Morgunblaðið - 15.05.1997, Page 10

Morgunblaðið - 15.05.1997, Page 10
10 FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sólveig Lilja fulltrúi Islands í keppninni um Ungfrú alheim á morgun Stolt að keppa fyrir ísland Morgunblaðið/Ásdís SÓLVEIG Lilja Guðmundsdóttir kveðst bjartsýn á möguleika sína í keppninni um Ungfrú alheim, en hins vegar skipti meira máli að kynnast fyrirkomulagi hennar og að vera fulltrúi Islands. Afmæli H-dagsins Hámarks- hraði verði virtur LÖGREGLAN á Suðvestur- landi hyggst efna til átaks á tuttugasta og níunda afmælis- degi hægri umferðar á íslandi 26. maí næstkomandi, í því skyni að halda hámarkshraða innan leyfilegra marka. Átakið er í samvinnu við ýmis félög og aðila tengda akstri og öku- tækjum. Á fundi samstarfsnefndar lögreglu á Suðvesturlandi í umferðarmálum í vikunni var rætt um að vekja fólk til um- hugsunar og hvetja ökumenn til að aka innan leyfilegra há- markshraðamarka á hverjum stað. Of mikill hraði slysavaldur „Við viljum gera alla öku- menn meðvitaða um leyfðan hámarkshraða og að þeir aki í samræmi við hann. Það gæti orðið einhverjum erfitt en flestum ætti að takast að virða mörkin með góðri einbeitingu. Þá er og forvitnilegt að sjá hvað gerist í umferðinni þegar „allir“ aka um innan þessara marka,“ segir Ómar Smári Ármannsson, aðstoðaryfirlög- regluþjónn í Reykjavík. Lögreglan mun þennan dag beina athyglinni að ökuhraða á götum og vegum og segir Ómar Smári það von lögreglu- manna að afskipti þurfi að hafa af sem fæstum og eru ökumenn hvattir til samstarfs um að virða ökuhraðann. „Á vorin eykst ökuhraðinn og alvarlegri afleiðingar um- ferðarslysa í samræmi við þá aukningu. Ávinningur öku- manna er ekki einungis sá að geta sparað sér verulegar upp- hæðir í sektargreiðslur, heldur er það ekki síður ávinningur allra að draga úr líkum á slys- um, kostnaði þeirra vegna og þjáningum sem þeim fylgja," segir Ömar Smári. Sími 555-1500 Kópavogur Foldarsmári Glæsilegt ca 140 fm nýlegt raðhús á einni hæð. Áhv. ca 5,5 millj. Verð 11,8 millj. Reykjavík Leirubakki Góð 4ra herb. íb. ca 90 fm á 3. hæð. Fráb. útsýni. Verð 6,6 millj. Hafnarfjörður Breiðvangur Sérlega glæsileg ca 190 fm neðri sérh. i tvíb. auk bílskúrs. 5 svefnh. Áhv. byggsj. ca 2,7 millj. Verð 13,2 millj. Gunnarssund Til sölu er góð 3ja herb. íb. á jarðh. Breiðvangur Mjög góð 5 herb. ca 112 fm íb. á 2. hæð. Laus fljótl. Verð 8,4 millj. Álfaskeið Einbýlishús á tveimur hæðum með hálfum kj., samtals 204 fm. Mikið endurn. Ath. skipti á lítilli (b. Reykjavíkurvegur Glæsileg 2ja herb. íb. á 3. hæð. Lítið áhv. Verð 4,3 millj. Vantar eignir á skrá Fasteignasala, Strandgötu 25, Hfj. Árni Grétar Finnsson, hrl. Stefán Bj. Gunnlaugsson, hdl. SÓLVEIG Lilja Guðmundsdóttir, fegurðardrottning Islands árið 1996, keppir á morgun í keppn- inni um Ungfrú alheim í Miami á Flórída. Sólveig Lilja fór utan 1. maí og segir keppendurna, sem eru 76 talsins, hafa fyigt stífri dag- skrá síðan þá, enda oftast verið lengri tími til undirbúnings í fyrri keppnum. Búin að hitta Trump „Við vöknum á milli sex og sjö á morgnana og komumst ekki í rúmið aftur fyrr en um mið- nætti. Þegar við fengum einn morguninn að sofa til níu fannst okkur við hafa himin höndum tekið. Auk æfinga erum við m.a. búin að halda tvær sýningar sem eru einskonar undanfarar aðal- kvöldsins og meðal annars er valinn fegursti þjóðbúningurinn. Á kvöldin erum við kynnt fyrir ýmsum mektarmönnum í boðum og veislum, blaðamönnum og fólki sem tengist þessum heimi. HÖRÐ gagnrýni kom fram við aðra umræðu á Alþingi í gærmorgun um stjórnarfrumvarp til iaga um Lána- sjóð landbúnaðarins, sem taka á yfir Stofnlánadeild landbúnaðarins, og sagði Egill Jónsson, Sjálfstæðis- flokki, að um væri að ræða ólög sem hann myndi ekki styðja þótt þau kæmu frá ríkisstjórninni. Gagn- rýndi hann sérstaklega ákvæði frumvarpsins um ákvörðun útlána úr sjóðnum og tryggingar fyrir lán- um. Guðni Ágústsson Framsóknar- flokki, formaður landbúnaðar- nefndar, mælti fyrir nefndaráliti um frumvarpið frá meirihluta landbún- aðarnefndar þar sem mælt er með samþykkt frumvarpsins með nokkr- um breytingum sem hann sagði aðallega snúast um ýmis tæknileg atriði. Aðeins stórbændur geti fengið lán Lúðvík Bergvinsson, Alþýðu- fiokki, gerði grein fyrir áliti minni- hluta landbúnaðarnefndar þar sem gerðar eru athugasemdir við þá hugmyndafræði sem birtist í frum- varpinu að áfram skuli rekinn sér- stakur niðurgreiddur lánasajóður fyrir landbúnaðinn, en niðurgreiðsl- an sé að mestu leyti fjármögnuð af bændum sjálfum með greiðslu sjóðagjalda. Telur minnihluti nefnd- arinnar að felia hefði átt Stofnlána- deiid landbúnaðarins inn í annan Við höfum meðal annars hitt auðkýfinginn Donald Trump og eiganda eins stærsta tískutíma- rits í Bandaríkjunum," segir Sól- veig Lilja. Trump festi kaup á keppninni og öðrum henni tengdum í fyrra og heldur hana nú í fyrsta skipti. Af því tilefni er meðal annars öllum forráðamönnum lands- keppna um víða veröld boðið til Miami, þar sem þeir munu silja fund með Trump. Þeirra á meðal er Ólafur Laufdal, forsvarsmaður keppninnar hérlendis. Sólveig Lilja kveðst ekki geta borið saman keppnina nú við fyrri keppnir af eigin reynslu, en hins vegar sé glæsileikinn einstakur og keppt sé meðal annars um ársdvöl í Los Angeles, bifreið, skartgripi, peningagjafir og síma, svo fátt eitt sé nefnt, auk titilsins sem veitt getur sigurvegaranum ýmsa möguleika. „Marla Trump og leikarinn George Hamilton verða kynnar úrslitakvöldið, en dagskráin er hvorn ríkisbankann og láta markað- inn annast almenna lánastarfsemi til landbúnaðarins eins og til ann- arra atvinnugreina. Gagnrýnir minnihlutinn harðlega að landbúnaðurinn skuli skattlagð- ur sérstaklega til að afla tekna fyr- ir sjóðinn. Þá séu þau skilyrði sem sett séu fyrir lánveitingum þannig að minnihlutinn telji að einungis iítill hluti bændastéttarinnar sé svo vel stæður að hann uppfylli þau skilyrði sem þar koma fram. I frumvarpinu er í 8. grein meðal annars kveðið á um að við ákvörðun útlána skuli hafa hliðsjón af því hvetjar rekstrarforsendur viðkom- andi búgreina séu og hversu há veðlán hvíli á viðkomandi eign og skuli eigi veita lán ef ástæða sé til að ætla að búrekstur á jörðinni geti ekki staðið undir auknum lán- um. Þá segir m.a. í 9. grein frum- varpsins að veita megi lán gegn veði í fasteign ef ekki hvíli á henni veðskuldir til annarra en Lánasjóðs landbúnaðarins eða annarra opin- berra sjóða á undan veðrétti þeim sem sjóðurinn fær. „Hér er augijóslega verið að búa til sjóð þar sem einungis stórbænd- ur geta fengið lán, því það er ekki gert ráð fyrir því að aðrir geti feng- ið lán en stórbændur. Þess vegna er það mjög merkilegt að hver ein- asti bóndi í landinu skuli þurfa að greiða þessi sjóðagjöld, því það er alveg augljóst af þeim reglum sem sýnd beint á sjónvarpsstöðinni CBS í Bandaríkjunum. Ætli útsendingin hefjist ekki um miðnætti á föstudag að islenskum tíma miðað við tímamismuninn,“ segir hún. Sólveig Lilja kveðst vera bjart- sýn fyrir keppnina og á mögu- leika sína þar, en hins vegar séu stúlkurnar hver annarri fegurri og erfitt að ráða í úrslit. „Ég er stolt að koma fram fyrir hönd íslendinga og hef mjög gaman af hér koma fram að það eru einungis fáir útvaldir sem geta fengið lán,“ sagði Lúðvík. Hrapað að óráði Egill Jónsson, varaformaður landbúnaðarnefndar, skrifar ekki undir álit meirihluta nefndarinnar, og sagði hann að ætla mætti að hann ætti ekki sainleið með flokks- bræðrum sínum í nefndinni. „Það er alveg ijóst að ef við hefð- um verið í forsvari í landbúnaðar- nefnd Alþingis, þá hefði ekki verið nokkur minnsti vandi fyrir okkur að komast að samkomulagi og nið- urstöðu með breytingum á þessu frumvarpi sem hefði orðið mikið til bóta,“ sagði Egill. Hann sagði að það sem sérstak- lega hefði fælt sig frá því að styðja nefndarálit meirihlutans væru 8. og 9. grein frumvarpsins. Það geti tæpast dulist nokkrum manni hvað þar væri hrapað að gríðarlega miklu óráði og stórfurðulegt að ekki skuli hafa verið hægt að koma við aug- ijósum leiðréttingum í starfi land- búnaðarnefndar. „Þessari ríkisstjórn, reyndar öll- um góðum málum, er ég fús að fylgja, en ólög styð ég ekki þó að þau komi frá ríkisstjórn,11 sagði Egill. Ágúst Einarsson, þingflokki jafn- aðarmanna, sagði ummæli Egils hljóta að vera stjórnarliðum íhugun- arefni, og sagði hann að best hefði verið að fylgja tillögu sem fram hefði komið í landbúnaðarnefnd um að leggja ætti málið til hliðar og vinna í sumar að betri útfærslu þess. Pétur H. Biöndal og Árni M. Mathiesen, þingmenn Sjálfstæðis- flokks, gagnrýndu fjölmörg atriði í að taka þátt í þessu ævintýri, auk þess sem ég hef eignast margar vinkonur og notið lífsins meðan á þessu hefur staðið. Titillinn er því ekki aðalatriðið," segir hún. Stúlkurnar hafa aðstoðarkonur sem fylgja þeim hvert fótmál, þurfi þær t.d. að bregða sér einar af herbergi og niður í anddyri hótelsins. Og önnur öryggisgæsla er einnig ströng, enda talin ástæða til. frumvarpinu. Pétur sagði að bænd- ur væru þrælar eigin kerfis en nú væri þó verið að vinda ofan af hálfr- ar aldar vitleysu. Menn væru á réttri leið en það vantaði stefnu til næstu ára fyrir atvinnugreinina. Árni M. Mathiesen sagði ýmis- legt jákvætt að finna í frumvarp- inu. Hann gagnrýndi þó flesta meg- inþætti frumvarpsins í ræðu sinni, m.a. af þeirri ástæðu að ekki hefði verið valin sú leið að landbúnaður- inn starfaði eftir almennum reglum lánamarkaðarins. Sagði hann að lakasta leiðin hefði orðið fyrir val- inu. Engu að síður sagðist Árni styðja frumvarpið. Sagðist hann líta á það sem hluta af heildarpakka um breytingar á banka- og lána- kerfinu sem samkomuiag hefði náðst um að afgreiða sem lög. Lúðvík Bergvinsson og Agúst Einarsson, þingflokki gagnrýndu frumvarpið harðlega og _ beindu einnig spjótum sínum að Árna M. Mathiesen fyrir að styðja frumvarp sem hann hefði lýst sig andvígan öllum meginatriðum. Hlýtur að miðast við afkomu Fram kom í máli Guðmundar Bjarnasonar landbúnaðarráðherra að lánasjóðurinn hlyti að taka tillit til afkomu í atvinnugreininni og hann myndi setja sér reglur um hvernig standa ætti að lánveiting- um. Sagðist ráðherra furða sig á því ef Egill Jónsson væri þeirrar skoðunar að það bæri að hætta inn- heimtu sjóðagjalda í landbúnaði, sem yrði þá að takast á við mark- aðsvexti. Sjálfur sagðist Guðmund- ur vera því andvígur. „En hér er stigið skref í þá átt að færa sig út úr þessu kerfi sem ríkt hefur inn á aðrar brautir," sagði Guðmundur. Sumarbústaður — Grímsnesi Til sýnis nk. laugardag og sunnudag frá kl. 13-16, báða dagana. Margrét verður á staðnum, sími 853 2340. Nr. 8643. Mjög góður sumar- bústaður í landi Norðurkots, Grímsnesi (Lindarhvammur). Stærð 86,4 fm auk I5 fm áhaldageymslu. Landið er ca. I ha. að stærð allt kjarri vaxið og mikill gróður. Bústaðurinn er fullbúinn að innan með vatni og rafmagni, furuklædd- ur að innan, parket á gólfum. Góð staðsetning. Ásett verð 5,0 millj. Allar nánari uppl. á skrifstofu. Kjöreign, Ármúla 21, sími 533 4040. Dan V.S. Wiium, hdl. lögg. fasteignasali. Austurgata - Hafnarfirði Til sölu 5 herb. íbúð, 150 fm á tveim hæðum í timburhúsi á góðum stað. 24 fm geymsla. Verð 7,8 millj. Árni Gunnlaugsson hrl., Austurgötu 10, sími 555 0764. Hörð gagnrýni á frumvarp um Lánasjóð landbúnaðarins

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.