Morgunblaðið - 15.05.1997, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 1997 39
AÐSENDAR GREINAR
Alþjóðlegt
fræðasetur
í Reykholti
MENNTAMALARAÐUNEYTIÐ
hefur auglýst eftir hugmyndum um
starfsemi í Reykholti í Borgarfirði
eftir að skóli verður lagður þar
niður í þeirri mynd sem hann er
nú. í Reykholti eru miklar skóla-
byggingar, nýbyggð
kirkja og Snorrastofa
áföst við hana sem
verið er að innrétta.
Þá stendur gamla
kirkjan þar enn.
Reykholt er einkum
nafnfrægt vegna þess
að höfðinginn Snorri
Sturluson, sagnaritari
og skáld, bjó þar á fyrri
hluta 13. aldar.
Snorrastofa er reist í
minningu hans og ætl-
að það hlutverk að vera
safn um Snorra og
fræðasetur um nor-
ræna sögu og bók-
menntir sem tengjast
honum. Þá er stofunni
ætlað að kynna sögu Reykholts og
Borgarfjarðarhéraðs. í stofunni
verður bókhlaða og gestaíbúð fyrir
innlenda og erlenda fræði- og lista-
menn.
í kjallara Snorrastofu og kirkj-
unnar er nú rekin upplýsingaþjón-
usta fyrir ferðamenn og haldnar
sýningar til að kynna Snorra
Sturluson, sögu staðarins og ís-
lenska menningu. Þá hefur verið
gistiþjónusta og greiðasala í skóla-
húsinu á sumrum.
Handrit og fornleifar
Snorri Sturluson er talinn höf-
undur Heimskringlu, Snorra-Eddu
og jafnvel Egils sögu. Helsta heim-
ildin um lífshlaup hans og lýsingin
á honum er íslendinga saga, sem
bróðursonur hans, Sturla Þórðar-
son, sagði fyrir. Öll þessi rit eru
nokkuð vel varðveitt í handritum.
Hafa þau mikið verið rannsökuð,
bæði af innlendum og erlendum
fræðimönnum, oft verið gefin út
og þýdd á aðrar tungur. Eru verk
Snorra meðal þeirra miðaldarita ís-
lenskra sem víðast eru kunnug.
Þekkt er Snorralaug í Reykholti
og frásögn Sturlu sagnritara um
að Snorri sat í vinafagnaði í laug-
inni. Er unnið að því að koma
Snorralaug á heimsminjaskrá. Hins
vegar hefur þeim heimildum sem
leynast í bæjarhólnum í Reykholti
um byggð þar ekki verið sinnt sem
skyldi þótt frumrannsóknir hafi
verið gerðar á bæjarstæðinu og
búið að kortleggja það að hluta.
Er brýnt að frekari rannsóknir fari
þar fram sem allra fyrst.
Fræðasetur
Þegar núverandi skipan á skóla-
haldi í Reykholti verður hætt er
einboðið að nýta húsakynni skólans
fyrir aukna starfsemi í tengslum
við Snorrastofu. í ávarpi, sem Björn
Bjarnason menntamálaráðherra
hélt á ráðstefnu á menningarstarfs-
degi í Þjóðminjasafninu 20. septem-
ber sl., hreyfði hann þeirri hugmynd
að gera Reykholt að evrópsku
menningarsetri þar sem stunduð
yrðu miðaldafræði og rannsóknir á
fornleifum. En nýjasta upplýsinga-
tækni mundi treysta alþjóðleg
tengsl þeirra sem þar ynnu að fræð-
um sínum. Þetta er tillaga sem veit
væri að skoða frekar og útfæra svo
að Reykholt verði áfram fræðslu-
og menningarstaður.
Eftii' að bókasafn Snorrastofu
hefur verið tekið í notkun má gera
ráð fyrir því að marga þeirra sem
stunda íslensk fræði víða um lönd
fýsi að dveljast þar um tíma og
fást við rannsóknir sínar í sögulegu
umhverfi. Þótt mönnum vaxi nú ef
til vill í augum ijarlægð frá Reykja-
vík verður mikil breyting á sam-
göngum við Reykholt þegar Hval-
íjarðargöngin verða tekin í notkun.
Þá mun það hafa mikla þýðingu
fyrir allar aðstæður til
rannsókna á fornritun-
um þegar búið verður
að yfirfæra fjölda
handrita í stafrænt
form en vinna við það
er að heíjast. Annað
efni í tölvutæku formi,
eins og textar íslend-
ingasagna og orð-
stöðuiykill á geisla-
diski, auðvelda fræði-
mönnum að vinna fjarri
rannsóknarbókasafni.
Fornsagnanám-
skeið og ráðstefnur
Þá má hugsa sér að
halda námskeið um ís-
lensk miðaldafræði og
fornleifafræði í Reykholti. Stofnun
Sigurðar Nordals, Árnastofnun og
heimspekideild Háskólans gangast
fyrir tveggja vikna námskeiði í ís-
lenskum miðaldafræðum fyrir er-
lenda stúdenta í fyrsta skipti í sum-
ar. Er það fullsetið jafnvel þótt það
Reykholt tengist órjúf-
anlega bókmenntaarfi
okkar. Úlfar Bragason
telur það í samræmi við
forna frægð staðarins
að koma þar upp alþjóð-
legu fræðasetri.
hafi verið auglýst seint. Er ljóst af
áhuganum á námskeiðinu að þörf
er fyrir það og því æskilegt að halda
áfram að bjóða upp á slíkt nám-
skeið og önnur stutt námskeið á
háskólastigi um íslenska menningu.
Þá býður Fornleifastofnun íslands
upp á tveggja vikna námskeið í
fornleifafræði á Hofstöðum við
Mývatn í sumar. Námskeið af þessu
tagi gætu auðveldlega farið fram á
fræðasetri í Reykholti.
Stofnun Sigurðar Nordals hefur
staðið fyrir alþjóðlegum fræðaþing-
um annaðhvert ár. Árið 1990 hélt
stofnunin svonefnda Snorrastefnu
um norræna goðafræði og Snorra-
Eddu. Komið hefur fram hugmynd
um að efna til annarrar Snorra-
stefnu á næsta ári. Fjalli hún um
fræðigreinar á 13. öld. Þessa ráð-
stefnu og aðrar álíka mætti sem
best halda í Reykholti.
Söguferðir
Áhugi íslendinga á fornsögun-
um fer nú aftur vaxandi. Má það
vafalaust að einhvetju leyti þakka
nýjum og alþýðlegri útgáfum en
áður og umræðum og upplestrum
í Ríkisútvarpinu. Jón Böðvarsson
fv. skólameistari hefur um árabil
haft kvöldnánrskeið um fornsög-
urnar, fyrst á vegum Tómstunda-
skólans og síðar þess skóla og
Endurmenntunar Háskólans. Hafa
færri komist að en vilja. Þá hefur
Jón verið leiðsögumaður í vinsæl-
um ferðum um söguslóðir. Ferðafé-
lag Islands býður nú fram ferðir á
söguslóðit'. Þá er verið að koma
upp sögusetri á Njáluslóðum.
Stofnun Sigurðat' Nordals heldur í
ágúst í sumar í þriðja sinn svokall-
að Sagnaþing í héraði, í þetta
skiptið á Sauðárkróki. Á þessum
þingum er fjallað um fornsögur og
sögustaðir heimsóttir. Hafa fyrri
þing verið fjölsótt og er vonast til
að svo verði enn í sumar þegar
ræða á Grettissögu og fara út í
Drangey. Á fræðasetri í Reykholti
mætti koma til móts við þennan
áhuga íslendinga sjálfra. Eðlilegt
væri einnig að efla þekkingu barna
og unglinga á sögu þjóðarinnar og
bókmenntum með því að fara um
söguslóðir. Benda má á að til er
kort yfir sögustaði í Borgarfirði.
Reykholt mætti því nýta fyrir or-
lofs- og fræðsluferðir íslenskra
ungmenna. Sams konar ferðir
mætti einnig bjóða ungmennum frá
öðrum löndum, ekki síst Noregi þar
sem mikill áhugi er á ritum Snorra
Sturlusonar.
Islendingar hafa farið í sögu- og
menningarferðir bæði til Evrópu og
Ameríku. Þótt undarlegt megi virð-
ast hafa þeir sem stunda ferðaþjón-
ustu hér á landi haft lítinn áhuga
á að skipuleggja slíkar ferðir um
Island. Þó hefur verið unnið nokk-
urt brautryðjendastarf í þessum
efnum í Borgarnesi. Hefur íslend-
ingum og útiendingum verið leið-
beint þar um söguslóðir, sögustaðir
merktir og kortlagðir og útlending-
um boðið upp á námskeið. Stofnun
Sigurðar Nordals hefur fengið fyrir-
spurnir frá háskólum vestanhafs
um söguferðir fyrir eftirlaunafólk.
Fræðasetur í Reykholti væri kjörinn
dvalarstaður í þess konar menning-
arferðum, ekki síst ef fornleifarann-
sóknum yrði sinnt þar á komandi
árum.
Söguhátíðir
Þá mætti í tengslum við ferða-
þjónustuna á_ staðnum skipuleggja
söguhátíðir. Á ári hveiju eru haldn-
ar hátíðir á Ólafsmessu, bæði í
Færeyjum og á_ Stiklarstöðum í
Þrændalögum. Á þessar hátíðir
kemur fjöjdi innlendra og erlendra
manna. Á Stiklarstöðum er fall
Ólafs helga fært í leikrænan bún-
ing. Að sama skapi mætti gera leik-
þætti um ævi Snorra Sturlusonar
sem byggðu á íslendinga sögu eða
færa konungasögurnar í leikrænan
búning. Leikgerðir upp úr Banda-
manna sögu og Gunnlaugs sögu
ormstungu hafa notið mikilla vin-
sælda hér á allra síðustu árum og
hefur leikhópunum sem hafa sýnt
þær verið boðið á listahátíðir víða
um lönd.
Þýðendastofa
í sumar koma allar íslendinga-
sögurnar og margir þættir út á
ensku í einu safni. Fjölmargir er-
lendir þýðendur hafa unnið að þessu
stórvirki. Fornsögurnar hafa verið
þýddar á ljölda þjóðtungna og stöð-
ugt koma nýjar þýðingar. Áhuginn
á fornbókmenntunum hefur síst
orðið til að spilla fyrir íslenskum
samtímabókmenntum á erlendri
grund, heldur þvert á móti. Þeir sem
þýtt hafa fornsögurnar eru líka í
þeim hópi sem ötullegast hafa kom-
ið samtímabókmenntum á framfæri
við aðrar þjóðir. íslendingar hafa
lítið gert til að greiða fyrir þýðend-
um þessum. Þó hafa nokkrir þeirra
notið styrkja Snorra Sturlusonar,
sem Stofnun Sigurðar Nordals veit-
ir. Víða erlendis eiga þýðendur kost
á að dveljast á þýðingarstofum um
nokkurn tíma, fá aðgang að bóka-
safni og tækjum. Væri eðlilegt að
hugsa til þýðenda íslenskra bók-
mennta þegar ákveðin verða fram-
tíðarnot fyrir skólahúsin í Reyk-
holti.
Reykholt hefur um áratugi verið
fræðslumiðstöð í Borgarfirði. Stað-
urinn tengist óijúfanlega bók-
menntaarfi okkar. En í bókmennt-
irnar sóttu íslendingar röksemdir
fyrir endurheimt sjálfstæðis síns.
Ekkert er því sjálfsagðara en finna
skólahúsunum þar hlutverk í sam-
ræmi við forna frægð staðarins og
þau verði áfram notuð fyrir starf-
semi sem verði bæði lslendingum
og útlendingum til menntunar og
þroska, gagns og gamans. Öflugt
alþjóðlegt fræðasetur í Reykholti
mætti verða til þess.
Höfundur er forstöðumadur
Stofnunar Sigurðar Nordals.
Úlfar
Bragason
Odýrt í sund í
Reykjavík
NÚ ÞEGAR sól fer
að hækka á lofti nýta
margir sér þjónustu
sundlauga borgarinnar
til útivistar og hressing-
ar. í dag eru fimm al-
menningssundlaugar
reknar á vegum Reykja-
víkurborgar og mun sú
sjötta bætast við næsta
vor þegar ný sundlaug
verður tekin í gagnið í
Grafarvogi. Þar mun
rísa 25 metra útilaug
auk 12 metra innilaugar
sem ætluð er til kennslu
skólabarna í Grafarvogi.
Við hönnun sundlaug-
arinnar er haft að leiðar-
ljósi að hún nýtist al-
menningi og fjölskyldum á sem best-
an hátt. Umhverfi laugarinnar er
einnig hannað með þarfir fatlaðra í
huga, sérstakar merkingar eru fyrir
blinda og sjónskerta, skábraut er í
útilaug og sérstakt búningsherbergi
fyrir þá sem einhveiTa hluta vegna
geta ekki farið í almenn búningsher-
bergi. Áætlað er að opna sundlaugina
á vordögum 1998.
Hér í Reykjavík er „sundlauga-
menning" á háu stigi og sundlauga-
mannvirki okkar til fyrirmyndar á
heimsmælikvarða. Sund hentar öll-
um aldurshópum og eru þeir ófáir
sem fara daglega í sund, enda hefur
aðsókn að sundstöðum borgarinnar
aukist jafnt og þétt á síðustu árum.
Allt frá árinu 1991 hefur gjald-
skrá sundstaða borgarinnar verið
óbreytt meðan rekstrarkostnaður
hefur hækkað umtalsvert. Miklar
verðlagsbreytingar hafa átt sér stað
á síðustu árum, launakostnaður hef-
ur aukist og tekjur sundstaða sem
hlutfall af rekstrarkostnaði lækkuðu
að raungildi. Það er auðvitað alltaf
pólitísk ákvörðun hveiju sinni hve
mikið þjónusta er niðurgreidd með
skatttekjum. Á undanförnum árum
hefur margoft komið til tals að
breyta þyrfti gjaldskrá sundstaða í
takt við aukinn rekstrarkostnað. í
skýrslu borgarendurskoðanda kem-
ur m.a. fram að fyrir hvetja krónu
sem kom inn í aðgangaeyri sund-
staða borgarinnar þurfti að leggja
hana og ríflega hálfa krónu til við-
bótar til greiðslu kostnaðar.
100 krónur fyrir fullorðna
og 35 krónur fyrir börn
Við gerð síðustu fjárhagsáætlunar
var ákveðið að breyta gjaldskrá
sundstaða Reykjavíkurborgar. Nið-
urstaðan varð sú að 30 miða kort
fullorðinna kosta nú 3.000 krónur
en kostuðu áður 2.700 krónur. Það
þýðir í reynd að fullorðinn einstakl-
ingur borgar nú 100 krónur í sund
fyrir hvert einstakt skipti. 10 miða
kort fyrir börn kosta
nú 350 krónur eða 35
krónur skiptið. Hægt
er nú að kaupa árskort
sem kosta 17.500 krón-
ur eða um 1.458 krónur
á mánuði. Sé eingöngu
miðað við 20 daga í
mánuði kostar hvert
einstakt skipti 73 krón-
ur. Áfram er ókeypis
fyrir ellilífeyrisþega.
Á vettvangi Sam-
taka sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu
hefur verið rætt um
sumargjald í sund en
ekki náðst samstaða
um að koma á slíku
gjaldi í öllum sveitarfé-
lögunum, enda aðstæður mismun-
andi. Á hveiju sumri koma þúsundir
erlendra ferðamanna til landsins sem
nýta sér þjónustu sundlauga Reykja-
víkur enda eru sundlaugar okkar vel
Við gerð síðustu fjár-
hagsáætlunar, segir
Steinunn V. Oskars-
dóttir, var ákveðið að
breyta gjaldskrá
sundstaða Reykja-
víkurborgar.
kynntar í öllum ferðamannabækling-
um. Á sumrin koma auk þess marg-
ir í sund sem alla jafna stunda ekki
sund reglulega. Þegar ákveðið var
að gera breytingar á gjaldskránni
þótti því sanngjarnt að leggja sér-
stakt sumargjald á hvert einstakt
skipti en halda óbreyttri gjaldskrá
afsláttarkorta.
Breytingar á gjaldskrám eru aldr-
ei vinsælar en það kann ekki góðri
lukku að stýra rekstrarlega séð þeg-
at' gjaldskrá þjónustu breytist ekki
þrátt fyrir mikla aukningu rekstrar-
kostnaðar. Gjaldið fyrir þjónustuna
þarf þannig að taka eðlitegt mið af
því hver kostnaður við reksturinn er.
Að lokum skal áréttað að ókeypis
er í sund fyrir ellilífeyrisþega, ein-
stakt gjald fyrir fullorðna sem kaupa
30 miða ótímabundið kort er 100
krónur og einstakt gjald fyrir börn
sem kaupa 10 miða kort er 35 krón-
ur. Ef menn bera þetta síðan saman
við gjald fyrir aðra líkamsrækt eða
afþreyingu er samanaburðurinn slá-
andi.
Höfundur er formaður íþrótta- og
tómstundaráðs Reykjavíkur.
Steinunn V.
Óskarsdóttir
'í.cvVÁ
Tilboð 20% afsláttur
Verð frá kr. 2.450.
Sníðum þær í gluggann hinn.
1
Z-BRAUTIR OG GLUGGATJOLD,
f FAXAFENI 14, SÍMI 533 5333.