Morgunblaðið - 15.05.1997, Síða 67

Morgunblaðið - 15.05.1997, Síða 67
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 1997 67 BRÉF TIL BLAÐSINS > * Þakkir til Urvals-Utsýnar STJÓRN „Úrvals-fólks“, sem er klúbbur sextíu ára og eldri á vegum ferðaskristofunnar Örvals-Útsýnar, var boðið til vikudvalar á Mallorca í lok apríl síðastliðinn. Tilgangur ferðarinnar var fyrst og fremst sá að kynnast staðnum, skoða hótel og þann aðbúnað og aðstæður sem eldri borgurum stendur þarna til boða. Dvölin var í alla staði mjög ánægjuleg og lærdómsrík, daglega var farið í skoðunarferðir um eyj- una, því margt var að sjá. Veðrið var hlýtt og notalegt eins og búast mátti við á þessari breiddargráðu og óhætt er að fullyrða að á Mall- orca geti allir fundið eitthvað við sitt hæfi. Þarna eru skemmtilegar gönguleiðir, sundlaugar, sand- strendur, íjölskrúðugt mannlíf og boðið upp á skemmtanir og afþrey- ingu af ýmsu tagi fyrir þá sem þess óska. Þeir sem leita friðsældar í fal- legu umhverfi eiga líka auðvelt með að finna hana. Gist var á íbúðarhótelunum Royal Cristina og Royal Playa de Palma og voru þau fyrsta flokks hvað alla þjónustu snertir. íbúðirnar voru rúmgóðar og notalegar og hreinlæti í hávegum haft. Og sömu sögu er að segja um önnur hótel á vegum Úrvals-Útsýnar sem hópurinn skoð- aði. Við nutum ágætrar fararstjórn- ar Rebekku Kristjánsdóttur og Sig- valdi danskennari var aldeilis betri en enginn með leikfimi og dans upp á hvern dag og alltaf nálægur og hjálplegur þegar með þurfti. Við getum með ánægju fullyrt að dvöl á Mallorca er í alla staði ákjós- anlegur kostur fyrir eldri borgara og víst er að Úrval-Útsýn hefur svo sannarlega sérhæft sig í að hugsa vel fyrir þörfum fólks sem komið er á efri ár. Starfsfólk þar hefur greini- lega stöðugt vakandi auga með öll- um þeim möguleikum sem bætt geta þjónustuna við þennan aldurshóp og lifandi áhuga á að „þeirra fólki“ líði sem best. Við urðum áþreifanlega vör við þann áhuga og sendum öllum hjá Úrvali-Útsýn kærar kveðjur og þakkir fyrir okkur. JÓNÍNA M. PÉTURSDÓTTIR, Revkjavík, BJÓRG FINNBOGADÓTTIR, Akureyri,. HAFSTEINN ÞORVALDSSON, Selfossi, JÓHANNA ARNÓRSDÓTTIR, Kópavogi, JÓNÍNA KRISTJÁNSDÓTTIR, Keflavík, BJARNFRÍÐUR LEÓSDÓTTIR, Akranesi. Við og alheimurinn Frá Atla Hraunfjörð: ULTRA religionem non contra. Ekki á móti trúarbrögðum heldur lengra komið. Það sem þúsundir milljóna hafa haldið vera líf í anda- heimi eða goðheimi, er lífið á öðrum hnöttum. Þessi hugsun sem segja má með svo fáum orðum, verður upphaf meiri breytinga til batnaðar á högum mannkyns en orðið hefur um allar aldir áður. Með þessum upphafsorðum opnar dr. Helgi Pjeturs. alla veröld fyrir mannkyni þessarar jarðar. Allri mystik eða dulúð er svipt í burt, ásamt andaheimi og endur- burði til jarðar aftur. Þessi upphafsorð birta okkur öll lögmál heimsins er manninum voru hulin í myrkri dulúðar og heimsku. Dr. Helgi opnar þá hugsun að framlífið fari fram á annarri jörð og þroskist þaðan fram á við, hið óendanlega. Einnig gerir hann guð að per- sónu, sem íbúa á jarðstjörnu ásamt milljörðum guða annarra í hinum mikla stjörnusveimi himinins. Þegar horft er til stjarnanna á næturhimninum má allt eins gera ráð fyrir að meiri hluti þeirra fóstri líf á einhveijum fylgihnatta sinna, sem hvarfa umhverfis sólstjörnuna og margir þeirra, fóstri guðum líkar verur og aðrir framlíf manna héðan af jörðu og frá öðrum skyldum hnött- um i alheimi. Það er með þetta eins og annað, að það þarf ansi mikinn trúmann til að sjá ekki sólina á heið- skírum himni. Því munurinn á að trúa og vita er einfaldlega sá að treysta því sem maður veit með vissu, en trúa því sem maður vill og heldur, en getur ekki sannað. Furðulegt verður að teljast hvað lítil umræða hefur farið fram í þjóðfélaginu um hugmynda- fræði dr. Helga sem lagði skilning á alheiminum upp í hendur okkar. Hugmyndafræði dr. Helga er í rauninni heimsfræði og þykir, sem kenning, full boðleg til rannsókna hvar sem menn hafa einhvern metn- að til að kryfja tilgang lífsins til mergjar, auk allrar þeirrar dulúðar sem herjað hefu'r á heiminn í þúsund- ir ára og heft frjálsa hugsun og skapandi. ATLI HRAUNFJÖRÐ áhugamaður um heimsfræði dr. Helga Fjeturs. -r < XII. vornámskeið Greiningar-og ráðgjafarstöðvar ríkisins verður haldið í Háskóiabíói dagana 22. og 23. maí 1997. EFNI: ÁHRIF SLYSA OG LANGVINNRA SJÚKDÓMA Á ÞROSKA OG AÐLÖGUN. Fimmludagur 22. mat Fundarstjóri: Þórey Ólafsdóttir, sálfrœðingur. Kl. 8.00-9.00 Skráning þátttakenda. Kl. 9.00-9.10 Námskeið sett. Kl. 9.10-9.45 Taugaþroski barna - eðlilegur ferill. Stefan Hreiðarsson, læknir. Kl. 9.45-10.20 Bati miðtaugakerfis eftir áfall - geta taugafrumur endurnýjast? Finnbogi Jakobsson, lækmr. Kl. 10.20-10.50 Kaffihlé. Kl. 10.50-11.25 Myndgreining á miðtaugakerfi - hvað má sjá? Anna Björg Halldórsdóttir, læknir. Kl. 11.25-12.00 Rannsóknirá miðtaugakerfi - hvað getur heilarit sýnt okkur? Sigurjón Stefánsson, læknir. Kl. 12.00-13.15 Matarhlé. Kl. 13.20-14.00 Flogaveiki og meðferð hennar - sjúkdómur eða einkenni? Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir, læknir. Kl. 14.00-14.40 Flogaveiki og frávik í taugaþroska - afleiðing eða fylgifiskur? Málfríður Lorange, sálfræðingur. Kl. 14.40-15.10 Kaffi. Kl. 15.10-16.00 Aðstæður langsjúkra barna - samvinna foreldra og fagfólks. Ragna Marinósdóttir, foreldri. Föstudagur 23.mai Fundarstjóri: Ásgeir Haraldsson, prófessor. Kl. 09.00-09.40 Höfuðáverkar barna - fyrstu afleiðingar. Kristinn Guðmundsson, læknir. Kl. 09.40-10.20 Höfuðáverkar barna - áhrif á taugaþroska. Jónas G. Halldórsson, sálfræðingur. Kl. 10.20-10.50 Kaffihlé. Kl. 10.50-11.30 Krabbamein barna - horfur og meðferð. Ólafur Gísli Jónsson, læknir. Kl. 11.30-12.10 Krabbamein barna - áhrif á taugaþroska. María Jónsdóttir, sálfræðingur. Kl. 12.10-13.15 Matarhlé. Kl. 13.15-13.50 Að lifa með breyttu barni - aðlögun fjölskyldunnar. Vigdís Jónsdóttir, félagsráðgjafi. Kl. 13.50-14.25 Að lifa breytingar - aðlögun barnsins. Margrét Halldórsdóttir, sálfræðingur. Kl. 14.25-15.00 Að lifa með breyttu barni - aðlögun skóla og leikskóla. Anna Karen Ásgeirsdóttir, leikskólakennari. Kl. 15.00-15.20 Kaffi. Kl. 15.20-16.20 Pallborðsumræður: 1) Flogaveiki. Umsjón Þórey Ólafsdóttir. 2) Krabbamein. Umsjón Þorsteinn Ólafsson. 3) Langsjúk börn. Umsjón Ragna Marinósdóttir. Námskeiðsgjald er kr. 8.000 og er kaffi, meðketi og mimskeiðsgögn innifalin iþvi Þátttaka tilkynnist á Greiningarstöð i sima 564 1744fyrir 17. mai.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.