Morgunblaðið - 15.05.1997, Side 24
24 FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Reuter
Vilja bandarískar
herstöðvar burt
JAPANSKIR herstöðvaandstæð-
ingar sjást hér mótmæla veru
bandarískra hermanna á eyjunni
Okinawa í mótmælagöngu sem
gengin var í gær af tilefni af því
að 25 ár eru liðin frá því Ok-
inawa komst aftur undir jap-
anska stjórn eftir 27 ára herná-
mssljórn Bandaríkjamanna árið
1972.1 fyrradag runnu út leigu-
samningar japanskra stjórnvalda
við eigendur lands undir 12
bandarískum herstöðvum á Ok-
inawa-eyju. Ríkissljórnin sá til
þess að þessir leigusamningar
voru endurnýjaðir þrátt fyrir
andstöðu 3.000 landeigenda sem
vilja herstöðvarnar burt.
*
Ovenjuleg
samvinna
um framsal
KÍNVERSK yfirvöld afhentu í gær
tævönskum stjórnvöldum flugræn-
ingja, sem neyddi tævanska flug-
vél til að halda til Kína fyrr á ár-
inu. Er þetta óvenjulegt dæmi um
samvinnu ríkjanna tveggja en
hingað til hafa Kínveijar iitið á
tævanska flugræningja sem menn
sem leiti frelsis og hafa ekki fram-
selt þá. Maðurinn, Liu Shan-chung,
heilti yfir sig bensíni i tævanskri
flugvél í mars sl. og krafðist þess
að henni yrði snúið til Kína, þar
sem hann hugðist sækja um póli-
tískt hæli en hann sagðist búa við
pólitískar ofsókni á Tævan.
Á myndinni færa tævanskir lög-
reglumenn Liu um borð í flugvél
sem flutti hann aftur til Tævans.
Reuter
Fullyrt að forseti Zaire eigi mikið fé á bankareikningum
Vilja að eignir Mobut-
us í Sviss verði frystar
Genf. Reuter.
Reuter
MOBUTU Sese Seko, forseti Zaire, kemur til
nágrannaríkisins Kongó í gær en þar átti hann
að eiga fund með Laurent Kabila, leiðtoga
skæruliða, sem krefjast afsagnar Mobutus.
SVISSLENDINGAR upp-
lýstu í gær að embætti sak-
sóknara í Zaire hefði óskað
eftir því að svissnesk yfirvöld
frystu eignir'Mobutus Seses
Sekos, forseta Zaire, í land-
inu. Á þriðjudag hétu sviss-
nesk yfirvöld því að gera víð-
tæka leit að eignum hans og
fjölskyldu hans í svissnesk-
um bönkum en þau boð höfðu
áður borist frá Bern að þar-
lendir bankar hefðu hvorki
fundið tangur né tetur af
auðæfum Mobutus, sem
svissneskir íjölmiðlar telja
að riemi allt að fjórum millj-
örðum dollara (um 280 millj-
örðum króna) og liggi á
reikningum hér og þar í
Sviss.
Eftirlitsnefnd svissneskra
banka lýsti yfir því að leit
að peningum Mobutus yrði
hert, en gaf um leið í skyn
að hún teldi ólíklegt að
auðurinn fyndist.
„Ég get ekki ímyndað mér
í dag að nokkur svissneskur
banki mundi enn geyma
peninga frá Mobutu," sagði
Kurt Hauri, forseti nefndar-
innar, sem starfar sjálf-
stætt, og bætti við að slíkt
væri mjög „kjánalegt" hjá
banka. „Það ætti að vera
bönkunum í hag að hafa
nægilegt vit til að geyma ekki pen-
inga frá manni á borð við Mobutu.
Slíkt væri mjög slæmt fyrir orðspor
bankanna."
Vesturlönd jusu
fé í Mobutu
Breska blaðið The Financial Tim-
es birti í vikunni úttekt á fjárreiðum
Mobutus, sem blaðið fullyrðir að
hafi numið 4 milljörðum dala þegar
mest var, um miðjan síðasta áratug.
Geti Mobutu ekki síst þakkað Vest-
urlöndum stuðninginn, en fé hafi
verið ausið í hann, þrátt fyrir að
menn vissu af þeirri gríðarlegu spill-
ingu sem viðgekkst í landinu.
Leo Tindemans, fyrrverandi for-
sætisráðherra Belgíu, sagði í síðustu
viku að stefnan gagnvart Zaire hefði
átt að vera miklu staðfastari. Ekki
hafi verið farið nema að hluta til
eftir þeirri stefnu sem Alþjóðabank-
inn og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
hafi sett í málefnum Zaire og stjórn-
völdum í Zaire hafi verið Iánaðir
miklir fjármunir þrátt fyrir að vitað
væri að ekkert væri gert til að bæta
ástandið í landinu.
Fullvíst er talið að Mobutu hafi
eytt stórum hluta auðæfanna til að
styrkja stjórn sína í sessi en rann-
sókn FT hefur leitt í ljós að hann á
að minnsta kosti 20 eignir í ýmsum
löndum, allt frá Belgíu til
Fílabeinsstrandarinnar, og
nemur verðmæti þeirra að
minnsta kosti 37 milljónum
dala, um 2,6 milljörðum ísl.
kr. Þá hafa aðstoðarmenn
Mobutus staðfest að hann
eigi bankareikninga í Sviss
og Suður-Afríku.
Skýrsla um spillingu
hunsuð
Mobutu hefur notið íjár-
hagsaðstoðar Vesturlanda í
rúma þqá áratugi en hún
hófst raunar áður en hann
komst til valda árið 1965.
Var þessari aðstoð ekki hætt
þrátt fyrir að mönnum yrði
snemma ljós sú spilling sem
viðgekkst undir stjórn Mob-
utus. Meðal þeirra sem að-
stoðuðu Mobutu var banda-
ríska leyniþjónustan, CIA.
Nær allur ágóði af útflutn-
ingi var lagður inn á reikn-
inga í útlöndum í stað þess
að nota hann til uppbygging-
ar í Zaire.
Árið 1982 skilaði háttsett-
ur starfsmaður Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins skýrslu þar sem
hann gerði grein fyrir spill-
ingunni í Zaire en stofnunin
fékk ekkert að gert er hún
hugðist draga úr íjárfram-
lögum, vegna pólitísks þrýst-
ings á Vesturlöndum, þar sem menn
máttu ekki til þess hugsa hvað tæki
við ef Mobutu léti af völdum. Al-
þjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur ekki
viljað tjá sig um málið.
Háttsettur breskur bankamaður,
sem þekkti vel til fjármála Mobutus,
segir að um miðjan síðasta áratug
hafi menn verið hættir að vilja eiga
viðskipti við Mobutu. Landið hafi
rambað á barmi gjaldþrots og ljóst
hafi verið að fúlgum flár, sem feng-
ust fyrir útflutning, hafi verið komið
undan. Hafi einhveijir bankamenn
þrátt fyrir allt viljað lána Mobutu
fé, hljóti þeir að hafa óhreint mjöl
í pokahorninu.
breyttan skilafrest
á atvinnu-, rað- og smáauglýsingum
sem eiga að birtast í sunnudagsblaðinu
Auglýsingatexta og/eða tilbúnum atvinnu-, rað- og smáauglýsingum sem
eiga að birtast í sunnudagsblaðinu, þarf að skila fyrir kl. 12 á föstudögum.
Auglýsingadeild
Sími 569 11 11 • Símbréf 569 11 10 • Netfang: augl@mbl.is
Dönsk móðir
má ekki vera ein
með barni sínu
New York. Reuter.
DÓMSTÓLL í New York úr-
skurðaði á þriðjudag að dönsk
móðir, sem sökuð hafði verið
um að stefna öryggi barns síns
í hættu með því að skilja það
eftir í vagni fyrir utan veitinga-
stað, skyldi fá það aftur, með
ströngum skilyrðum þó. M.a.
má móðirin ekki vera ein með
barni sínu, heldur verður annar
fullorðinn að vera viðstaddur.
Málið hófst sl. laugardags-
kvöld er móðirin, Annette Sor-
ensen, var ásamt unnusta sín-
um á veitingastað í New York.
Sátu þau við glugga og hinum
megin við hann svaf barnið í
vagni sinum. Það vaknaði og
fór að gráta og bar þá að veg-
faranda, sem gerði lögreglu
viðvart er nokkrar mínútur
voru liðnar án þess að til for-
eldranna sæist.
Lögregla tók barnið í sína
vörslu og var það m.a. sett í
læknisrannsókn, þar sem í Ijós
kom að ekkert amaði að því
og það hafði ekki verið beitt
neins konar ofbeldi. Móðirin
og unnusti hennar urðu hins
vegar að dúsa í fangaklefa í
tvær nætur fyrir að mótmæla
því að lögreglan tæki barnið
og koma fyrir rétt nk. mánu-
dag vegna þessa.
Nú hefur dómstóll fallist á
að Sorensen fái barnið aftur,
eftir að fulltrúar barna-
verndarnefndar hafa kannað
aðstæður þar sem Sorensen býr
á meðan hún dvelur í New
York, og rætt við heimilisfólk,
en hún býr hjá vinafólki sínu.
Þá má móðirin ekki vera ein
með barni sínu, heldur verður
annar fullorðinn að vera við-
staddur.
Lögmaður konunnar hefur
bent á að það þyki ekki tiltöku-
mál að láta börn sofa í vagni
í Danmörku og að viðbrögð
lögreglunnar séu allt of harka-
leg. Sorensen hafði verið tæpa
tvo sólarhringa í New York er
barnið var tekið af henni en
hún hyggst halda heim 27. maí.