Morgunblaðið - 24.04.1997, Page 56

Morgunblaðið - 24.04.1997, Page 56
56 FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Tommi og Jenni Veistu hvað mig langar til að gera? Þetta er það sem Meðal annarra orða, það Aprílgabb! Mig langar til að segja þér að Iitla mig langar virki- er risaeðla að skríða upp rauðhærða stelpan sé komin, og þeg- lega til að bakið á þér___ ar þú þýtur út til hennar þá hrópa gera ... ég: „Aprílgabb!" BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 5691329 Enn um húmor Guðs sonar Frá Birnu Smith: KYNGJUM við því skömmustuleg og sem syndugar og útskúfaðar manneskjur úr Guðsríki, að við skyldum hlæja með grínurum lands- ins að spaugi þeirra um svo háleitar verur, eins og Krist og lærisveina hans á sjálfri páskahátíðinni. Ætli Guði sé betur þjónað með því, að við högum okkur öðruvísi um jól og páska en aðra daga ársins. Og á kirkjan að setja þær reglur? Ef hr. Ólafur Skúlason og fleiri áber- andi menn í þjóðfélaginu hafa getað þolað hið háðslega grín spaugstofu- manna og annarra spaugara hingað til, þá held ég að Kristur, lærisvein- arnir og Guð sjálfur hljóti að fyrir- gefa smápáskaspaug frá hendi þessara snillinga. Það er reginmis- skilningur að Kristur setji sig á stall ofar öðrum mönnum. Sjálf sá ég ákveðin boðskap í páskaspaugi grínaranna, eins og oft áður hjá þeim grínurum, þeir benda okkur oftar á spillingu þjóð- félagsins, og sýna okkur oft okkur sjálf í hnotskurn með spaugi sínu. Eg held að Kristur komi oftar skila- boðum sínum til skila í gegnum þá spaugstofumenn en marga aðra prédikara landsins. Enda áhorf- endahópurinn hvað mestur þar. Ég held einnig að Kristur sé þar sem gleðin er og hláturinn. Mundum við ekki fara oftar i kirkjur landsins ef við fyndum fyrir Kristi þar? Guðlast? Ég er farin að stórefast um að kirkjunnar menn hafi skilið hlutverk sitt rétt, er predikun þeirra ekki farin að taka ranga stefnu? Mér er það minnisstætt þegar hr. Ólafur Skúlason sá ástæðu til að koma fram í sjónvarpinu og predika yfir landslýð að það væri nánast guð- last af kaupmönnum að hvetja fólk til jólainnkaupa strax í nóvember. Er ég að syndga ef ég kaupi jóla- gjafir í ágúst á útsölu, mér til sparn- aðar og hagræðingar? Hvað segja þá prestar um jólahúsið á Akureyri þar sem jólalög eru spiluð og jóla- sveinar seldir allt árið, er það líka guðlast? Ég held að það væri illt í efni ef við létum vegna minnimátt- arkenndar okkar, hroka hinna „mikillærðu" presta villa okkur sýn á sannleikann og láta þá teyma okkur í blindni og með múgsefjun. Áttu prestar ekki frekar að boða okkur fagnaðarerindi Krists, sem var umburðarlyndi Guðs og óskil- yrtur kærleikur okkur til handa, en að setja sig á stall æðsta dómara og látast vera þess umkomnir að segja öðrum og ákveða hvað er rétt og rangt og hvað sé guðlast og hvað ekki? Geta þeir t.d. sagt okkur og ákveðið að menn séu á villigötum í öðrum trúarbrögðum, og jafnvel innan kirkjunnar einnig? Eins og haft var eftir séra Karli Sigur- björnssyni nýverið í tímariti. Að syndugur maður sé alltaf á villigöt- um. Ég spyr hver er syndugur og hver er á villigötum? Getur virkilega sá maður sem leitar í einfaldleika sínum að trúnni á Guð, hvaða trúfé- lagi sem hann tilheyrir verið á villi- götum? Stöndum við ekki öll jöfn frammi fyrir Guði í leit okkar að sannleikanum mikla. Jafnvel páfinn í Róm einnig? Hefur hús Guðs ekki margar dyr? Þjónum við ekki best Guði með því að leggja niður vopn okkar, takast í hendur og hlusta í bróðerni hvert á trú annars? Er ekki eitthvert sannleikskorn að finna í öllum trúarbrögðum? Koma þau ekki frá Guði líka? Ég er ansi hrædd um að ef prest- ar hætti ekki að upphefja sig og trú sína með svona hroka, stofni þeir hinum lúterska söfnuði í mikla hættu. Viljum við ekki líka ákveða sjálf hvort við tilheyrum einhveijum kirkjusöfnuði eða ekki, hvert okkar tíund fer, og hvort börn okkar eigi að fæðast inní einhvern ákveðinn söfnuð eða hafi val, og að þau verði betur upplýst um önnur trúarbrögð, hreinni og dýpri kristna trú en lút- erska kirkjan hefur verið fær um að veita þeim. Hún hefur frekar staðið vörð um þann aðgang. Megi Kristur vaka yfir þjóð okkar og gefa henni sanna trú. BIRNA SMITH húsmóðir. Samheiji - Frá Guðmundi Erni Jóssyni: HLUTAFJÁRÚTBOÐ Samheija á dögunum vakti athygli mína líkt og annarra landsmanna. Hinn mikli uppgangur og hagnaður þess fyrirtækis er aðdáunarverður en ekki öfundsverður. Þar sem stjórn- endur þess fyrirtækis fara, fara greinilega menn sem kunna að reka útgerð. Það er ekki langur tími síðan þeir hófu hana og á þeim tíma hafa þeir sýnt að þeir eru réttir menn á réttum stað, öll- um landsmönnum til hagsbóta. Það er því mikil mikil missir að aðrir hæfir menn skuli ekki geta fetað í fótspor þeirra. Farið út í útgerð á jafnréttisgrundvelli við einsdæmi þá sem þar fyrir eru, sjálfum sér og landsmönnum öllum til hagsbót- ar. í sjávarútvegi, líkt og landbún- aði, er búið að koma á sérleyfa- kerfí sem kemur að mestu leyti í veg fyrir að nýir menn komist inn í atvinnugreinarnar. Það kemur því ekki á óvart að þessar tvær grein- ar eru ekki vaxtarbroddamir í ís- lensku atvinnulífí í dag. Nýir menn fá ekki tækifæri til að spreyta sig og Samheiji er og mun verða einsdæmi. GUÐMUNDUR ÖRN JÓNSSON, Georg-Friedrich-Str. 19 76131 Karlsruhe, Þýskalandi. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.