Morgunblaðið - 22.05.1997, Blaðsíða 54
54 FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MINNING
FRÉTTIR
SIGURVEIG ÞÓRA
KRISTMANNSDÓTTIR
DAVÍÐ Á. Gunnarsson, ráðuneytisstjóri, í ræðustól
á þingi WHO í Genf.
50. þing WHO haldið í Genf
Baríst gegn lang-
vinnum sjúkdómum
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
(WHO) hélt 50. þing sitt í Genf í
Sviss 4.-14. maí. Meginefni fundar-
ins voru baráttan gegn langvinnum
sjúkdómum, endurskoðun á áætlun
WHO um Heilbrigði allra, umbætur
í starfsemi stofnunarinnar, endur-
skoðun á stofnskrá WHO og um-
fjöllun um íjárlög 1998-1999.
í frétt frá heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytinu segir að í
upphafi þingsins hafi framkvæmda-
stjóri WHO, dr. Hiroshi Nakajima,
lýst því yfir að hann yrði ekki í
framboði á næsta ári, þegar kjör-
tímabil hans rennur út. Hann hefur
verið framkvæmdastjóri frá 1988.
Þá kom fram, að Gro Harlem
Brundtland, fyrrum forsætisráð-
herra Noregs, mun gefa kost á sér
sem næsti framkvæmdastjóri og að
Norðurlöndin muni vinna ötullega
að því að tryggja kjör hennar. Þeg-
ar sé ljóst að framboð hennar njóti
mikils stuðnings.
Davíð Á. Gunnarsson, ráðuneyt-
isstjóri og formaður íslensku sendi-
nefndarinnar, ávarpaði þingið og
gerði m.a. grein fyrir aðgerðum
Islendinga til þess að draga úr lang-
vinnum sjúkdómum og áformum
um rannsóknir á sviði erfðagrein-
ingar í því skyni að varpa ljósi á
orsakir sjúkdóma.
Davíð tilnefndur í
stjórnarnefnd
Þing WHO stendur í tvær vikur.
Fyrri vikuna sátu þingið Davíð Á.
Gunnarsson og Ingimar Einarsson,
skrifstofustjróri í heilbrigðisráðu-
neytinu, en þá síðari Einar Magnús-
son, skrifstofustjóri og Vilborg Ing-
ólfsdóttir, yfirhjúkrunarfræðingur.
Auk þess sátu þingið fulltrúar
fastanefndar íslands í Genf og Ólaf-
ur Ólafsson landlæknir.
í tengslum við þingið voru til-
nefndir nýir fulltrúar í stjórnar-
nefnd Evrópuskrifstofu WHO, en
endanlegt kjör þeirra fer fram í
haust. Davíð Á. Gunnarsson er einn
þeirra fulltrúa sem tilnefndir hafa
verið til setu í stjórnarnefndinni.
Úrskurður siðanefndar blaðamanna
Amælisvert brot DY
í frétt um launamál
+ Sigurveig Þóra Kristmanns-
dóttir fæddist í Vestmanna-
eyjum 7. janúar 1921. Hún lést
á hjúkrunarheimilinu Eir 13.
apríl síðastliðinn og fór útför
hennar fram frá Bústaðakirkju
21. apríl.
Elsku amma.
Mig langar að minnast þín í
nokkrum orðum. Minningin um þig
yljar enn, nú ert þú komin á leiðar-
enda, og áreiðanlega tekið vel á
móti þér. Þú tókst okkur alltaf með
opnum örmum þegar í Háagerðið
var komið. Þér þótti gott að hafa
börn, barnabörn og barnabarnabörn
hjá þér. Þú bakaðir heimsins bestu
vöfflur í Háagerðinu. Einnig minnist
ég allra gönguferðanna sem við fór-
um í, á heitavatnsstokknum. Svo
þegar inn var komið nuddaðir þú
hendur og fætur svo okkur yrði heitt
aftur.
Á jólunum komu allir í kaffi til
þín og fengu frægu vanilluhringina.
Þú varst mikil pijónakona og voru
þeir ófáir sokkarnir og vettlingarnir
sem þú pijónaðir á okkur. Þegar í
bæinn var farið, komu allir við í vinn-
unni hjá þér og við fengum tebollur
og mjólkurkex og hjálpuðum þér
+ Guðmundur B. Þorsteinsson
fæddist í Reykjavík 8. nóv-
ember 1934. Hann lést á Sjúkra-
húsi Reykjavíkur 5. apríl síðast-
liðinn og fór útför hans fram
frá Breiðholtskirkju 14. apríl.
Hinn 14. apríl síðastliðinn var
bróðir minn og mágur, Guðmundur
Bergmann Þorsteinsson, borinn til
grafar. Á föstudaginn langa var
hringt í okkur og fengum við þær
slæmu fréttir að Guðmundur hefði
fengið slag og verið fluttur á Borg-
arspítalann. Dag hvern fórum við til
hans til að biðja fyrir honum og
halda í hönd hans til þess að hann
fyndi nærveru okkar en á fjórða
degi voru læknarnir svartsýnir því
að Guðmundur sýndi engin viðbrögð
og rankaði ekkert við sér. Guðmund-
+ Lilja Sverrisdóttir fæddist á
Norðfirði 25. desember
1915. Hún lést á Landspítalan-
um 5. maí síðastliðinn og fór
útför hennar fram frá Eski-
fjarðarkirkju 12. maí.
Mig langar að minnast í fáum
orðum Lilju Sverrisdóttur, sem er
látin. Ekki hafði ég hugmynd um
að Lilja lægi sjúk á Landspítalanum.
Varð mér því mikið um þegar ég
var útskrifuð af spítalanum hinn 14.
maí og sé í Morgunblaðinu minning-
argrein um hana blessaða. Höfðum
við þá legið hvor á sinni hæðinni án
þess að vita hvor af annarri.
Mig langar að minnast Lilju með
með kaffið um allt hús og inn til
Nínu frænku.
Ég sakna þess að finna ekki af
þér góðan ilminn, elsku amma. Þú
veittir mér mikinn stuðning í gegn-
um lífið við að hefja búskap og fleira.
Þakka þér fyrir alla hjálpina og
stundirnar sem við áttum saman,
elsku amma mín.
Sofðu rótt hjá Guði.
Katrín Björk.
Elsku amma mín, alltaf hef ég
tekið það sem sjálfsagðan hlut að
geta faðmað þig og kysst. En nú hef
ég gert það í síðasta sinn og ætlaði
ég aldrei að geta sleppt. Ég gat ekki
sætt mig við það að þetta væri í
raun síðasta faðmlag okkar. En nú
ætla ég að bera höfuðið hátt og vera
sterk því ég veit að það hefði verið
þinn vilji.
Eins og hjá öllum sem þekktu þig
minnist ég þín með hlýju og minning-
amar standa svo ljóslifandi í huga
mér að mér finnst ég geta teygt mig
fram og snert þær. Ég vildi óska
þess að við sætum nú saman og rifj-
uðum upp þær ófáu stundir sem við
áttum saman tvær og einnig þær sem
við áttum í faðmi fjölskyldunnar sem
ur var okkur mikill vinur, öllum
okkar gleði og sorgum gátum við
deilt með honum. Við söknum hans
sárt en við vitum að hann er með
okkur ennþá og að hann heldur
verndarvæng yfir okkur.
Elsku Elsa okkar, Guð veri með
þér og þínum systkinum.
Margs er að minnast,
margt er hér^að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tið.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem.)
Guðbjartur Þorsteinsson,
Ásrún Heiðarsdóttir,
Guðbjartur Arnar
Guðbjartsson.
mikilli virðingu. Hún var mjög hæg
og góð kona. Þegar ég var stelpa
vann hún í frystihúsinu eins og
margar konur gera í sjávarplássum
úti á landi. Hún var dugleg, alveg
hörku kona og vildi öllum vel, átti
ég ekki von á öðru en að sjá hana
aftur þegar ég kæmi heim eftir mina
sjúkralegu sem vart sér fyrir endann
á.
Elsku Lilja mín, ef ég hefði bara
vitað af þér á spítalanum, hefði ég
komið til þín. Mér fannst alltaf gam-
an að hitta þig úti í búð, spjalla við
þig um daginn og veginn og stundum
keyra þig heim. Þá fengum við okk-
ur alltaf rúnt út að Hlíðarenda áður
en ég fór með þig heim.
þú hélst saman með góðmennsku
þinni og hlýju. Enda var fátt skemmt-
legra en þegar öll fjölskyldan kom
saman og grillaði og fór í leiki í garð-
inum þínum. Enn þann dag í dag hef
ég hvergi smakkað eins góðar kóti-
lettur með bernaissósu og bökuðum
kartöflum og ég fékk hjá þér.
Aldrei skammaðir þú mig, ekki
einu sinni þegar ég sprengdi óvart
tómatsósubréfíð yfir allt nýþvegið
eldhúsið þitt. Það var einhvem veginn
allt langbest hjá þér, elsku amma
mín. Alltaf varstu tilbúin með út-
breiddan faðminn ef mann vantaði
knús. Ekki má heldur gleyma vísun-
um þínum sem mér á mínum verstu
gelgjuáram fannst nú hálf lummó,
en nú gæfi ég aleiguna fyrir, ef þú
myndir bara einu sinni enn hlýja mér
á höndunum með vísunni „Fagur
fiskur í sjó“.
Æ, elsku amma ég vissi að miss-
irinn yrði mikill en hann er enn sár-
ari en ég gerði mér grein fyrir. En
ég finn návist þína og ég veit að þú
munt ávallt vaka yfir mér. Ég vona
að þú sért hamingjusöm og kát þar
sem þú ert nú og ég efa það ekki
að einmitt núna ert þú í einum af
þínum göngutúram, en í þetta sinn
er það afi sem heldur í hönd þína.
Vertu sæl, amma mín, ég elska
þig og sakna þín sárt en þó að þú
sért ekki hjá mér í persónu þá mun-
um við alltaf vera saman í hjörtum
okkar. Ég kveð þig með bæninni
okkar:
Vertu, Guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
(Hallgr. Pét.)
Takk fyrir að elska mig, þú ert
hetjan mín.
Eva Dögg Guðmundsdóttir.
Nú þegar ég hef kvatt hana ömmu
mína í hinsta sinn leitar hugurinn
til baka og margar góðar minningar
birtast mér. En efst í huga mér er
þegar þú komst í öll afmælin með
þínar heimsins bestu pönnukökur,
því án þeirra var ekkert afmæli.
Elsku amma mín, einnig man ég
er ég fékk að gista hjá þér í Háó í
hlýja, góða rúminu þínu og kúra
mig upp að þér. Þú varst alltaf svo
hlý og mjúk. Aldrei brást það er ég
vaknaði að þá beið mín heitt te og
ristað brauð.
En nú ert þú búin að ljúka erindi
þínu hér og þakka ég fyrir þær
stundir er átti ég með þér.
Elsku amma, ég mun ávallt elska
þig og muna.
Bryndís Skaftadóttir.
Það er æði margt gott hægt að
segja um hana Lilju, hún var mér
ætíð góð. Hún sat oft við stofu-
gluggann sinn og veifaði mér þegar
ég ók framhjá húsinu hennar. Ég á
eftir að sakna þess að fá ekki að
sjá þig aftur, Lilja mín. Ég kveð þig
með söknuði og þakka þér fyrir allar
ánægjustundirnar sem við áttum
saman.
Elsku Anna, Ásta og Sjöfn og fjöl-
skyldur ykkar. Ég og fjöldskylda
mín vottum ykkur hina dýpstu sam-
úð og vonum að Guð varðveiti þessa
glæsilegu konu sem Lilja var. Guð
blessi minningu hennar sem ég
geymi í hjarta mínu.
Jóna Björg Kristjánsdóttir.
Elsku langamma.
Mig langar að skrifa nokkur orð
um hana iangömmu mína Lilju
Sverrisdóttur. Langamma var búin
að vera mikið veik, mér brá mikið
þegar afí sagði mér að hún væri
dáin. Þó að ég hefði vitað að hún
væri að deyja hefði ég samt aldrei
verið viðbúin svona fréttum. Ég veit
að langamma var hvíldinni fegin.
Nú er langamma komin til lang-
afa og henni líður vel. Ég var fyrsta
langömmubarnið hennar. Ég fór oft
til hennar með ömmu og afa. Það
var alltaf gott að vera hjá henni.
Elsku langamma, ég þakka þér
fyrir allar góðu stundirnar okkar.
Guð geymi þig. Það veitir okkur
huggun að vita að þér líður svo vel
núna, elsku langamma. Takk.
Auður María Agnarsdóttir.
SIÐANEFND Blaðamannafélags-
ins gerir athugasemd við frétt DV
um ráðningar- og launamál fyrrver-
andi ráðuneytisstjóra í landbúnað-
arráðuneytinu. Telur nefndin að DV
hafi gerst brotlegt við 3. grein siða-
reglna og að brotið sé ámælisvert.
Frétt blaðsins birtist 28. janúar
1997 undir yfirfyrirsögninni „Fyrr-
verandi ráðuneytisstjóri landbúnað-
arráðuneytisins áfram á fullum
launum" og aðalfyrirsögnin var
„Jarðasjóður borgar honum 5,5
milljónir á ári“. Sveinbjörn Dag-
finnsson, fyrrverandi ráðuneytis-
stjóri i landbúnaðarráðuneytinu,
kærði þessa frétt til siðanefndar og
sagði að ekki hefði verið rétt farið
með staðreyndir málsins og fréttin
hefði verið birt til að ófrægja sig.
Eðlilegra hefði verið af blaðinu að
beina gagnrýni sinni að þeim ráð-
herra sem gerði samning um starfs-
lok við sig, þ.e. fyrrverandi land-
búnaðarráðherra. DV birti mynd
af Sveinbirni á forsíðu með frétt
sinni.
Framsetningin álitamál
I umfjöllun siðanefndar er bent
á að DV hafi ekki farið rétt með
allar staðreyndir málsins. Laun
Sveinbjamar séu greidd af Jarð-
eignum ríkisins en ekki Jarðasjóði.
Ekki sé heldur rétt að fjárlagaliður-
inn Jarðasjóður og Jarðeignir ríkis-
ins fari allur í að greiða Sveinbimi
laun eins og ráða hafi mátt af
umfjöllun blaðsins. Laun Svein-
bjarnar hafi fylgt launum ráðuneyt-
isstjóra.
Siðanefndin taldi því að öllu sam-
anlögðu ekkert athugavert við að
DV skyldi telja þetta mál frétta-
efni. „Álitamál er það hins vegar
hvort framsetning fréttarinnar hafi
verið með þeim hætti sem við átti
þegar tekið er tillit til hins persónu-
lega þáttar sem að kæranda snýr.
Einkum vekur forsíða blaðsins
spurningar í því efni,“ segir i úr-
skurði siðanefndar. Gagnrýnt er að
sá þáttur málsins sem DV hafði
hæpnastar heimildir um, þ.e. að
Jarðasjóður borgaði Sveinbirni 5,5
milljónir í laun á ári, hefði verið
settur í fyrirsögn, en sú staðhæfing
væri röng.
♦ ♦ ♦------
Argangur ’67
úr Lindargötu-
skóla hittist
ÞRJÁTÍU ára útskriftarfagnaður
árgangs 1967 úr Lindargötuskóla
verður haldinn laugardaginn 24.
maí í Óperukjallaranum kl. 19.
Boðið verður upp á kokteil, mat
o.fl. í fréttatilkynningu kemur fram
að ef einhveijir hafi ekki fengið boð
um fagnaðinn eigi þeir að snúa sér
til Dísu á Tíu dropum. Eftir kl. 23
eru allir velkomnir.
+
Faðir okkar, sonur og bróðir
EYJÓLFUR QUNNLAUGSSON,
sem lést fimmtudaginn 15. þessa mánaðar, verður jarðsunginn
föstudaginn 23. maf nk. kl. 10.30 frá Fossvogskirkju.
Birna og Erna Eyjólfsdætur,
Gunnlaugur Sigurbjörnsson,
og systkini hins látna.
GUÐMUNDUR
BERGMANN
ÞORSTEINSSON
LILJA
SVERRISDÓTTIR