Morgunblaðið - 15.05.1997, Side 16
16 FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Áki Guðmundsson
1.-6. bekkur bjó til verk sem þau kölluðu Orminn langa.
10 ára afmæli skóla-
húss á Bakkafirði
Héraðsvaka Rangæinga
Viðurkenningar fyrir
góðan árangur í íþróttum
RANGÆSKIR íþróttamenn hlutu viðurkenningar á Héraðsvök-
unni fyrir framúrskarandi árangur á sl. ári. Iþróttamaður árs-
ins 1996, Þórður Þorgeirsson hestamaður, hampar bikurum sín-
um fyrir miðri mynd.
Bakkafirði - Undirbúningur fyrir
10 ára vígsluafmæli skólahússins á
Bakkafirði hefur verið í gangi hjá
nemendum skólans í allan vetur þar
sem nemendur hafa kynnt sér líf og
starfshætti fyrri tíma og hafa reynt
að setja sig inn í þá eins og þeir
geta og borið þá saman við nútím-
ann.
Liður í þessum undirbúningi var
koma myndlistarmannsins Freyju
Önundardóttur sem kenndi þeim
meðferð pensla og lita. Hún fór með
nemendur skólans um þorpið þar
sem þau völdu sér fyrirmyndir sem
þau síðan máluðu og var afrakstur
þess námskeiðs til sýnis á tíu ára
afmælinu 1. maí. Þau yngstu í skól-
anum, 1.-6. bekkur, máluðu og
bjuggu til verk sem þau kölluðu
Orminn langa þar sem hver nemandi
útbjó sinn hluta af orminum þannig
að úr varð hin mesta furðuskepna.
Á vígsluafmælinu héldu nemend-
urnir sína árlegu árshátíð og var það
vel til fundið þar sem fjölmennt var
og skemmtun hin mesta. Þar fóru
krakkarnir með gamanmál og voru
með tískusýningu þar sem þau létu
ímyndunarafl og góða skapið leika
lausum með mikilli kátínu við-
staddra.
í lok dagskrárinnar hélt Valbjörg
Jónsdóttir skólastjóri ræðu og sagði
frá nýtingu hússins. Húsið er fjöl-
nota hús sem hýsir, fyrir utan skól-
ann, hreppsskrifstofu, heilsugæslu
og leikskóla. Einnig kom fram hjá
henni að smíðakennsla hefði verið í
höndum Guðmundar Magnússonar
frá Flúðum og kenndi hann m.a. að
renna nytjahluti úr rekavið sem nóg
er af hér í fjörunni. Valbjörg sýndi
gestum þijá hluti sem hún vildi að
yrðu fyrsti vísir að náttúrugripasafni
sem komið yrði á fót í skólanum en
þeir voru lítill flækingsfugl, gran-
söngvari, sem fannst dauður hér í
haust og var stoppaður upp á Dal-
vík, snæuglufótur af snæugluhræi
sem fannst í fjöruferð en hræið sjálft
var sent suður í rannsókn og fótur
af heiðargæs en báðum fótunum var
haganlega fyrir komið á steini.
I lokaorðum sínum hvatti hún sjó-
menn til að leggja þessum safnavísi
lið með því að gefa fugla sem þeir
fengju í veiðarfæri sín til uppstopp-
unar. Svo bauð hún gestum að skoða
sýningu nemenda því það væri nóg
að skoða og margt fróðlegt og
skemmtilegt að sjá. Þessari skemmt-
un lauk með tertuhlaðborði og súkk-
ulaði með þeyttum rjóma.
Hellu - Á Héraðsvöku Rangæ-
inga sem haldin var á Heima-
landi undir V-Eyjafjöllum um
sl. helgi voru veittar viður-
kenningar og verðlaun til
rangæskra íþróttamanna sem
sköruðu fram úr í sínum grein-
um á árinu 1996.
Viðurkenningar hlutu eftir-
talin: Hrefna Hafsteinsdóttir,
Garpi, fyrir góðan árangur í
badminton, Olafur E. Ólafsson,
UBH, í blaki, Hjördís Rut Al-
bertsdóttir, Garpi, í borðtenn-
is, Guðbjörg Viðarsdóttir,
Dagsbrún, í frjálsum íþróttum,
Andrea Ösp Pálsdóttir, Garpi,
í glímu, Óskar Pálsson, GHR,
í golfi, Þórður Þorgeirsson,
íþróttadeild Geysis, í hesta-
íþróttum, Andri Freyr Björns-
son, Heklu, í knattspyrnu,
Magnús G. Helgason, UBH, í
körfuknattleik, Björgvin Reyn-
ir Helgason, Ileklu, í skák,
Garðar Guðmundsson, Dags-
brún, í starfsíþróttum og
Dröfn Helgadóttir, UBH, í
sundi.
íþróttamaður ársins 1996
valinn
í þriðja sæti í vali til
íþróttamanns ársins 1996 var
Björgvin R. Helgason, Umf.
Heklu, en hann er 15 ára. Á
síðasta ári vann hann
skólaskákmót Grunnskólans á
Hellu, sýsluskákmót
Rangárvallasýslu og
Suðurlandsmótið án þess að
tapa skák. Á landsmótinu varð
hann í 9. sæti en hann keppti
í fyrsta sinn í eldri flokki.
Björgvin var í sveit Heklu sem
vann sveitakeppni HSK í
nóvember. Þá hefur hann
unnið skólaskákmótið sl. 6 ár,
sýslumótið sl. 5 ár og
Suðurlandsmótið sl. 4 ár.
í öðru sæti varð Guðbjörg
Viðarsdóttir, Umf. Dagsbrún,
en hún var valin í landsliðið í
kúluvarpi og keppti fyrir
íslands hönd í
Evrópubikarkeppninni. Helstu
titlar hennar á árinu voru
Islandsmeistari innanhúss í
kúluvarpi, Islandsmeistari
utanhúss í kúluvarpi,
kringlukasti og sleggjukasti,
bikarmeistari FRI í
kringlukasti,
Skarphéðinsmeistari í
kúluvarpi innanhúss og
Skarphéðinsmeistari í
kúluvarpi, kringlu- og
sleggjukasti utanhúss,
Rangæingameistari í sömu
greinum auk spjótkasts.
Guðbjörg átti annað lengsta
kast Islendings í kúluvarpi og
kringlukasti og lengsta kastið
í sleggjukasti.
íþróttamaður ársins 1996
var valinn Þórður Þorgeirsson,
íþróttadeild
Hestamannafélagsins Geysis.
Hann tók þátt í íþróttamóti
félagsins og Islandsmóti í
hestaíþróttum og hlaut
samanlagt 693,7 stig. Mesta
afrek Þórðar á sl. ári var
Islandsmeistaratitill í tölti.
Hann tók jafnframt þátt í
gæðingakeppni, fjórðungsmóti
og kynbótasýningum. Þórður
hefur staðið sig með miklum
ágætum í öllum keppnum og
sýningum sem hann hefur
tekið þátt í, en keppnisgreinar
hans eru tölt, fjórgangur,
fimmgangur og gæðingaskeið.
Bjöllukór
Bústaðakirkju
í heimsókn
í Grímsey
Grímsey. Morgunblaðið.
BJÖLLUKOR og hljómsveit Bú-
staðakirkju í Reykjavík, alls þrett-
án unglingar ásamt stjórnandan-
um Guðna Þ. Guðmundssyni og
séra Pálma Matthíassyni, fluttu
fjölbreytta dagskrá í félagsheim-
ilinu Múla í Grímsey fyrir
skömmu. Þau léku einleik, dúetta
og öll saman á fjölda hljóðfæra
auk þess sem þau sungu líka.
Þarna eru greinilega fjölhæfir
einstaklingar á ferð og leikur
hvert, þeirra á fleira en eitt hljóð-
færi, þau léku á bjöllur, blásturs-
hljóðfæri, hljómborð, píanó,
harmonikkur og fleira. Séra
Pálma, sem þjónaði Grímseying-
um frá 1981-1989 þótti notalegt
að heimsækja gamlan og góðan
söfnuð og var allur hópurinn mjög
ánægður með móttökurnar í
Grímsey. Grímseyingar fjöl-
menntu á þessa tónleika og nutu
virkilega þessarar stundar í fé-
lagsheimilinu.
Morgunblaðið/Hóimfríður
Morgunblaðið/Sturla J?áll Sturluson
ÁGÚSTA Gísladóttir, Ingibjörg Sigfúsdóttir, Kristín Ósk Egils-
dóttir og Helga Guðný Kristjánsdóttir frá Ársól ásamt Kristjáni
Þór Júlíussyni, Óðni Gestssyni og Svövu Rán Vaigeirsdóttur,
leikskólastjóra, við afhendingu gjafarinnar.
Leikskólanum í Tjarnar-
bæ færð peningagjöf
Suðureyri - Kvenfélagið Ársól á
Suðureyri gaf á dögunum leikskól-
anum Tjarnabæ veglega peninga-
gjöf. Var það fé afrakstur sólarkaff-
is sem Ársólarkonur héldu nýlega.
Við afhendingu gjafarinnar kom
fram í máli Óðins Gestssonar, for-
manns menningarmálanefndar ísa-
fjarðarbæjar, að kvenfélagskonur á
Suðureyri hefðu lengi og vel stutt
dyggilega við bakið á leikskóla-
starfsemi á Suðureyri á ýmsan
máta, m.a. með gjöfum á leiktækj-
um, innanstokksmunum og beinum
fjárframlögum en auk Óðins tóku
við gjöfinni þau Kristinn Þór Júlíus-
son, bæjarstjóri, og Svava Rán
Valgeirsdóttir, leikskólastjóri.
Samfellt skólahald í
Stykkishólmi í 100 ár
Stykkishólmi - Þess var minnst á
uppstigningardag að 100 ár eru liðin
frá því að samfellt skólahald hófst
í Stykkishólmi. Stykkishólmshrepp-
ur var stofnaður árið 1892 og fljót-
lega var þá ákveðið að stofna skóla
í bænum. Það var skólaárið 1986-
1987 sem Barnaskólinn í Stykkis-
hólmi var stofnaður. Þá var tekið í
notkun nýtt skólahús sem sérstak-
lega var smíðað til þeirra nota.
Þetta hús stendur enn og var lengi
bakarí en er farfuglaheimili í dag.
Fljótlega var skólahúsið of lítið og
var keypt húsnæði árið 1910, hús
Guðmundar Eggerts, sýslumanns,
ávallt nefnt Sýslumannshúsið. Það
hús brann árið 1932 og árið 1935
var byggður nýr skóli við Skólastíg-
inn og er það húsnæði enn notað til
kennslu yngstu barnanna og fyrir
starfsemi tónlistarskólans. Árið
1977 var enn byggt nýtt skólahús
sem var tekið í notkun 1985. Þar
fer fram kennsla 4.-10. bekkjar.
Framhaldsdeildirnar komast þar
ekki fyrir lengur og fer kennsla þar
fram í íþróttahúsinu. Árið 1990 var
vígt nýtt íþróttahús í tengslum við
skólann. Miklar breytingar hafa orð-
ið á skólamálum hér í bæ á þessu
tímabili. Allar aðstæður eru mjög
góðar fyrir nemendur til náms á
hinum ýmsu sviðum, nýtt skólahús,
ný íþróttamiðstöð og ef til vill kom-
in ný sundlaug eftir nokkur ár.
Fjölbreytt dagskrá var í boði í til-
efni þessara tímamóta. Dagskráin
hófst með skrúðgöngu frá gamla
skólanum og gengið að íþróttamið-
stöðinni. Þar var haldin samkoma
þar sem nemendur skólans sýndu
leiki sem hafa verið vinsælir í gegn-
um árin. Gunnar Svanlaugsson,
skólastjóri, rakti sögu skólans og
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
INGVELDUR Sigurðardóttir
og Svava Oddsdóttir. Svava
er elsti núlifandi nemandi
Barnaskólans í Stykkishólmi
og hóf hún skólagöngu 10 ára
gömul árið 1910. Dóttir henn-
ar Ingveldur hefur lengst allra
verið kennari í skólanum.
gestir fluttu ávarp. Þar á meðal var
Þorgeir lbsen, sem stjórnaði skólan-
um frá 1947-1955. Kvenfélagið
Hringurinn og Lionsklúbbur Stykk-
ishólms gáfu skólanum peningagjaf-
ir til tækjakaupa í sauma- og sníða-
stofur skólans. Öllum gestum var
boðið upp á veitingar og voru yfir
500 manns sem þær þáðu. Verk
nemenda voru til sýnis í skólastofum
og í gamla íþróttasalnum var sýning
á gömlum námsgögnum, myndum
og ýmsum búnaði frá fyrri tíð. Ungl-
ingadansleikur var haldinn um
kvöldið í félagsmiðstöðinni. Nem-
endur hafa starfrækt útvarp í félags-
miðstöðinni undanfarið og hafa
raddir margra ungra Hólmara
hljómað í útvarpinu síðustu daga.