Morgunblaðið - 15.05.1997, Qupperneq 44
44 FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNUAUGLÝSINGAR
Félagsmálastjóri
Félagsmálaráð Sauðárkrókskaupstaðar auglýs-
ir lausa til umsóknar stöðu félagsmálastjóra.
Félagsmálastjóri hefuryfirumsjón með eftir-
töldum málaflokkum:
* Félagslegri ráðgjöf og fjárhagsaðstoð
* Almennri sálfræðiþjónustu
* Vinnumiðlun
* Dagvistarmálum
* Þjónustu sveitarfélagsins við fatlaða
* Þjónustu sveitarfélagsins við aldraða
* Jafnréttismálum
Ennfremur erfélagsmálastjóri starfsmaður
Barnaverndarnefndar Skagafjarðar.
Á Félagsmálastofnun Sauðárkróks hefur
byggst upp mjög gott fagumhverfi en við
stofnunina starfa m.a. sálfræðingurog
iðjuþjálfi aukfélagsmálastjóra. Mikil áhersla
er lögð á samstarf við ýmis félagasamtök í
bænum og aðrar stofnanir. Svæðisskrifstofa
um málefni fatlaðra á Norðurlandi vestra hefur
aðsetur á Sauðárkróki og einnig Skólaskrifstofa
Skagfirðinga.
Við leitum að félagsmálastjóra sem hefur góða
þjónustulund og samstarfshæfileika, er hug-
myndaríkur og skapandi. Æskileg menntun
er háskólapróf í félagsráðgjöf.
Nánari upplýsingar um starfið veita Snorri
Björn Sigurðsson, bæjarstjóri, í síma 453 5133
og Regína Ásvaldsdóttir, félagsmálastjóri, í
síma 453 6174.
Umsóknarfrestur ertil 1. júní nk.
Bæjarstjórinn á Sauðárkróki.
Matreiðslumeistari
—framreiðslumeistari
Hótel Barbró, Akranesi, óskar eftir kokki og
þjóni til starfa strax.
Upplýsingar í síma 431 4240.
Beltagröfumenn
Okkur vantar vana beltagröfumenn. Mikil vinna
framundan.
Upplýsingar í símum 852 5568/565 3140.
Klæðning efh.
Mötuneyti
EIMSKIP
EIMSKIP leggur áherslu
á aö auka hlut kvenna í
ábyrgðarstööum hjá
félaginu og þar meö
stuöla að því aö jafna
stöðu kynjanna á
vinnumarkaði.
HF. Eimskipafélag íslands óskar að
ráða starfsmann í mötuneyti félags-
ins að Pósthússtræti 2.
Um tvö hlutastörf er að ræða, annað frá
kl. 8.00-13.00 og hittfrá kl. 11.30-16.00.
Starfið felst í:
Undirbúningi hádegisverðar.
Framreiðslu kaffiveitinga.
Tiltekt og frágangi í mötuneyti.
Hæfniskröfur:
Reglusemi og snyrtimennska.
Þægileg framkoma.
Þjónustulund.
Vinsamlega athugið að umsóknar-
eyðublöð og allar nánari upplýsingar eru
eingöngu veittar hjá Flagvangi hf.
Umsóknum skal skilað til Flagvangs hf
fyrir 22. maí n.k.
Hagvangur hf
Skerfan 19
108Reykjavík
Sími: 581 3666
Bréfsími: 568 8618
Netfang:
hagvang@tir.skyrr.is '
Veffang:
http://www.apple.is
/hagvangur „
HAGMANGUR RADNINGARHðNUSTA
Rétt þekking á réttum tíma
-fyrir rétt fyrirtæki
Vélfræðingur
Eimskip óskar eftir að ráða vélfræðing með
full réttindi, til starfa á skipum sínum. Fyrir
réttan starfsmann er í boði fjölbreytt og
krefjandi starf með margvíslegum tækifærum
til faglegs og persónulegs þroska.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Dagþór
Haraldsson, ráðningarstjóri skipverja, í síma
525 7612 frá kl. 10.00 til kl. 12.00 á daginn.
Umsóknumskal skilaðtil HjördísarÁsberg,
starfsmannastjóra Eimskips, Pósthús-
stræti 2, 101 Reykjavík, fyrir 22. maí nk.
EIMSKIP
Fjórðungssjúkrahúsið
Neskaupstað
Eftirfarandi stöður eru lausar
til umsóknar:
1 staða sjúkraþjálfara, starfshlutfall 75%.
Umsóknarfrestur ertil 27. maí 1997.
Umsóknum um starfið verði skilað á skrifstofu
sjúkrahússins. Staðan veitistfrá 1. ágúst nk.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Stéttar-
félags sjúkraþjálfara og ríkisins.
Upplýsingar veitirframkvæmdastjóri í síma
477 1402.
Staða forstöðumanns þvottahúss FSN, starfs-
hlutfall 80%.
Umsóknarfresturertil 15 júní. Umsóknumum
starfið verði skilað á skrifstofu sjúkrahússins.
Staðan veitist frá 1. ágúst nk.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi launa-
nefndar sveitarfélaganna og ríkisins.
Upplýsingar veitirframkvæmdastjóri í síma
477 1402.
Afríka þarfnast þín!
Vilt þú gerast sjálfboðaliði?
Sem sjálfboðaliði leggur þú þitt af mörkum til aö bæta lífsskilyrði
fyrir eitthvert fátækasta fólk Afríku í samvinnu við það.
Starfið felur í sér mikla vinnu: að byggja skóla, hjálpa götubörnum,
skipuleggja heilsuherferðir, kenna skólabörnum, koma á fót barna-
klúbbum eða sjá um upplýsingaherferðir um eyðni.
Þú notar 13 mánuði af lífi þínu til að bæta heiminn og jafnframt
mennta sjálfan þig og afla þér reynslu. Dagskráin er 6 mánaða nám
í Den rejsende Hpjskole pá Sydsjælland í Danmörku, 6 mánaða sjálf-
boðastarf í Malaví, Mósambík, Zimbabve eða Angóla og 1 mánaða
upplýsingavinna í Danmörku. Byrjar 4. ágúst eða 1. september. Kynn-
ingarfundur verður á íslandi. Nánari upplýsingar gefur Lotte Lade-
gaard Pedersen, símbréf 00 45 53 82 55 89.
Den rejsende Hojskole pá Sydsjælland,
Lindersvoldvej 5,4640 Fakse, Danmörk.
DRHYSYDSJ@inet.uni-c.dk.
Tæknifræðingar
/verkfræðingar
Okkur vantar vana tækni- /verkfræðinga strax.
Upplýsingar í síma 565 3140.
Klæðning efh.
Kaffihús og kaffiverslun
óskareftirstarfsfólki strax. Framtíðarstarf.
Þekking og áhugi fyrir kaffi er skilyrði. Krafist
er góðrar þjónustulundar og stundvísi.
Áhugasamir sendi umsókn til afgreiðslu Mbl.
eigi síðaren þriðjudaginn 20. maí nk., merkta:
„Gott kaffi — 946".
FUMOIR/ MANNFAGNAÐUR
AUGLYSING A
Faxamarkaðurinn hf.
TIL SOLU
Framhaldsaðalfundur
Internets á íslandi hf.
verður haldinn 22. maí 1997 í Tæknigarði, Dun-
haga 5 klukkan 16.00.
Dagskrá:
1. Tillaga um heimild til stjórnar um að auka
hlutafé um 2,5 milljónir að nafnverði.
2. Tillaga um heimild til stjórnar til að ganga
frá hlutabréfum í NORDUnet.
Tillögur stjórnar liggja fyrir í heild á skrifstofu
félagsins.
Stjórnin.
'liafBe
Sottware
Aðalfundur
AðalfundurTölvusamskipta hf. verður haldinn
föstudaginn 30. maí 1997 kl. 16.30 í Þerney,
Hótel Esju.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Tillaga stjórnar um heimild til hlutafjár-
aukningar.
Aðalfundur Faxamarkaðarins verður haldinn
á Gauki á Stöng föstudaginn 23. maí kl. 17.00.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf skv.
samþykktum félagsins.
Stjórnin.
Aðalfundur Ferðamála-
samtaka höfuðborgar-
svæðisins
Aðalfundur Ferðamálasamtaka höfuðborgar-
svæðisins verður haldinn í Fjörugarðinum,
2. hæð, Fjörukránni Hafnar-
firði, fimmtudaginn 22. maí
1997 kl. 20.00.
Dagskrá aðalfundar verður
samkvæmt lögum samtak-
anna.
Fundarstjóri verður:
Ingvar Vilrtorsson, bæjarstjóri
í Hafnarfirði.
Gestur fundarins:
Ómar Benediktsson, fram-
kvæmdastjóri íslandsflugs.
Fulltrúarfyrirtækja, sveitarfé-
laga og einstaklingar sem eru
aðilar að samtökunum, eru
eindregið hvattirtil að mæta.
Stjórn Ferðamálasamtaka
höfuðborgarsvæðisins.
Iðnaðarsaumavélar til sölu
Pfaff 1245 (leðurbólstrun) á kr. 100.000.
Pfaff 463 hraðsaumavél með klippum á kr.
60.000.
Lewis union special 150—2 blindföldunarvél.
Reece hnappagatavél á kr. 30.000
Tveir sníðahnífar á kr. 25.000 og 40.000.
Upplýsingar í síma 552 0855 milli kl. 9—18.
Byggingakrani
Til sölu nýinnfluttur þýskur byggingakrani.
Tegund Peiner MK 205, árgerð 1988. Bóma
33 metrar. Með krananum fylgirfjarstýring.
Upplýsingar í síma 893 6429.
Byggingakrani
Til sölu góður byggingakrani, tegund Libherr
27K, 30 m bómulengd.
Upplýsingar í símum 896 3782 og 565 1982.
VEIOI
Veiðivötn
á Landmannaafrétti verða opnuð sunnudag-
inn 22. júní kl. 15.00. Sala og pöntun veiðileyfa
í Skarði í síma 487 6580 frá 9.00-18.00.
Staðfestið fyrri pantanir fyrir 1. júní.
Stjórnin.