Morgunblaðið - 22.05.1997, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 22.05.1997, Qupperneq 14
14 FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 1997 AKUREYRI LAIMDIÐ MORGUNBLAÐIÐ - Nýr skóla- sljóri Tónlistar- skólans ATLI Guðlaugsson hefur verið ráðinn skólastjóri Tónlistar- skólans á Akureyri. Guðmund- ur Oli Gunnarsson sem gegnt hefur stöðunni undanfarin ár lætur senn af störfum. Alls sóttu sex um skólastjórastöð- una, Atli fékk tvö atkvæði við afgreiðslu skólanefndar Tón- listarskólans á Akureyri og Michael Jón Clarke eitt at- kvæði. í leynilegri atkvæða- greiðslu á fundi bæjarstjórnar í vikunni fékk Atli flest at- kvæði. Hann hefur verið skóla- stjóri Tónlistarskóla Eyjaijarð- ar síðustu ár. A fundi bæjarstjórnar var einnig samþykkt að ráða Erl- ing Sigurðarson í starf for- stöðumanns skáidamiðstöðv- arinnar í Sigurhæðum og Guð- rún Pálína Guðmundsdóttir var ráðin í stöðu safnakennara við Listasafnið á Akureyri. Skólaslit Tón- listarskólans á Akureyri SKÓLASLIT Tónlistarskólans á Akureyri verða í Glerár- kirkju næstkomandi laugar- dag, 24. maí, kl. 14. Kennarar afhenda nemend- um námsmat og útskriftar- nemendur flytja tónlist. Enn- fremur leikur elsta strengja- sveit skólans kafla úr svítunni Bakkabræður sem Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson samdi sér- staklega fyrir skólann í tilefni af 50 ára afmæli hans á síð- asta ári. Innritun fyrir skólaárið 1997-1998 stendur til 30. maí næstkomandi. Kennt er á nær öll hljóðfæri klassískrar tón- listar auk rafhljóðfæra. Aukasýn- ingar á Yefaranum AÐSÓKN að sýningum Leikfélags Akureyri á Vefar- anum mikla frá Kasmír und- anfarnar helgar hefur verið með afbrigðum góð. Tvær aukasýningar á verkinu verða um næstu helgi, laugardaginn 24. maí og sunnudaginn 5. maí og eru það allra síðustu sýningar á verkinu. í aðalhlut- verkum eru Marta Nordal og Þorsteinn Bachmann. Sýning- ar verða á Renniverkstæðinu við Strandgötu 49. Morgunblaðið/Kristján Fimir reiðhjólamenn ÞEIR eru fimir reiðhjólamenn, Hörður Þór Rafnsson og Helgi Jóhannesson, en þeir urðu hlut- skarpastir í eldri flokki í reið- hjólakeppni sem Sportver og _ Vífilfell efndu til á dögunum. í þriðja sæti í þeim flokki varð Kristján Baldursson. Á mynd- inni er Helgi frá vinstri, en hann varð í öðru sæti og Hörður sem vann í sínum flokki til hægri. Eins og góðum reiðhjólamönn- um sæmir bera þeir félagar hjálma á höfði. Umhverfisstefna Búnaðarsambands Eyjafjarðar samþykkt Búskapur o g mannvist í sátt við náttúruna UMHVERFISSTEFNA Búnaðar- sambands Eyjafjarðar var samþykkt á aðalfundi sambandsins nýlega. Markar hún nokkur þáttaskil en BSE er fyrst búnaðarsambanda til að setja sér slíka samþykkt þar sem skýrt kemur fram vilji bænda á svæðinu til þess að búskapur og mannvist fari fram í sátt við náttúruna og það umhverfi sem við lifum í. í umhverfisstefnu Búnaðarsam- bands Eyjafjarðar er lögð áhersla á búvöruframleiðsla í héraðinu fari fram í óspilltu umhverfi, hóflega nýt- ingu landsins og að landgæði aukist. Einnig er lögð áhersla á sem besta meðferð og viðhald húsa og véla og að tryggja þannig góða endingu og ásýnd, að notkun lyíja og tilbúinna efna við ræktun og framleiðslu verði takmörkuð og að sem mest endur- vinnsla umbúða fari fram og endur- nýting annars sem til fellur við rekst- ur búsins. Náttúran njóti vafans Sambandið leggur einnig áherslu á í umhverfisstefnu sinni að nýting náttúrulegra og innlendra orkugjafa verði sem best, einnig nýting að- fanga þannig að úrgangur og sorp verði sem minnst. Þá á að tryggja hámarksgæði vatns við framleiðslu og úrvinnslu búvara og að frárennsl- ismál á lögbýlum og við matvæla- framleiðslu verði með viðunandi hætti. Loks kemur fram í markmið- um umhverfisstefnunnar að leiki vafi á um afleiðingar tiltekinnar starfsemi verði náttúran látin njóta vafans. Markmiðum umhverfisstefnunnar ætlar sambandið m.a. að ná með fræðslu til félagsmanna, með sam- vinnu við sveitarfélög, úrvinnslu- og afurðasölufyrirtæki, félög og ein- staklinga um leiðir til úrbóta og með áróðri og markaðssetningu eyfirskra afurða undir merkjum vistvænnar framleiðslu. Einnig var samþykkt að veita hvatningarverðlaun þeim sem sýndu sérstakt framtak í landbúnaði eða úrvinnslu landbúnaðarafurða. Þá verða einnig veittar viðurkenningar ef ástæða er til fyrir vel unnin störf, athyglisverða nýjung eða einstakan árangur. Greifator færan um helgina „TORFÆRUHELGI" verður á Ak- ureyri nú um helgina, dagana 23. til 25. maí, og verður hún helguð bílasporti, einkum torfærubílum og fjallajeppum. Hápunkturinn verður Greifator- færan sem um leið er fyrsta tor- færukeppni sumarsins, en hún hefst kl. 13 á laugardag. Hún verður í malargryfjunum ofan Akureyrar og eru allir helstu torfærubílar og öku- menn landsins skráðir til keppni. Dagskráin hefst á morgun, föstu- dag, með sýningu á torfærubílum á Ráðhústorgi en þar verða allir skráðir torfærubílar landsins saman komnir. Gestum og gangandi verð- ur boðið til grillveislu auk þess að fyrirtæki verða með vörukynningar og prufuakstur nýrra bifreiða. Jeppasýning Eyjafjarðardeildar 4X4 klúbbsins verður á Ráðhústorgi á sunnudag, 25. maí, og hefst hún kl. 14. Þar verða til sýnis margir öflugustu fjallajeppar Eyfirðinga ásamt tilheyrandi búnaði til fjalla- ferða. Ymis fyrirtæki í veitingarekstri og ferðaþjónustu hafa tekið hönd- um saman með Bílaklúbbi Akur- eyrar og bifreiðaþjónustufyrirtækj- um til að skemmta bæjarbúum og gestum, m.a. með bílasýningum, grillveislum og vörukynningum. V erkkennsluhús í Neskaupstað Neskaupstað - Nú á dögunum var formlega tekið í notkun nýtt verk- kennsluhús við Verkmenntaskóla Austurlands. Fjöldi gesta var við athöfnina, þar á meðal Björn Bjarnason, menntamálai'áðherra, ásamt eiginkonu sinni, Rut Ingólfs- dóttur, þingmenn kjördæmisins auk margra annarra gesta af Austur- landi. í máli Helgu M. Steinsson, skóla- meistara Verkmenntaskólans, kom m.a. fram að með tilkomu þessa nýja húss gerbreytist öll aðstaða til vet'kkennslu við skólann til hins betra, t.d. opnast nú möguleikar á að bjóða upp á nám í blikk- og stál- smíði svo og vélstjóranám. Þá kom fram hjá Helgu að á næsta vetri er áætlað að bjóða upp á nám á hársnyrti- og sjávarútvegsbrautum við skólann ef næg aðsókn verður. Kostnaður við breytingar 50 milljónir Björn Bjarnason, menntamála- ráðherra, þakkaði í sínu ávarpi sér- staklega gott samstarf ráðuneytisins og sveitarfélaganna hér fyrir austan við uppbyggingu skólans. Þá kvaðst hann hafa áhyggjur af að tölur sýndu að menntun í sjávarútvegs- og fiskvinnslufyrirtækjum væri hvað minnst af öllum atvinnugreinum landsmanna og það vissi ekki á gott. Björn taldi að skólinn ætti að vera virkari en hingað til í atvinnuupp- byggingu sjávarútvegsins. I máli Guðmundar Bjarnasonar, béejarstjóra í Neskaupstað, kom HELGA M. Steinsson ávarp- aði gesti í verkkennsluhúsinu. fram að áætlaður kostnaður við breytingar gamla íþróttahússins í verkkennsluhús væri um 50 milljón- ir og til tækjakaupa 25 milljónir. Þá kvað hann ríkisvaldið hafa stað- ið vel að uppbygingu Verkmennta- skólans. Við athöfnina afhenti Kristinn V. Jóhannesson, stjórnarformaður Síldarvinnslunnar, skólanum 500 þús. kr. að gjöf frá Síldarvinnslunni til kaupa á vélarrúmshermi. Oll sveitarfélög í Múlasýlsu að einu undanskildu standa að uppbygg- ingu skólans. Verktaki við hið nýja verkkennsluhús var Nestak í Nes- kaupstað. Skólameistari Verk- menntaskóla Austurlands er Helga M. Steinsson. Morgunblaðið/Ágúst Blöndal FRÁ opnun verkkennsluhúss Verkmenntaskóla Austurlands. Morgunblaðið/Sigrún Oddsdóttir Samkeppni meðal grunn skólanema á Vopnafirði Vopnafirði - Búnaðarfélag Vopnafjarðar átti 100 ára af- mæli árið 1995. Var þá ákveðið að efna til samkeppni um tillögu að merki fyrir félagið. Sam- keppnin fór fram meðal nem- enda í 8. og 9. bekk Vopnafjarð- arskóla. Átján nemendur tóku þátt í keppninni. Búnaðarfélagið ákvað að veita peningaverðlaun fyrir þrjár bestu tillögurnar en nemendur fengu allir viðurkenn- ingu fyrir þátttökuna. Sigríður Bragadóttir, fráfarandi formað- ur Búnaðarfélagsins, Emil Sigur- jónsson, núverandi formaður og Gauti Halldórsson í stjórn félags- ins afhentu nemendum viður- kenningarnar. Fyrstu verðlaun hlaut Agnes Björk Guðinunsdóttir, önnur verðlaun Karen Hlín Halldórs- dóttir og þriðju verðlaun Freyja Sif Bárðardóttir, allar í níunda bekk Vopnafjarðarskóla. Einnig afhenti fráfarandi formaður Að- albirni Björnssyni, skólastjóra, Sögu Búnaðarfélags Vopnafjarð- ar, sem kom út á afmælisárinu. I 1 > f i » I I L I f: í; i i L f, 1 L i L i J
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.