Morgunblaðið - 22.05.1997, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 1997 11
FRÉTTIR
Pressens Bild
ÍSLENSKU og sænsku forsætisráðherrahj ónin skoða skissusafnið í Lundi.
Vísindi og svæðasam-
starf á dagskrá forsæt-
isráðherrahjónanna
Heimsókn íslensku for-
sætisráðherrahjónanna
til Svíþjóðar lauk í gær.
Sigrún Davíðsdóttir
fylgdi þeim til háskóla-
bæjarins Lundar þar
sem þau kynntu sér
m.a. rannsóknir ís-
lenskra vísindamanna.
SÆNSK vísindi með íslensku ívafi
voru uppistaðan í dagskrá íslensku
forsætisráðherrahjónanna í gær, á
lokadegi opinberrar heimsóknar
þeirra til Svíþjóðar. Farið var til
Lundar og háskólinn þar heimsótt-
ur undir leiðsögn Boel Flodgren
rektors, sem er fyrsta og eina
sænska konan í rektorsstóli. Einn-
ig var rannsóknarbærinn í Lundi
heimsóttur, en markmiðið með
honum er að tengja saman há-
skólarannsóknir og atvinnulífið.
Kynntar voru rannsóknir við skól-
ann á íslenskri sögu og Úlfur
Ámason prófessor í sameindalíf-
fræði sagði frá rannsóknum á sín-
um vegum. Heimsókninni lauk í
Wallenbergstofnuninni er starfar
á sviði mannréttinda.
Haldið til Lundar
Það viðraði illa til gönguferða,
því vorveðrið hafði tekið sér hlé
og slagveðursrigning og kulda-
strekkingur kominn í staðinn.
Sænsku og íslensku forsætisráð-
herrahjónin ásamt fylgdarliði
flugu í einkaþotu sænska ráðherr-
ans frá Stokkhólmi til Málmeyjar
í bítið í gærmorgun og þaðan var
haldið til Lundar, þar sem Boel
Flodgren rektor tók á móti gestun-
um.
Það hefur um langan aldur ver-
ið nokkur rígur milli gömlu háskól-
anna í Lundi og Uppsölum, sem
liggja spölkorn frá Stokkhólmi.
Það mátti glöggt merkja að for-
ráðamenn Lundarháskólans var í
mun að kynna hann sem best.
Vísast hefur hann orðið fyrir val-
inu þar sem þar hafa margir ís-
lendingar stundað nám og nokkur
hópur starfað þar, en einnig er
Málmey heimaborg Göran Persson
forsætisráðherra Svía og hann því
vísast áfram um að halda sínum
landshluta á lofti.
Stærsti háskóli
Norðurlanda
Flodgren kynnti háskólann, sem
að stúdentatölu er stærsti háskóli
Norðurlanda með 38 þúsund stúd-
enta. Flodgren lagði sérstaka
áherslu á hlut kvenna í starfsemi
skólans, enda hafa Svíar unnið að
því markvisst undanfama áratugi
að auka hlut kvenna í háskóla-
kennslu og rannsóknum. Sú
ástundun er farin að skila árangri,
þar sem konum hefur íjölgað bæði
meðal háskólakennara og stúd-
enta. Sjálf er Flodgren prófessor
í viðskiptarétti og lætur ekki að-
eins háskólamál mjög til sín taka,
heldur rannsóknir og önnur þjóð-
mál yfirleitt. Einnig var gestunum
kynnt áætlun um Eyrarsunds-
svæðið, sem verður til, þegar brú
verður komin árið 2000 milli Mál-
meyjar og Kaupmannahafnar.
Bæði Lundar- og Hafnarháskóli
vænta sér nokkurs af tengingunni
og sama er að segja um rannsókn-
ar- og þróunarvinnu sem er tengd
þeim.
Skissusafn og
stúdentaglens
I Lundi er merkt safn skissa
eftir ýmsa listamenn, sem gestun-
um var sýnt. í ræðu í hádegis-
verði í háskólanum sló Davíð
Oddsson á létta strengi, þegar
hann útskýrði fýrir gestgjöfunum
að orðið „skissusafn" hljómaði
nokkuð skoplega í íslenskum eyr-
um, enda gætu kannski ýmsir
stjómmálamenn haft eitthvað
fram að færa til skyssusafns. En
þar sem háskólinn í Lundi á rætur
að rekja til miðalda býr hann enn
yfir ýmsum fornlegum hefðum.
Undir borðum var boðið upp á fjör-
legt sýnishorn hefðbundins stúd-
entaglens, sem kallast „spex“.
Þetta eru textar í revíustíl, fluttir
við gamalkunn lög og þrátt fyrir
sænska jafnréttisáráttu er enn
haldið í þá hefð að „spex“ er að-
eins flutt af strákum. Áttu gestir
bágt með sig vegna hláturs og
flytjendurnir fímm voru ekki síður
öruggir en bestu atvinnuskemmti-
kraftar.
Vísindi og markaður
Tengsl háskóla og atvinnulífs
hafa einna lengst verið þróuð í
Bandaríkjunum og þar hafa rann-
sóknar- og þróunardeildir stórfyr-
irtækja víða hreiðrað um sig við
háskólana. í Lundi hefur háskólinn
og bæjarfélagið tekið höndum
saman um að laða að slíka starf-
semi og sú viðleitni hefur gefíð
góða raun. Farsímar Ericssons
hafa til dæmis verið þróaðir í Lundi
og fýrirtækið notið góðs af mikilli
þekkingu á því sviði við tæknihá-
skólann þar og lyfjafýrirtækið
Astra hefur einnig þróunardeild
þar. í tengslum við þessa starfsemi
hefur skriður komist á að mark-
aðsfæra hugmyndir sem háskóla-
rannsóknir hafa gefíð af sér. í
Svíþjóð eiga fræðimenn sjálfir rétt
á uppgötvunum sínum, en ekki
þær háskólastofnanir, sem þeir
vinna við. En þar sem vísindamenn
eru bestir í að stunda vísindi og
hafa oft síður áhuga á þeirri vinnu
sem felst í að koma hugmynd í
sölu og framleiðslu hefur nágrenni
við fyrirtæki komið sér vel.
Davíð Oddsson og Göran Persson ræddu um þróun ESB og niðurstöður bresku kosninganna
Afleitt ef EMU verð-
ur persónubundið
ÞRÓUN Evrópusambandsins og
niðurstöður bresku kosninganna
báru meðal annars á góma í sam-
ræðum Görans Perssons forsætis-
ráðherra Svía og Davíðs Oddsson-
ar forsætisráðherra. Davíð álítur
að fátt annað komi út úr ríkjaráð-
stefnunni en hugsanleg breyting
á Schengen, sem Hollendingar
hafa róið á um. Hann hefur skiln-
ing á varfæmi sænsku stjómar-
innar um EMU, sem sé ákvörðun
er ekki verði aftur tekin frekar
en kaþólskt hjónaband.
Samband landanna
undirstrikað
Engin sérstök deilumál eða önn-
ur mál em í samskiptum íslands
og Svíþjóðar og sagði Davíð að
heimsóknin hefði fyrst og fremst
verið til að undirstrika með hefð-
bundnum hætti samband land-
anna.
„í ferðinni gafst mér tækifæri
til að eiga nánar viðræður við
Persson, fyrst óformlegar viðræð-
ur á sumardvalarstað sænska for-
sætisráðherrans og svo á formleg-
um fundi og þetta var mjög gagn-
legt. Einnig hafði ég tækifæri til
að kynna sjónarmið íslendinga,
einkum varðandi Evrópusamband-
ið, NATO og hvalveiðar."
Einnig sagðist Davíð hafa
glaðst yfir að heimsækja Lundar-
háskóla, þar sem svo margir ís-
lenskir vísindamenn væm að gera
góða hluti og þó þeir þyrftu ekki
á því að halda hefði heimsóknin
vonandi vakið athygli á þeim.
Andstaða gegn ESB flyst til
Á blaðamannafundi forsætis-
ráðherranna í fyrradag hafði Pers-
son orð á að hann hefði greinilega
fundið fyrir áhuga starfsbróður
síns og kunnáttu á breskum stjórn-
málum. Aðspurður um úrslit
bresku kosninganna og áhrif
þeirra sagði Davíð að líklega yrði
það eins og búist hefði verið við
að breska stjórnin stæði ekki leng-
ur á bremsunni í Evrópusam-
mnanum.
„Það mun hins vegar að öllum
líkindum hafa það í för með sér
að aðrir taka það hlutverk að sér
og þar með verður andstaðan víð-
ar sjáanlegri. Það hefur ekki tek-
ist að gera almenning í Evrópu
hlynntan sammnanum, en hann
gerir sér heldur ekki grein fyrir
hve hratt hann gengur fyrir sig.
Forystumenn og starfsmenn fara
á undan almenningi, sem ekki
fylgir þeim eftir í þessum efnum.“
Davíð sagðist hafa haft á til-
fínningunni að Verkamannaflokk-
urinn myndi ganga lengra í Evr-
ópuáttina en þeir hefðu gefið til
kynna í kosningabaráttunni, þegar
þeir hefðu talað með óljósum hætti
og stefna stjómarinnar hefði held-
ur ekki verið klár. Svo virtist þó
ekki alveg vera, en nú væm ýms-
ir aðrir, sem áður skákuðu í skjóli
Breta, tilbúnir að taka upp var-
færna afstöðu Breta. í frönsku
kosningunum töluðu menn var-
fæmislega og þó þýski kanslarinn
væri afar sterkur og enginn væri
honum fremri í kosningabaráttu
ætti hann samt á brattann að
sækja fyrir kosningarnar á næsta
ári.
Lítill árangur ríkjaráðstefnu
Ríkjaráðstefnuna bar einnig á
góma og sagði Davíð að hann
byggist ekki við að hún skilaði
miklu. „Hollendingar era nú að
reyna að fá einhveiju áorkað og
þá helst að þoka Schengen-sam-
starfínu inn í nýjan sáttmála, því
það þykir ekki árangur nema að
einhverju miðaði í sammnaátt.
Ekki er útséð um afstöðu Breta,
en ummæli þeirra undanfama
daga benda síður í þá átt að þeir
séu þessu samþykkir. Göran Pers-
son er mjög í mun að þessar breyt-
ingar hafi ekki áhrif á norræna
vegabréfasambandið.“
Hætta á að skalinn á reikni-
stokknum verði lagaður til
Göran Persson hefur verið
harðlega gagnrýndur heima fyrir
vegna þess að hann hefur ekki
viljað láta í ljósi afstöðu sína til
Efnahags- og myntbandalags
Evrópu, EMU og einnig hefur
hann viðrað áhyggjur sínar af
áhrifum EMU á svigrúm ein-
stakra landa til skattlagningar.
Davíð sagðist skilja afstöðu Pers-
sons. „Hugmynd hans hefur verið
að efla umræðu um EMU, sem
hefur líklega meiri áhrif en
ákvörðun um ESB-aðild. Meðan
maður segir nei, er hægt að
breyta því í já, en spurningin er
eins og bónorð til strangkaþ-
ólskrar konu, þar sem jáyrði verð-
ur ekki afturtekið. Það er heldur
engin leið út úr myntbandalagi.
Skattlagningin er áhyggjusam-
leg, þegar til lengri tíma er litið,
en vísast verður lengi vel ekki um
sameiginlega skatta að ræða. Við-
brögð Perssons eru skynsamleg,
því það þýðir ekkert að hafa uppi
einhveija krossför í þessu máli,
heldur að hugsa málið á sem
skynsamlegastan hátt.“ Davíð
sagði að almennar forsendur
myntbandalagsins hefðu skyn-
samleg áhrif í efnahagsmálum og
þeim fylgdu íslendingar eins og
margar aðrar þjóðir. Svíar væru
ekki að laga sig að þessum for-
sendum vegna myntbandalagsins,
heldur af því þetta væm almennt
skynsamlegar forsendur. Það
kostaði hins vegar fórnir og fyrir
því fengju Frakkar nú að fínna.
Gullævintýri Þjóðveija sýndi líka
að þeim væri þetta heldur ekki
auðvelt.
„Þá er komin upp sú hætta að
menn fari eitthvað að laga skal-
ann á reiknistokknum og miðað
við andrúmsloftið í ESB núna
verður ítölum sennilega boðið í
EMU-hópinn. Ég trúi því að það
verði af EMU 1999 eins og ætlað
er, því kastið á hjólinu er svo
mikið, þó enginn viti hver knýi
það áfram.“
Davíð skýrði þessi orð sín með
því að það væri talið pólitískt
vandamál einstakra manna ef
EMU kæmist ekki á. „Það er hins
vegar afleitt að EMÚ verði per-
sónubundið, því þeir sem trúa á
annað borð á forsendurnar ættu
þá að standa fast á þeim, í stað
þess að fara að hliðra þeim til.“
Um afstöðu íslensku stjórnar-
innar til ESB-aðildar sagði Davíð
að henni væri alltaf mætt af skiln-
ingi í viðræðum við erlenda ráða-
menn, þannig að þeir létu í ljós
að þeir myndu fara eins að, ef
þeir væru í sporum íslendinga.