Morgunblaðið - 15.05.1997, Síða 69

Morgunblaðið - 15.05.1997, Síða 69
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MAÍ1997 69 I DAG SB r/\ÁRA afmæli. í dag, v/fimmtudaginn 15. maí, er fimmtugur Björn Finnbjörnsson. Hann og eiginkona hans Sigríður Aradóttir eru búsett í Lúx- emborg, 33 City Joseph Bech, 6168 Gonderange. Sími: 00-352-789132. Bréf- sími á sama númeri. BRIDS bm.sjón Guómundur l’áll Arnarson EFTIR tvö pöss, opnar suður á fjórum hjörtum. Lesandinn ætti að líta sem snöggvast á spil vesturs og íhuga hvort hann myndi segja fjóra spaða. AV eru á hættu, en NS utan. Keppnisformið er sveitakeppni með tvímenn- ingsútreikningi, en þá eru tvö stig til skiptanna í hveiju spili: sama útkoma á báðum borðum gefur eitt stig, vinn- ingur tvö stig og tap ekkert. Norður ♦ K10652 V 93 ♦ 5432 ♦ ÁG Vestur ♦ ÁDG984 :s ii + D72 Spilið er frá Reisinger- keppninni í Bandaríkjunum í haust, frá viðureign Zia og Steiners. Á öðru borðinu var sveitarforinginn, Georg Steinar, í vestur og ákvað að passa. Hann lagði niður tígulás gegn fjórum hjörtum og var ánægður með sagn- ákvörðun sína þegar blindur kom upp. En útspilið virtist ekki eins vel heppnað, því makker lét drottninguna undir ásinn. Hveiju myndi lesandinn spila í öðrum slag? Hinum megin sagði Mich- ael Rosenberg fjóra spaða í sömu stöðu: Norður ♦ K10652 ¥ 93 ♦ 5432 ♦ ÁG Vestur ♦ ÁDG984 V 62 ♦ Á8 ♦ D72 Austur ♦ 73 V 107 ♦ DG109 ♦ K9864 Suður ♦ - V ÁKDG854 ♦ K76 * 1053 Norður var fljótur að dobla og spila út hjarta. Suður tók þar tvo slagi og spilaði þriðja hjartanu. Ros- enberg henti laufi og norður trompaði með tíu. Hann spil- aði síðan tígli og suður gerði þau mistök að fara upp með kónginn!? Þar með gat Ros- enberg hent niður tveimur laufum í viðbót og slapp þannig einn niður - 200. En víkjum þá aftur að vamarvanda vesturs gegn fjórum hjörtum. Steiner var of fljótur á sér þegar hann spilaði tígli áfram í öðrum slag, því þá gat sagnhafi gefið slag á lauf og síðan trompað lauf í borði. Það voru tíu slagir og 420, og tvö stig til Zia. Rétta vömin er auðvitað sú að skipta yfir í tromp, en þá fær vömin tvo slagi á lauf og fjóra í allt. Hlutavelta SEX ára stúlka úr Ólafsvík, Guðrún Ylfa Halldórsdótt- ir, safnaði saman munum i götunni sinni til að halda tombólu til styrkt- ar Sophiu Hansen. Safnaði hún 980 krónum, sem hún lagði svo inn á reikning Sophiu. Ljósm. Guðlaugur Wíum ÞESSIR duglegu krakkar héldu tombólu nýlega til styrktar Rauða krossi Islands og varð ágóðinn 1.025 krónur. Þau heita Ásta Kara Sveinsdóttir, Snorri Sveinsson, Tómas Þór Jacobsen og Davíð Jacobsen. Með morgunkaffinu Ast er... að leyfa krílinu að kúra í morgunsáríð. 12 34 ÉG vona að þér finnist fiskur góður. - -1' ÉG hélt að þú ætlaðir að kenna mér keilu. NÆSTI! ÉG hef aldrei setið fyrir lijá þessum málara.Hann hlýtur að hafa málað þetta eftir eigin hugarórum. STJÖRNUSPA c f 1 i r F r a n c c s II r a k c NAUT Afmælisbarn dagsins: Þú setur upp varnarvegg gagnvart fólki og átt það til að vera þver. En þú ert tryggur vinum þínum og fjölskyldu. Hrútur (21. mars - 19. aprfl) Þú átt auðvelt með að fá fólk til að hlusta á skoðanir þínar, því þú hefur sterka útgeislun. Þuríir þú ráð, skaltu leita til þeirra sem vit hafa á málum. Naut (20. apríl - 20. maí) Þú verður fyrir lítilsháttar vonbrigðum í einkalífi þínu og þarft að leita aðstoðar til að koma lagi á málin. Tvíburar (21. maí - 20. júnf) Þetta er á margan hátt góð- ur tími fyrir þig, en farðu þér að engu óðslega ef við- skipti eru annars vegar. Njóttu menningar og lista. Krabbi (21. júní - 22. júlí) Þú hittir í mark, varðandi fjárfestingu og þér býðst tækifæri sem þú ættir ekki að hafna. Njóttu þess með fjölskyldunni. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Þú nýtur þess að vera innan um fólk núna. Vegna vin- skapar gæti þér boðist ein- stakt tækifæri, svo þú skalt halda gleði þinni. Meyja (23. ágúst - 22. september) Þó einkalíf þitt blómstri, gætirðu lent í smárifrildi við einhvern þér nákominn. Hafðu ekki of miklar áhyggj- ur og líttu á björtu hliðarnar. (23. sept. - 22. október) £> w Þú finnur fyrir afbrýðisemi frá einhveijum í þinn garð. Láttu það ekki hindra þig í að hitta fólk og njóta lífsins. Sþoródreki (23. okt. - 21. nóvember) Hlfe Þér gengur vel í starfi og færð tækifæri til að fjár- festa. Heimilið skiptir þig máli núna, og leggðu þig fram um að sýna þolinmæði, þínum nánustu. Bogmaóur (22. nóv. - 21. desember) m Gefðu þig allan að vinnu þinni og leggðu áhyggjur af peningamálum til hliðar. Bjartsýni og kraftur færir þér allt sem þú þarft. Steingeit (22. des. - 19. ianúar) Fólk er tilbúið til að mæta þér á miðri leið, og það máttu þakka. Nú er tími verslunar og viðskipta. Vatnsberi (20.janúar- 18. febrúar) Ef þér finnst eitthvað vanta í lífi þínu, skaltu skoða heild- armyndina, og gera áætlun um hvernig þú getir breytt ástandinu. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) ’St Þú ættir að hringja í fólk, sem þú hefur ekki heyrt í lengi. Þú hefur gott innsæi og ættir að hlusta vel eftir hugboðum. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Auglýsing Otrúlegu búðirnar taka breytingum Eigendur Ótrúlegu búðanna hafa ákveðið að auka enn frekar við vöruúrvalið í búðum sínum við Laugaveg, í Kringlunni og Keflavík. Um 2ja ára skeið hefur verið boðið upp á eitt verð á kr. 198, en nú breikkar vöruúrvalið því boðið verður upp á 4 verðflokka kr. 198, 298, 398, og 498 og verður eftir sem áður haldin sú stefna að bjóða bestu möguleg verð eins og gert hefur verið hingað til. Breyting þessi mun eiga sér stað hinn 16. maí næstkomandi, og í tilefni af því verða ýmis tilboð í gangi, sem vert verður að kanna vel. Óhætt er að fullyrða að búðir þessar hafa slegið í gegn hjá þorra fólks, og er þessi breyting gerð til að koma enn frekar á móti þörfum viðskiptavinanna. Eftir sem áður verður Heildsöluhornið til staðar í búðunum, þar sem hægt er að kaupa dýrari vöru á heildsöluverði. ÚTSKPIFTARTILBOÐ 10- afslát af jak! stöku Jakkaföt með vesti 15.900 Charly's company jakkaföt frá 14.900 ____ Methoud jakkaföt frá 9.900 'PöéuMC <fcí A miti /Un. Stakir jakkar frá 9.900 Herradeild Laugavegi, sími 511 1718. Herradeild Kringlunni.sími 568 9017. NÝTT NVTT NVTT Gerum góðar búðir betri Breytum verðflokki í 16. maí. verðflokka Allar vorur á kr. 198 • 298 • 398 • 498 Aukið vöruval, sctma góða verðið Ath.: Heildsóluhomið d stnum stað Ótrúlegu búðirnar Laus'iivegi, Kringlunni, Keflavlk.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.