Morgunblaðið - 24.04.1997, Blaðsíða 58
58 FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Slysavarnafélag íslands
auglýsir breyttan opnunartíma
frá 2. maí til 1. október.
Skrifstofa félagsins á Grandagarði 14,
verður opin alla virka daga frá kl. 8.00-16.00.
Verslun félagsins er opin frá kl. 13.00-17.00.
Gleðilegt sumar!
Slysavarnafélag íslands
H J L
w
^Kolaportid
opid í dag sumardaginn 1.
Gœda matvæli Fallegar
a góðu verði sumargjafir
Þegar búiS er "Sfvilli
að versla er upplagt að fá sér kolaportsís,
pylsu eða rjúkandi gott kaffi í Kaffi Porti.
ötteuýuíep
áí. Í4. 00 o? 16:00
Rut Hermannsdóttir er 21 árs nýr og ferskur fatastíliser sem vakið
hefur mikla athygli. Fatnaðurinn er athyglisverður fyrir blönduð
áhrif úr nútímatísku og allt aftur til aldamóta.
MPII010^01
IVIr W»um næstu heli
r
helgi
Það eru kompudagar i Kolaportinu
um næstu helgi. Fjársjóðsstemmningin
er frábær og mannlífið fjörugt.
Kompubásinn lcr. 31300,- á dag
Pantanasími er 562 5030
KOLAPORTIÐ ^
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 11 >17
IDAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags
Áfólkí
hjólastólum
rétt á að
skemmta sér?
SÍÐAN ég slasaðist hef
ég þurft að notast við
hjólastól. Frá þeim tíma
hefur mér liðið eins og
hálfgerðum gyðingi á
tímum Hitlers, það er alls
staðar látið eins og maður
sé með holdsveiki og ég
get ekki farið neitt án
þess að fólk glápi.
En í gær varð mælirinn
fullur þegar ég reyndi að
kanna hvar ég gæti setið
og séð vel á tónleikunum
hjá Skunk Anansie, sem
verða haldnir í Laug-
ardalshöllinni 10. maí
næstkomandi. Þar svaraði
kona í símann, sem vissi
ekki um hvað hún var að
tala, en kom með þá „frá
bæru“ hugmynd að ég
gæti bara verið á gólfinu,
þar sem fólk væri hopp-
andi og skoppandi og yrði
þá bara sennilega troðin
undir og sæi auðvitað ekk-
ert. Það er eins og fólk í
hjólastólum eigi engan
rétt á að skemmta sér eins
og hinir. Ég þurfti að
hringja á 6 staði til að fá
einhver svör varðandi
sómasamlegt sæti á
ofangreindum tónleikum.
Á Aðalstöðinni sagði loks
maður, Þormóður að
nafni, að þessu yrði
bjargað. Ég á að fá sóma-
samlegt sæti.
Guðrún J.
Jónsdóttir.
Barnabætur
hækki við
12 ára aldur?
VELVAKANDA barst
eftirfarandi:
„Við þær umræður sem
verið hafa undanfarna
daga í flölmiðlum vegna
bamabóta datt mér í hug
hvort ekki væri kominn
tími á að barnabótum væri
breytt. Ég er þriggja bama
móðir og hef fengið barna-
bætur í nokkur ár. Eins
og allir vita lækka barna-
bætur við sjö ára aldur
bams og þá erum við kom-
in að því sem ég vildi fjalla
um. Af hveiju að lækka
barnabætur við sjö ára ald-
ur? Hvers vegna ekki að
hafa þær lægri fram að sjö
ára aldri og hækka þær
síðan eftir því sem börn
eldast? Mín reynsla er sú
að eftir því sem börnin eld-
ast því dýrari verða þau í
rekstri og ekki síst þegar
börnin em komin yfir tólf
ára aldur. Þá fara þau að
gera ýmsar kröfur, bæði
varðandi félagslíf og ekki
síður í fatavali. Ef þau
stunda einhveija íþrótt þá
kostar það morðfé. Nú má
enginn misskilja mig, ég
læt mjög lítið eftir mínum
bömum, einfaldlega vegna
þess að ég hef ekki efni á
því að dekra við þau. Þess
vegna datt mér þetta í
hug. Er þetta ekki eitthvað
sem alþingismenn gætu
haft í huga þegar farið
verður að hrófla við bama-
bótunum."
Einstæð móðir.
Tapað/fundið
Parker-penni
PARKER-penni, merktur
Pálína og símanúmeri
555-1502, tapaðist fyrir
áramót. Ef einhver hefur
fundið pennann er hann
vinsamlega beðinn að
hringja í síma 587-1714.
Gæludýr
Týndur köttur
MJÖG gæfur, svartur
fressköttur tapaðist frá
Sjafnargötu 14, þriðjudag-
inn 15. þ.m. Hann var með
rauðköflótta hálsól sem
gæti hafa dottið af honum.
Geti einhver gefið upplýs-
ingar um köttinn er sá vin-
samlega beðinn að hringja
í síma 552-5886 og er
fundarlaunum heitið.
HVÍTUR mátar í sjötta leik.
SKÁK
IJm.sjón Margelr
Pétursson
VIÐ höldum áfram þar sem
frá var horfið í gær. Ana-
tólí Karpov (2.760) hafði
hvítt og átti leik í blindskák
við Vladímir Kramnik
(2.740) á móti í Mónakó.
Við skulum fyrst skoða
hvernig skákin tefldist: 40.
Bxe8?? - Rxd2+ 41. Ka2 -
Rxfl 42. Df7?? (Karpov var
ennþá með betra eftir 42.
Bxb5! Nú fær Karpov unn-
ið, en Kramnik leikur skák-
inni niður í framhaldinu)
42. - Df2 43. Dd7 - Dd4
44. Dh3 - Dc4+ 45. Kal
- Re3 46. Bg6 - h6 47.
Dd7 - Rc2+ 48. Kbl -
Rxa3+ 49. Kal - Rc2+
50. Kbl - Ra3+ 51. Kcl??
(Það er fífldirfska að tefla
til vinnings. Nú fær Karpov
ekki fleiri tæki-
færi) 51. -
Be3+ 52. Kdl
- Db3+ 53.
Kel - Rc2+
54. Kfl - Dg8
55. Rd5? -
Df8+ 56. Bf7 -
Bg5 57. e5 -
Rd4 58. e6 -
d2 59. Rc3 -
Dd8 60. Kg2 -
Dxd7 61. exd7
- b4 62. Rdl -
a5 63. b3 - g6
64. Bxg6 -
Kg7 65. Bh5 -
Rxb3 66. Re3
- Rc5 67. Rc4
- a4 68. Rxd2 - a3 og
Karpov gaf.
Mátið var hins vegar
þannig: 40. Df7! - Rxd2+
41. Ka2 - Db8 (Eða
41...Hg8 42. Dxg8+ -
Kxg8 43. Be6+ - Kh8 44.
Hf8 mát) 42. Bxe8 - h6
43. Df8+ - Kh7 44. Bg6+
- Kxg6 45. Df5 mát.
Skrautleg viðureign
þetta. Skákin skipti oft um
eigendur og tveir sjáandi
viðvaningar á kaffihúsi
hefðu vel getað teflt hana.
Það er þó öruggara að gera
ekki of mikið grín að þess-
um köppum, því fyrirhugað
er að halda íslandsmót í
blindskák innan skamms!
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um af-
mæli, brúðkaup, ættar-
mót o.fl. lesendum sínum
að kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að ber-
ast með tveggja daga fyr-
irvara virka daga og
þriggja daga fyrirvara
fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælis-
barns þarf að fylgja
afmælistilkynningum
og eða nafn ábyrgðar-
manns og símanúmer.
Fólk getur hringt í sírna
569-1100, sent í bréfsíma
569-1329. Einnig er hægt
að skrifa:
Dagbók
Morgunblaðsins,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík
Víkveiji skrifar...
UNNINGI Víkveija sagðist
dauðleiður á sífri roskinna tón-
listarunnenda um það hve allt hafi
verið betra í „gamla daga“. Hann
segir að svo virðist sem þeir sem
hlustað hafi á sígilda tónlist í árarað-
ir séu þeirrar skoðunar að fyrir ein-
hver afglöp þróunarinnar fæðist
ekki lengur listamenn sem standist
samjöfnuð við menn fyrri tíma. Ekki
var kunninginn á því og benti á að
fjölmörg verk hafi á sínum tíma
verið talin óspilandi en séu nú á
námskrá nemenda í hljóðfæraleik.
Málum sé svo háttað að þeir sem
leggi stund á hljóðfæraleik í dag séu
velflestir betur á sig komnir líkam-
lega, hraustari og þolnari, sem skipti
máli þegar leikin eru erfið verk og
löng. Til að rökstyðja mál sitt benti
kunninginn á píanókonsert Henselts,
sem Rubinstein sagði að væri óspil-
andi vegna þess að höfundurinn
hefði verið með vanskapaðar hend-
ur, en fyrir nokkru kom út diskur
þar sem hann er fluttur af glæsi-
legri fimi af ungum kanadískum
píanóleikara. Fleiri dæmi nefndi
kunninginn um framúrskarandi
unga hljóðfæraleikara en sló þann
varnagla að þó fjölmargir ungir
fiðluleikarar gætu leikið verk Pagan-
inis af meira öryggi og hraðar en
Yehudi Menuhin þegar hann var upp
á sitt besta, væru þeir ekki endilega
betri tónlistarmenn.
xxx
MÖRGUM er sumarbiðin löng
og þannig fór Víkveija á
sunnudaginn, að vorhugur hans
hljóp í sumarið og hann tók forskot
á sælar sumarkveðjur. Dagatalið
segir sumarið heilsa með Hörpu í
dag. Reyndar minnti veturinn á sig
í millitíðinni og um stund var hvítt
út um giugga Víkveija að líta. Það
hret stóð þó stutt og nú gróa grund-
ir grænar. Víkveiji flytur lands-
mönnum ítrekaðar óskir um gleði-
legt sumar.