Morgunblaðið - 15.05.1997, Page 36

Morgunblaðið - 15.05.1997, Page 36
36 FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 1997 MENIMTUN MORGUNBLAÐIÐ Skólaskrifstofa Skagfirðinga Hvatt til nýbreytni og þróunarstarfs SAMSTARF skólaskrifstofanna á Norðurlandi vestra lofar góðu, að því er fram kemur í ársskýrslu. Einnig kemur þar fram að mikil- vægt sé að skilgreina og efla sér- fræðiþjónustu við forráðamenn nemenda og að þörf sé á að bæta upDlýsingastreymi. Á Norðurlandi vestra starfa þijár skólaskrifstofur. Ein þjónar Siglu- firði, önnur Húnvetningum og sú þriðja Skagfirðingum. Þarfir skóia mismunandi Helstu verkefni kennsluráðgjafa á Skólaskrifstofu Skagfirðinga haustið 1996 voru starfsleikninám Gagnfræðaskólans á Sauðárkróki; skólaheimsóknir, fræðslufundir fyr- ir kennara og öflun og miðlun upp- lýsinga. í skýrslunni er lögð áhersla á að hver skóli hafi sín sérkenni og þarfir þeirra séu mismunandi. Muni starfsemi mótast af því og til greina komi að styðja við gerð skólanámskrár og mat á skóla- starfi. „Hvatt verður til nýbreytni- og þróunarstarfa meðal skóla, kennarahópa og kennara," segir í skýrslunni. Við stofnun skólaskrifstofunnar var ákveðið að þar skyldi vera starf- rækt kennslu- og þjónustumiðstöð. Stúdentamyndir Passamyndir PÉTUR PÉTURSSON LJÓSMYNDASTÚDÍO LAUGAVEGI 24 • SÍMI 552 0624 Stór hluti starfstíma fór í að flokka bóka- og skjalasafn fyrrverandi fræðsluskrifstofu en einnig tóku flutningar dijúgan tíma. Samning- ur var gerður við Námsgagnastofn- un um að miðstöð kennslumynda- safns Norðurlands vestra yrði hjá kennslumiðstöð Skólaskrifstofu Skagfirðinga. Meðal verkefna framundan hjá kennslufulltrúa er að vinna að því að efla tölvunotkun í skólastarfi auk þess að útbúa kennslukassa til út- láns. Tveir kennslukassar eru þegar til, annars vegar safn upplýsinga og tækja til að kynna ullarvinnu, þar sem saga og handverk er sam- tvinnað og hins vegar efnisfræði- kassi, þar sem náttúrufræði og handmennt eru tengd saman. Sérkennsluráðgj öf Sérkennsluráðgjöf felst aðallega í greiningu og ráðgjöf, en því sam- hliða er markmiðið að efla þekkingu innan skólanna á kennslu og vinnu- brögðum sem bæta námsaðstöðu og möguleika nemenda. í skýrsl- unni kemur fram, að í uppphafi verði sjónum beint að umsjónar- mönnum sérkennslu og reynt að efla starf þeirra og þekkingu. Einn- ig að skólum verði boðið upp á hópathugun á lestri hjá 9. bekk á vorönn með það að markmiði að hægt verði að nýta lokaár grunn- skólans markvisst til að styrkja lest- ur og auka leshraða sé þess þörf. Sálfræðingur skólaskrifstofunn- ar mun á næsta ári leggja aðal- áherslu á að efla þekkingu í um- dæminu á taugasálfræðilegum greiningum. Einnig á þeim vinnu- brögðum sem kennarar þurfa að tileinka sér vegna barna, sem greind hafa verið ofvirk, misþroska, með Asberger-heilkenni eða Tour- ett-heilkenni. Verða haldnir fræðslufundir fyrir kennara og for- eldra. 54% giímdu við námsvanda í viðauka ársskýrslu Skólaskrif- stofu Skagfirðinga kemur fram að 54% nemenda sem sálfræðiþjónusta veitti aðstoð áttu við námsvanda að glíma, 26% við hegðunarvanda, 17% við tilfínningavanda og 3% við ýmiss konar vandamál. Þá er einnig birt í viðauka samantekt á fjölda erinda sem sérkennsluráð- gjafa/kennslufulltrúa hafa borist frá 1. ágúst 1996 fram til áramóta. ____STEINAR WAAGE_ Æ SKÓVERSLUN N LOUIS NORMAN Tegund:24835 Verð: 6.995,- Stærðir: 37-41 Tegund: 23819 Verð: 6.995,- Stærðir: 36-41 Mikið úrval afsandölum á alla fjölskylduna PÓSTSENDUM SAMDÆGURS 5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN ^ SÍMI 551 8519 ^ STEINAR WAAGE SKOVERSLUN ^ SÍMI 568 9212 Morgunblaðið/Úr myndasafni VÍÐA FÁ nemendur ekki lögboðinn fjölda kennslustunda. Krafa um lágmarks kennslustundafjölda Skólastjórar furða sig á því að ákvæði um lögbundinn fjölda kennslustunda, sem aldrei var framfylgt meðan grunnskólarnir heyrðu undir menntamálaráðuneytið, skuli nú eiga að koma til framkvæmda eftir að sveitarstjórnir tóku við rekstri grunnskólans. Þeir segja aðstæður óbreyttar. í KJÖLFAR þess að menntamála- ráðuneytið úrskurðaði fyrr í vetur, að nemendur tiltekins grunnskóla í Reykjavík skorti 3-4 stundir upp á þá lágmarkskennslu á viku, sem lög kveða á um, standa nú yfír viðræð- ur milli Fræðsluskrifstofu og Skóla- stjórafélags Reykjavíkur. Skólastjórarnir hafa lýst undrun sinni á því að ákvæði, sem aldrei var framfylgt meðan grunnskólarn- ir heyrðu undir menntamálaráðu- neytið, skuli nú eiga að koma til framkvæmda. „Þótt öllum megi ljóst vera að aðstæður hafa ekki að þessu leyti breyst við það eitt að færast frá ríki til sveitarfélags,1* eins og segir í bréfi frá Skólastjóra- félagi Reykjavíkur til fræðslustjóra. Kæra frá foreldri Hins vegar mun aldrei hafa reynt formlega á þetta ákvæði meðan rík- ið sá um rekstur grunnskólans, því fyrst nú í haust kærir foreldri til ráðuneytisins. Heimildir Morgun- blaðsins herma þó að skólastjórar hafi leitað til ráðuneytisins varðandi þessi mál á undanförnum árum án árangurs. Ólafur Darri Andrason deildar- stjóri hjá Fræðslumiðstöð Reykja- víkur segir að úrskurður ráðuneyt- isins sé afdráttarlaus varðandi lág- marksstundaijölda. „Sú aðferð að telja bekkjarstundir en ekki stundir sem einstaka nemendur fá er talið brjóta í bága við grunnskólalög.“ Frá því grunnskólinn var hjá ríki hefur verið notast við ákveðna reiknireglu, sem segir að fyrir ákveðinn nemendahóp á tilteknu aldursbili skuli koma til ákveðinn fjöldi skiptistunda. Þetta þýðir að t.d. er helmingur bekkjarins í sundi eða handmennt meðan hinn helm- ingurinn er í stærðfræði eða ís- lensku, svo dæmi séu tekin. Nem- endur sem eiga samkvæmt lögum að fá 31 stund fá með þessu móti e.t.v. ekki nema 29 stundir. Skólastjórar hafa verið hlynntir skiptitímum því þeir segja að magn sé ekki sama og gæði; betri kennsla fáist til lengri tíma litið með því að hafa 14 nemendur í senn, þótt þeir fái tveimur stundum minna á viku. Skv. heimildum Morgunblaðs- ins hefur í einstaka skóla verið lagt undir dóm foreldra hvort þeir kjósa skiptitíma eða lögbundinn kennslu- stundafjölda og hafa þeir valið fyrri kostinn. Fleiri skiptitímar á næsta ári Að sögn Ólafs Darra Andrason- ar hefur Fræðslumiðstöðin miðað við sömu reiknireglur á þessu skólaári og ríkið notaðist við. Hins vegar stendur til að leggja til fleiri skiptitíma á næsta skólaári og þá fyrst og fremst fyrir 1.-3. bekk. Hann segir að þetta geti orðið til þess að skólastjórar þurfi því hugs- anlega að breyta skipulagi skóla- starfsins. Skólastjóri sem Morgunblaðið ræddi við segir óánægju vera meðal skólastjóra. Þeim sé stillt upp við vegg og geti sig hvergi hrært. „Annað hvort verðum við að fella niður skiptingu í þessum verklegu greinum eða að nemendur fá skipti- tíma en ekki lögmætan fjölda kennslustunda, a.m.k. í sumutn ár- göngum. Þriðja leiðin er að fella niður verklegu greinarnar eins og gert hefur verið í sumum skólum í einhveijum mæli.“ Hann útskýrir þetta nánar og segir að t.d. hafi ráðuneytið ákveð- ið á sínum tíma að 8. og 9. bekkir fengju 3 V2 skiptistund á hveija 24 nemendur. „Þetta dugar ekki vegna þess að áratuga hefð er fyrir því að skipta nemendum í handmennt, heimilisfræði og stundi. Til þess þarf að lágmarki fimm skiptistund- ir, þannig að ljóst er að IV2 kennslu- stund vantar upp á.“ Viðamikið mál Ólafur Darri segir að Fræðslu- miðstöð taki undir áhyggjur skóla- stjóranna. Hann kveðst þó ekki eiga von á að nein allsheijarlausn verði komin í haust, málið sé miklu stærra en svo. Einhver farvegur verði þó fundinn. „Nú er verið að ganga frá úthlutun á kennslukvóta og síðan er það raunverulega sam- vinnuverkefni milli skólastjóra og Fræðslumiðstöðvar hvernig hægt er að skipuleggja skólastarf með þessum kennslukvóta að fengnum úrskurði ráðuneytisins." Úthlutun úr Þróunarsjóði grunnskóla 1997 Níu m.kr. til sextán verkefna MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur ákveðið úthlut 9 m.kr. úr Þróunarsjóði grunnskóla til 16 verkefna. Auglýst var eftir skólum til að taka að sér þróunarverkefni annars vegar á sviði sjálfsmats skóla/mats á skólastarfi og hins vegar stærðfræði og náttúrufræði. Níu verkefni að upphæð 4.450 þús. kr. hlutu styrk til starfs í stærðfræði og náttúrufræði. Hæsta styrkinn í þessum flokki, 800 þús. kr., hlutu Skólaskrifstofa Skaga- fjarðar og grunnskólar í Skagafirði vegna verkefnisins Samstarf milli skóla og þróun kennslu- og náms- efnis í náttúrufræði og stærðfræði. Aðrir sem hlutu styrk í þessum flokki voru Þróunarfélag Vest- mannaeyja vegna upplýsingatækni í náttúrufræðikennslu, Samtök líf- fræðikennara vegna safnverkefnis fyrir Líf í fersku vatni, Barnasmiðj- an vegna kennsluverkefnis með tæknikubbum í eðlisfræðikennslu, Grunnskólinn á Hellu vegna Kennslumiðstöðvar Suðurlands í eðlis- og efnafræði, Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar vegna stöðu stærð- fræðinnar í grunnskólum Hafnar- fjarðar, Holtaskóli Reykjanesbæ vegna skipulags náttúrufræði- kennslu í efstu bekkjum grunnskóla og KHÍ vegna stærðfræðináms á tímamótum og náttúrufræðikennslu í 1.-3. bekk. Alls hlutu sjö verkefni styrk að upphæð 4.550 þús. kr. vegna sjálfs- mats skóla. Hæstu styrkina, 950 þús. kr., hlutu Mýrarhúsa- og Val- húsaskóli og Brekkubæjar og Grundaskóla á Akranesi. Aðrir sem hlutu styrk í þessum flokki eru Grunnskólinn í Hólmavík; Hrafnagilsskóli, Oddeyrarskóli og Laugarbakkaskóli; Smáraskóli í Kópavogi; Rannsóknastofnun Há- skólans á Akureyri og Grunnskóli Skútustaðahrepps, Dalvíkurskóli og Grunnskóli Siglufjarðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.