Morgunblaðið - 15.05.1997, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 1997 63
Stuðmenn
á afmælis-
hátíð MH
HLIÓMSVEITIN Stuðmenn leikur
á sérstakri lokahátíð Menntaskól-
ans við Hamrahlíð föstudaginn 23.
ihaí nk.
„Hljómsveitin sem stofnuð var
af þeim Jakobi Frímanni Magnús-
syni og Valgeiri Guðjónssyni var
fyrsta skólahljómsveit skólans og
var upphaflega hugsuð sem
skemmtiatriði á árshátíð en sló svo
rækilega í gegn að ferill hennar
er að líkindum sá lengsti og litrík-
asti sem nokkur íslensk hljómsveit
getur státað af. Þó að hljómsveitin
komi afar sjaldan fram virðast vin-
sældir hennar ótrúlegar, jafnt með-
al hinna yngri sem eldri. Síðast
komu Stuðmenn fram árið 1994 á
sérstöku hátíðarkvöldi þegar þjóð-
búningur íslenskra karlmanna var
valinn og nú gefst sjaldgæft tæki-
færi til þess að heyra í sveitinni á
sérstöku afmælishátíðarkvöldi í til-
efni af lokum 30. afmælisárs skól-
ans. Auk Stuðmanna mun hinn
sívinsæli skemmtikraftur Páll Ósk-
ar koma fram en hann er einnig
fyrrverandi nemandi við MH og
var sem kunnugt fulltrúi íslands í
Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva 3. maí sl.,“ segir í
fréttatilkynningu Nemendafélags
MH.
Forsala aðgöngumiða verður I
Norðurkjallara MH fyrir útskrifaða
stúdenta úr MH fyrr og síðar og
meðlimi nemendafélaga dagskóla
og öldungadeildar á vorönn 1997
frá kl. 16-19 dagana 15., 16., 17.
og 20. maí nk. á 800 kr. Fyrir
aðra verður sala aðgöngumiða 21.,
22. og 23. maí á 1.000 kr.
Gar ðyrkj uskól-
inn með nám-
skeið á lands-
byggðinni
TVEIR af kennurum Garðyrkjuskóla
ríkisins, Reykjum í Ölfusi, eru þessa
dagana með námskeið víðsvegar um
landið. Þetta eru þeir Gunnþór Guð-
finnsson, sem fjallar um matjurtir í
heimilisgarðinum og Kristinn H.
Þorsteinsson, sem fjallar um trjá-
klippingar og tijágróður í mismun-
andi umhverfí.
Kristinn er með fyrirlestur um
tijáklippingar í kvöld, fimmtudag, í
Borgarnesi, í félagsheimili hesta-
manna, Vindási, og Gunnþór annað
kvöld um matjurtirnar. Á laugardag-
inn verður Gunnþór á Sauðárkróki
frá kl. 13-18 í Fjölbrautaskóla
Sauðárkróks og laugardaginn 24.
maí í Fjölbrautaskóla Suðurnesja í
Keflavík frá kl. 13-18. Kristinn og
Gunnþór verða báðir á Akureyri
laugardaginn 31. maí. Þá mun Krist-
inn fjalla um tijágróður í mismun-
andi umhverfi og Gunnþór um mat-
jurtir í heimilisgarðinum. Báðir fyrir-
lestrarnir standa frá kl. 10-16.
Nánari upplýsingar og skráning á
námskeiðin fer fram á skrifstofu
Garðyrkjuskólans alla virka daga frá
kl. 8-16.
Rætt um
barnamissi
JÓHANN Thoroddsen, sálfræðing-
ur, fjallar um barnamissi á fræðslu-
fundi sem Ný dögun, samtök um
sorg og sorgarviðbrögð, stendur fyr-
ir í kvöld, fimmtudagskvöld kl. 20.
Samtökin hvetja sérstaklega for-
eldra sem misst hafa barn (börn)
sitt til að koma á fyrirlesturinn sem
verður í Gerðubergi. Jóhann mun
svara fyrirspurnum að loknu erindi
sínu. Allir eru velkomnir.
I Stiniirms
Morgunblaðið/Golli
P. OLE Fanger, formaður SCANVAC, afhenti Jóhannesi
Zoega, fyrrum veitustjóra Hitaveitu Reykjavíkur,
heiðursviðurkenningu SCANVAC.
Heiðraður á ráðstefnu
norrænna lagnafélaga
SAMTÖK norrænna Lagnafélaga
heita SCANVAC og gekk Lagna-
félag íslands í samtökin 1991.
Allt sem viðkemur tæknilegum
framförum í lögnum, umhverfis-
mál, orkumál og sá vandi að búa
á norrænum slóðum er á verk-
efnaskrá samtakanna og ein-
stakra félaga í hverju landi, segir
í fréttatilkynningu.
Fyrir þremur árum efndi
finnska félagið FINVAC til ráð-
stefnu, Rovaniemi, undir titlinum
„Cold Climate HVAC ’94“. í lok
þeirrar ráðstefnu var ákveðið að
siíkar ráðstefnur verði haldnar á
þriggja ára fresti. Lagnafélag ís-
lands, ICEVAC, tók að sér að
halda næstu ráðstefnu og fór hún
fram á Hótel Loftleiðum 30. apríl,
1.-2. maí sl. undir nafninu „Cold
Climate HVAC ’97“.
Heiðursviðurkenning
Aðalfundur SCANVAC var
haldinn í tengslum við ráðstefn-
una og í móttöku í Ráðhúsi
Reykjavíkur var heiðursviður-
kenning félagsins veitt en hún
hefur verið veitt fáum einstakl-
ingum á Norðurlöndum sem hafa
verið frumkvöðlar í orku- og
lagnamálum á starfsævi sinni.
Heiðursviðurkenning
SCANVAC var nú veitt lslendingi
í fyrsta sinni en hana hlaut Jó-
hannes Zoéga, fyrrum veitusljóri
Hitaveitu Reykjavíkur, en því
starfi gegndi hann í rúman aldar-
fjórðung. P. Oie Fanger, prófess-
or í verkfræði við Kaupmanna-
hafnarháskóla og formaður
SCANVAC afhenti viðurkenning-
una.
Jóhannes Zoéga er vélaverk-
fræðingur að mennt en þegar
hann tók við sem hitaveitustjóri
var veitusvæði Hitaveitu Reykja-
víkur aðeins innan Hringbrautar
í Reykjavík en nær nú yfir alla
Reykjavík, Kópavog, Garðabæ,
Hafnarfjörð, Bessastaðahrepp,
Mosfellsbæ og Kjalarnes.
Á þessum tíma hófust boranir
eftir orku í Grafningi og i fram-
haldi af því var Nesjavallavirkjun
byggð en óhætt er að segja að sú
virkjun hefur vakið athygli tækni-
manna um allan heim, segir í
fréttatilkynningu.
FRÉTTIR
gTíjg—| m m m I % w lssdw ■■
Íí« fíis
SENDIHERRA íslands, Hjálmar W. Hannesson flytur ávarp við
opnun íslensku sýningarinnar í Kína árið 1995. Mynd og viðtal
úr „Cliina Philatelic New“.
Kínversk frímerkja-
sýning í Reykjavík
KÍNVERSK frímerkjasýning
verður opnuð laugardaginn 17.
maí í Síðumúla 17, félagsheimili
Landssambands íslenskra frí-
merkjasafnara.
Þarna verður um að ræða frí-
merkjasýningu Kínverska alþýðu-
lýðveldisins í um 50 römmum,
auk sölusýningar. Ennfremur
verður þarna sölusýning Frí-
merkjasölu Pósts og síma hf.
Þessi samskipti milli landanna
hófust árið 1995, með því að for-
seti íslands fór í opinbera heim-
sókn til Kína. I tengslum við for-
setaheimsóknina var opnuð ís-
lensk frímerkjasýning. Að henni
stóðu íslensk og kínversk stjórn-
völd og íslenska sendiráðið í Kína.
Við opnun frímerkjasýningar-
innar voru margir gestir frá báð-
um löndum. Þar fluttu heima-
menn nokkrar ræður og loks einn-
ig íslenski sendiherrann á staðn-
um, Hjálmar W. Hannesson. Auk
heimamanna voru gestir við opn-
unina, bæði forseti Islands, frú
Vigdís Finnbogadóttir, utanríkis-
ráðherrann, Halldór Ásgrímsson,
og frá Póstmálastofnun Guðlaug-
ur Sæmundsson deildarstjóri.
Nú er komið að því að endur-
gjalda heimsóknina og halda frí-
merkjasýningu á kínverskum frí-
merkjum hér og er verið að setja
hanaupp.
Áhrif EVRÓs á
fyrirtæki
VERSLUNARRÁÐ íslands gengsl
fyrir morgunverðarfundi í dag í
Sunnusal, Hótel Sögu, frá kl.
8-9.30 um áhrif evrópumyntarinn-
ar EVRÓ á fyrirtækjarekstur
næstu ára bæði hér heima og er-
lendis.
Rætt verður um hvaða þýðingu
EVRÓið muni hafa fyrir fyrir-
tækjarekstur almennt, hvernig fyr-
irtæki búi sig undir þær miklu
breytingar sem eru í aðsigi og
hvar íslensk fyrirtæki standi gagn-
vart þessari þróun.
Framsögumenn verða Jósef Kul-
igovszky, forstjóri Allianz Leben
AG í Þýskalandi, og Vilhjálmur
Egilsson, framkvæmdastjóri Versl-
unarráðs íslands. Umræður og fyr-
irspurnir verða að framsögum
loknum.
-----*—*—♦-----
Fimmta
veiðisumarið
í Reynisvatni
í TILEFNI af því að 50.000. fiskur-
inn verður að líkindum veiddur á
þessu ári í Reynisvatni ofan Reykja-
víkur, verða veiðimanni sem dregur
hann að landi og skráir í veiðibók
veitt vegleg verðlaun. Auk þess
verða dregin út ýmis verðlaun til
handa veiðleyfishöfum þessa árs.
Árið 1997 er fimmta stangveið-
iárið á Reynisvatni. Um síðustu
áramót höfðu 35.624 fiskar veiðst
og þann 6. maí sl. höfðu 2.674 fisk-
ar veiðst frá áramótum. Dorgveiði-
meistari Reykjavíkur 1997 er Gest-
ur Gestsson frá Garði en hann
veiddi stærsta fiskinn í vetur sem
var 6.punda lax. Alls hafa veiðst
1.731 fiskur í dorgveiði í vetur.
* :m