Morgunblaðið - 22.05.1997, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 1997
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Ásdís
VERK Davids Greenall fjallar meðal annars um áreitni.
Uppar,
konur, ást
og missir
íslenski dansflokkur-
inn frumsýnir fjögur
ný verk í Borgarleik-
húsinu í kvöld kl. 20.
Þröstur Helgason
hitti höfundana sem
lýstu verkum sínum
sem eru afar ólík að
gerð og inntaki.
FJÖGUR ólík verk eru á efnisskrá
sýningar íslenska dansflokksins í
Borgarleikhúsinu í kvöld. Tvö
þeirra eru íslensk; Ferli eftir
Nönnu Ólafsdóttur og Hræringar
eftir Láru Stefánsdóttur. Nanna
er þekktur danshöfundur og hefur
samið dansa fyrir íslenska dans-
flokkinn frá árinu 1980. Lára hef-
ur dansað í flokknum undanfarin
ár en einnig fengist við að semja
dansa. Hin tvö eru eftir breska
höfunda; Konan á klettinum horf-
ir eftir David Greenall og Nachtli-
ed, eða Næturljóð, eftir Michael
Popper. David hefur dansað með
íslenska dansflokknum í nokkur
ár og einnig starfað sem danshöf-
undur. Popper er sérstakur gestur
íslenska dansflokksins en hann
er einn af fremstu danshöfundum
Breta af yngri kynslóðinni. Hann
hefur samið verk fyrir mörg af
virtari leikhúsum Evrópu en þar
má nefna The Royal Shakespeare
Company, The Royal National
Theatre, TANZ-FORUM Köln og
Schauspiel-Bonn.
Verkin verða dönsuð á stóra
sviði Borgarleikhússins. Áhorfend-
ur munu þó ekki sitja á venjulegum
stað heldur uppi á sviðinu og eld-
varnartjaldið verður dregið fyrir
áhorfendasalinn.
Hvert verkanna á sína sögu. Og
hvert þeirra segir sína sögu. Hver
og einn höfundanna leysti frá
skjóðunni.
Uppar tíunda áratugarins
Tónlistin er framsækið þýskt
popp. Upphaflega samdi ég verkið
við mjög þunga nútímaklassík en
dansararnir voru alveg að fara
yfir um. Þegar ég svo keyrði yfir
þann disk og kramdi hann í klessu
þá þurfti ég að finna nýja tónlist
og valdi þessa sem er allt annars
eðlis.“
Breytt
heimsmynd
„Þessi dans er saminn við tón-
verk eftir Hjálmar H. Ragnarsson
sem heitir Romanza,“ segir Nanna.
„Upphaflega átti dansinn að vera
dúó fyrir karl og konu en svo fóru
að renna á mig tvær grímur þegar
umræður um einræktun komust í
hámæli fyrir stuttu. Það er ekki
laust við að slíkir hlutir veki mann
til umhugsunar um breytta heims-
mynd. Og ég nota einmitt stóra
VERK Nönnu Ólafsdóttur fjallar um breytta heimsmynd og er samið við tónverk
eftir Hjálmar H. Ragnarsson sem heitir Romanza.
„Þetta verk fjallar um tíunda
áratuginn," segir David. „Það f|'all-
ar um skrifstofutýpurnar allar sem
halda að þær séu svo mikilvægar
og merkilegar að þær mega aldrei
vera að því að slaka á og horfa í
kringum sig, njóta umhverfisins,
náttúrunnar, lífsins. Það ijallar
kannski um uppana, um egóis-
mann sem viðgengst, kapphlaupið
sem allir eru í um nýja tækni. En
verkið lýsir líka kynferðislegri
áreitni, valdbeitingu, sem vissulega
er hluti af þessu skrifstofuum-
hverfi sem upparnir lifa í, er hluti
af tíunda áratugnum. Og verkið
fjallar líka um að geta ekki breytt
neinu, geta ekki komist út úr því
hlutverki að vera áreittur; við erum
stödd á bjargbrún en þorum ekki
að taka áhættuna og stökkva fram
af.
Það er því sögð saga í verkinu
en um leið er þetta mikil danssýn-
ing; ég legg mikið upp úr því að
láta dansarana dansa, að þeir sýni
hvað þeir geti því það eru mjög
góðir dansarar í þessum dans-
flokki.
kúlu úr járnstöngum sem Sigurjón
Jóhannsson hannaði sem getur
bæði táknað heiminn, konuna og
eggið; við köllum kúluna konunyt.
Þegar upp var staðið fannst mér
ekki annað hægt en að láta tvær
konur dansa verkið. Verkið á fyrst
og fremst að vera sterk tilfinninga-
upplifun en einhver dramatísk
framvinda.
Tónverkið er mjög sterkt og
dansinn spratt eiginlega út úr því
en það verður flutt af Caput-hópn-
um.
Dreymir um
elskhuga
„Eg hafði lengi haft í huga að
semja dans út frá ljóðabók eftir
Elísabetu Jökulsdóttur sem heitir
Dans \ lokuðu herbergi," segir
Lára. „Ég styðst aðallega við eitt
ljóð í þeirri bók sem segir frá konu
sem sefur í síðu hári. Ljóðið lýsir
innri baráttu þessarar konu en
hana dreymir um elskhuga í fjar-
lægu landi. Grunnþemun eru
kannski söknuður og leit en aðal-
persónan sveiflast á milli vonleysis
og friðar.
Dansinn er unninn í nánu sam-
spili við Guðna Franzson sem
frumsamdi tónlistina í verkinu, alla
nema einn þátt sem er eftir ítalska
tónskáldið Riccardo Noa. Guðni
leikur einleik á klarinett og ástr-
alska frumbyggjahljóðfærið didj-
eri-du. I verkinu eru líka tveir
skúlptúrar sem Ragnhildur Stef-
ánsdóttir gerði, annars vegar barn
sem sefur og táknar innri frið og
barnið í okkur öilum og hins vegar
hjartasem táknar ástina eða ástar-
sorg. í raun getur hvert þessara
verka staðið sjálfstætt, það er að
segja dansinn, tónlistinn og skúlp-
túrarnir.
Þetta verk veitir mér algjöra
útrás fyrir hinar ýmsu tilfinningar
sem velkjast um í OKkur öllum."
Missir
„Ef ég á að lýsa verkinu í einu
orði,“ segir Michael, „þá fjallar það
um missi. Þetta verk fjallar um
það að missa fólk \ dauðann og
verða skilinn eftir. Ég er að fjalla
um atburði sem ég upplifði sjálfur
en ég finn ekki þörf hjá mér til
að opinbera þá frekar en með þessu
verki.
Það er ekki línuleg frásögn í
verkinu. Það ' samanstendur af
þremur þáttum sem við getum
bæði sagt að sé rökleg framvinda
í og röklaus.
Annars er sennilega réttast að
segja að engin saga sé í þessu
verki. Dansarnir hafa allir haft
mjög ólíkar hugmyndir um það,
túlkað það á mismunandi vegu og
mér þykir það gott. Það er best
að hver og einn, bæði dansarar og
áhorfendur, fái að lesa það í verk-
ið sem hann vill.“
Sagnaþing
í héraði
STOFNUN Sigurðar Nordal
og heimamenn á Sauðárkróki
gangast fyrir ráðstefnu um
Grettis sögu í Fjölbrautaskó-
ianum á Sauðárkróki dagana
23. og 24. ágúst nk.
Erindi flytja Guðvarður Már
Gunnlaugsson, Helga Kress,
Júrg Glauser, Kristján Eiríks-
son, Viðar Hreinsson, Ög-
mundur Helgason og Örnólfur
Thorsson. Gunnar Stefánsson
og Ingibjörg Haraldsdóttir lesa
upp. Þátttakendum gefst kost-
ur á að fara á söguslóðir í
Skagafirði og út í Drangey,
ef verður leyfir, síðari dag ráð-
stefnunnar.
Frekari upplýsingar og
skráning á Stofnun Sigurðar
Nordal og hjá Unnari Ingvars-
syni, Safnhúsinu, Sauðár-
króki.
Tatu Kan-
tomaa heldur
tvenna tón-
leika
FINNSKI harmoníkuleikarinn
Tatu Kantomaa heldur tvenna
tónleika nú um helgina. Fyrri
tónleikarnir verða í Ytri-Njarð-
víkurkirkju á morgun, föstu-
dag, kl. 20.30 og síðari tón-
leikarnir í Bæjarleikhúsinu í
Vestmannaeyjum og hefjast
kl. 16.
Tatu Kantomaa flytur bæði
íslensk og erlend lög á tónleik-
unum. Tilefni tónleikanna er
útgáfa geislaplötunnar, List-
en, sem hefur að geyma þá
tónlist sem Tatu hefur verið
að fást við undanförnu. Þar
er m.a. að finna Raddir vorsins
eftir Johann Strauss, segir í
kynningu. Tatu Kantomaa
hyggur á tónleikaferð um
landið í tilefni útgáfunnar.
Nina Kerola
opnar sýn-
ingu í Galleríi
Listakoti
FINNSKA grafíklistakonan
Nina Kerola opnar sýningu á
verkum sínum í Gallerí Lista-
koti, Laugavegi 70, á morgun,
laugardag kl. 14.
Nina Kerola hefur haldið
nokkrar einkasýningar í Finn-
landi og Svíþjóð, nú síðast í
Grafiska sállskapet í Stokk-
hólmi í febrúar á þessu ári.
Hún hefur einnig tekið þátt í
fjölda samsýninga. „Áskorun-
in og forvitnin er drifkraftur-
inn í sköpun minni. Vinna mín
með myndir gefur mér aðra
sýn á tímann og tilveruna,"
segir Nina Kerola.
Sýningin í Listakoti stendur
til laugardagsins 14. júní og
er opið virka daga frá kl.
10-18 og laugardaga kl.
10-16.
Myndlistar-
sýning hjá Að-
alskoðun hf.
í AFGREIÐSLU SAL Aðal-
skoðunar hf. í Gerpluhúsinu í
Kópavogi hefur verið sett upp
myndlistarsýningin Hljóðlátur
óður, sem er röð mynda eftir
Evu Jóhannsdóttur.
Sýningin er opin á af-
greiðslutíma skoðunarstöðvar-
innar í Gerpluhúsinu, kl. 8-17
alla dag, og stendur til loka
júnímánaðar.