Morgunblaðið - 22.05.1997, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 1997 7
FRÉTTIR
Vörugjaldi
af olíu
frestað
ALÞINGI samþykkti að fresta því
um eitt ár að taka upp vörugjald
af olíu í stað þungaskatts. Lögin
voru samþykkt 1995 en gildistöku
þeirra hefur nú verið frestað tvíveg-
is.
Lög um vörugjald af olíu í stað
þungaskatts áttu upphaflega að
taka gildi í ársbyijun 1996 en gildis-
tökunni var frestað til 1. janúar
1998 þar sem rétt þótti að kanna
aðrar leiðir. Fjármálaráðherra
mælti á vorþinginu fyrir frumvarpi
um að breyta þessum lögum þann-
ig, að hverfa frá endurgreiðslukerfi
en taka í staðinn upp olíugjald-
skerfi með litun gjaldftjálsrar olíu
sem taki gildi um næstu áramót.
Efnahags- og viðskiptanefnd Al-
þingis fékk málið til umfjöllunar og
í umsögnum sem nefndin fékk frá
olíufélögunum kom fram að um sé
að ræða viðamikla breytingu og
frestur til næstu áramóta nægi
ekki.
Efnahags- og viðskiptanefnd
ákvað því að flytja sérstakt frum-
varp um að fresta gildistöku lag-
anna um vörugjald af olíu til um
ár og samþykkti Alþingi frumvarpið
á fimmtudag. Jafnframt gerir
nefndin ráð fyrir því að taka málið
til umfjöllunar strax og það hefur
verið lagt fram í upphafi næsta
þings, og lögfesta það fyrir áramót
þannig að litunarkerfi geti komist
á í ársbyrjun 1999.
Fram kom m.a. hjá oiíufélögun-
um, að kostnaður þeirra vegna lit-
unar gjaldfijálsrar olíu og inn-
heimtu oliugjalds á gjaldskylda olíu,
geti í upphafi numið 270 milljónum
króna og síðan allt að 60 milljónum
króna á ári.
------♦ ♦ ♦
630 jarðir í eigu ríkisins
7 0 jarðir
seldar á sein-
ustu 7 árum
RÍKISJARÐIR í dag eru 630 talsins
og áætlaðar tekjur ríkisins af þeim
eru 25 millj. kr. á þessu ári. Áætluð
gjöld skv. fjárlögum yfírstandandi
árs vegna ríkisjarða eru 13,3 millj-
ónir kr. Þetta kom fram í svari land-
búnaðarráðherra við fyrirspum á
Alþingi.
Ríkisjörðum hefur fækkað um-
talsvert á seinustu árum en frá 1.
janúar 1990 til 10. maí 1997 vom
seldar 70 jarðir í eigu ríkisins, flest-
ar til sveitarfélaga eða ábúenda.
Landbúnaðarráðuneytið hefur ekki
gert sérstaka áætlun um sölu ríkis-
jarða en nokkur eftirspum er eftir
jörðum og á seinustu ámm hafa
verið seldar 10-14 jarðir á ári.
í svari landbúnaðarráðherra við
annarri fyrirspum á Alþingi um
Jarðasjóð ríkisins kom fram að
Jarðasjóður keypti átta jarðir á
seinustu tveimur árum. Var 32,9
milljónum varið til slíkra kaupa á
árinu 1995 og 41,7 millj. kr. í fyrra.
Nú þegar hefur verið ákveðið að
kaupa fimm jarðir á þessu ári og
því til viðbótar bíða afgreiðslu er-
indi tveggja jarðeigenda um að sjóð-
urinn kaupi jarðir þeirra.
PCIlímogfúguefhi
-
ll!
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
sími 567 4844
Morgunblaðið/RAX
Allt í fullri sprettu
á akrinum
ALLAR plöntur hafa sprottið
vel undir EyjaQöllunum í vor.
A Þorvaldseyri var byijað að
sá byggi 18. aprfl og eru akr-
arair að verða grænir yfir að
líta eins og sést á þessari mynd
sem tekin var þegar Ólafur
Eggertsson skoðaði árangurinn
í síðustu viku. „Við komum
fræjunum í jörð á meðan enn
var sæmilega rakt og höfum
að mestu sloppið við frost svo
allt er í fullri sprettu,“ sagði
Ólafur. Þegar blaðamenn voru
á ferðinni var hann farinn að
óska eftir einhverri vætu eftir
langvarandi þurrkakafla og var
viss um að hún væri á leiðinni.
A bestu túnunum á Þorvalds-
eyri var komið þónokkurt gras
og þótt enn sé unnið við áburð-
ardreifingu er ljóst að ekki eru
margar vikur í að sláttur geti
hafist á þeim bænum.
fimmtudag til sunnudags
Blandaðir litir