Morgunblaðið - 22.05.1997, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Bjargaðist naumlega er vörubíll lenti á háspennulínu
Fékk 11.000 volt
g’egmim bílinn
Blönduósi. Morgunblaðið.
V ÖRUBIFREIÐ ASTJ ÓRI frá
Blönduósi, Sigurgeir Þór Jónasson,
slapp á ótrúlegan hátt er hann
festi kranabómu á vörubifreið sinni
í háspennulínu við bæinn Auðkúlu
í Svínavatnshreppi í síðustu viku.
Ellefu þúsund volta spenna hljóp
í gegn um bifreiðina og til jarðar
og mátti greina bráðið gúmmí úr
hjólum bifreiðarinnar á um 20
metra vegarkafla. Háspennulínan
sló út en slitnaði ekki við árekstur-
inn og fór rafmagn af fjölda sveita-
bæja.
Sigurgeir sagði í samtali við
Morgunblaðið að hann hefði verið
að aka möl í heimreið á bænum
Auðkúlu í Svínavatnshreppi og
hefði þetta verið síðasta ferðin.
Mölinni mokaði hann á bílinn með
krana bifreiðarinnar og þegar því
verki var lokið spjallaði hann stutta
stund við mann sem þarna var,
aftan við bílinn og gekk síðan að
bílnum öfugumegin við kranann.
Þetta leiddi til þess að hann
gleymdi að setja niður bómuna á
krananum og kræktist hún í há-
spennuvírinn með fyrrgreindum
afleiðingum.
Háspennulínan, sem er dreifilína
fyrir Svínavatns- og Torfalækjar-
hreppa í A-Hún., liggur skáhallt
yfir veginn við bæinn Auðkúlu og
ók Sigurgeir um 20 metra tengdur
línunni án þess að slíta hana.
Sigurgeir sagðist ekki í fyrstu hafa
áttað sig á því hvað var að ger-
ast. Hann sá allt í einu eldglæring-
ar og þindin og kviðurinn spennt-
ust upp, verkur leiddi út I kjálka
og hella hljóp fyrir eyrun.
Sigurgeir sagði að á þessu
augnabliki hefði hann gert sér
grein fyrir að veruleg hætta steðj-
aði að. Á sama augnabliki og hann
kastaði sér út úr bílnum áttaði
hann sig á því að hann væri að
gera rangt en til baka varð ekki
snúið. Frá þessari glímu við há-
spennu Svínavatnshrepps slapp
Sigurgeir Þór ómeiddur en honum
var mjög brugðið.
Lífshættulegar aðstæður
Haukur Ásgeirsson rafveitu-
stjóri á Blönduósi sagði að þær
aðstæður sem Sigurgeir Þór Jónas-
son lenti í hefðu verið lífshættuleg-
ar og vildi leggja áherslu á mikil-
vægi þess að allir þeir sem geta
lent í aðstæðum sem þessum kynni
sér hvernig við á að bregðast.
Starfsmenn RARIK komu á
vettvang og losuðu bílinn úr há-
spennulínunni og ók Sigurgeir bíln-
um heim um kvöldið reynslunni
ríkari.
Selfyssingar skrifa á mótmælalista
Morgunblaðið/Þórhallur Jónsson
GÍSLI Rúnar Gylfason á Fjóröungssjúkrahúsinu á Akureyri í
gær. Hann féll niður úr Syðra-Drangsgili í Ólafsfjarðarmúla í
fyrrakvöld, en þar sem háflóð var lenti hann í sjónum en ekki
stórgrýttri fjörunni.
Slapp með brotna hnéskel eftir um 20
metra fall í Olafsfjarðarmúla
Lenti í sjónum og
það bjargaði mér
Ólafsfjörður. Morgunblaðið.
SAUTJÁN ára pilti, Gísla Rúnari
Gylfasyni, sem féll um 20 metra
niður í sjó úr Syðra-Drangsgili í
Ólafsfjarðarmúla á þriðjudags-
kvöld, tókst að komast af eigin
rammleik á land. Hnéskel brotn-
aði við fallið en að öðru leyti slapp
hann ómeiddur og þykir það
mesta mildi að ekki fór verr.
„Við vorum þrír saman að tína
egg í bjarginu. Eg var að síga,
kominn töluvert neðarlega og var
að reyna að fikra mig dálítið neð-
ar í bjargið til að ná í eitt egg
sem ég sá þar. Ég stóð á lítilli
syllu og einhvern veginn missti
ég takið og steyptist fram yfir
mig,“ segir Gísli Rúnar Gylfason,
en með honum i för voru bróðir
hans, Trausti, og Andri Viðar
Víglundsson, vinur hans.
Félagarnir voru með sima og
gátu strax kallað eftir aðstoð.
Björgunarsveitin Tindur í Ólafs-
firði var kölluð út um kl. 20 á
þriðjudagskvöld. Þegar sveitar-
menn komu á staðinn hafði Gísla
Rúnari tekist að komast á land.
Hann beið í fjörunni í um klukku-
tíma eftir aðstoð. Ómögulegt
reyndist að ná honum nema af sjó
og var hann sóttur á gúmmíbát
upp í fjöru.
Bjargaði að háflóð var
„Það sem bjargaði mér var að
ég lenti í sjónum, hann tók af
mér mesta fallið. Ég væri ekki
hér ef ekki hefði verið háflóð á
þessum tíma,“ segir Gísli Rúnar.
„Ég er mjög heppinn að þetta fór
ekki verr. Eg hefði lent með höf-
uðið í stórgrýtinu ef ekki hefði
verið flóð og þá þarf sjálfsagt
ekki að spyija að leikslokum."
Gísli Rúnar var fluttur á Fjórð-
ungssjúkrahúsið á Akureyri þar
sem hann dvelur nú.
Morgunblaðið/Sig. Fannar.
ÖRYGGI fótgangandi vegfarenda um Ölfusárbrú er
lítið, að mati bæjarbúa.
Handrið vantar
á Olfusárbrú
Selfossi. Morgunblaðið.
UNDIRSKRIFTALISTAR hafa
legið frammi í verslunum á Sel-
fossi síðustu daga. íbúar eru að
mótmæla því að ekki hefur verið
sett upp handrið við Ölfusárbrú,
eins og til hefur staðið nokkra hríð.
„Þetta er alveg óroögulegt,
börnin sem búa handan árinnar
og þurfa að ganga yfir brúna til
þess að sækja skóla eru í stór-
hættu á hveijum degi,“ segir Lauf-
ey Guðmundsdóttir, einn íbúanna
sem er í forsvari fyrir undirskrifta-
söfnuninni. „Við viljum byrgja
brunninn áður en barnið fellur í
hann, það er gífurleg umferð yfir
brúna á degi hveijum og bömin eru
algerlega óvarin þegar þau fara
fótgangandi yfir,“ segir Laufey.
Það er í höndum Vegagerðar
ríkisins að setja upp handrið við
brúna. Fyrir nokkmm árum var
brúargólfið endurbætt og þá var
gert ráð fyrir handriði en það hef-
ur aldrei verið sett upp. Miðað við
þann fjölda barna sem á erindi
yfir brúna á degi hveijum er það
mikið öryggismál að fá handrið við
gangstéttina. Hjá Vegagerðinni
fengust þær upplýsingar að þang-
að hafi borist erindi frá bæjar-
stjóm Selfoss um að sett yrði upp
handrið en brúin þykir of mjó til
þess að það sé mögulegt og þess
vegna vom framkvæmdimar ekki
samþykktar.
Krydd-
stelpa í
Austur-
stræti
MEL B., ein kryddstelpan í
bresku hljómsveitinni Spice
Girls, er nú stödd hér á landi
og þessi mynd var tekin af
henni og Fjölni Þorgeirssyni
vini hennar á gangi í Austur-
stræti í gærkvöldi. Mel B. er í
nokkurra daga heimsókn hjá
Fjölni, en þau hafa þekkst í
nokkur ár.
Spice Girls eru ein vinsælasta
hljómsveit seinni ára. Á um það
bil einu ári hafa stelpurnar
fimm komið fjórum laga sinna
í efstií sæti vinsældalista í Bret-
landi, Bandaríkjunum og alls í
um 30 löndum víða um heim.
í síðustu viku voru Spice
Girls m.a. á kvikmyndahátíð-
inni í Cannes í Frakklandi og
þá var greint frá áformum
þeirra um að gera kvikmynd á
þessu ári, en sagt er að sú
mynd verði í anda Bítlamyndar-
innar A Hard Day’s Night. Vin-
sældir Kryddstelpnanna og
fjölmiðlafárið í kringum þær
hefur verið svo mikið í Bret-
landi undanfarna mánuði, að
helst hefur verið jafnað til
Bítlaæðisins.
Mel B. kom til íslands til að
hvíla sig frá fjölmiðlafárinu og
hefur lagt áherslu á að eiga
rólega daga á íslandi.
Morgunblaðið/Halldðr
Miklubrautarbúar
ætla að loka götunni
HÓPUR íbúa við Miklubraut
hyggst stöðva umferð á gatnamót-
um Lönguhlíðar og Miklubrautar
á morgun, föstudag, kl. 17, í því
skyni að vekja athygli á heilsu-
spillandi ástandi af völdum hávaða
og loftmengunar við Miklubraut.
í fréttatilkynningu frá Hverf-
isverkefni húmanista, sem stendur
að mótmælunum, er vakin athygli
á því að þótt borgaryfirvöld hygg-
ist leysa úr vanda hluta íbúanna
með því að grafa Miklubraut í
stokk frá Reykjahlíð og vestur úr
sjái aðrir Miklubrautarbúar ekki
fram á neina lausn.
Lést í um-
ferðar-
slysi
DRENGURINN sem lést í
umferðarslysi skaromt frá
Arnórsstöðum á Barðaströnd
í fyrradag hét Ragnar Skarp-
héðinn Jóhannsson, til heimil-
is að Bijánslæk á Barða-
strönd.
Hann var á fjórða aldurs-
ári, fæddur í október 1993.