Morgunblaðið - 22.05.1997, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 22.05.1997, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Yfirlæknir barna- og unglingageðdeildar Landspítalans óskar leyfis „Erum 1 raun að vísa fólkí á kaldan klakann“ VALGERÐUR Baldursdóttir, yfirgeðlæknir bama- og unglingageðdeildar Landspítalans, hefur farið fram á ársleyfi frá störfum. Á annað hundrað böm em á biðlista eftir meðferð og hefur það ástand verið viðvarandi í nokkum tíma. Auk þess neyðist deildin til þess að vísa frá sér málum sem þola enga bið. „í allt of stómm hluta mála emm við ekki að vinna eins og best verður á kosið,“ segir Valgerður. „Tilfelli sem deildin vísar frá sér lenda í höndum aðila sem oft em síður í stakk búnir til að taka á þeim.“ Aðstandendur bamanna þurfí að leita þeim hjálpar á stofum úti í bæ en Valgerður segir slíkt vera dýrt og alls ekki á allra færi. „Við emm í raun að vísa fólki út á kaldan klakann." Hún segir mikilvægt að byggja upp starfsemi deildarinnar þar sem of lítil uppbygging hafi átt sér stað undanfarið. „Það þarf að samhæfa þjónustu deildarinnar við félagsmálakerfið sem á að þjóna bömum og unglingum með hegðunarvandamál. Þannig mætti að vissu leyti nýta kraftana betur“, segir hún. Álagið sífellt að aukast Starfssvið sálfræðinga sem starfa við skólana var takmarkað með nýrri reglugerð og við það íjölgaði enn málum sem vísað er til bama- og unglingageðdeildar. „Það er ekki okkar hlutverk að bregðast við öllu nýju en þetta er eitt dæmi um aukið álag,“ segir Valgerður. „Ég myndi vilja sjá að þjónusta við böm og fjölskyldur, hvar sem hún á að vera, yrði styrkt. Það myndi gera okk- ur kleift að sinna betur því sem er okkar. Eins og málum er háttað er deildin engan veginn fær um að sinna grundvallarstarfí sínu, því að sinna bömum og unglingum með geðtruflanir." Valgerður bendir á að í dag séu 5 læknar í sémámi í faginu erlendis eða að hefla það og útlitið því mun betra hvað uppbyggingarstarf varðar en það hefur verið lengi. „Þörfin er svo mikil að það er ekki hægt að láta staðar numið núna og þó að við höfum fengið aukna fjárveit- ingu á síðasta ári nægir hún engan veginn þar sem mikið hefur skort á jafna uppbyggingu starf- seminnar," segir hún. Fjárframlag Ríkisspítalans til deildarinnar er 110 milljónir á ári og er þjón- usta frá spítalanum ekki þar með talin. Heildar- framlög til geðheilbrigðismála nema hátt að 3 milljörðum. 12 miiyóna aukaframlag á þessu ári Að sögn Þóris Haraldssonar, aðstoðarmanns heilbrigðisráðherra, hefur ráðherra fundað með forstjóra og lækningaforstjóra Ríkisspítalanna um málefni bama- og unglingageðdeildarinnar. Aukafjárframlag til deildarinnar hafí numið 15 milljónum á síðasta ári og sé orðið 12 milljónir á þessu ári. Deildin hafi hins vegar ekki þótt sýna nægjanleg afköst þrátt fyrir aukið fjár- magn og því séu málefni hennar til endurskoðun- ar hjá spítalanum. Hækkun sjálfræðis- aldurs í 18 ár Útgjalda- auki 120- 140 milljónir króna ÁÆTLAÐ er að aukin íjárþörf fé- lagsmálaráðuneytisins vegna hækkunar sjálfræðisaldurs úr 16 í 18 ár sé á bilinu 12C til 140 milljón- ir króna, að frátöldum stofnkostn- aði. Þetta kom fram í máli Páls Péturssonar félagsmálaráðherra við utandagskrárumræðu um málefni bama og unglinga sem fram fór að ósk Margrétar Frímannsdóttur, formanns Alþýðubandalagsins. Fram kom í máli félagsmálaráð- herra að búast mætti við að í kjöl- far hækkunar sjálfræðisaldurs yrði hegningarlögum hugsanlega breytt þannig að dvöl 16-18 ára afbrota- unglinga á meðferðarheimili kæmi í stað fangelsisvistar. Búist er við að sett verði á laggim- ar sérhæfð meðferðarúrræði fyrir 16-18 ára ungmenni og meðferðar- heimilum fjölgað um eitt eða tvö. Akureyri Nýja sund- laugin ekki opn- uð í sumar FRAMKVÆMDIR við Sund- laug Akureyrar em a.m.k. sjö vikum á eftir áætlun og af þeim sökum hefur verið ákveð- ið áð breyta röð verkefna á þann hátt að lokafrágangi nýs sundlaugarkers hefur verið frestað. í þess í stað verður steypt upp fyrsta hæð nýs sundlaugarhúss. Breytingamar hafa það í för með sér að nýja sundlaugin kemst ekki í notkun fyrr en næsta vor, 1998, en áætlað hafði verið að opna hana nú í sumarbyijun. Frosthörkur í vetur Gísli Bragi Hjartarson for- maður framkvæmdanefndar sagði að verkefnið hefði farið nokkm seinna af stað en áætl- að var þegar stefnt var að opn- un nýju sundlaugarinnar í sum- ar. Mikil og stöðug frostharka í vetur hefði sett strik í reikn- inginn. Þar sem mikill dráttur hefur orðið á framkvæmdum við upp- byggingu sundlaugarinnar hefði verið fyrirséð að ekki yrði unnt að opna nýja sundlaug fyrr en að loknum mesta ferða- mannatímanum í sumar. Því hefði þótt farsælla að breyta röð framkvæmda, þannig að nú verður áhersla lögð á að steypa upp fyrstu hæð nýs sundlaugarhúss. Merki kristnihá- tíðar valið FYRIR skömmu voru afhent verðlaun í samkeppni um merki kristnihátíðar árið 2000. Fyrstu verðlaun hlutu þeir Anton Helgi Jónsson og Guðjón Davíð Jónsson sem standa fyrir miðri mynd sitt hvoru megin við verðlaunatillögu sína. Vinstra megin á myndinni eru þeir Þórarinn Gylfason, sem var í 2.-3. sæti í samkeppninni, og Ólafur Skúlason, biskup íslands, formaður dómnefndar. Hægra megin eru Kristin Þóra Guð- björnsdóttir, sem einnig var í 2.-3. sæti, og Haraldur Henrýs- son hæstaréttardómari sem sat í dómnefnd. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Reykjavíkurborg og RKÍ byggja sameiginlega hjúkrunarheimili Rúm fyrir um 40 vistmenn REYKJAVIKURBORG og Reykja- víkurdeild Rauða kross íslands hafa undirritað viljayfirlýsingu, sem borgarráð hefur samþykkt, um að standa saman að byggingu hjúkrun- arheimilis fyrir um 40 vistmenn. Áætlaður kostnaður er 280 millj- ónir og er gert ráð fyrir að Fram- kvæmdasjóður aldraðra greiði 40%, eða 112 milljónir, borgin 30%, eða 84 milljónir og Reykjavíkurdeild Rauða krossins einnig 30% eða 84 milljónir. Gert er ráð fyrir að fram- kvæmdum ljúki árið 1999. Fram kemur að áður en fyrsta útboð fari fram skuli liggja fyrir yfirlýsing heilbrigðis- og trygginga- ráðherra um framkvæmdaleyfi fyrir byggingu heimilisins ásamt loforði um rekstrarframlög og yfirlýsingu um framlag úr Framkvæmdasjóði aldraðra. Gert er ráð fyrir að kann- aðar verði hugmyndir um að heimil- ið verði rekið í samstarfi og í tengsl- um við Skógarbæ og jafnframt skulu borgin og Rauði krossinn standa að stofnun sjálfseignarstofn- unar um heimilið. Biðlistar hafa lengst Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðis- flokks bókuðu að við síðustu kosn- ingar hafi Reykjavíkurlistinn lofað að sinna sérstaklega málefnum aldr- aðra hjúkrunarsjúklinga. Á kjör- tímabilinu hafi fjölgun rýma hins vegar verið mun hægari en á síð- asta kjörtímabili með þeim afleið- ingum að biðlistar hafa lengst. Bent er á að á síðustu þremur árum hafi 33 rými verið tekin í notkun og að fjölgun á öllu kjörtímabilinu sé 68 hjúkrunarrými en biðlisti aldraðra í brýnni þörf sé yfír 180. Það verði því að teljast afar þróttlítið mark- mið að stefna að 40 rúma hjúkrun- arheimili sem næsta skrefi. Fleiri og minni í bókun borgarstjóra í borgarráði segir að fyrir síðustu kosningar hafi Reykjavíkurlistinn lagt áherslu á að flýta byggingu hjúkrunarheim- ilis við Árskóga. Samstarf hafí náðst við Rauða krossinn, Dagsbrún, Framsókn og Sókn og væri árangur að koma í Ijós með 79 rýma heimili sem tekið yrði í notkun eftir því sem rekstrarframlög fengjust frá heil- brigðisráðuneytinu. Stefna Reykja- víkurlistans sé að heimilin tengist annarri hverfabundinni öldrunar- þjónustu og eigi því að vera fleiri og minni en tíðkaðist til skamms tíma í Reykjavík. Það sé í betra samræmi við þær óskir sem ítrekað hafi komið fram hjá öldruðum. Siðareglur þjóðhöfðingja á milli sagðar hindra byggingu búddamusteris Forsetaembættið vísar í bréf for- sætisráðherra „VIÐ höfum ekkert um málið að segja umfram það sem kemur fram í bréfi forsætisráðherra til sveitar- stjórnar í Bessastaðahreppi," sagði Komelíus Sigmundsson forsetarit- ari, þegar leitað var eftir upplýsing- um um hvaða siðareglur gilda þjóð- höfðingja á milli. í frétt Morgunblaðsins í gær er vitnað til ummæla forseta Islands um að bygging búddamusteris í hreppnum gæti brotið í bága við siðareglur þjóðhöfðingja í milli vegna tengsla við tælensku kon- ungsfjölskylduna. Oddviti Bessastaðahrepps sagði í samtali við Morgunblaðið i gær að á óformlegum fundi hrepps- nefndar með forsetanum hafi komið fram að hann teldi bygginguna geta verið brot á siðareglunum. Fram kom hjá oddvita að áður hafi hreppsnefndin í raun fallist á niður- stöðu skipulagsnefndar sem mælti með byggingunni en vegna tilmæla frá forsetaembættinu og forsætis- ráðherra hafí verið fallið frá því. í bréfi forsætisráðherra til sveitarstjómar hreppsins segir: „Ráðuneytið vísar í samtal forráða- manna sveitarstjórnar Bessastaða- hrepps með forsætisráðherra og ráðuneytisstjóra í dag. Varðandi musteri búddista er tekið fram að ekki eru gerðar neinar athugasemd- ir við staðsetningu þess í hreppnum af trúarlegum eða samskiptalegum ástæðum. Forsetaembættið hefur á hinn bóginn vakið athygli ráðuneyt- isins á sjónarmiðum sem varða af- stöðu til þjóðhöfðingjasetursins á Bessastöðum og tengsl musterisins við þjóðhöfðingaembætti í erlendu ríki. Fellst ráðuneytið á þær ábend- ingar og athugasemdir forsetaemb- ættisins, m.a. um aðdraganda og aðkomu að máli, sem þannig er vaxið. Er því talið meira við hæfi að musteri þessu verði valinn staður í öðru sveitarfélagi en því, sem for- setasetrið er þungamiðjan í.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.