Morgunblaðið - 15.05.1997, Side 34

Morgunblaðið - 15.05.1997, Side 34
34 FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Morgunblaðið/Sturla Fáll SÖNGUR Kvennakórs Bolungarvíkur einkenndist af létt- leika og sumarþrá. Kaffikonsert á Suðureyri Suðureyri. Morgunblaðið - þær Margrét Gunnarsdóttir og Kvennakór Bolungarvíkur og Guðrún B. Magnúsdóttir. Þá tróð nágrennis hélt kaffikonsert í Fé- upp á tónleikunum sðnghópurinn lagsheimili Súgfirðinga sunnu- Ur neðsta sem samanstendur af daginn 27. apríl sl. við góðar und- sðngfólki sem kennir sig við „Neð- irtektir tónleikagesta. Dagskráin stakaupstað“ á ísafirði. í lok tón- var fjölbreytt og einkenndist af leikanna var gestum svo boðið léttleika. Sljórnendur kórsins eru upp á kaffi og pðnnukökur. Bjarni Jóns- son sýnir í Eden BJARNI Jónsson listmálari hefur opnað sýningu á litlum myndum í Eden í Hveragerði. Margar þessara mynda eru frummyndir af stærri verkum. Efni flestra myndanna fjallar um líf og störf forfeðranna til sjós og lands, segir í kynningu. Framundan er svo sýning á verkum Bjarna í Sjóminjasafni íslands í Hafnarfírði, sem mun standa í allt sumar. Þar verða til sýnis heimildamyndir um sjósókn fyrri tíma. Síðan fer sýningin til Hafnar í Homafirði í bytjun september í tilefni af opnun Sjóminjasafns þar. Sýngin í Eden stendur tii 19. maí. Lesið úr verkum lát- inna Kópa- vogsskálda FIMMTUDAGSUPPLESTUR Ritlistarhóps Kópavogs í kaffi- stofu Gerðarsafns er nú aftur á sínum stað eftir „hátíðarhlé" undanfarinna þriggja fimmtu- daga. Að þessu sinni er á dagskrá lestur úr verkum látinna Kópa- vogsskálda. Flutt verða ljóð eftir Þorstein Valdimarsson, Hörð Þórhallsson, Pétur Sum- arliðason og Þórarin frá Stein- túni. Lesarar eru félagar úr Ritlistarhópi Kópavogs, ásamt Gísla Ól. Péturssyni, sem les úr verkum föður síns. Tónleikar á hverju kvöldi á Akranesi NÚ er að ljúka 41. starfsári Tónlistarskólans á Akranesi og af því tilefni halda nemendur sína árlegu tónleika þessa dag- ana. Tónleikar eru haldnir á hveiju kvöldi þessa viku og í kvöld, fimmtudag, verða tón- leikar söngdeildar skólans. Skólasiit verða síðan í sal skól- ans á morgun, föstudag, kl. 20. ▼ ÖSKUBAKUR 517 ■ ■•■• ■ ' ■■ ■ ■ ■ ■ ■••■ ■ ■• ■ •:■■■• ' ■ •■ •• ■ :■•■■ ■■ T ASFJALL f GÖITUS «5 T SfltLIR 476 ▼ KlOfHIHGSHLIOI ▼ VATHADALUR t SUHODAIUR Bjarni Jónsson listmálari. Tónlistarhátíð bjargað í stál- verksmiðju TEKIST hefur að „bjarga" tónlist- arhátíðinni í Lucerne í Sviss en um tíma leit úr fyrir að ekkert yrði af henni vegna þess að ekki væri nógu góður tónleikasalur í borginni. Málið hefur verið leyst með því að breyta gamalli stálverk- smiðju í tónleikahöll, sem sögð er geta státað af hljómburði sem jafn- ist á við Musikvereinsaal í Vínar- borg, að því er segir í BBC music. Vandræðin hófust fyrir nokkr- um árum þegar tekin var ákvörðun um að reisa menningar- og ráð- stefnumiðstöð í Lucerne, því fljót- lega varð ljóst að ekki yrði hægt að notast við gömlu menningarm- iðstöðina í borginni á meðan hin risi, því sú eldri yrði að víkja fyrir þeirri nýju. Lagt var til að sinfóníutónleikar færu fram í risatjaldi en stærstu hljómsveitir hátíðarinnar, Berlín- ar- og Vínarfílharmóníurnar, þvertóku fyrir það, sögðust ekki myndu mæta til hátíðarinar. Fram- kvæmdastjóri hennar, Matthias Bamert, setti umfangsmikla leit í gang, finna yrði stað sem hægt væri að notast við. Starfsmenn hans brugðust ekki, þeir stungu upp á stálverksmiðju í úrhverfi Emmenbrúck, sem er skammt frá járnbrautarstöð, svo hægt er um vik fyrir tónleikagesti að komast á áfangastað. Áðurnefndar sinfón- íuhljómsveitir féllust á ráðagerðina og hátíðin verður haldin, eins og ekkert hafi ískorist, 16. ágúst til 10. september. ísland í víð- ummyndum BOKMENNTIR F r æð i r i t ÍSLANDSBÓKIN Örnefni íslands í máli og myndum eftir Jóhann Isberg og Kjartan P. Sigurðsson. Litgreining: Offsettþjón- ustan. Prentun: Umbúðamiðstöðin. Tæknimyndir, 1996 - 192 bls. Verðkr. 4.990. FERÐAMENN á þjóðvegum landins kunna því oft vel að hafa einhverskonar upplýsingahandbók með sér, þar sem fræðast má um þær slóðir sem leiðin liggur um. Nú stendur þessum ferðamönnum ný bók til boða, að vísu ekki í handbók- arbroti, heidur bók sem tekur drjúgt pláss í hanskahólfinu og er stútfull af víðum yfirlitsmyndum og grunn- upplýsingum um umhverfi hringveg- arins og nokkurra annarra þjóðvega. íslandsbókin - Örnefni Islands í máli og myndum er einskonar stór handbók fyrir ferðalanginn, 192 blaðsíður, þar sem ljósmyndir með merktum örnefnum eru meginefnið og gefa útsýni yfir svæðin sem þess- ir vegir liggja um. Fyrst og fremst er farið með ströndinni og horft inn til dala, á fjöll og yfir flatlendi, byggðir og mýrar. Oft er í myndun- um horft af háum útsýnisstöðum og einstaka sinnum úr flugvélum; það er gjarnan sumar á síðum bókarinn- ar en vetrarklæði landsins sjást þó af og til. Eins og höfundar útskýra í for- mála, þá reyna þeir að koma fyrir í myndunum 170 því sem „er stórt og áberandi" í því landslagi sem þeir hafa valið að sýna og er við fjölfarnar leiðir. Markmiðið er að notendur bókarinnar geti fræðst um ótal örnefni milli fjalls og ijöru. íslandsbókin er sett upp eins og hringferð um landið sem hefst á suðvesturhorninu, með útúrdúrum eins og um Vestfirði og inn á Suður- landið. Uppsetning bókarinnar er einföld og þægileg. Á hverri opnu eru oftast tvær stórar víðmyndir af nálægum slóðum. Á milli myndanna er stuttur texti sem gefur hugmynd- ir um jarðfræði svæðisins og tvö lít- il kort. Annarsvegar mynd af íslandi með rauðum bletti sem sýnir svæðið sem um er fjallað og svo annað kort þar sem farið er nær og sýnt hvar myndirnar eru teknar. Yfir og undir hverri mynd eru borðar með örnefn- um, þar sem bent er á fjöll, sagt hvað þau eru há, og nöfn á ýmsum öðrum kennileitum. Auðvelt er að leita að ákveðnum stöðum eða ör- nefnum í vel skipulögðu efnisyfirliti og örnefnaskrá sem er í bókarlok. Þrátt fyrir að nokkrar ljósmynda bókarinnar séu vel lukkaðar, eins og myndir af Vestfjörðum úr lofti og Vestmannaeyjum, þá hefur ekki verið unnt að hafa mikla fagurfræði að leiðarljósi við myndatökurnar, eins og höfundar benda réttilega á. Stundum eru aðstæður og birta ekki alltaf eins og best væri á kosið, og svo þarf jú alltaf að horfa vítt yfir og sjá til fjalla og annarra áberandi staða sem nafngreina þarf. Flestar munu myndirnar vera settar saman í tölvu og sérkennilegt að höfundar útskýri það ekki eins og annað sem viðkemur myndatök- unum sjálfum. Munu vera notaðar allt upp í ijórar ljósmyndir til að útbúa þær panórama-myndir sem prentaðar eru í bókinni og er tækni- leg vinnsla á skeytingum þessum með miklum ágætum. Hinsvegar kann ljósmyndurum og áhugafólki um landslagsmyndir að þykja það blekkjandi að ekki sé greint frá því hvernig myndirnar eru unnar, og það væri heldur ekki sanngjarnt að bera þessar panóramamyndir saman við þær myndir sem bestu landslagsljós- myndarar okkar hafa sýnt á liðnum árum, markmiðið með töku mynd- anna er það ólíkt. Örnefnaskráningin er mismun- andi nákvæm. Á sumum myndanna er nafn við hvern hól, hvern læk, og hæð fjalla tilgreind. Annars stað- ar er bara sýnd hæð sumra fjall- anna og nöfn við sumar heiðar, gil og dali. Þá ber svolítið á óná- kvæmni og villum í skráningunni. Þannig heitir Akrafjall sínu rétta nafni á bls. 12, en þegar horft er yfir það á bls. 16 hefur gleymst að nefna fjallið í örnefnaborðanum. Á sömu síðu er það svo rangt nafn- greint í texta, kallað Akranesfjall. Villur sem þessar geta rýrt gildi svona bóka. Þegar heimamenn finna til dæmis slíkar villur við myndir af svæðum sem þeir þekkja vel, þá kunna þeir að vantreysta framhaldinu. Líklegt þyki mér að ónógum yfirlestri sé hér um að kenna, og slælegum prófarkalestri eins og nokkrar innsláttarvillur bera vott um. Mikil vinna hlýtur að liggja að baki bókinni, bæði í myndatökum og söfnun upplýsinganna. Eins og ég hef sannreynt þá er íslandbókin ágætur ferðafélagi. Það er auðvelt að fletta upp á þeim slóðum sem leiðin liggur um og það getur verið skemmtilegt að vita hvað fjöllin framundan heita, hvað þau eru há og hvað áin í dalbotninum heitir. Landakort fræða ferðalanginn vissulega um þetta sama, en þetta er bara allt önnur upplifun og býsna skemmtilegt er að horfa á mynd í bók og líta svo upp og sjá þá sama eða svipað útsýni, bara í annarri birtu og kannski á öðrum árstíma og geta þar lesið sér til um hvað staðirnir heita. Því þótt orð skálds- ins séu fullafdráttarlaus, þá er sitt- hvað til í því að landslag væri lítils virði ef það héti ekki neitt. Einar Falur Ingólfsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.