Morgunblaðið - 15.05.1997, Síða 55
‘ Ý
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 1997 55
MIIVININGAR
>
I
8
>
»
»
lagsins Drífanda. Þau deildu sömu
hugsjónum og lögðu bæði hönd á
plóginn í verkalýðsbaráttunni í Eyj-
um. Húsið sem þau bjuggu lengst
í þar var í daglegu tali nefnt Bolsa-
staðir, í upphafí af pólitískum and-
stæðingum, en þar fór mörg um-
ræðan fram um stéttabaráttu og
samvinnuhugsjónina. Þetta hús
stendur enn, reisulegt í brekku og
er það ánægjulegt að núverandi
eigendur eru að vinna að endurbót-
um á því.
Helga og ísleifur fluttu til
Reykjavíkur árið 1942 þegar hann
tók við stöðu kaupfélagsstjóra
KRON. Helga varð fljótt virk í fé-
lagsstarfi í Reykjavík og starfaði
m.a. með Kvenfélagi sósíalista,
Mæðrastyrksnefnd og var í stjórn
Húsmæðraskóla Reykjavíkur. Hún
starfaði einnig sem safnvörður við
Þjóðminjasafnið.
Fyrstu árin í Reykjavík bjuggu
Helga og ísleifur á Skólavörðustíg
12 en mínar fyrstu minningar um
Helgu eru bundnar heimili hennar
í Austurbrún. Þá var þar jólaboð
og sá ég þar fyrst litla frænku
mína, Arnfríði, en hún var fyrsta
barnabarn Helgu. Helga átti barna-
láni að fagna en þau hjón eignuð-
ust þijú börn, Erlu íþróttakennara,
Högna hagfræðing og Gísla mæl-
ingamann.
Frá því að ísleifur lést árið 1967
heimsótti Erla móður sína daglega.
Þeim hætti hélt hún svo að segja
óslitið meðan Helga bjó í Austur-
brúninni og einnig eftir að hún fór
að Droplaugarstöðum. Þessi um-
hyggja Erlu reyndist Helgu ómet-
anleg.
Þegar við hittumst var Helga söm
við sig, þótt árin færðust yfir hana,
lífleg og ákveðin, spaugsöm og
glettin. Hún hafði gaman af skoð-
anaskiptum og vildi gjarnan takast
á í umræðunni. Hún tjáði sig ekki
einungis með röddinni, heldur sýndi
sterk svipbrigði. Þegar við Helga
kvöddumst í desember vissum við
ekki að þetta yrði okkar síðasti
fundur. Nú hefur hún gengið þann
veg eftir langt og viðburðaríkt líf
sem okkur öllum er ætlaður.
Innilegar samúðarkveðjur færi
ég börnum hennar og fjölskyldum
þeirra frá móður minni og bróður.
Rósa Eggertsdóttir.
u
0
«
JL
Við andlát Helgu ömmu verður
manni ósjálfrátt hugsað um þá
stormasömu tíð sem hún hefur lifað
og þær miklu breytingar sem hafa
orðið á kjörum manna og daglegu
amstri á þessari öld. Hún var fædd
sjálft aldamótaárið og átti erfiða
æsku eins og svo margir aðrir á
þessum tíma. Ellefu ára missti hún
móður sína og tvö af níu systkinum
létust á unga aldri. Berklafaraldur-
jnn, sem geisaði á fyrri hluta aldar-
innar, tók síðan fjögur systkinanna
í blóma lífsins. Fjölskylda hennar
tvístraðist og frá tólf ára aldri þurfti
hún að standa á eigin fótum. Hún
fékk því engin tækifæri til að ganga
menntaveginn. Þessi erfiða æska
hefur eflaust mótað harða skapgerð
hennar, baráttuvilja, dugnað og
réttlætiskennd.
Því hefur verið haldið fram að
minni manna sé sjálfstætt afl, sem
kann að skipuleggja og skilja
kjarnann frá hisminu. Ef minnið
er slíkt afl, þá var hún Helga amma
búin hreint einstöku slíku afli. Þeir
voru ófáir sagnfræðingarnir sem
leituðu til hennar til að fá fram
heildræna mynd af atburðum og
persónum liðins tíma. Hún virtist
manni ótæmandi fróðleiksbrunnur
á hinum ýmsu sviðum. Kveðskapur
og bókmenntir voru henni hugleik-
*n og í samræðum komu oft fram
á varir hennar hendingar og heilu
kvæðin voru oft sungin af litlu til-
efni. Þá var hún vel heima í stjórn-
málum og verkalýðsbaráttu
kreppuáranna, enda hafði hún sjálf
tekið þátt í þeim átökum með eigin-
manni sínum og bróður. í ævisögu
Einars ríka eftir Þorberg Þórðar-
son lýsir Einar pólitískum and-
stæðingi sínum, Helgu ömmu, sem
fallegri og skynsamri konu, póli-
tískri valkyiju með mikla áróðurs-
hæfileika.
En fyrir okkur barnabörnin var
hún fyrst og fremst amma, sem
gott var að leita til og sem passaði
okkur þegar foreldrarnir brugðu sér
frá í lengri eða skemmri tíma. Og
eins og dæmigerðar ömmur gera,
pijónaði hún vettlinga og peysur á
okkur krakkana. Heimili hennar á
Austurbrún var mikilvægur funda-
staður allrar fjölskyldunnar þar sem
rætt var um heima og geima yfir
kaffi og kökum. Tók hún jafnan
þátt í þeim umræðum og hafði sín-
ar ákveðnu skoðanir á málunum.
Það var ekki fyrr en fyrir rúmu ári
að ellin fór að ná undirtökunum og
hún varð að yfirgefa heimili sitt.
Megi minningin um Helgu ömmu
lifa.
ísleifur Ólafsson.
í dag verður kvödd hinstu kveðju
Helga Rafnsdóttir. Vil ég fyrir
hönd Mæðrastyrksnefndar Reykja-
víkur setja fram þakklæti fyrir
störf hennar í nefndinni. Helga var
ritari nefndarinnar í mörg ár.
Fundargerðir hennar voru frábær-
ar og rithöndin listafögur. Þegar
ég tók við formennsku í Mæðra-
styrksnefnd Reykjavíkur árið 1981
studdi Helga mig og leiðbeindi.
Hún var þeim eiginleikum gædd
að hún ávann ser ávallt traust og
virðingu fólks. í störfum nefndar-
innar var hún glögg, og fljót að
koma auga á það sem betur mátti
fara.
A níræðisafmæli hennar bauð
hún nefndarkonum til veislu á Hót-
el Borg. Veislusalurinn var þétt
setinn gestum og afmælisbarnið
geislaði af gleði. Aldurinn bar hún
einstaklega vel, enda lánsöm að
njóta góðrar heilsu á sinni löngu
ævi.
Nú er lífsgöngu þessarar mætu
konu lokið. Með virðingu og þakk-
læti kveðjum við í Mæðrastyrks-
nefnd Reykjavíkur þessa mikilhæfu
konu. Við vottum bömum hennar
og aðstandendum dýpstu samúð.
Unnur Jónasdóttir.
Sá er eftir lifír
deyr þeim sem deyr
en hinn dáni lifir
í hjarta og minni
manna er hans sakna.
Þeir eru himnarnir
honum yfir.
(Hannes Pétursson)
Vinkona mín, Helga Rafnsdóttir,
er látin í hárri elli. Hún var ekkja
ísleifs Högnasonar kaupfélags-
stjóra, en hann lést árið 1967.
Ég átti því láni að fagna að kynn-
ast Helgu fyrir tæpum 25 árum er
ég tengdist fjölskyldu hennar. Þótt
ættartengslin hafi rofnað síðar þá
hélst vinátta okkar í gegnum tíð-
ina. Með Helgu er gengin mikil og
merk kona. Hún var ein af þessum
konum, sem við íslendingar getum
verið stoltir af - þær eru drottning-
ar, hvort sem við hittum þær í heið-
arkotum eða höllum.
Helga var víðlesin, stórfróð og
stóð á föstum grunni aldamótakyn-
slóðarinnar. Baráttukona og mikill
friðarsinni, er lét sér fæst mannlegt
óviðkomandi. Einörð í skoðunum,
studdi þær vel og fylgdi þeim fast
eftir - hreinskiptin svo af bar. Hins-
vegar var hún nærgætin er taiað
var um viðkvæm mál, mild og ótrú-
lega skilningsrík. Trygglynd vinum
sínum og bar hag niðja sinna ofar
öllu.
Til Helgu var gott að leita, sanna
vini þarf maður ekki að hitta dag-
lega - nærveru þeirra skynjar mað-
ur. Þegar Atlantshafið skildi okkur
að var það oftar en ekki að hún
nafna mín hringdi, rétt til að fá
fréttir. Við gátum hlegið saman
eins og tvær skólastúlkur þótt hún
hefði hálfa öld í vinning - ekkert
kynslóðabil.
Tvennt er mér ofarlega í minni.
Á fallegum vordegi fyrir nokkrum
árum gengum við saman úti í Foss-
vogskirkjugarði. Hún mátti til með
að sýna mér leiðið hans ísleifs síns
en hann var henni ætíð ofarlega í
huga. Við spjölluðum um heima
og geima og þrátt fyrir hennar háa
aldur var ótrúlegt hvað hugsunin
var skýr, vökul og hugurinn ung-
ur. I fermingarveislu dóttur
minnar, er Helga var tæplega ní-
ræð, stóð hún eips og drottning í
miðjum hópi yngismeyja og sagði
þeim frá fermingardegi sínum og
undirbúningi tæpum sjötíu og
fimm árum áður. Þessi frásögn var
mér og öllum er á hlýddu ógleym-
anleg.
Nú er komið að leiðarlokum.
Langri og gifturíkri ævi vinkonu
minnar er lokið. Ástvinum hennar
sendi ég innilegar samúðarkveðjur.
Megi hin eilífa hvíld verða henni
góð.
Helga Hjálmtýsdóttir.
ErfidrykkjurM
H
M
H
H
H
H
H
H
H
H
L A N
H
H
H
H
H
H
H
H
H
^ Simi 562 0200 ^
fiiiiiiinirl
Marmari ♦ Granít ♦ Blágrýti ♦ Gabbró
íslensk framleiðsla
Sendum
myndalista
MOSAIK
Hanuirshöfði 4 - Revkjavík
simi: 5871960 -fax: 587 1986
GL4ESH.EG KAFFIHLAÐBofcÐ
fallegir salir
OG MJÖG-GÓÐ ÞJQNUSTA
HOTEL LWTLEIQIR
- kjarni málsins!
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
GUÐLAUG G. VILHJÁLMSDÓTTIR
(Unna)
Brekkum III, Mýrdal,
verður jarðsungin frá Skeiðflatarkirkju laugar-
daginn 17. maí kl. 14.00.
Þeir, sem vildu minnast hennar, er bent á
dvalarheimilið Hjallatún.
Halldór Jóhannesson,
Ómar H. Halldórsson,
Helga Halldórsdóttir,
Arnar V. Halldórsson,
Jóhannes Halldórsson,
Sævar Halldórsson,
Guðrún S. Ingvarsdóttir,
Ögmundur Ólafsson,
Hrafnhildur S. Guðmundsdóttir,
Unnur Sigurðardóttir,
Halla G. Emilsdóttir,
Þorsteinn Þorkeisson,
og barnabörn.
t
Móðir okkar, stjúpmóðir og amma,
sigrFður þórðardóttir,
fyrrum húsfreyja
á Refsstað
í Vopnafirði,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
fimmtudaginn 8. maí.
Jarðarförin fer fram frá Vopnafjarðarkirkju
laugardaginn 17. maí kl. 14.00.
Svava Pálsdóttir,
Þórður Pálsson,
Ásgerður Pálsdóttir,
Gunnar Pálsson,
Vfglundur Pálsson,
Björn Pálsson,
Guðlaug Pálsdóttir,
Erlingur Pálsson,
tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
t
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og
afi,
BENEDIKT RAGNAR BENEDIKTSSON
fyrrverandi bifreiðastjóri,
Safamýri 48,
sem lést á hjartadeild Landspítalans 10. maí,
verður jarðsunginn frá Grensáskirkju föstu-
daginn 16. maí kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á
Hjartavernd.
Brynhildur Skeggjadóttir,
Sigrún Benediktsdóttir, Gísli Einarsson,
Lilja Benediktsdóttir, Sigurður Vilbergsson,
Benedikt E. Benediktsson, Þórný Alda Kristjánsdóttir
og barnabörn.
t
Ástkær móðir, stjúpmóðir og tengdamóðir,
GUÐRÚN ÞORVALDSDÓTTIR,
Laugateigi 10,
Reykjavík,
andaðist á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 5. maí.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug við
fráfall hennar.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Grundar fyrir frábæra umönnun.
Þorbjörg Jósefsdóttir, Þórarinn Óskarsson,
Gfsli K. Guðbrandsson,
Guðbjörg H. Guðbrandsdóttir, Gunnar Pétursson,
Hrafnhildur Guðbrandsdóttir, Gunnar Richardson
og fjölskyldur.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir amma og
langamma,
BJÖRG ELLINGSEN
Njörvasundi 32,
Reykjavík,
lést mánudaginn 12. maí.
Erna Ragnarsdóttir,
Auður Ragnarsdóttir,
Davíð Helgason
Jón Óttar Ragnarsson, Margrét Hrafnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.