Morgunblaðið - 22.05.1997, Síða 6
MORGUNBLAÐIÐ
6 FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 1997
FRÉTTIR
Jarð-
Yfirskattanefnd felldi niður skattálagningu á húsfélag í fjöleignarhúsi
skjálftar
norðan-
lands rann-
sakaðir
KOMIÐ hefur verið fyrir 22 jarð-
skjálftamælum á hafsbotni frá Öx-
arfirði og vestur í mynni Skaga-
fjarðar og norður að Kolbeinsey,
og er markmiðið að rannsaka nánar
jarðskjálftasvæði þar sem nyrðra
gosbeltið og Kolbeinseyjarhryggur-
inn_ nætast.
Á þessu svæði, sem nefnist Tjör-
nes-brotabeltið, skiptast á jarð-
skjálftasvæði, gliðnunarsvæði og
eldvirk svæði, m.a. virk háhita-
svæði á hafsbotni.
Samkvæmt upplýsingum frá
Veðurstofu íslands er mælingunum
nú ætlað að bæta við þá þekkingu
sem net jarðskjálftamæla, sem
komið var fyrir á nokkrum stöðum
á Norðurlandi árið 1993, hefur lagt
grunninn að. Fleiri slíkum mælum
verður komið fyrir á landi næstu
daga til að mæla á sama tíma og
mælt er með neðansjávarmælunum.
Neðansjávarmælunum var komið
fyrir á undanförum dögum og létu
Veðurstofan og háskólarnir í Sapp-
oro og Tókíó í Japan í té tæki og
mannskap en Landhelgisgæslan sá
um að flytja tæki og leiðangurs-
menn. Mælarnir verða teknir aftur
upp í lok júní.
Húsfélag var ekki talið
skattskyldur lögaðili
YFIRSKATTANEFND hefur fellt þann úrskurð
að húsfélag í fjöleignarhúsi sé ekki skattskyldur
lögaðili vegna eigna sem eru í óskiptri sameign
eigenda að húsinu og skattskyldra tekna sem
stafa af eignunum. Felldi yfirskattanefnd niður
álagningu tekjuskatts, eignarskatts, sérstaks
eignarskatts og aðstöðugjalds sem ríkisskatt-
stjóri lagði á húsfélagið vegna áranna 1991,
1992 og 1993.
Málavextir voru þeir að eftirlitsskrifstofa rík-
isskattstjóra athugaði leigutekjur og launa-
greiðslur umrædds húsfélags vegna rekstrarár-
anna 1991, 1992 og 1993. Leiddi athugunin í
Ijós að húsfélagið virtist hafa vanrækt upplýs-
ingagjöf til skattyfiiTalda um launagreiðslur til
starfsmanna og ekki sinnt framtalsskyldu eða
haldið eftir staðgreiðslu í samræmi við skatta-
lög.
Voru vantaldar launa- og hlunnindagreiðslur
taldar hafa numið rúmlega 4 milljónum kr. og
vantaldar húsaleigutekjur um 8,8 millj. kr. Þá
hafí húsfélagið vanrækt að telja fram til eignar-
skatts fasteignir, en fasteignamat þeirra nam
nokkuð á íjórða tug milljóna kr. Fram kom að
húsfélagið hafði leigutekjur af íbúðarhúsnæði,
iðnaðarhúsnæði og húsnæði sem nýtt var fyrir
leikskóla, hárgreiðslustofu eða sólbaðsstofu, en
því plássi var síðar breytt í íbúðir. Útleiga hús-
næðis virtist vera fastur þáttur í starfsemi
húsféiagsins.
Ríkisskattstjóri gaf félaginu kost á að koma
á framfæri athugasemdum og endurákvarðaði
svo opinber gjöld húsfélagsins. í niðurstöðu sinni
tók ríkisskattstjóri m.a. fram að skattundanþága
húsfélaga væri bundin við félög sem ekki rækju
atvinnu. Ef húsfélag ætti sjálft eignir og hefði
af þeim verulegar tekjur væri komið út fyrir
hefðbundið verksvið húsfélags.
I athugasemdum húsfélagsins, sem mótmælti
álagningunni, var því m.a. haldið fram að húsfé-
lag væri ekki skattskyldur lögaðili. Bent var á
að vegna fyrirhugaðrar skattlagningar hefði
verið greint á milli húsfélagsstarfsemi og at-
vinnustarfsemi á skattframtölum fyrir umrædd
át'. Húsfélagið kærði svo álagningu ríkisskatt-
stjóra til yfirskattanefndar. Umboðsmaður hús-
félagsins gat þess m.a. í kærunni að engin
dæmi væru úr íslenskri skattasögu um að húsfé-
lag hafi talist vera sjálfstæður skattaðili.
Skattskylda hvíli
á einstökum eigendum
í úrskurði yfirskattanefndar er fallist á
sjónarmið húsfélagsins. í niðurstöðu hennar
segir óumdeilt að umræddar tekjur og eignir
séu skattskyldar en megin ágreiningsefnið sé
hvort skattleggja beri þessar tekjur hjá húsfé-
laginu eða hvort þær tilheyri einstökum íbúðar-
eigendum eftir eignarhlutdeild þeirra. í úr-
skurðinum segir: „I samræmi við það sem að
framan greinir verður að telja að ekki geti
staðist að telja kæranda skattskyldan lögaðila
vegna eigna sem eru í óskiptri sameign eig-
enda að fjöleignarhúsinu og skattskyldra tekna
sem stafa af eignum þessum. Verður að telja
að skattskylda að þessu leyti hvíli á hinum
einstöku eigendum í samræmi við eignarhlut-
deild þeirra, eins og gildir um sameignir al-
mennt ... Ekki þykir fá breytt neinu um þessa
niðurstöðu, þótt umræddar eignii' hafi verið
þinglýstar á nafn kæranda, enda getur slík
ráðstöfun naumast hnikað stöðu eignanna sem
sameigna að lögum.
í kæruúrskurði ríkisskattstjóra, dags. 6. júní
1996, er staðhæft að engin tilraun virðist hafa
verið gerð til að telja umræddar tekjur og eign-
ir fram, hvorki hjá kæranda né einstökum fé-
lagsmönnum. í kröfugerð ríkisskattstjóra,
dags. 28. júní 1996, er sama staðhæfing höfð
uppi. Fram kemur af hálfu kæranda í kæru
til yfirskattanefndar, dags. 12. júní 1996, að
félaginu sé ókunnugt um þetta. Af þessu til-
efni skal tekið fram að hvorki í skýrslu eftirlits-
deildar ríkisskattstjóra um athugun á starfsemi
kæranda né öðrum gögnum kemur fram að
skattskil einstakra íbúðareigenda hafi verið
könnuð til staðreynslu á þessu. Verður því að
telja að þessi staðhæfing ríkisskattstjóra sé
órökstudd með öllu og að engin vissa liggi
fyrir um þetta.“
Stórlax úr Reynisvatni
ÓÐUM styttist í að laxveiði-
tíminn hefjist og eflaust bíða
margir veiðimenn í óþreyju eftir
að geta byijað. Stöðugt fleiri
nýta sér möguleikana sem Reyn-
isvatn, skammt ofan Reykjavík-
ur, býður upp á, bæði til veiða
og æfinga með flugustöngina.
Mikið veiðist þar af silungi og á
góðum dögum er hægt að setja
í stórlaxa. Sigurjón Sigurjóns-
son hafði heppnina með sér á
dögunum og fékk 17 punda lax
á grænan Nobbler.
Tímamótaverk
ÐrjL Pappsjra LujilíJ'/ /J'
* Bítlanna
arts Club Band
í Háskólabíói
6. júní kl. 20:00
7. júníkl. 17:00
7. júní kl. 20:00
/W/£>4
552 2140
Nýr sóknarprestur Grensásprestakalls
„Gott starf með
góðufólki“
SÉRA Ólafur Jóhanns-
son var kjörinn lög-
mætri kosningu í emb-
ætti sóknarprests
Grensássafnaðar í
Reykjavík á fundi kjör-
manna sem haldin var
þriðjudaginn 20. maí.
Tekur hann við af séra
Halldóri S. Gröndal,
sem lætur af embætti
þann 1. nóvember n.k.
eftir 24 ára starf fyrir
Grensássöfnuðinn.
Séra Ólafur Jóhanns-
son kvaðst í samtali við
blaðið vera mjög
ánægður með að vera
valinn til starfa fyrir söfnuðinn.
„Ytri umgjörðin er glæsileg með til-
komu nýju kirkjunnar sem vígð var
í desember. Einnig hefur verið lagð-
ur grunnur að mjög
góðu og traustu starfi
með góðu fólki og ég
vonast til að geta hald-
ið áfram á þeirri braut
sem mörkuð hefur verið
og bætt einhveiju við
eftir því sem aðstæður
leyfa, í því skyni að ná
með erindi og boðskap
kirkjunnar til fólksins í
hverfinu, “ segir séra
Ólafur.
„Mér er þó efst í
huga að senda góðar
kveðjur til hinna um-
sækjendanna. Við vor-
um 10 sem sóttum um
og ég þekki það af eigin raun hvern-
ig það er að sækja um og fá ekki
embætti og ég vona að okkar vin-
skapur verði samur eftir sem áður.“
Sr. Ólafur
Jóhannsson
Vélstjórar
og SFR
samþykkja
samninga
VÉLSTJÓRAR í frystihúsum
og öðrum verksmiðjum hafa
samþykkt nýgerðan kjara-
samning Vélstjórafélags Is-
lands og Starfsmannafélag
ríkisstofnana hefur einnig
samþykkt sinn samning.
Samningur Vélstjórafélags
íslands var samþykktur með
73% greiddra atkvæða en á
kjörskrá voru 110 félags-
menn. Samningur þeirra gild-
ir til 1. nóvember árið 2000.
Kjarasamningur Starfs-
mannafélags ríkisstofnana
við fjármálaráðherra og
Reykjavíkurborg var sam-
þykktur með 77% atkvæða. Á
kjörskrá voru 4287 félags-
menn en af þeim greiddu
1993 atkvæði eða 46,5%.
Norðan
fjarðar
við Hólabrú
Sunnan
Langsnið eftir Hvalfjarðargöngunum ihomm wm) jf »
„ . (H/L á teikningu = 411) v,ðbaurD
Hvalfjorður
SOlTL
Nú er búið að sprengja
1.740 m að norðanveröu
.. og um 2.220 metra að sunnanverðu.
Samtals um 3.960 m. 72% qanqanna.
-200
O 1 12 3 4 o o iv...
JARÐGÖNGIN verða um 5.484 m löng og liggja dýpst 165 m undir yfirborði sjávar. Þrjár akreinar verða á veginum I göngunum ao
norðanverðu, en tvær að sunnanverðu. Hallinn að norðan verður svipaður og I Bankastræti en að sunnan minni en í Kömbunum^
Hvalfjafðargöngin orðin 2.220 metra löng
VATNSRENNSLI hefur verið
úr sprungum í Hvalfjarðar-
göngunum sunnanverðum síð-
astliðnar tvær vikur og dregur
það nokkuð úr framkvæmda-
hraðanum. Að sögn Hermanns
Sigurðssonar, staðarstjóra hjá
Fossvirki, mun það þó ekki
raska áætlunum um verklok.
Göngin eru orðin 2.220 metr-
ar að lengd og 141 metri að
dýpt að sunnanverðu og 1.740
Vatnsrennsli
tefur fram-
kvæmdir
metra löng og 124 metra djúp
norðanmegin. Eftir eru 1.520
metrar. Hafist hefur verið
handa við byggingu vegskála við
syðri enda ganganna.
„Að sunnanverðu höfum við
síðastliðinn hálfan mánuð verið
að fara í gegnum sprungur sem
hafa leitt vatn,“ segir Hermann.
„Þetta eru nokkrir sekúndulítr-
ar, en vel yfir mörkum, þannig
að við verðum að þétta. Afköstin
hafa þvi verið töluvert minni en
verið hefur.“