Morgunblaðið - 22.05.1997, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ
LAIMDIÐ
FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 1997 15
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
Aðvörun-
arskilti
sett upp
Grund - Nú fer í hönd sá árstími
þegar óvarleg meðhöndtun elds
getur valdið óbætanlegu tjóni á
gróðri og fuglalífi, verði hann laus
í sinu. Þurrir og sólríkir dagar
skapa kjörinn eldsmat í skógarhlíð-
um og sinubreiðum úthaganna.
A undanförnum árum hefur
þrisvar sinnum orðið verulegt tjón
á gróðri af völdum sinu- og skógar-
elda í Skorradal, síðast vorið 1996.
Yfirleitt má rekja þessi óhöpp til
þess að börn eru að fikta með eld
sem fyrr en varir er orðinn að lítt
viðráðanlegum sinueldum.
Til að minna fólk á þessa hættu
hafa bændur í Skorradal, sem
leigja lóðir undir sumarbústaði, og
Skógrækt ríkisins látið útbúa að-
vörunarskilti og sett þau upp á
áberandi stöðum . Þetta er þarft
framtak sem vonandi skilar sér í
betra eftirliti með þeim sem leika
sér með eldinn.
Lionsmenn gefa
til leikskólans
Hvammstanga - Leikskólinn
Ásgarður á Hvammstanga
fékk á dögunum veglega gjöf
frá Lionsklúbbnum Bjarma í
Vestur-Húnavatnssýslu. Það
var rafstýrt æfingaborð fyrir
fötluð börn.
Tvö fötluð börn eru á Ás-
garði og að sögn sjúkraþjálf-
ara Heilsugæslunnar á
Hvammstanga, Marjolyn v.
Dyk, gjörbreytir bekkurinn
allri aðstöðu til meðferðar fyr-
ir börnin og starsfólkið. Það
eru 34 börn á Ásgarði og fimm
starfsmenn auk 2,5 stöðugilda
í stuðningshópi. Leikskóla-
stjóri er Guðrún Helga Bjarna-
dóttir.
Bjarmi hefur gefið margar
nytsamar gjafir til líknarmála
á Hvammstanga og sækir
stuðning til fólksins í V-Hún
m.a. með blómasölu. Klúbbur-
inn tekur einnig þátt í lands-
starfi Lionsklúbba m.a. í átak-
inu Vímulaus æska. Formaður
Bjarma er Orn Guðjónsson.
Morgunblaðið/Karl Á. Sigurgeirsson
ÖRN Guðjónsson afhendir Guðrúnu Helgu Bjarnadóttur gjöf
Lionsklúbbsins Bjarma.
dag opnar Herragarðurinn glæsilega
verslun aö Laugavegi 13 þar sem
Habitat var áður til húsa. Á 230 fermetrum
finnur þú allan klæðnað á
herrann, allt frá sokkum og
bindum upp í glæsileg
jakkaföt. Oft er sagt aö
merkin tryggi gæðin og því kappkostar Herra-
garðurinn að bjóða fatnað frá framleiðendum
sem hafa áratuga reynslu í framleiðslu hátísku-
fatnaðar á karlmenn. í
Herragarðinum finnur þú
fatnað með klassískum
sniðum og föt sem
framleidd eru samkvæmt
tískusveiflum hvers tíma.
Skjalasýn-
ing í sam-
komuhús-
inu á Eyr-
arbakka
Eyrarbakka - í tilefni af 100
ára afmæli Eyrarbakka-
hrepps var opnuð skjalasýn-
ing í samkomuhúsinu Stað á
Eyrarbakka 18. maí sem ber
heitið „Skjölin segja sögu“.
Sýningin er sett upp í sam-
starfi við Héraðsskjalasafn
Árnesinga.
í Héraðsskjalasafni Árnes-
inga er varðveitt mikið magn
af skjölum frá Eyrarbakka.
Ekki eru jafn fjölþætt skjöl
varðveitt í safninu úr nokkru
öðru sveitarfélagi í Árnes-
sýslu, segir í fréttatilkynn-
ingu. Þar er að finna margvís-
leg skjöl frá opinberum aðil-
um, skjöl tengd atvinnurekstri
og félagsstarfi auk einka-
skjala úr fórum einstaklinga
af staðnum.
Á lítilli skjalasýningu er
aðeins hægt að gefa örlitla
vísbendingu um það sem varð-
veitt er, en valin er sú leið að
sýna sem fjölþættust sýnis-
horn af gögnum. M.a. eru á
sýningunni fyrstu gjörðabæk-
ur hreppsnefndar Eyrarbakka-
hrepps frá árinu 1897.
Sýningin stendur til sunnu-
dagsins 25. maí nk. og er
opin virka daga frá kl. 17-21.
Sýningin verður lokuð laugar-
daginn 24. maí en sunnudag-
inn 25. maí verður hún opin
frá kl. 14-21.
Z' m / ^ arkmið Herragarðsins eru að
11 | bjóða vandaðan og glæsilegan
fatnað á góðu verði. Helstu merkin í fatnaði
eru NINO DANIELLI, REPORTER,
ARMANI JEANS, CERRUTI, BENVENUTO
og STRELLSON.
Herragaröiirinn Ixiiigavegi 13
(ádur Ilabitat)
Laugavegur
DC ý / /
í skódeild Herragarðsins
finnur þú vandaöa ítalska
skó frá MORTONS, þýska
skó frá VAGA BOUND og
spánska skó frá DURNESS
KRINGLUNNI • Laugavegi 13