrir Her- mannsson, núverandi bankastjóri Landsbank- “ans, og formaður Verzl- unarmannafélags Reykjavíkur var Guðmundur Garðarsson fyrrv. al- þingismaður. Hannibal Valdi- marsson var formaður ASÍ þegar þessi átök stóðu sem hæst. Hannibal lýsti dómnum sem alvar- legri árás á innri réttindi og grundvallaratriði verkalýðshreyf- ingarinnar. Samtökin ættu sjálf að ráða hverjir teknir yrðu inn í sambandið. Hatrömm átök urðu um málið á ASÍ-þingi sem hófst nokkrum dögum eftir að úrskurður félags- dóms Iá fyrir. 33 fulltrúar versl- unarmanna mættu til þingsins og afhentu kjörbréf sín en bið varð á að þau yrðu tekin til afgreiðslu. Upphófust harðar deilur á þinginu og í dagblöðum um málið og sök- uðu talsmenn fylkinganna sem tókust á forystumenn flokka um að leggja á ráðin í pólitískum til- gangi. Féllu þung orð um svik, lögleysur og gerræði í umræð- unni. Gagnrýndu sjálfstæðismenn framsóknarmenn harðlega fyrir að ganga í lið með kommúnistum en alþýðuflokksmenn ___________ lögðust á sveif með sjálfstæðismönnum og studdu inngöngu versl- unarmanna. Gengið var til atkvæðagreiðslu um ““ hvort fulltrúar verslunarmanna mættu sitja þingið með fullum réttindum. Varð niðurstaðan sú að því var hafnað með 177 atkv. gegn 151. Dómurinn sagðurárás á innri réttindi í afmælisriti ASÍ sem gefið var út á 80 ára afmæli sambandsins á síðasta ári var rakin saga sam- bandsins. Þar segir m.a. um þessi átök: „Á þingi ASÍ 1962 voru samþykkt harðorð mótmæli gegn úrskurðinum sem sagður var svipta félög réttinum til að ákvarða hverjir væru meðlimir. Verslunarmönnum var veitt leyfi til að sitja þingið en ekki var sagð- ur tími til að kanna kjörbréf þeirra. Verslunarmenn mótmæltu og gengu af fundi en sá hluti ASÍ sem studdi inntöku LÍV hótaði að lýsa þingið ólöglegt. Deilan var hápólitísk því sjálfstæðimenn voru í forystu í flestum félögum versl- unarmanna. Viðreisnarstjórn var nýtekin við og studdu alþýðu- flokksmenn og sjálfstæðismenn innan ASÍ aðild LÍV en alþýðu- bandalagsmenn og framsóknar- menn stóðu á móti með forsetann, Hannibal Vajdimarsson, í fylk- ingarbrjósti. Óttuðust þeir að inn- ganga verslunarfólks myndi riðla valdahlutfallinu í sambandinu. _________ Ólgan rénaði þó fljótt og LÍV-menn sátu næsta þing, 1964, sem fullgildir þingfulltrúar _____ og hafa gert það síðan.“ Talið er að þessir at- burðir hafi markað upphafið að því óformlega „þjóðstjórnarfyrirkomu- lagi“ á milli stjórnmálaflokkanna sem tryggði þeim áhrif í forystu verkalýðshreyfingarinnar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.