Morgunblaðið - 22.05.1997, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 22.05.1997, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 1997 49 MINNINGAR ARNIPETUR LUND + Ámi Pétur Lund fæddist í Reylgavík 2. ágúst 1971. Hann lést í Alaborg í Dan- mörku 8. maí síð- astliðinn og fór út- for hans fram frá Fossvogskirkju 21. mai. Ef, er það orð sem hefur komið aftur og aftur upp í huga minn síðustu daga. Það er erfitt að tnía því að við eigum ekki eftir að njóta samverustunda aftur, kæri vinur. Minningar um samskipti okkar í gegnum árin hafa fyllt hug minn síðan ég frétti um andlát þitt. Ég minnist þeirra stunda sem við áttum saman, bæði í og utan skóla. Ég minnist þeirra ferða sem við fórum í saman, gítarleiks þíns í góðra vina hópi, og samtala okkar. Já, þær eru ófáar stundinar sem við höfum eytt í að rökræða um allt milli himins og jarðar, deilt draumum, áhyggjum, áformum og skoðunum. Þú varst einn af þeim sjaldfundnu vinum sem maður gat trúað og treyst fyrir öllu. Enda þótt langt væri á milli okkar héld- um við ávallt sambandi. Skemmti- leg blanda af kæruleysi, dugnaði, áræði og þijósku einkenndi per- sónuleika þinn og ekki var heldur langt í stríðnina hjá þér. Oft dáðist ég að atorku þinni. Þú varst sann- ur vinur vina þinna. Ég kveð þig nú, kæri vinur, og þrátt fyrir að þú sért farinn mun minning þín lifa hjá okkur sem þig þekktum. Ætt- ingjum og vinum votta ég mína dýpstu samúð. Þorvaldur. Elsku Ámi Pétur, það er ótrúlegt til þess að hugsa, að eiga ekki eft- ir að rekast á þig með gítarinn þetta sumarið. Takk fyrir stutt en góð kynni. Og því varð allt svo hljótt við helfregn þína sem hefði klökkur gígjustrengur brostið. Og enn ég veit margt hjarta harmi lostið, sem hugsar til þín alla daga sína. Meðan árin þreyta hjörtu hinna sem horfðu eftir þér í sárum trega, þá blómgast enn og blómgast ævinlega þitt bjarta vor í hugum vina þinna. (Tómas Guðm.) Aðstandendum öllum sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Guð gefi ykkur styrk í þessari miklu sorg. Ásta Kristín. Þriðjudaginn 13. maí sl. barst mér hörmuleg fregn. Pabbi hringdi í mig frá íslandi og sagði mér að Árni Pétur frændi væri dáinn. Ég gat varla trúað því í fyrstu því það er svo óréttlátt. Arni Pétur sem var ekki nema 25 ára, með allt lífið fram- undan, er dáinn. Ég man fyrst eftir Árna þegar ég fór í heimsókn til Maríusar og Ásdísar með mömmu og pabba. Þá voru þeir bræður tveir Árni og Bergþór sem er jafngamall mér. Þá átti fjölskyldan heima á efstu hæð í blokk á Kleppsveginum. Það var alltaf spennandi að fara í heim- sókn tii þeirra og leika með dótið sem þeir áttu heilmikið af og ég tala nú ekki um öll dýrin. Árni átti fiska, páfagauka, hamstra, kött og að sjálfsögðu seinna tíkina Snotru en hana kom Ámi með heim einn góðan veðurdag við misgóðar undirtektir. En hún varð samt sem áður ein af fjölskyldunni. Misvinsæl var hún hjá þeim fullorðnu en átti tryggan aðdáendahóp hjá yngri kynslóðinni og oft var hávaði og fjör í leikjum með henni. Það var alltaf mikið líf og fjör heima hjá Árna Pétri því þeir bræður voru nokkuð fjörugir. Þeir áttu það til að stríða pabba sínum svo að mörgum fannst nóg um en þrátt fyrir það voru þeir góðir drengir. Ég mun alltaf minnast þess þeg- ar ég var eitt vorið í sveitinni hjá ömmu og afa í Miðtúni. Afi var byijaður að kenna mér á traktor og einnig að vakta húsin á sauð- burðinum. Árni Pétur var eins og vanalega kominn í Miðtún í sauð- burðinn og Hróðný frænka var þar líka. Svo var það einn morguninn að við krakkarnir vorum búnir að gefa í húsunum að afi kemur til okkar. Hann var eitthvað undarleg- ur og talaði mjög óskýrt. Árni sá strax að eitthvað var að afa og sagði okkur að hjálpa sér við að koma honum inn í bílinn. Hann keyrði svo afa heim í einum hvelli, próflaus, enda var hann aðeins unglingur, og hjálpaði ömmu að bera afa inn í rúm. En hann sagði okkur Hróðnýju að bíða niðri í fjár- húsum og koma ekki heim strax því hann grunaði að eitthvað alvar- legt væri að afa og vildi ekki láta okkur horfa á því að við tvö vorum aðeins börn. En sem betur fer var nú oftast meira fjör í sveitinni heldur en þeg- ar þetta gerðist. Eitt vorið kom Árni Pétur, sem þá var kominn með bílpróf, í sveitina á Willys- jeppa. Húddið á honum var allt laust og bundið niður með spottum - það hafði nefnilega fokið upp og út í móa á Tjörnesinu. Bíllinn var líka ískaldur þar sem hann var með einhverri blæju. Þessum bíl ók hann alla leið úr Reykjavík og norður á Melrakkasléttu. Árni tók mig í bíl- túr út í sandbörð og þótti mér held- ur en ekki gaman að því. Ég leit mikið upp til Árna Pét- urs og með honum byijaði ég að meta tónlist þeirra Bubba og Meg- asar. Alltaf þegar ég hlusta á Bubba og Ego kemur Árni upp í huga minn inni í herberginu sínu með græjurnar á góðum styrk. Árni var alltaf mjög ákveðinn og ef hann ákvað eitthvað þá gerði hann það. Hann fór í Iðnskólann og Tækniskólann þar á eftir ogyar nú við nám við Háskólann í Ála- borg. Ekki hafði Ámi alltaf fengið góðar einkunnir í grunnskóla en hann sýndi það og sannaði að slík- ar einkunnir segja ekki allt og þeg- ar hann á annað borð ákvað að fara að læra gekk það upp eins og í sögu. Eins var þegar hann byijaði að læra á gítar. Við eignuðumst báðir gítar á svipuðum tíma. Ég gafst fljótlega upp en Ámi varð hinsveg- ar ágætur gítarleikari og spilaði oft á gítarinn í góðra vina hópi því hann kunni öll bestu lögin. Hann var vinsæll, góður vinur og góður drengur. Hann var alls ekki óreglu- samur en aftur á móti ákveðinn í skoðunum. Ein af síðustu stundunum þegar fundum okkar Árna bar saman var um síðustu verslunarmannahelgi á Akureyri. Þar hittumst við með unnustum okkar ásamt fleiri vinum og áttum góða helgi. Kæri Beggi minn. Ég veit að þú ert mjög særður að missa svo góð- an vin og bróður, en vertu sterkur, það er það sem Árni hefði viljað. Þú varst líka svo lánsamur að eiga með honum góðar stundir fyrir ekki löngu. Elsku Maríus, Ásdís, Bergþór, Kalli, Steingerður, Bergþóra og amma og afí í Miðtúni. Fallinn er frá góður drengur sem við munum öll minnast með söknuði um ókomna tíð. Við Lilja sendum öllum vinum og ættingjum samúðarkveðjur. Okkur þykir sárt að geta ekki ver- ið hjá ykkur. Það er erfitt að vera tvö ein í fjarlægu landi þegar svona hörmulegur atburður gerist en það er styrkur í því að vita hvað allir heima standa saman og eru sterkir í sorginni. Elsku Árni minn. Mér fmnst sárt að komast ekki heim til að kveðja þig hinstu kveðju við jarðar- förina þína. Þegar ég kem heim mun ég heimsækja leiðið þitt og tala eitthvað við þig. Ég þakka Guði fyrir að hafa fengið að kynn- ast þér og hvað við náðum vel sam- an og kveð þig með sálmaversinu sem við lærðum ungir. Vertu, Guð faðir, faðir minn í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (Hallgr. Pét.) Þinn vinur og frændi, Elvar Árni Lund. SIGURÐUR SIGURÐSSON + Sigurður Sig- urðsson, fv. fréttamaður, fædd- ist í Hafnarfirði 27. janúar 1920. Hann lést á heimili sínu í Reykjavik 3. apríl síðastliðinn og fór útför hans fram frá Dómkirkjunni 11. apríl. Það kom mér ekki á óvart, þegar ég frétti andlát Sigurðar Sig- urðssonar, þar sem ég var staddur í vetrarfríi á Kanaríeyj- um. Heilsa hans var ekki sem best síðustu misseri og þegar ég heim- sótti hann á sjúkrahús skömmu fyrir brottför mína var augljóst að hveiju stefndi. Sigurður Sigurðs- son var brautryðjandi í íslenskri íþróttaf- réttamennsku og á þeim vettvangi kynnt- umst við. Útvarpslýs- ingar hans frá íþrótta- viðburðum voru sér- stakar og lifandi, sum- ir sögðu jafnvel, að það væri miklu meira gam- an að hlusta á Sigurð, en fara á völlinn. Það var mannbætandi að eiga samskipti við Sigurð. Fyrir utan góða greind var hann ákaflega skemmtilegur maður og jákvæður. Ekki sakaði að hann átti svo auð- velt með að greina aðalatriðin frá aukaatriðunum. Við störfuðum saman í stjórn Samtaka íþrótta- fréttamanna um sjö ára skeið og það var ánægjulegt tímabil. A þessum árum var haldið norrænt íþróttafréttamannaþing hér á landi í fyrsta sinn. Það tókst með ágæt- um og þar komu stjórnunarhæfi- leikar Sigurðar vel í ljós. Við sótt- um Finna heim á hliðstætt þing árið eftir. Á síðasta degi þingsins var Sigurður fundarstjóri og það þarf vart að taka það fram, að hann stóð sig afburðavel og fór á kostum. Góður vinur og íþróttafélagi er fallinn frá. Hans er saknað af öll- um, sem kynntust honum. Sárastur er þó söknuður hans elskulegu eig- inkonu, Sissu, barna og annarra náinna ættingja. Þeim eru sendar innilegar samúðarkveðjur. Örn Eiðsson. Við erum harmi slegin fjölskyld- an og hugur okkar allur hefur ver- ið hjá fjölskyldu Árna. Er til meiri harmur en að missa barnið sitt ungt? Er nokkuð í lífinu sem við elskum meira en börnin okkar? Er til meiri hamingja en að sjá þau vaxa úr grasi og verða heilsteyptar og heilbrigðar manneskjur? For- eldrar Áma urðu þess aðnjótandi. Fjölskylda mín kynntist Árna fyrir þremur áram er Steingerður dóttir okkar og hann fóru að vera saman. Fljótt urðum við þess áskynja að þar fór góður drengur, reglusamur, prúður, hæfíleikaríkur og duglegur. Hann var mjög handlaginn enda lærður blikksmiður. Hann gerði sjálfur við bílinn sinn, gafst ekki upp þótt verkið væri bæði erfítt og torsótt. Árni var vel gefinn og lágu raun- greinar vel fyrir honum enda valdi hann að nema tölvuverkfræði og sóttist námið vel. Árni var glað- lyndur og átti marga góða vini en umfram allt hafði hann góða nær- vera. Það var ávallt ánægjulegt að fá þau Steingerði og Árna ásamt Sno- tru í heimsókn. Snotra var hundur- inn hans Árna sem þeim þótti mjög vænt um. Áhugamál þeirra vora mjög heilbrigð. Þau stunduðu úti- vist, unnu tónlist og vora miklir dýravinir. Bæði sungu þau í kór og Ámi lék í hljómsveit. Ég veit að þótt Steingerður og Ámi hafi slitið samvistum sem fjölskyldur þeirra tóku mjög nærri sér þá náðu þau að eiga mjög góðar stundir saman. Ámi átti stóra og góða fjölskyldu sem bersýnilega stendur saman. Hann átti góða foreldra og tvo yngri bræður, ömmu í Reykjavík og ömmu og afa á Melrakkasléttu. Allt öndvegisfólk sem dóttir mín hreifst mjög af og hefur veitt henni stuðning í þessari miklu sorg síð- ustu daga. Sem hjúkrunarfræðingur hef ég oft kynnst fólki sem staðið hefur í návígi við dauðann og veit að hann ber ekki að óttast. Einhver staðar stendur skrifað: „Hafír þú nokkurn tíma séð mann deyja, þá minnstu þess, að þú átt einnig eft- ir að halda sömu leiðina.“ Þannig vitum við að dauðinn er hluti af lifinu. Jafnframt vitum við eins og Kristur kenndi okkur að þeir sem hafa lifað, munu áfram lifa. Hinir látnu munu ávallt eiga hlutdeild í okkur sem lifum og við vitum að þeir hafa öðlast frið. Við grátum þá og syrgjum því missirinn er svo mikill og söknuður ástvina óbæri- legur. Einungis timinn vinnur með sorginni. Við vitum að vel verður tekið á móti Árna hinum megin. Við biðjum góðan Guð að styrkja alla ástvini Áma. Hvíl í friði. Ingibjörg Þóra Hallgrímsson og fjölskylda. Árni Pétur vinur minn er dáinn. Þetta er eins og vondur draumur og maður getur ekki vaknað. Þegar ég lít til baka sé ég að ég hef fengið að kynnast Árna Pétri á margan hátt, sem bekkjar- félaga, vinnufélaga, sambýlisfé- laga og umfram allt góðum og traustum vini. Hann var vinur sem alltaf var hægt að koma til og spjalla við í trúnaði og oft hafði hann svör sem mann vantaði. í skóla og vinnu var Árni Pétur alltaf miðpunktur glens og gríns. Hvort sem hann var að grínast í öðrum eða grín gert að honum voru aldrei nein illindi i kringum Áma Pétur. Við þennan missi hefur myndast stórt skarð í vinahópinn. Enda þótt maður sætti sig ekki við þennan missi, verður maður að reyna að læra að lifa með honum, þar sem lífið heldur áfram. Ég sendi innilegar samúðar- kveðjur mínar til foreldra hans, bræðra hans, Steingerðar og allra í fjölskyldunni. Ég get stoltur sagt að Árni Pét- ur hafí verið góður vinur minn og ég mun alltaf sakna þeirra stunda sem við höfum átt saman. Börkur. í dag kveðjum yið vin okkar Árna Pétur Lund. Á svona stundu rifjast upp allir þeir skemmtilegu tímar sem við áttum saman. Þú varst okkur alltaf kær þrátt fyrir að við höfum lítið hist á undanförn- um árum. Það rifjast upp ferðalag- ið okkar upp í Borgarnes, þar sem bíllinn fór út af veginum á miklum hraða en við sluppum öll með skrekkinn - að ógleymdum öllum nóttunum sem við vöktum saman, alltaf að bralla eitthvað og stund- um sofnuðum við öll, þú, Eiríkur Pétur (Pési) og við á sama stað og vöknuðum hress morguninn eft- ir, tilbúin að takast á við nýjan og skemmtilegan dag. Okkur leiddist aldrei þegar við vorum öll saman komin. Þessar og ótal aðrar minningar lifa í hjarta okkar að eilífu.Við biðj- um góðan Guð að styrkja foreldra þína og bræður. Elsku Árni, Guð geymi þig. Helga Fanney, Lilli Kíiren, Nína og Sigríður. Þegar íslendingar eru erlendis og fjarri heimahögunum, myndast oft öðravísi tengsl þeirra á milli en verður annars heima á íslandi. Ástæðan er trúlega fjarlægð frá fjölskyldu og æskuvinum. Hérna í Álaborg eru margir námsmenn og þeirra á milli er afar náið samband. Flestir virðast skilja nauðsyn þess að við höldum góðu sambandi okkar á milli, sérstaklega nú, þegar sorgin kveður dyra. Hann Árni Pétur Lund, vinur okkar og skólabróðir, kvaddi okkur alltof snemma. Árni hefur verið hér í tvö ár við verkfræðinám og eign- ast marga góða vini á þeim tíma seny allir sakna hans ákaflega mik- ið. Árni tók mikinn þátt í félagslíf- inu hérna, mætti með gítarinn á góðum stundum og jók stemmning- una með frábærum gítarleik. Hann spilaði með hinu sigursæla knatt- spyrnuliði okkar, og hann var alltaf boðinn og búinn að rétta hjálpar- hönd ef einhver þufti aðstoðar við. En nú er Árni farinn og við hin sitjum eftir með stóra spuminguna: „Guð, af hverju?“ Henni fæst trú- íega ekki annað svar við strax, en þetta sígilda að Guð elski þá sem deyja ungir. Og það verðum við að sætta okkur við í bili. En við styðj- um hvert annað, eins og okkur framast er kostur, og hugsum öll til ykkar foreldra Árna, bræðra hans, ömmu og afa. Megi Guð al- máttugur styrkja ykkur og hugga í þessari raun að sjá af ástvini ykk- ar svo ijarri heimahögunum. Fyrir hönd íslendingafélagsins í Álaborg, ívar Sigurgislason. Hann Árni Pétur frændi minn og vinur er fallinn frá í blóma lífs- ins. Upp í hugann koma ótal minn- ingar. Margar ógleymanlegar sam- verustundimar höfum við átt. Vin- skapur okkar var meiri en gengur og gerist meðal frænda, þó sérstak- lega hin seinni árin. Margt var reynt. Til sjós var rennt fýrir físk og skotinn svartfugl og upp til heiða var gengið til ijúpna og legið fyrir gæs. Ótalmörg vora uppátækin og oft ævintýraleg. Upp úr standa þó minningar úr ferðalögum og útileg- um. Með gítarinn sér í hönd hélt hann fjörinu upp, því mátti maður treysta. Oft var farið að birta af degi þegar síðustu hljómarnir dóu út. Nú verða ferðirnar okkar saman ekki fleiri. Stórt skarð hefur verið höggvið í vinahópinn sem hafði myndast í kringum Árna í gegnum árin. Og þótt Árni hafi verið í Danmörku tvo síðastliðna vetur komum við vinirn- ir aldrei saman nema Árni væri með í umræðum okkar, sérstaklega þegar rætt var um liðna daga. Mik- ið gátum við hlegið að ýmsum uþpá- tækjum hans og dáðst að afrekum hans. Þessi góði drengur hefur kvatt þennan heim en hans mun svo sannarlega verða minnst um ókomin ár sem trausts vinar og félaga. Honum munum við aldrei gleyma. Ármann og Sigríður Lára. & v- %
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.