Morgunblaðið - 15.05.1997, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 1997 33
• ;
nátthagi
Tré, runnar, sumarblóm, fjölœr blóm,
klifurplöntur, alparósir, skjólbeltaplöntur,
limgerðisplöntur, eðalrósir, berjarunnar
og sígrœnir dvergrunnar.
LISTIR
Söngur
TÖNLIST
Kústaöakirkja
EINSÖNGSTÓNLEIKAR
Þórunn Guðmundsdóttir og Kristinn
Orn Kristinsson fluttu söngverk eftir
Purcell, Sigurð Þórðarson, Barber,
Jón Leifs og Brahms. Mánudagurinn
12. maí 1997.
ÞÓRUNN Guðmundsdóttir er
góð söngkona en hefur skákað sér
í þann hóp er aðallega flytur nú-
tímatónlist og á efnisskrá hennar
var lagaflokkurinn The Hermit
Songs, eftir Samuel Barber og
þrjú kirkjulög eftir Jón Leifs. Barb-
er var gott tónskáld og margt í
lagaflokki hans er vel gert en eigin-
lega oft meira skemmtilegt að gera
fyrir píanistann en söngvarann.
Þórunn söng lagaflokkinn mjög vel
og sérstaklega í laginu um Sýn
heilagrar Idu. Kirkjulögin eftir Jón
Leifs eru ekki beint konsertverk-
efni, nema ef vera skyldi Vertu,
Guð faðir, faðir minn, sem er sér-
lega fagurt en þarf að syngja með
meira legato en Þórunn gerði.
Tónleikarnir hófust á The
Blessed Virgin’s Expostulation,
eftir Purcell, við texta eftir Nahum
Tate og er það samið 1693. Þetta
er eins konar cantata, afar laus í
formi og alls ekki meðal áhuga-
verðustu söngverka eftir Purcell
en var mjög vel flutt af Þórunni.
Það var fróðlegt að heyra Ave
Maríuna og Gratias agimus tibi,
bæði eftir Sigurð Þórðarson, en
þessum kirkjukonsert Þórunnar
lauk með Vier ernste Gesánge,
eftir Brahms og var það bitastæð-
asta verkið á þessum tónleikum.
Flutningur beggja var mjög góður,
sérstaklega í fyrsta laginu, Denn
es Gehet dem Menschen og því
þriðja, 0 Tod, o Tod, wie bitter
bist du, sem Þórunn flutti af djúp-
ri tilfinningu fyrir þeim andstæð-
um, að óttast dauðann eða fagna
honum.
Eins og fyrr segir er Þórunn góð
söngkona en val verkefna var ekki
beint áhugavert, fyrir utan söngv-
ana eftir Brahms. Af því tilefni
mætti vel hugsa sér að Þórunn
ætti erindi við lieder-söng. Kristinn
Örn er ekki síðri tónlistarmaður
en Þórunn og fékk að sýna sitt
besta í Hermit Songs og sérstak-
lega í söngvunum eftir Brahms.
Jón Asgeirsson
hjolin sem fara eins
og eldur í sinu um USA
, nuna a Islandi
sí-HER
PURE BENDER SPIN
Freestyle 27.673 kr. stgr.
SUB MISSION (CHROME)
BMX RACER 28.1 88 kr. stgr.
SUBVERT 2.0 ^
Freestyle 36.785 kr. stgr.
Öll Freestyle og BMX hjól
frá Gary Fisher og Trek eru
gerð fyrir rosalega notkun
enda stell og gaffall með
lífstíðar ábyrgð.
°P/d ,
*®co
Skjótvirkur stíflueyðir
Eyðir stíflum
fljótt
• Tuskur
• Feiti
• Lífræn efni
• Hár
• Dömubindi
• Sótthreinsar
einnig lagnir
One Shot fer
fljótt aö stíflunni
af því að það er
tvisvar sinnum
þyngra en vatn.
Útsölustaðir:
Bensínstöðvar
og helstu
byggingavöruverslanir.
Dreifing: Hringás ehf.,
Langholtsvegi 84, s. 533 1330.
MEG frá ABET
UTANÁHÚS
FYRIRLIGGJANDI
ÞORGRIMSSON & CO