Morgunblaðið - 15.05.1997, Side 14

Morgunblaðið - 15.05.1997, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 1997 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Flugleiðir Samningur við aldraða erígildi SÍMON Pálsson, forstöðumaður hjá Flugleiðum, segir það rangt sem haft er eftir Olafi Jónssyni, formanni Landssambands aldr- aðra, í Morgunblaðinu í gær að Flugleiðir hafi slitið samningi við landssambandið. Hjá Óiafi kom fram að samn- ingurinn, sem m.a. felur í sér 20% afslátt til félagsmanna af flug- ferðum til Evrópu og 10% afslátt af flugi til Bandaríkjanna, hafi runnið út 1. maí sl. Símon segir samninginn, sem á undanförnum árum hefur verið gerður til eins árs í senn, hafa runnið út 31. mars sl. „Það var aldrei talað við okkur af hálfu landssambandsins. Við erum ekki að ýta að fólki samning- um ef það vill þá ekki,“ segir Sím- on. „Aftur á móti framlengdum við samninginn til 1. október nk. til þess að gefa þeim umhugsunar- frest. En samningur er samningur og fólk á auðvitað að fylgjast með samningum sínum.“ Símon segir Flugieiðir ekki hafa séð ástæðu til að breyta afsláttar- kjörum aldraðra sem fljúga með félaginu, þó svo að fargjöld hafi verið að lækka. Póstgöngu- hópur heim- sótti Bessa- staði ÓLAFUR Ragnar Grímsson, for- seti íslands, og Guðrún Katrín Þorbergsdóttir forsetafrú tóku á þriðjudag á móti póstgönguhópi á Bessastöðum í tilefni af 221 árs afmæli póstþjónustu á ísiandi og skoðuðu því næst Póst- og síma- minjasafnið í Hafnarfirði, þar sem sett hefur verið upp sérstök sýn- ing í tilefni af útkomu bókarinnar „Póstsaga íslands 1776-1873“ eftir Heimi Þorleifsson. Gönguhópur Einars Egilssonar, sem er þekktur póstgöngumaður, lagði af stað frá Sviðholti á Álfta- nesi þar sem Sigvaldi Sæmunds- son, fyrsti pósturinn, bjó. Þaðan var gengið að Bessastöðum þar sem blásið var í lúðra og forsetinn tók á móti hópnum, sem í voru um 20 manns. Áfram var haldið „í fótspor gömlu póstanna" og endað við safnið þar sem forsetinn tók á ný á móti hópnum. Þorgeir K. Þorgeirsson, for- maður safnráðs Póst- og síma- minjasafnsins, tók á móti forset- anum og konu hans, Guðrúnu Katrínu Þorbergsdóttur, fyrir utan safnið og vísaði síðan Heim- ir Þorleifsson sagnfræðingur for- setahjónunum um sýninguna. Að sögn Þorgeirs hafði Ólafur Höfum flutt starfsemi okkar í nýtt og rúmgott húsnæði. Nýtt heimilisfang: Sundaborg 1 Nýtt símanúmer: 568 3300 Nýttfaxnúmer: 568 3305 Stærra vinnusvæði, betri þjónusta. Eigum fyrirliggjandi og bjóðum með stuttum fyrirvara margskonar lyftara, stór og smá hillukerfi milligólf og lagerkerfi. Þjónusta - þekking - ráðgjöf. Áratuga reynsla UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN SUNDABORG 1 • SÍMI568 3300 • FAX 568 3305 Morgunblaðið/Ásdís ÞORGEIR K. Þorgeirsson, formaður safnráðs Póst- og símaminja- safnsins, tekur á móti forseta íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni, og konu hans, Guðrúnu Katrínu Þorbergsdóttur, fyrir utan Póst- og símaminjasafnið í Hafnarfirði. Að baki þeim stendur bQl af gerð- inni Ford AA, árgerð 1931. Hahn er sömu gerðar og fyrsti póstbíll- inn, sem var í póstflutningum milli Reykjavíkur og Akureyrar. Ragnar orð á því að sýningin ætti erindi til margra, ekki síst skólanema. Forsetahjónunum hefði þótt sýningin athyglisverð og einnig póstafgreiðsla frá fjórða tug aldarinnar þar sem aðallega er að finna muni úr gamla pósthúsinu í Pósthússtræti í Reykjavík. Tilefni göngunnar og heim- sóknar Ólafs Ragnars og konu hans í safnið var að 13. maí var PÉTUR Reimarsson, stjórnarfor- maður Pósts og síma hf., segir að sér finnist ekki felast neinn sérstak- ur áfellisdómur yfir fyrirtækinu í úrskurði samkeppnisráðs um al- netsþjónustu þess. Það sé metnaður stjórnenda og starfsmanna Pósts og sfma að standa eðlilega að mál- um. „Það er enginn vilji hjá stjórn fé- lagsins eða stjórnendum að fara að traðka á þeim sem eru að bjóða þjón- ustu á þessu sviði,“ segir Pétur. „Það hefur verið farið að öllum þess- um ábendingum frá upphafi, og það er einfaldlega ekki rétt að það hafi ekki verið reiknaðir vextir af þessum stofnframlögum. “ Hann segir að verið sé að setja á laggimar sérstaka Póst- og fjar- skiptastofnun sem eigi að hafa eftir- lit með starfsemi Pósts og síma hf. 221 ár liðið frá því að tilskipun Dana um póstþjónustu á Islandi var gefin út. Forsetanum var af- hent bók Heimis um póstþjónustu á Islandi, sem miðast við þann dag árið 1776 og nærtil 1873þegar embætti póstmeistara var stofnað á íslandi. Á þriðudag heimsótti safnið einnig 25 manna göngu- hópur eldri póstmanna, sem kem- ur saman reglulega og fer í gönguferðir. og annarra póst- og fjarskiptafyrir- tækja, og augljóst sé að upp geti komið áiitamál um hvort ýmis mál ættu að heyra undir þá stofnun eða Samkeppnisstofnun. „Mér fínnst þessi úrskurður ganga út á að Samkeppnisstofnun ætli sér að vera í þessu máli áfram hvernig sem þessi Póst- og fjar- skiptastofnun kemur til með að haga sér. Það er svolítið áhyggjuefni fyrir okkur sem eigum að starfa eftir þessu. Þá vekur það líka athygli að þeir hafa áður kveðið á um stjórnun- arlegan aðskilnað, en það er ekkert minnst á slíkt nú,“ segir Pétur. Hann segir að á fjarskiptasviðinu séu breytingar mjög örar og sú þró- un muni halda áfram, og sá vett- vangur sem Póstur og sími hf. starfi á eigi eftir að vera orðinn gjörbreytt- ur eftir eitt ár. Landsmót hesta- manna árið 2000 Reykjavík ræðir við Fáksmenn BORGARRÁÐ hefur sam- þykkt að taka upp viðræður við Hestamannafélagið Fák um framkvæmdir vegna Landsmóts hestamanna að Víðivöllum í Reykjavík árið 2000, en félagið hefur sent inn umsókn til Landssambands hestamanna um að halda mót- ið það ár. Hefur borgarverkfræðingi og framkvæmdastjóra íþrótta- og tómstundaráðs verið falið að eiga viðræður við fulltrúa Fáks um þær framkvæmdir, sem aðilar verða sammála um að borgin annist til undirbún- ings, verði Landsmótið haldið í Reykjavík. Kostnaður um 180 milljónir í greinargerð með tillögunni kemur fram að aðstaða til móts- halds sé að mörgu leyti ákjósan- leg en ljóst að ýmsar fram- kvæmdir séu nauðsynlegar bæði af hálfu mótshaldara og borgarinnar. Kostnaðarsamasti þátturinn hvað varðar borgina er gerð gatna og stíga sem þó eru taldar eðlilegar fram- kvæmdir borgarinnar á næsta áratug án tillits til þess hvort mót verður haldið eða ekki. Samkvæmt lauslegri kostn- aðaráætlun er gert ráð fyrir að heildarkostnaður verði um 180 milljónir en framkvæmd móts- ins og kostnaður er á ábyrgð mótshaldara og Landssam- bands hestamanna. Tekið er fram að í upphafi liggi skýrt fyrir hvaða hluta framkvæmd- anna borgin muni annast og að um það verði gott samstarf við Fák. Bretar í heimsókn ÞRJÚ skip breska sjóhersins koma í heimsókn til Reykjavíkur á morg- un, föstudag, og liggja við Mið- bakka fram á miðvikudag, 21. maí. Skipin þijú eru Shetland, Alderney og Anglesey, sem er á meðfylgjandi mynd og eru 35 manns í áhöfn hvers þeirra, en yfirmaður er Chris Lightfoot. Skipin verða til sýnis al- menningi frá kl. 13.30 til 16.30 á mánudag, annan i hvítasunnu. Ekki sérstakur áfellisdómur Raðuneytisstjóri slasaðist á fæti í opinberri heimsókn í Peking För til Japans frestað Peking. Morgunblaðið. OPINBER heimsókn Helga Ág- ústssonar, ráðuneytisstjóra í ut- anríkisráðuneytinu, til Kína og Japans hlaut ótímabæran endi á þriðjudag er ráðuneytisstjórinn hrasaði og sleit hásin í fæti. Helgi er nú í gifsi og kemur heim til íslands í dag til að gangast undir aðgerð, í stað þess að halda áfram til Tókýó til viðræðna við þarlend stjórnvöld um fyrirhugaða stofn- un ísienzks sendiráðs í Japan. Helgi kom til Peking á mánu- dag ásamt eiginkonu sinni og átti á þriðjudag árangursríka fundi með Qien Qichen, utanríkisráð- herra Kína, og Wang Yingfan aðstoðarutanríkisráðherra. Meðal annars var rætt um mannrétt- indamál og um aukið samstarf íslands og Kína. Að fundunum loknum fór Helgi til íslenzka sendiráðsins í Peking og hugðist taka mynd af sendiráðsbygging- unni. Það tókst hins vegar ekki betur til en svo, er ráðuneytis- stjórinn var að leita að rétta sjónarhorninu, að hann hrasaði og sleit hásin í vinstri fæti. Hann var fluttur á sjúkrahús í Peking, þar sem læknar lögðu til að þegar yrði gerð aðgerð á fætin- um. Helgi kaus hins vegar fremur að gangast undir aðgerð í Reykja- vík og ákvað því að binda enda á heimsóknina og halda heim. Helgi gat þó, með fótinn í gifsi, haldið veizlu á þriðjudagskvöld til heiðurs Wang Yingfan í sendi- herrabústað Islands í Peking. Wang aðstoðarutanríkisráðherra sagði í samtali við fréttaritara Morgunblaðsins að sér þætti afar leitt að svona hefði farið og aflýsa hefði þurft framhaldi heimsóknar- innar. Sagðist hann vonast til að endurtaka mætti heimsóknina í sumar. Kína hefur mikinn áhuga á auknu samstarfí við ísland um við- skipti og atvinnumál. Kínveijar hafa meðal annars sýnt áhuga á að reisa álverksmiðju á íslandi og að kaupa íslenzkar sjávarafurðir í auknum mæli. Nýjustu tölur sýna að útflutningur sjávarafurða til Kína á fyrsta fjórðungi ársins er 600% meiri en á sama tímabili í fyrra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.