Morgunblaðið - 22.05.1997, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 22. MAÍ1997 27
LISTIR
Morgunblaðið/Þorkell
KANNSKE hefur Atli samið hér enn eitt snilldarverkið, tími, rúm og kynslóðir svara því, samanber form óperunnar, segir í dóminum.
Frá Flatey
til Peking
TÓNLIST
Tunglskinseyja
KAMMERÓPERA
eftir Atla Heimi Sveinsson.
Textahöfundur Sigurður Pálsson.
Flytjendur Loftur Erlingsson sem
Kalman, Ingveldur G. Ólafsdóttir
sem Unnur, Signý Sæmundsdóttir
sem Auður. Hljómsveitarstjóri Guð-
mundur Emilsson, og leikstjóri
Kristín Jóhannesdóttir. Hljómsveit-
ina skipuðu Guðný Guðmundsdóttir
fiðla, Auður Hafsteinsdóttir fiðla,
Ragnhildur Pétursdóttir fiðla, Junah
Chund víóla, Gunnar Kvaran selló,
Reynir Sigurðsson harmonika og
Miklós Dalmay stofuorgel.
Frumsýning á Islandi í
Þjóðleikhúsinu 21. maí kl. 20.00.
SVO mikið hefur kammeróperan
Tunglskinseyjan verið kynnt í fjöl-
miðlum, vegna sýninga á henni í
Þýskalandi, Kína og nú á íslandi
að varla verður mörgu við þá kynn-
ingu bætt, enda hið raunverulega
innihald kannske hulið þeim hjúpi
sem skáldum einum eru lánaðir.
Ástir, viðkomustaðir Keltanna, dul-
úð Breiðafjarðareyjanna og við-
komustaður skáldsins til andfætl-
inganna í Peking-óperunni er
kannske aðeins ein leiðin til að
klæða tónum eitthvað sem fæddist
við brimbarða klettastöndina í Flat-
ey, og þótt tími efnisins teygi sig
yfir mörg höf, lokast hringurinn á
eyjunni fyrir norðan mána, þar sem
sólin aldrei sest og hamingjan ein
ríkir og eitt lítið orð meitlað á
hamravegg tengir aftur saman lífið,
dauðann og tímann. Atli hefur
margsýnt að jafnvel eitt hljóðfæri
nægir honum til að ná fram dul-
úðgu andrúmslofti og þar á Atli
ekki marga sina líka. Hér notar
hann aðeins þrjá söngvara, sögu-
mann og hljóðfæraleikara svo fáa
að varla getur talist hljómsveit, en
um framúrskarandi hljóðfæraleik-
ara var að ræða í hveiju rúmi. En
hvernig tókst nú til? Atli kom ekki
á óvart sem fyrr segir. Æskilegt
hefði þó verið að mega koma á síð-
ustu æfingu fyrir frumsýningu, en
æfingin var því miður lokuð. Þetta
þrönga form tónlistar er viðkvæmt,
hér byggist allt á nákvæmu jafn-
vægi, tíminn gildir, hvergi má sena
eða hendingar vera um of eða van,
endurtekningarnar eru jafn nauð-
synlegar og þær eru hættulegar.
Atli leikur sér að því að tefla á
tæpasta vaðið og ekki fer hjá því
að í lokin er maður töfrum tekinn.
í kvöld veltir maður þó því fyrir sér
hvort sumt hafi verið undir algjörri
smásjá. Einfalt er ekki a.m.k. að
halda uppi lit með fjórum strok-
hljóðfærum sem í tvo klukkutíma
leika svo til alltaf á efri og efsta
hluta tónskalans og á stundum
fannst mér að nýta hefði mátt hljóð-
færin heppilegar t.d. við undirleik
dramatískustu atriðanna. Mjög rétt
var valið í sönghlutverk óperunnar,
sem mér fínnst á stundum að einn-
ig hefði getað kallast óratóría. Loft-
ur Erlingsson tenór-baritón hefur
mjög vel þjálfaða rödd, er músik-
alskur og virtist fæddur leikari og
skilaði fínum leik og svipbrigðum
og hæðin, sem Atli hlífði honum
ekki við; var aldrei í hættu. Ingveld-
ur G. Olafsdóttir hafði ekki stórt
sönghlutverk, hennar tónlistar-
flutningur var, eins og reyndar
hinna líka, oft í formi söngles. En
aríuna sem hún söng um leið og
hún deyr gerði hún mjög áhrifaríka
og maður hreinlega fann hana eld-
ast og deyja í örmum Signýjar.
Kröfuharðasta sönghlutverkið var í
höndum Signýjar. Þar reyndi á
flestar gerðir raddarinnar. Signý
naut þess að hafa sungið mörg
nútímaleg sönghlutverk og á list-
ræn tök hennar á verkefnum er
hægt að treysta. Víst þarf drama-
tískan sópran í hlutverk Auðar, en
kanske hefði hún mátt draga af sér
stundum, þegar hljómsveitin lék
mest plokk á móti sterkum söng
hennar.
Það sem olli mér helst vonbrigðum
var texti óperunnar. Efni textans er
í sjálfu sér ekki afar merkilegt, þótt
fallega ortir hlutir séu fýrir hendi.
En miklar endurtekningar á stund-
um óskáldlegum hendingum geta
virkað dálítið væmnar og gera alla-
vega tónskáldinu erfitt fyrir. Leik-
stjórn gat varla farið betur í þeim
einfalda búningi sem sviðsmyndinni
var settur og búningar og tenging
sjávar og lands við fætur söngvar-
anna þriggja voru sérlega falleg.
Guðmundur Emilsson skilaði sínu
hlutverki með sóma. Kannske hefur
Atli samið hér enn eitt snilldarverk-
ið, tími, rúm og kynslóðir svara því,
samanber form óperunnar.
Ragnar Björnsson
Rostropovitsj
heiðraður
Reuter
RÚSSNESKA
sellólsnillingnum
og stjórnandan-
um Mstislav
Rostropovitsj var
í gær veitt orða
fyrir „þjónustu í
þágu föðurlands-
ins“ og var það
Borís Jeltsín
Rússlandsforseti
sem það gerði.
Hlaut Rostropo-
vitsj orðuna fyrir
stuðning sinn við
forsetann og
framlag til sí-
gildrar tónlistar.
Rostropovitsj
hefur verið á tónleikaferð um
Rússland í tilefni sjötugsafmælis
síns og var greinilega hrærður
er hann veitti orðunni móttöku
en hún er ein æðsta viðurkenning
sem veitt er í Rússlandi. Kvaðst
Jeltsín „stoltur af því að Rúss-
land hefði gefið heiminum þenn-
an mikla tónlistarmann og stór-
menni“ en Rostropovitsj hefur
verið dyggur stuðningsmaður
hans frá árinu 1991. Rostropo-
vitsj hefur verið búsettur á Vest-
urlöndum, nú síðast París.
Fyrsti fyrirlestur „Laxnessársins" í Norrcena húsinu í dag f(l. 17. 15:
Matthías Johannessen
^4 Aí^ ræðir um samtöl sín við Halldór Laxness
Matthías Johannessen, skáld og ritstjóri, heldur í dag fyrirlestur um samtöl sín við Halldór Laxness frá ýmsum tímum, á vegum Laxnessklúbbsins og Vöku-Helgafells. Erindið, sem hefst klukkan 17.15, er öllum opið og aðgangur ókeypis. Þetta er fyrsti fyrirlesturinn sem efnt er til í tilefni af afmælisári Halldórs Laxness en Nóbelsskáldið varð sem kunnugt er 95 ára þann 23. apríl síðastliðinn.
Samtöl Matthíasar Johannessen við Halldór Laxness taka til ólíkra þátta, fjalla jafnt um bernsku Halldórs og skoðanir hans á fyrirbærum í nútímanum, skáldskap og stjórnmál, nútíð og fortíð - í raun er Halldóri og Matthíasi fátt óviðkómandi í þessum samræðum. Þær vitna um viðhorf Nóbelsskáldsins á ýmsum tímum, verk hans og þau djúpu spor sem hann hefur skilið eftir í sögu og menningu þjóðarinnar. Samtölin eru þó öðru fremur skemmtileg; í tilsvörum skáldsins er oft leiftrandi fyndni en um leið djúp alvara, jafnvel harmur. I fyrirlestri sínum í Norræna húsinu rifjar Matthías upp þessi samtöl og kynni sín af skáldinu en hann hefur víða birt samtöl sín við Halldór, m.a.
í bókinni Skýggræðum gegnum tíðina.
Fvrirlestur í
Norræna húsinu VAKAHELGAFELL
í DAC K L. 17.15 Laxnessklúbburinn