Morgunblaðið - 22.05.1997, Side 8

Morgunblaðið - 22.05.1997, Side 8
8 FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Hart deílt um samningsveo a næturrunoi a Aipmgi; Alþingi afsalar sameigninni ifGA^lUA/O SÍÐASTI naglinn í sameignarkistuna . . . Veiðileyfi í Laxá á Ásum á uppboði Christie’s Tveir veiðidagar fóru á 700.000 krónur Norður-Atlantshafslaxasjóður Orra Vigfússonar fékk um 8 millj- ónir króna í aðra hönd á sérstöku uppboði hins virta breska uppboðs- fyrirtækis Christie’s fyrir skemmstu. Uppboðið var haldið gagngert til styrktar sjóðnum. Meðal þess sem boðið var upp voru veiðiferðir víða um lönd, m.a. á íslandi og seldust m.a. tveir veiði- dagar í Laxá á Ásum á 700.000 krónur. Einnig voru gefnir til uppboðsins veiðidagar í Norðurá, Laxá í Kjós, Ytri-Rangá, Straumfjarðará, Langá og Laxá í Aðaldal auk sérhnýttra veiðiflugna og listaverka, m.a. eftir íslenska listamenn og má nefna Ingvar Þorvaldsson, Sigurjón Ólafs- son, Pétur Steingrímsson og Karl Jónsson, auk Færeyinganna Jasp- urs Kruse og Eyðuns av Reyni. Veiðidagamir í Laxá á Ásum vom fyrir báðar dagstangimar í ánni umrædda tvo daga og var því dag- stöngin seld á 175.000 krónur. „Það er ekki komið endanlegt upp- gjör, en þetta em um 8 milljónir og renna óskiptar til að kaupa út- hafskvóta. Ég er afar þakklátur Christie’s og þeim íjölmörgu stuðn- ingsaðilum sem hafa lagt sitt af mörkum, sjóðnum að kostnaðar- lausu,“ sagði Orri Vigfússon í sam- tali við Morgunblaðið og bætti við að auk þessa hefðu Christie’s gefið út vandaðan bækling um uppboðið og myndi hann verða notaður tii alþjóðlegrar kynningar til vemdar villtum laxastofnum í Atlantshafi. Uppboð á íslandi Orri sagði enn fremur, að upp- boðið hefði vakið mikla athygli, svo mikla að hann væri nú að skoða nokkur boð um fleiri uppboð í ná- inni framtíð. Þannig yrðu uppboð í París og Dublin á næsta ári og í Washington eða New York árið 1999. „Fyrst er þó stefnt að því að halda mikla laxahátíð hér á landi í október á þessu ári. Ég er byrjaður að leita að áhugasömum hópi fólks til að skipuleggja það framtak með mér, en allir stuðn- ingsaðilar gefa vinnu sína,“ sagði Orri. Spænskir bankastjór- ar á Hvítá HÓPUR spænskra banka- stjóra og maka þeirra var á ferð hér á landi um hvíta- sunnuhelgina. Meðal þess sem þeir tóku sér fyrir hendur var að sigla niður Hvíta í gúmbát- um, en einnig var farið í Bláa lónið og víðar. Bjarni Gíslason, starfsmað- ur fyrirtækisins Bátafólkið, sem sigldi með hópinn, segir að bankastjórarnir hafi verið langt frá því að vera stífir í framkomu. Þeir hafi sleppt fram af sér beislinu, bæði á siglingunni og á skemmtun sem haldin var eftir á. Þeir tóku vel við skipunum þeirra sem siglingunni stjórnuðu, þó Morgunblaðið/Halldór TVEIR bankastjórabátar á Hvítá. sennilega séu þeir vanari að skipa fyrir sjálfir. Alls voru í hópnum rúmlega 170 manns, en ferðin var í boði trygginga- félags sem nefnist Caser. Að sögn Auðar Birgisdóttur, deildarstjóra hjá Ferðaskrif- stofu íslands, sem skipulagði ferðina, var vel gert við bankastjórana. Meðal annars fengu þeir gjöf frá trygginga- félaginu á hverju kvöldi. Greinar Gísla Agústs Gunnlaugssonar Saga og samfélag Ólöf Garðarsdóttir VERIÐ er að vinna að útgáfu bókar með greinum og ritgerðum eftir Gísla Ágúst Gunnlaugsson sagnfræð- ing sem lést á síðasta ári. Það er samstarfsfólk og aðstandendur Gísla sem hlut eiga að þessari útgáfu. Guðmundur Hálfdanarson, Loftur Guttormsson og Ólöf Garðarsdóttir sagn- fræðingar eru ritstjórar bókarinnar en Sögufélag og Sagnfræðistofnun Há- skóla Islands gefa bókina út. Ólöf var spurð hvort efni þessarar bókar væri af margvíslegu tagi eða hvort ijallað væri að mestu um eina grein sagnfræð- innar. „Gísli Ágúst fékkst fyrst og fremst við félagssögu og fjall- aði doktorsritgerð hans um þróun ijölskyldu og heimilis á íslandi 1801 til 1930. Annars var Gísli mjög víðmenntaður sagnfræðing- ur og eftir hann liggja greinar um ýmis málefni, í bókinni hefur verið reynt að varpa ljósi á feril Gísla í þessum efnum.“ Gefst fólki kostur á að gerast áskrifendur að þessari bók fyrir- fram? „Við birtum skrá fremst í bók- inni yfir þá sem vilja heiðra minn- ingu Gísla með því að kaupa bók- ina og enn er þess kostur að skrá sig hjá ritstjórum. Bókin er vænt- anleg á markað í júní nk. Til upplýsingar er rétt að geta þess að Gísli Ágúst var uppalinn í Hafnarfirði og hafði alltaf sterkar taugar til heimabæjar síns. Oft notaði Gísli Hafnarfjörð og ná- grenni til þess að varpa ljósi á ýmsa þætti félagssögunnar sem hann var að fjalla um hveiju sinni. Viðfangsefni hans voru margvísleg enda var hann fjöl- menntaður maður sem hafði víða dvalið við nám, svo sem á Eng- landi, í Þýskalandi og Svíþjóð. Gísli var félagslyndur maður og blandaði vel geði við fólk erlendis ekki síður en hér heima, þetta með öðru varð til þess að hann átti dijúgan þátt í að koma á fót fjölmörgum alþjóðlegum rann- sóknarverkefnum. Þrátt fyrir að hann félli frá aðeins 42 ára gam- all auðnaðist honum að ljúka mjög mörgu af því sem hann kom nálægt í fræðistörfunum og eftir hann birtust greinar í mörgum af virtustu tímaritum í félagssögu bæði austan hafs og vestan, rit- stjórar minningarbókarinnar um Gísla lögðu áherslu á að íslenskir lesendur fengju að kynnast greinum hans um þessar rannsóknir og því eru tíu greinar bókarinnar þýddar úr erlendum málum. Gísli var kvæntur Berglindi Ásgeirsdóttur lögfræð- ingi og áttu þau þijú börn.“ Hvaða efnisþáttur er fyrirferð- armestur í bókinni? „Meðan Gísli var í kandídats- námi við Háskóla íslands fjallaði hann einkum- um fátækramál á Islandi. í einum hluta bókarinnar eru þijár greinar um þetta efni. í doktorsnáminu í Uppsölum lagði Gísli stund á íjölskyldusögu- rannsóknir og þar nýttist honum vel sú víðtæka þekking sem hann hafði aflað sér um fátækt á ís- landi. í bókinni eru margar grein- ar um fjölskyldusögurannsóknir. Meðal annars er þar grein um ástina og hvern hlut hún átti í stofnun hjónabanda á íslandi á ► Ólöf Garðarsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1959. Hún lauk stúdentsprófi 1982 og prófi frá Kennaraháskóla Is- lands 1987. Hún hefur einnig tekið BA-próf í sagnfræði frá Háskóla Islands og er nú við doktorsnám í Svíþjóð. Hún á tvö börn. seinni helmingi nítjándu aldar. Niðurstaða Gísla var sú að róm- antísk ást hafi varla komið til sögunnar sem grundvöllur hjóna- bands fyrr en undir síðustu alda- mót. Fram að því hafði efnahagur og fjölskyldutengsl meira að segja. Gísli átti þátt í norrænu samstarfsverkefni um glæpi og refsingu. í bókinni er að finna eina grein um niðurstöður rann- sókna á legorðs- og hórdómsbrot- um á Norðurlöndum. Þar er rétt- arfarsþróun í þessum málaflokki notuð til þess að varpa ljósi á breytingar á viðhorfum til refs- inga í tímans rás.“ Að hverju var Gísii að vinna um það Ieyti sem hann féli frá? „Á síðustu árum vann Gísli ásamt Lofti Guttormssyni og mér að rannsóknarverkefni sem við nefndum Ættartengsl og sam- hjálp í íslensku samfélagi. Þessi áhugi hans var í samræmi við alþjóðlegar stefnur í félagssögu. Þannig urðu athuganir á ýmiss konar félagstengslum, einkum á ættar-, vina- og nágrannatengsl- um, mjög fyrirferðarmiklar í rannsóknum hans. Skoðað var hver ól t.d. önn fyrir lasburða gamalmennum og hver sá um uppeldi barna sem misstu for- eldra sína fyrir tíma velferðar- kerfisins. Rannsóknir Gísla hafa sýnt að nán- ustu ættingjar hafi haft þessi hlutverk með höndum. Þannig bjuggu aldraðar ekkjur gjarnan hjá börnum sínum og börn voru oft- ast tekin í fóstur hjá ömmu og afa eða komið fyrir hjá systkinum foreldra ef eitthvað bjátaði á, svo sem mikil veikindi eða fátækt." Er þessi bók mikilvægt fram- lag til sagnfræðirannsókna? „Vissulega, fá rit hafa komið út sem hafa að geyma jafn ítar- legt yfirlit um rannsóknir í fé- lagssögu, sem er tiltölulega nýtt rannsóknarsvið. í bókinni er allít- arleg atriðisorðaskrá sem á eftir að koma að góðum notum fyrir fræðimenn í ýmsum greinum. Rétt er að taka fram að þessi bók nýtist ekki aðeins sagnfræðing- um heldur öllum þeim sem áhuga hafa á þróun íslensks samfélags." í bókinni eru margar grein- ar um fjöl- skyldusögu- rannsóknir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.