Morgunblaðið - 22.05.1997, Side 30
30 FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Flautan í
forgrunni
Áshildur Haraldsdóttir flautuleikarí verður
gestur Sinfóníuhljómsveitar íslands á tón-
leikum hennar í Háskólabíói í kvöld. Orri
Páll Ormarsson ræddi við hana um tónleik-
ana og sitthvað fleira.
ÞÓTT Áshildur Haraldsdóttir flautu-
leikari sé aðeins liðlega þrítug að
aldri kemur hún fram í fjórða sinn
sem einleikari með Sinfóníuhljóm-
sveit Islands á tónleikum í Háskóla-
bíói í kvöld. Geri aðrir betur!
Áshildur stóð fyrst í eldlínunni með
sinfóníuhljómsveitinni fyrir níu árum.
Segir hún margt hafa breyst frá þeim
tíma — hljómsveitin sé í stöðugri
framför. „Það hefur margt ungt og
vel menntað fólk verið að koma inn
í hljómsveitina á undanförnum árum
og ég kannast nú við ijölmörg andlit
frá því ég var í námi hér heima.
Þetta hefur styrkt hljómsveitina mik-
ið. Nú þyrfti hún bara að komast í
fleiri tónleikaferðir til útlanda, en
ferðir eins og Bandaríkjaferðin í fyrra
eru geysilega mikilvægar, ekki bara
fyrir hljómsveitina sem heild, heldur
jafnframt fyrir hljóðfæraleikarana
sem einstaklinga."
Að áliti Áshildar eru tónleikaferð-
ir til útlanda ennþá nauðsynlegri
fyrir Sinfóníuhljómsveit Islands en
margar aðrar hljómsveitir, þar sem
ekkert tónlistarhús er tii í landinu.
„Það er mjög mikilvægt fyrir tónlist-
armenn að fá tækifæri til að leika
í góðu tónlistarhúsi. Háskólabíó hef-
ur að vísu lagast mikið frá því ég
spilaði þar fyrst, þá fylgdi því hrein-
lega aukastress að koma fram í
húsinu, en sérhannað tónlistarhús
yrði á hinn bóginn algjör vítamín-
sprauta fyrir íslenskt tónlistarlíf pg
myndi örva Sinfóníuhljómsveit ís-
lands og aðra tónlistarmenn til enn
meiri afreka."
Rómantískt verkefni
Flautukonsertinn sem Áshildur
mun leika fyrir tónleikagesti í kvöld
er úr smiðju Þjóðverjans Carls
Reineekes. Var hann virtur hljóm-
sveitarstjóri, píanóleikari og tón-
skáld á sinni tíð, auk þess sem hann
fékkst við kennslu, en meðal nem-
enda Reineckes voru dætur Franz
Liszt og Sveinbjörn Sveinbjörnsson
tónskáld og píanóleikari.
„Reinecke var orðinn 84 ára gam-
all þegar hann samdi sinn fyrsta og
eina flautukonsert," segir Áshildur,
„og þótt hann sé saminn árið 1908
er hann í raun 19. aidar tónsmíð,
þar sem tónskáldið hélt sig við sama
stíiinn, þótt öldin væri önnur. Senni-
lega er þetta þekktasti flautukon-
sertinn í 19. aldarstíl en þess ber
þó að geta að ekki er um auðugan
garð að gresja.“
Áshildur segir Flautukonsert
Reineckes hafa orðið fyrir valinu, þar
sem hana hafi langað til að takast á
við rómantískt verkefni, auk þess sem
hún hafi þegar spilað flesta hina
„meiriháttar flautukonsertana" með
SÍ, það er Mozart, Nielsen og Ibert.
LISTIR
Morgunblaðið/Ásdís
ÁSHILDUR Haraldsdóttir mun flytja Flautukonsert Carls Reineckes með Sinfóníuhljómsveit íslands
í Reykjavík, Neskaupstað, á Seyðisfirði og Egilsstöðum.
„Og síðan lygni ég bara aftur augun-
um og reyni að ímynda mér að ég
sé fiðluleikari," segir hún og brosir.
Áshildur lauk einleikaraprófi frá
Tónlistarskólanum í Reykjavík átján
ára gömul en þaðan lá leiðin í fram-
haldsnám í Bandaríkjunum en meist-
aragráðu lauk hún frá Juilliard-skól-
anum í New York árið 1988. Áshild-
ur hefur unnið til fjölda verðlauna
fyrir leik sinn og komið fram sem
einleikari og með hljómsveitum í
Bandaríkjunum, Engiandi, á Spáni,
Ítalíu og á Norðurlöndunum. Undan-
farin sex ár hefur hún verið búsett
í París.
Kveðst Áshildur sem endranær
hafa í mörg horn að líta. Meðal verk-
efna sem bíða hennar nú er frum-
flutningur á flautukonsert eftir
Hauk Tómasson og breskum konsert
fyrir flautu og hörpu. Staður og
stund hafa þó í hvorugu tilvikinu
verið ákveðin. Fyrr á þessu vori fór
flautuleikarinn í tónleikaferð um
England með píanóleikaranum Nigel
Clayton og á dögunum efndi hún til
tvennra tónleika og jafnmargra
námskeiða með Masterclass-sniði í
Hollandi. í næsta mánuði verður
Áshildur síðan á ferð á stórri kamm-
ertónlistarhátíð í Svíþjóð.
Áshildur hefur á undanförnum
árum hljóðritað íjórar einleiksplötur
á vegum erlendra útgáfufyrirtækja.
Kveðst hún hafa sitthvað fleira í
sigtinu á þeim vettvangi en ekkert
sé komið á hreint. „Ég lærði mikið
á fyrstu plötunni minni en áður en
ég gerði hana hélt ég að það hlyti
að vera auðvelt að taka upp plötu;
færi eitthvað aflögu væri bara hægt
að endurtaka það. Svona einfalt er
þetta hins vegar ekki — maður verð-
ur að mæta alveg jafn vel undirbú-
inn í hljóðver og á tónleika."
Mozart og Brahms
Hljómsveitarstjóri kvöldsins heitir
Anne Manson og er búsett í London.
Hún varð fyrir rúmum þremur árum
fyrst kvenna til að stjórna æfingu
hjá Fílharmóníuhljómsveit Vínar-
borgar og síðar sama ár stjórnaði
hún flutningi hljómsveitarinnar á
óperunni Boris Gudonov á listahátíð-
inni í Salzburg. Hefur Manson
stjórnað fjölmörgum öðrum nafn-
kunnum hljómsveitum.
Tónleikarnir í kvöld heíjast á For-
leik að óperunni Brúðkaupi Fígarós
eftir Wolfgang Amadeus Mozart.
Verkið, sem var frumflutt árið 1786,
er létt og gáskaflutt og þykir eitt
hið merkasta sinnar tegundar frá
hendi tónskáldsins.
Tónleikunum lýkur síðan á Ann-
arri sinfóníu Johannesar Brahms.
Var hún frumflutt af Fílharmóníu-
hljómsveit Vínarborgar 30. desem-
ber 1877 en Brahms hafði skömmu
áður lokið við verkið í þorpinu
Pörtschach við Wörtervatn, stað sem
hann hafði mikið dálæti á.
Tónleikarnir verða endurteknir í
Neskaupstað á morgun kl. 20.00, á
Seyðisfirði á laugardag kl. 14.00 og
á Egilsstöðum á sunnudag kl. 20.00.
STAÐFESTA
», V A
SIGRÚN Eldjárn: Undirstaða.
MYNPLIST
SjónarhóM
MÁLVERK
SIGRÚN ELDJÁRN
Opið kl. 14-18 fimmtud.-sunnud. til
25. maí; aðgangur 200 kr.
í UMRÆÐUNNI um hlut mál-
verksins í samtímalistinni þarf ekki
að koma á óvart að staða þess sem
miðils persónulegrar lífssýnar hefur
orðið sífellt sterkari hin síðari ár,
og má glögglega sjá þess merki í
verkum fjölda myndlistarmanna.
Hlutveruleikinn og mannleg tilvera
er sá grunnur sem flestir þessir lista-
menn vinna á, en það er engu að
síður ekki viðfangsefnið sjálft sem
er aðalatriðið í viðkomandi listsköp-
un, heldur tjáning listamannsins í
gegnum þær ímyndir, sem ber fyrir
augun í verkunum.
Þetta bendir Auður Ólafsdóttir á
í inngangi sínum í sýningarskrá, og
vísar réttilega til þess hversu vel
þetta á við um þau málverk Sigrún-
ar Eldjárn, sem skráin fylgir úr hlaði.
Manneskjan hefur iengi verið eitt
helsta viðfangsefni Sigrúnar í mynd-
listinni, og svo er enn. Hvort sem
fólkið í myndunum hefur verið á
fleygiferð um flötinn eða staðið kyrrt
úti í náttúrunni hefur mátt greina
ákveðna vellíðan I tilvist þess, sem
hefur ráðið mestu um þá tjáningu
sem hefur borið af verkunum.
í þeim fimmtán málverkum sem
hér eru sýnd hefur fólkið öðlast ör-
ugga fótfestu, þar sem það stendur
andspænis áhorfandanum í misjafn-
lega Qölmennum röðum í myndun-
um. Karlar, konur og börn birtast
hér á vatnsbökkum, uppi á hömrum,
úti á túnum eða í miðju íslensku
kargaþýfi, og bíða róleg þess sem
verða vill. Konur á peysufötum, sem
hafa lengi verið viðkunnanlegt minni
í verkum Sigrúnar, eiga mikinn þátt
í þessari staðföstu ímynd, þar sem
skúfarnir þeirra blakta í golunni.
Listakonan dvaldi um tíma í
Rómarborg á síðasta ári, og hefur
þar fundið fyrir áhrifum annars
konar stöðugleika. Róm á sér mikla
sögu sem er lifandi þáttur tilveru
íbúanna, þar sem hún birtist allt
um kring í fornminjum og bygging-
um og á sinn þátt í að skapa með
þeim jafnvægi og kyrrð í örtröð og
hraða samtimans. Ríkulegur og hlýr
jarðlitur Ítalíu birtist í málverkun-
um bæði sem andstæða og eðliiegur
hluti þess myndefnis, sem Sigrún
leggur út frá. Andstæðurnar felast
í hinum suðræna hita litarins og
þeirri aldagömlu menningu sem
letrið vísar til, en sem eiga hér engu
að síður samleið með fólki Sigrún-
ar, þar sem menning þess hvílir
bæði á undirstöðum hinnar suðrænu
birtu, léttleikandi rúnaletrinu og
þeirri bláu heiðríkju, sem umlykur
það.
Líkt og á sýningum listakonunnar
hvílir ákveðin ró og öryggi yfir heild-
inni sem endurspeglast vel í þeim
titlum sem hún hefur valið verkun-
um. Þar er öðru fremur vísað til
stöðugleika og fótfestu sem grund-
vallar þeirrar tilveru sem blasir við
í flötunum (og nær í raun út fyrir
þá), og er undirstrikaður með þeim
tilvísunum í forn letur, sem hér virka
sem áherslupunktar í myndmálinu.
Hér er því um eðlilegt framhald að
ræða hjá Sigrúnu á þeirri braut stað-
festunnar, sem hún hefur verið að
marka sér í málverkinu á undanförn-
um árum, og eru listunnendur hvatt-
ir til að líta inn áður en sýningunni
lýkur.
Eiríkur Þorláksson
Nýjar bækur
• ÚT er komið ritið Frændafund-
ur 2. Bókin er afrakstur færeysk-
íslenskrar ráðstefnu í Þórshöfn
28.-29. júní 1995. Hún var haldin
til þess að efla rannsóknarsam-
vinnu Fróðskaparseturs Foroya og
heimspekideildar Háskóla íslands.
Greinarnar í bókinni byggjast á
fyrirlestrum frá ráðstefnunni og
eru ýmist á færeysku eða íslensku.
Enskur útráttur fylgir hverri grein.
Efni þeirra er fjölbreytt, frá orða-
tiltækjum og hjátrú til leiklistar
og myndlistar. Öll efnin eru skoðuð
bæði frá íslenskum og færeyskum
sjónarhóli.
Ritstjórar eru Turið Sigurðar-
dóttir og Magnús Snædal. Fyrir-
lestrar bókarinnar eru 18 eftirjafn
marga höfunda, færeyska ogís-
lenska. Útgefandi er Faroya Fróð-
skaparfélagið. Háskólaútgáfan sér
um dreifingu. Ritið er 116 síður
ogkostarkr. 2.100.
Skólaslit og
lokatónleikar
Söngskólans
SKÓLASLIT Söngskólans í Reykja-
vík og afhending prófskírteina
verða í dag, fimmtudag, í íslensku
óperunni.
Skólaslitin hefjast kl. 19 en loka-
tónleikar skólans verða kl. 20.30,
þar sem fram koma nemendur frá
3. stigi og uppúr. Á efnisskrá eru
íslensk og erlend sönglög og aríur
og samsöngsatriði úr söngleikjum,
óperettum og óperum. Aðgangur
er ókeypis og öllum heimill.
Þetta er fjórða starfsár Söngskól-
ans í Reykjavík og hafa hátt í 200
nemendur stundað nám við skólann
í vetur, segir í kynningu.
Ennfremur segir að nemendur
hafi lokið samtals 185 stigprófum
í söng og/eða píanóleik í vetur,
ásamt tilheyrandi kjarngreinum.
Auk þess útskrifast fimm nemendur
með burtfarar- eða söngkennara-
próf. Innritun fyrir næsta vetur
stendur yfir og verða inntökupróf
mánudaginn 26. maí.
Vortónleikar
í Grindavík
SÍÐARI tónleikar yngri nemenda
og forskóladeildar Tónlistarskóla
Grindavíkur verða í Grindavíkur-
kirkju á Iaugardaginn kl. 16. Þá
verða skólaslit tónlistarskólans og
afhending námsskírteina í lok tón-
leikanna.
Á þjóðlegu
nótunum
SKEMMTUNIN Á þjóðlegu nótunum
verður í hátíðarsal Breiðholtsskóla á
laugardag kl. 15. Þar koma fram
dansarar frá Þjóðdansafélaginu,
Tælandi og Filippseyjum. Einnig
kemur fram harmonikusveit FHUR,
Álfafosskórinn og Þjóðlagasveit Tón-
listarskóla Grafarvogs.
Dönsuð verður íslensk syrpa sem
nefnist Við höfnina sem saman
stendur af íslenskum sjómannalög-
um. Einnig verða dansaðir dansar
frá Danmörku, Tælandi, Filippseyj-
um, Mexíkó og Grikklandi. Álafoss-
kórinn flytur íslensk þjóðlög, harm-
onikusveitin flytur gömludansatón-
list og þjóðlagaveitin þjóðlög frá
ýmsum löndum, segir í kynningu.
Helga Þórarinsdóttir hefur séð
um uppsetningu þessarar sýningar
sem verður aðeins einu sinni.