Morgunblaðið - 15.05.1997, Side 8
8 FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
, gefur lítið fyrir skýrslu hagfræðikennaranna
erumeð ólíkindum
'"llllllillílll 111«
ímir varla að
nnHHn
Sænski erkibiskupinn hóf Norðurlandaheimsókn sína á Islandi
Kirkjur með sameiginleg'a
sögu og svipaða stöðu
Fjórðungur presta 1 sænsku kirkjunni eru konur
Morgunblaðið/Þorkell
SÆNSKI erkibiskupinn K.G. Hammar.
NÝVÍGÐUR erkibiskup Svía, K.G.
Hammar, er nú á ferð um Norður-
lönd, þar sem hann ræðir við kirkj-
unnar menn og kynnir sér starf
þjóðkirkjunnar. Fyrsti áfangastað-
urinn var Reykjavík, þar sem hann
dvaldi í sólarhring og síðdegis í
gær var svo ferðinni heitið til
Kaupmannahafnar, þá Óslóar og
Ábo. Með honum í för er fram-
kvæmdastjóri og ritari erkibisk-
upsembættisins, Klas Hansson.
Hammar var settur inn í erki-
biskupsembættið í febrúar síðast-
liðnum. Tilgangur hans með Norð-
urlandaferðinni er sá að fregna
hvað nágrannamir eru að gera,
hvað hinar norrænu lúthersku
kirkjur eiga sameiginlegt og hvað
þær geta lært hver af annarri.
„Sem erkibiskup ber ég ábyrgð
á tengslunum við aðrar kirkjur og
ég tel mikilvægt að bytja á okkar
næstu nágrönnum. Þetta eru líkar
kirkjur með sameiginlega sögu og
svipaða stöðu í þjóðfélaginu,“ sagði
hann í samtali við Morgunblaðið.
„Við verðum að gæta þess að missa
ekki tengslin við okkar nánasta
umhverfi.“
Porvoo-sáttmálinn mjög
þýðingarmikill
Hann sagði svokallaðan Porvoo-
sáttmála mjög þýðingarmikinn fyr-
ir samstarfið, en hann er samning-
ur lúthersku kirkjunnar á Norður-
löndunum og í Eystrasaltsríkjun-
um og ensku biskupakirkjunnar
um gagnkvæma virðingu fyrir
vígslum, sakramentum og helgisið-
um kirknanna. Sáttmálinn dregur
nafn sitt af finnsku borginni
Porvoo í Finnlandi, þar sem fyrsta
skrefið í átt að slíku samkomulagi
var stigið fyrir um fjórum árum.
í Svíþjóð eru þrettán biskupar
eða einn í hveiju stifti en þau eru
sjálfstæðar einingar. Erkibiskup-
inn er ekki yfirmaður biskupanna,
fremur einskonar sameiningartákn
kirkjunnar inn á við og andlit henn-
ar útávið, eftir því sem hann orðar
það sjálfur.
Fyrsti sænski kvenbiskupinn
vígður í Lundi í haust
Hammar var áður biskup í Lundi
en nú hefur eftirmaður hans þar
verið kjörinn Christina Odenberg,
fyrsta konan sem gegna mun emb-
ætti biskups. Hún hefur að vísu
enn ekki verið ráðin formlega en
Hammar segir að frá því verði
gengið í byrjun júní og hún vígð
til biskupsembættisins í október.
Ákveðinn hópur karlpresta inn-
an sænsku kirkjunnar hefur sýnt
kjöri kvenbiskups mikla andstöðu
og hafa þeir lýst því yfir að þeir
muni aldrei viðurkenna hana sem
andlegan leiðtoga. Erkibiskupinn
kveðst ekki hafa á hraðbergi lausn
á þessari spennu innan kirkjunnar
en segir að þessi hópur verði að
gera það upp við sjálfan sig hvort
hann segir sig úr kirkjunni.
Um fjörutíu ár eru liðin frá því
að fyrstu kvenprestarnir voru
vígðir og eru konur nú um 25%
af sænsku prestastéttinni. í
ákveðnum stiftum, eins og Lundi
og Stokkhólmi, er hlutfall kvenna
um 40%. Því kveðst erkibiskupinn
ekki sjá neitt því til fyrirstöðu að
konur verði biskupar rétt eins og
karlar.
Kirkjulistahátíð sett á hvítasunnudag
Nýsköpun í margs
konar listum
Sigríður Jóhannsdóttir
SJÖTTA kirkjulistahá-
tíðin í Hallgríms-
kirkju verður sett á
hvítasunnudag en að henni
standa Listvinafélag Hall-
grímskirkju, bæði Reykja-
víkurprófastsdæmin og
biskup. Sigríður Jóhanns-
dóttir veflistarmaður er
fulltrúi Listvinafélagsins í
framkvæmdanefnd kirkju-
listahátíðar og hefur tekið
að sér upplýsingamiðlun.
Aðrir í framkvæmda-
nefnd hátíðarinnar eru
Hörður Áskelsson organisti
sem er formaður hennar,
Andrés Narfi Andrésson,
Gunnar Harðarson og Jó-
hann E. Björnsson. Fram-
kvæmdanefndin sér um all-
an undirbúning en fram-
kvæmdastjóri er Jóhanna
Árnadóttir.
Hver eru helstu einkenni
kirkjulistahátíðar?
„Það er tvímælalaust sú ný-
sköpun sem hún leiðir af sér,
ekki aðeins á sviði tónlistar held-
ur myndlistar og leiklistar og
hefur stjórn kirkjulistahátíðar
hveiju sinni óskað eftir liðveislu
hinna ýmsu listamanna og hvatt
þá til nýsköpunar. Á síðustu há-
tíð var til dæmis skrifað leikverk-
ið „Heimur Guðríðar“, sem síðan
hefur verið sýnt víða um land, í
ár voru níu myndlistarmenn
fengnir til að vinna tillögur að
nýjum listaverkum fyrir níu nýjar
kirkjur á höfuðborgarsvæðinu og
öll árin hafa tónskáld samið ný
verk sérstaklega fyrir hátíðina
sem oft hafa lifað áfram.“
Sigríður segir að einmitt þetta
atriði, að verk sem samin eru
fyrir listahátíð lifi áfram, sé ein
af ástæðunum fyrir því að mikið
sé lagt upp úr samvinnu við lista-
menn sem leiði til nýsköpunar.
„Hátíðin hefur verið haldin annað
hvert ár eftir að kirkjan var vígð
og má segja að hún sé eins konar
framhald af vígslunni, uppskeru-
hátíð sem haldin er á móti listahá-
tíð í Reykjavík.“
Hver verður þáttur myndlistar
á Kirkjulistahátíð að þessu sinni?
„Níu myndlistarmenn voru
fengnir til að gera tillögur að
nýjum myndverkum í níu kirkjur
í Reykjavíkurprófastsdæmunum
báðum. Þær eiga það sameigin-
legt að innan við 10 ár eru frá
vígslu þeirra. Listamennirnir
fengu fijálsar hendur og verða
líkön verkanna sýnd í Hallgríms-
kirkju auk mynda af þeim í réttu
umhverfi. Arkitektar kirknanna
taka einnig þátt í sýningunni með
því að skýra út þær hugmyndir
sem liggja að baki byggingunum
sjálfum."
í tengslum við myndlistina
verður haldið málþing um efnið:
Hvað er kirkjulist? Fer það fram
í stofu 101 í Odda laugardaginn
24. maí og viku síðar verður
Friedhelm Mannekes
með fyrirlestur í Nor-
ræna húsinu. Hann
er forstöðumaður
Kunst-Station St.
Peter kirkjunnar í
Köln og segir Sigríður hann hafa
verið óþreytandi í að kynna nútí-
malist í kirkjum og að mikill feng-
ur sé að komu hans hingað.
Hver eru helstu tónlistaratriðin?
„Þar ber hæst nýjan orgelkon-
sert eftir Hjálmar H. Ragnarsson
sem fluttur verður Fimmtudags-
kvöldið 29. maí, kórverk eftir
Hróðmar Inga Sigurbjörnsson og
nýtt sálmalag eftir Jón Ásgeirs-
son við sálm sem Sigurbjörn Ein-
arsson samdi fyrir hátíðina. Sálm-
urinn og kórverkið verða frum-
flutt í hátíðarmessu á hvítasunnu-
►SIGRÍÐUR Jóhannsdóttir er
fædd í Reykjavík 1948. Hún
tók vefnaðarkennarapróf frá
Myndlista- og handíðaskóla
Islands 1969 og stundaði fram-
haldsnám í Ósló í eitt ár og
víðar á Norðurlöndum. Hún
kenndi við MHÍ árin 1970-75
og hefur starfað sem veflista-
maður síðan. Hún er í stjórn
Listvinafélags Hallgríms-
kirkju og Listasafns hennar.
Maður Sigriðar er Leifur
Breiðfjörð glerlistamaður og
hefur hún frá árinu 1971 verið
aðstoðarmaður hans. Synir
þeirra eru tveir.
dag og um leið verður vígt nýtt
hljómborð orgelsins í kirkjunni."
Hvað þýðir það varðandi notk-
un orgelsins?
„Hljómborðið, sem er niðri í
kirkjunni, gefur alveg nýja mögu-
leika til flutnings á tónverkum
með kórum og öðrum flytjendum
í kirkjunni og svo auðvitað í tón-
listarflutningi í helgihaldinu
sjálfu með söfnuðinum. Hljóm-
borðið er færanlegt sem þýðir að
hægt er að hafa breytilega upp-
stillingu eftir því sem tónlistin
sjálf og fjöldi og samsetning flytj-
enda krefjast."
Er þetta aðeins hátíð Hall-
grímskirkju?
„Nei, því þrátt fyrir að flest
atriði hátíðarinnar fari fram í
Hallgrímskirkju viljum við að all-
ar sóknir á höfuðborgarsvæðinu
og auðvitað Reykvíkingar og
landsmenn allir líti hana sem sína
hátíð enda hefur komið í ljós að
hana sækir fólk úr öllum áttum.
Hátíðin hefur líka fengið fjár-
hagslegan stuðning úr öllum átt-
um, frá fyrirtækjum og stofnun-
um, ríki og Reykjavíkurborg, sem
reyndar er lægri í ár en fyrri ár,
auk framlaga frá kirkjunni en
mjög hátt hlutfall tekna kemur
einnig með aðgangseyri eða hátt
í 40%. Þar fyrir utan leggja fjöl-
margir einstaklingar
fram ýmiss konar skerf
í vinnu og með öðrum
stuðningi."
Stendur hátíðin und-
ir sér fjárhagsiega?
„Við þurfum þriggja milljóna
króna tekjur með aðgangseyri og
tel ég það nokkuð raunhæft. Við
gerum ekki ráð fyrir að neinn
sæki alla viðburði hátíðarinnar
en hún er fjölbreytt, dreifist á
tvær vikur og margir ættu að
geta fundið þar eitthvað á áhuga-
sviði sínu.“
Verður sjöunda hátíðin svo eft-
ir tvö ár?
„Það verður að koma í ljós en
gangi hún jafn vel og hátíðirnar
hingað til er ekkert því til fyrir-
stöðu.“
Fjölmargir
stuðnings-
menn