Morgunblaðið - 15.05.1997, Page 38
38 FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Um orgelsmíði á Islandi
NÚ HAFA í nokkum
tíma staðið yfír deilur
Björgvins Tómassonar
orgelsmiðs og Hauks
Guðlaugssonar, söng-
málastjóra þjóðkirkj-
unnar. Er ég einn þeirra
sem fylgst hafa með
þessum deilum af
áhuga, en hef ég þó
ekki séð ástæðu til að
stinga niður penna fyrr
en nú. Ástæða þess að
ég finn mig knúinn til
að rita þessar línur
núna er sú að mér
hreinlega blöskra að-
gerðir söngmálastjóra
hvað viðkemur málefn-
um orgelsmíða á ís-
landi. Er ég ekki einn um þessa skoð-
un; hef ég rætt við fjölmarga um
þessi mál og eru menn almennt sam-
mála um að margar spurningar hafi
vaknað um hvort söngmálastjóri
hafi staðið eðlilega að sínum verkum
gegnum árin. Björgvin Tómasson rit-
ar einmitt grein um þetta í Mbl.
sunnudaginn 20. apríl sl. undir yfír-
skriftinni „Hrollvekja í 10 ár“. Þar
segist hann orðinn örvæntingarfullur
þar sem hann sé farinn að sjá fram
á atvinnumissi, vegna þess að söng-
málastjóri sniðgangi hann hvað eftir
annað í vali á orgelum. Sagði Björg-
vin að íslensk orgel-
smíði af sinni hálfu
væri „í dauðateygjun-
um, svona rétt í þann
mund sem hún er að
fæðast". Tók hann íjöl-
mörg dæmi um óeðlileg
vinnubrögð söngmála-
stjóra og velti upp
spurningum sem söng-
málastjóri ætti að sjá
sóma sinn í að svara.
Nú, þegar þessar línur
eru ritaðar er liðinn
rúmur hálfur mánuður,
kominn er 6. maí, en
ekki bólar á svari. Er
söngmálastjóri að reyna
að þegja þettá niður?
Það verður ekki annað
sagt en að sú spuming verði ansi
áleitin, auk þess sem maður getur
ekki annað en spurt sig hvort eðli-
legt sé að einn maður geti haft örlög
heillar iðngreinar í hendi sér, eins
og hér virðist vera raunin.
Söngmálastjóri á villigötum
Söngmálastjóri skrifaði reyndar
grein í Mbl. þann 16. mars sl. og
gerði lítið úr áhyggjum Björgvins.
Sagðist hann ekki bera ábyrgð á því
hvaðan söfnuðir kaupi orgelin sín,
hann taki engar endanlegar ákvarð-
anir um kaupin, heldur gefi hann
Orgelin hans Björgvins
hafa, segir Jón Svanur
Jóhannsson, fengið
hæstu einkunn hjá
erlendum aðilum.
aðeins gagnlegar ábendingar. Máli
sínu til stuðnings vitnaði hann í lög
um söngmálastjóra: „ ... Hann hef-
ur jafnframt samstarf við sóknar-
presta og sóknarnefndir og er þeim
til aðstoðar við ráðningu organista
og val kirkjuhljóðfæra (Tilv. lýkur).“
Ennfremur sagði hann að hann hlyti
að eiga rétt á að hafa sjálfstæðar
skoðanir á hvernig hljóðfæri henti
best hverju sinni. Þarna er söngmála-
stjóri kominn á villigötur.. Auðvitað
á hann rétt á að hafa sínar skoðan-
ir, hver maður á rétt á því. En söng-
málastjóri verður hins vegar að átta
sig á því að hann er ekki bara „ein-
hver kall úti í bæ“ sem er að segja
sitt álit á orgelum. Eins og hann
bendir sjálfur á er þetta starf hans
lögum samkvæmt. Það er hlutverk
hans að afla sér þekkingar á orgel-
smíðum í heiminum, jafnt á íslandi
sem erlendis. Það þarf ekkert að
Jón Svanur
Jóhannsson
GfiRÐVEISLfi
Allt fyrir garðinn 15.-17. maí
Það verður mjög erfitt að finna ekki það sem þig vantar í garðinn ef þú kemur í Kringluna
15. til 17. maí. Verslanir í Kringlunni bjóða til mikillar garðveislu með ótrúlegu úrvali af
plöntum og verkfærum og bókum og fatnaði og húsgögnum og....
Barnasmiðian
Mikið úrval af barnaleiktækjum.
Sjöfn
Kynning á nýjustu tölvutækni
til aö máta litina á húsið.
Bamagaman
Barnarennibraut.
Árni M. Hannesson, Ffúðum
Gefur góð ráð um jarðaberjaræktun,
laugardag.
Hagkaup, 1. hæð
Blakurl, áfc
áburður.
Hagkaup, 2. hæð
Allt frá garðhönskum til fellihýsa.
Lögreglan
Skoðar reiðhjól a Kringlutorgi
á laugardag kl. 12:00 - 14:00.
Ingólfsapótek
Kynning a Vichy sólarvörum
kl. 14:00 - 18:00.
Heíisuhúsið
Mikið úrval kryddjurta í pottum.
Byggt & Búið
Málning, viðarvörn, garðverkfæri,
sláttuvélar o.m.fl.
Sportkringlan
Léttur ratnaðurf garðinn
og gönguferðir.
Habitat
Vönduð garðhúsgögn.
Sjónvarpsmarkaðurinn
Tjöld fyrir sumarið.
Róbert G. Róbertsson
skrúðgarðyrkjumeistari
Ráðgjöf um garðinn, fim. og fös.
frá kl. 14:00.
Penninn
Kynning og tllboð á
Stóru garðabókinni.
Sólblóm
Mikið úrval sumarblóma.
Bindindísfélag ökumanna
Reiðhjólaþrautir og keppni á
Kringlutorgi laugardag kl. 12:00 -
14:00. Veitt verða góð verðlaun
frá Sportkringlunni, Byggt & Búið
og Sjónvarpsmarkaðnum.
Whittard
Sumarkaffi
Plastprent
Hlúplast,
ræktunardúkur.
sge
Mikið úrval at
gúmmístfgvélum/skóm.
Eymundsson
Mikíl úrval blóma-
og garðræktarbóka.
KRINGMN
frd morgni til kvölds
vera að organistar þekki neitt til
orgelsmíða og þá treysta þeir að
sjálfsögðu á að söngmálastjóri gefi
þeim upplýsingar. Enda væru þeir
sjálfsagt ekki að leita til hans ef
þeir þyrftu þess ekki. Ef opinber
starfsmaður hefur það hlutverk að
gefa ráðleggingar hlýtur það að telj-
ast eðlileg krafa að hann vinni starf
sitt vel (eins og krafist er af öðrum
opinberum starfsmönnum), þ.e. í
þessu tilfelli, _gefi góð ráð og njóti
sannmælis. Ábendingar frá söng-
málastjóra þjóðkirkjunnar hljóta því
að vera mjög leiðandi og er engin
afsökun að hann taki ekki endanleg-
ar ákvarðanir.
Hljómurinn er ekki allt
Nú er ég ekki að segja að söng-
málastjóri megi ekki segja hvaða
hljómur honum fínnist fallegastur,
en af grein hans mátti einmitt skilja
að hann veldi orgel eftir sínum uppá-
haldshljómi. Að sjálfsögðu má hann
segja hvað honum finnst fallegast,
en það hlýtur líka að vera hlutverk
hans að benda á aðra möguleika,
eins og t.d. ódýrari lausnir. Enda
þarf ekkert að vera að sóknarnefnd-
inni þyki uppáhaldshljómur söng-
málastjóra fallegri en hver annar og
það er jú hún sem er að kaupa orgel-
ið, ekki söngmálastjóri. Það hlýtur
að vera ódýrara fyrir sóknamefndir
að kaupa orgel frá íslenskum orgel-
smið, t.d. sparast við það gríðarlegur
flutningskostnaður og kemur það sér
vel fyrir nefndimar. Fólk verður að
gera sér grein fyrir því að oft er
reyndin sú að þó að einhver hlutur
sé dýrari en annar, þá þarf það ekki
að þýða að hann sé endilega betri.
A.m.k. þori ég að fullyrða að orgelin
hans Björgvins era ekki verri en
önnur orgel. Ég vil taka það skýrt
fram núna að ég er ekki að fara fram
á að söngmálastjóri gefi Björgvini
öll verk sem koma á borð til hans,
en söfnuðir eiga rétt á að vita að
hann er til. Björgvin er menntaður
orgeismiður og veit því hvað hann
er að segja. Það hlýtur að vera sókn-
amefndinni eingöngu í hag að fá
a.m.k. að ræða við manninn.
Vegið að listamanni
Söngmálastjóri sagði meira í grein
sinni. Hann sagðist vera boðinn og
búinn til að setjast niður með Björg-
vini og taka upp þráðinn í samninga-
viðræðum um inntónun orgelanna.
Að hugsa sér. Söngmálastjóri er
m.ö.o. að fara fram á að fá að ráða
hljómnum á orgelunum hans Björg-
vins. Þvílík móðgunl!
Orgelsmíði er eins oe önnur hljóð-
færasmíði. Hún er að hálfu iðngrein
og að hálfu listgrein. Smíði orgel-
hússins er iðn, en stilling og inntónun
pípnanna, þ.e. tilbúningur hljómsins,
er list. Og orgelsmiðir hljóta, eins
og aðrir hljóðfærasmiðir, að hafa
eigin hugmyndir um hljóminn. Hver
orgelsmiður hefur sinn karakter. Það
að þurfa að beygja sinn karakter að
smekk söngmálastjóra til að fá að
vinna sína vinnu er ekkert annað en
niðurlæging og er ótrúlegt að söng-
málastjóri skuli leyfa sér að minnast
á slíkt, sérstaklega í ljósi þess að það
er ekki hann sem er að kaupa orgel-
in heldur söfnuðimir. Þetta er ná-
kvæmlega það sama og að banna list-
málara að mála nema með því skil-
yrði að allar myndimar hans verði
aðeins málaðar með mismunandi af-
brigðum af bláum litum. Eins og áður
sagði er Björgvin eini menntaði orgel-
smiðurinn á íslandi, sem fæst við
nýsmíðar á orgelum og hefur hann
leyfi til að iðka grein sína. Það þýðir
að hann kann að inntóna orgelin sjálf-
ur. Hann hefur fengið mikið hrós,
bæði heima og erlendis frá, fyrir
smíðar sínar, einnig þar sem hann
hefur séð um inntónunina sjálfur. Ég
ætla ekki að halda því fram að Björg-
vin sé besti orgelsmiður í heimi. En
hitt þori ég að fullyrða að hann er
fullkomlega hæfur til að vinna sína
vinnu, annars hefði hann varla út-
skrifast sem orgelsmiður í Þýskalandi.
Styðjum við bakið á
íslenskum iðnaði
Að lokum langar mig til að beina
orðum mínum til sóknarnefnda og
organista á Islandi. Þeir eru fjöl-
margir sem hafa skoðun á málinu
og vil ég eindregið hvetja fólk til
þess að láta í sér heyra. Þessi iðnað-
ur, orgelsmíði á íslandi, stendur á
brauðfótum þessa dagana. Síðustu
ár hefur Björgvin Tómasson verið
með 2-3 menn í vinnu hjá sér, en
þeir gætu verið miklu fleiri. Þessi
iðnaður hefur alla burði til að ná
fótfestu á íslandi en í stað þess er
hann látinn deyja út. Þess á ekki að
þurfa. Orgelin hans Björgvins eru
ekki dýrari en önnur orgel og hafa
fengið hæstu einkunn hjá erlendum
aðilum. Hann hefur sannað svo um
munar að íslensk orgelsmíði á skilið
að dafna. Því vil ég hvetja fólk til
að styðja við bakið á Björgvini Tóm-
assyni. Með góðum stuðningi getur
íslensk orgelsmíði blómstrað og orðið
að rótgrónum og traustum iðnaði.
Höfundur er nemi í Söngskólanum
í Rvík, meðlimur í kór Fella- og
Hólakirkju.
SKÓHÖLLIN U|
BÆJARHRAUNI 16-555 4420