Morgunblaðið - 22.05.1997, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 1997 35
Obyggðir Islands og
almannahagsmunir
Samg’önguráðherra
sýnir hug sinn til
Reykvíkinga
í FYRRI grein
minni voru leidd rök
að því, að mörg þau
landsvæði (sum víð-
áttumikii), sem heyra
til miðhálendinu, séu
ekki undirorpin bein-
um eignarrétti (grun-
neignarrétti) neins
þess aðila, sem til álita
kynni að koma í því
sambandi. Þessi niður-
staða hefur þegar ver-
ið staðfest með dóm-
um hvað sum svæðin
varðar, en ætla má,
að niðurstaðan verði
hin sama um mörg
önnur svæði, þar sem
hagar til með svipuðu móti að því
er snertir meintar eignarheimildir.
Þetta leysir vissulega tiltekin vand-
kvæði (t.d. varðandi fuglaveiðirétt
en einnig um margt fieira), sem
ella kynnu að hamla heppilegum
lausnum varðandi framtíðarskipan
mála, en um leið má segja að önn-
ur vandamál blasi við af þessum
sökum, sem enn hafa ekki verið
leyst með hæfilegum hætti. í því
sambandi má t.d. benda á, að í
kjölfar hæstaréttardóms, sem
hafnar beinum eignarrétti tiltekins
sveitarfélags, upprekstrarfélags
eða bónda að afmörkuðu hálendis-
svæði, skapast jafnframt óvissa
um heimild byggingaryfirvalda
(þ.e. sveitarstjórnar og síðan um-
hverfisráðuneytisins sem æðra
stjórnsýsluaðila á því sviði) til að
hlutast til um byggingarmálefni á
hlutaðeigandi landsvæði og um
veitingu byggingarleyfis þar, þeg-
ar á það reynir. Úr þeim vanda
verða handhafar löggjafarvalds að
leysa hið fyrsta, því að ella munu
margvísleg vandkvæði hljótast af
er tímar líða.
Nokkur mikilvæg lagafrumvörp,
er varða tiltekna meginþætti há-
lendismálefnanna, voru lögð fyrir
það Alþingi, sem nú var að ljúka
störfum. Af hálfu þeirra stjórn-
valda, sem létu semja frumvörp
þessi, mun þó ekki hafa verið ætl-
ast til þess að þau hlytu umtals-
verða umfjöllun á því þingi, heldur
voru þau fremur lögð þar fram til
kynningar, en þess er vissulega
að vænta að þau muni verða endur-
flutt á hausti komanda og verða
talsvert í „sviðsljósinu“ næsta vet-
ur.
Hér skal fyrst nefna frumvarp
til laga um þjóðlendur og ákvörðun
marka eignarlanda, þjóðlendna og
afrétta, sem samið var á vegum
forsætisráðuneytis. Koma þar
fram gagnmerkar tillögur um
framtíðarskipan mikilvægra þátta,
er varða grunneignarrétt yfir ör-
æfasvæðum og öðrum þeim svæð-
um á landi hér, sem ekki teljast
til viðurkenndra eignarlanda ein-
staklinga eða lögaðilja. Er þar
gert ráð fyrir því, að eignarhaldi
á öllu landi verði skipt í tvo flokka:
annars vegar eignarlönd, sem eru
háð einkaeignarrétti (einstaklinga
eða lögaðila), og hins vegar land-
svæði utan eignarlanda, þó að til-
teknir aðilar kunni að eiga þar
takmörkuð eignarréttindi, svo sem
beitar- eða veiðiréttindi. Öll land-
svæði utan eignarlanda (í framan-
greindri merkingu) nefnast þjóð-
lendur, samkvæmt frumvarpinu,
og er þar lagt til, að íslenska ríkið
sé lýst eigandi lands og hvers kyns
landsréttinda og hlunninda í þjóð-
lendum. Er með þeim hætti leyst
úr miklu og alkunnu vandamáli ef
að lögum verður. Gert er ráð fyrir
því, að leyfi forsætisráðherra þurfi
til að nýta vatns- og jarðhitarétt-
indi, námur og önnur jarðefni inn-
an þjóðlendu nema mælt sé fyrir
um annað í lögum, en
að öðru leyti sé nýting
lands og landsréttinda
þar háð leyfi hlut-
aðeigandi sveitar-
stjórnar. Sé þess hátt-
ar nýting heimiluð til
lengri tíma en eins árs
þurfi þó jafnframt
samþykki forsætisráð-
herra. Þá er og lagt
til í frumvarpinu, að
sérstök nefnd,
óbyggðanefnd, kanni
og skeri úr því, hvaða
land teljist til þjóð-
lendna og hver séu
mörk þeirra og eignar-
landa, en að úrlausn-
um þeirrar nefndar megi síðan
skjóta til dómstóla með venjulegum
hætti, geti réttir hagsmunaaðilar
eigi fallist á þær. Gert er ráð fyrir
því, að önnur nefnd, samráðsnefnd
tiltekinna aðila undir formennsku
fulltrúa forsætisráðherra, verði
þeim ráðherra til aðstoðar við
stjórn og ráðstöfun réttinda innan
þjóðlendna.
Að mínu mati er hér um mjög
þarft nýmæli að ræða, sem verð-
skuldar góðar undirtektir á Al-
þingi, þegar frumvarpið kemur til
Frumvarpið geymir
gagnmerkar tillögur,
segir Páll Sigurðsson
í þessari síðari grein
sinni, um framtíðar-
skipan er varða
grunneignarrétt yfir
öræfasvæðum.
efnislegrar umíjöllunar þar. Sama
má einnig segja um frumvarp til
laga um eignarhald og nýtingu á
auðlindum í jörðu, sem unnið var
á vegum iðnaðarráðuneytisins og
lagt var fram á Alþingi á síðustu
starfsdögum þess nú í vor. Þar er
gerð virðingarverð tilraun til þess
að skipa saman í einum lagabálki
skýrum reglum um allar auðlindir
í jörðu, hvort sem þær eru í föstu,
fljótandi eða loftkenndu formi. Er
þar m.a. lagt til að staðfest verði,
að eignarréttur að auðlindum í
eignarlöndum og innan netlaga í
vötnum og sjó verði í höndum lan-
deigenda, en að jafnframt verði
lýst yfir eignarrétti ríkisins á öllum
auðlindum í jörðu utan eignar-
landa, nema aðrir geti sannað rétt
sinn til þeirra. I gildandi lögum eru
að vísu ákvæði um eignarrétt yfir
jarðefnum, en veruleg nýmæli fel-
ast hins vegar í ákvæðum frum-
varpsins um jarðhita, grunnvatn
og aðrar auðlindir í jörðu, sem
leysa á tiltölulega einfaldan hátt
úr flóknum vandamálunt og álita-
málum, sem verið hafa uppi um
þessi efni. Virðast hér valdar mun
heppilegri leiðir til lausnar en gert
var í fjölmörgum fyrri lagafrum-
vörpum, sem fram hafa komið um
þessi eða skyld málefni.
Ljóst er, að efni þeirra tveggja
lagafrumvarpa, sem hér var getið,
fellur vel saman innbyrðis, en ekki
virðist, að hið sama eigi að öllu
leyti við um efni þriðja frumvarps-
ins, sem nefnt verður á þessum
vettvangi, en það er samið á vegum
félagsmálaráðuneytis. Hefur það
að geyma tillögur um breytingu á
gildandi sveitarstjórnarlögum, á
þann veg m.a. að „gengið skuli
út frá að staðarmörk sveitarfélaga,
sem liggja að miðhálendi íslands,
verði framlengd inn til landsins"
og að hið sama skuli gilda um
„staðarmörk sveitarfélaga á jökl-
um“. Verði ágreiningur um stjórn-
sýslumörk ekki leystur með sam-
komulagi hlutaðeigandi sveitar-
stjórna skuli sérstök úrskurðar-
nefnd ákveða mörk þeirra. Ljóst
er, að þessu fyrirkomulagi hljóta
að fylgja almenn og rík yfirráð
sveitarfélaganna á öræfasvæðun-
um, einnig yfir staðfestum þjóð-
lendum (sbr. frumvarpið uni þær,
sem áður var getið um). í síðar-
nefnda frumvarpinu er hins vegar
gert ráð fyrir miklu valdi forsætis-
ráðuneytisins á þjóðlendunum,
þannig að ekki verður séð að stefn-
umið þessara tveggja lagafrum-
varpa fari að því leyti vel saman.
Verði sú skipan mála, sem fram
kemur í frumvaipi félagsmálaráð-
herra, staðfest í lögum er um leið
verið að festa í sessi gamaldags
og úrelt fyrirkomulag varðandi
skipulagsmálefni og önnur stjórn-
unarmálefni hálendisins, þar sem
þau mál eru, með enn skýrari
hætti en nú er að lögum, lögð í
hendur einstakra hreppsnefnda,
oft í mjög fámennum sveitarfélög-
um, sem af auðskiljanlegum og
alkunnum ástæðum eru þess sann-
arlega vanmegnug að takast á við
ýmiss konar skipulagsverkefni og
önnur sambærileg verkefni á þann
veg að samrýmist nútíma stjórnun-
arháttum og með því móti, sem
þarfir samfélagsins alls krefjast.
Að því leyti einkennist andi frum-
vaipsins af íhaldssömum hugsun-
arhætti, sem ekki sýnist fallinn til
velfarnaðar, en mun heppilegra er
að hálendið lúti í sem flestum efn-
um samræmdri yfirstjórn.
Þá skal þess að lokum getið, að
nú er einnig unnið að endurskoðun
almennra ákvæða náttúruverndar-
laga og er þess þá m.a. að vænta
að leitast verði við að bæta núver-
andi lagaákvæði um svonefndan
almannarétt, þ.e. um rétt almenn-
ings til umferðar um fósturjörð
sína, og er einkar mikilvægt að
áhugamenn um náttúruvernd,
útilíf og ferðamál láti sig varða
efni þess frumvarps, þegar það lít-
ur dagsins ljós.
Höfundiir er prófessor í lögfræði
við Háskóla Islands.
IÐNAÐARHURÐIR
í SVrXL-BORG A EHF.
HÖFÐABAKKA 9, 112 REYKJAVÍK
SÍMI 587 8750 - FAX 587 8751
Páll
Sigurðsson
NY VEGAAÆTL-
UN hefur verið sam-
þykkt á alþingi. Upp-
haflega var gert ráð
fyrir hefðbundinni
endurskoðun til fjög-
urra ára. Nokkrum
dögum fyrir afgreiðslu
var hins vegar tilkynnt
að áætlunin tæki að-
eins til tveggja ára,
þ.e. 1997 og 1998.
Helmings stytting ger-
ir sveitarfélögum um
allt land verulega erfitt
um vik við að skipu-
leggja framkvæmdir
fram í tímann og for-
gangsraða verkefnum.
Fullkomin óvissa ríkir
því um allt land um vegafram-
kvæmdir sem gert var ráð fyrir í
upphaflegri áætlun samgönguráð-
herra á árunum 1999 og 2000.
Hér á höfuðborgarsvæðinu hafa
sveitarfélögin komið sér saman um
forgangsröðun vegaframkvæmda,
en þar höfðu sum sveitarfélög fall-
ist á að bíða til síðari hluta íjög-
urra ára tímabilsins. Nú er þetta
samkomulag í uppnámi. Vonandi
tekst þeim og öðrum sveitarfélög-
um sem gert hafa með sér sams
konar samninga að leysa úr þeim
vanda. Hins vegar verður ógjörn-
ingur að leysa þann vanda sem
skapast hefur með þeim gífurlega
niðurskurði sem nýsamþykkt
vegaáætlun felur í sér.
Einna verst þykir okkur í borgar-
stjórn Reykjavíkur að framlög til
breikkunar Gullinbrúar og tenging-
in að henni og frá hafi verið þurrk-
uð út. Þar er ekki ein króna lögð
fram, þrátt fyrir að samgönguráð-
herra sé fullkunnugt um brýna
þörf.
Áskorun borgaryfirvalda
Skipulags- og umferðarnefnd
borgarinnar samþykkti samhljóða
12. maí sl. áskorun til samgöngu-
ráðherra að verða við tillögu um
framlag úr vegasjóði til breikkunar
á Gullinbrú til að bæta umferðar-
tengsl Grafarvogs- og Borgarholts-
hverfa við borgina. Borgarráð gerði
þessa tillögu að sinni og sam-
þykkti ennfremur að ef framlag
fengist af vegafé á þessu og næsta
ári, muni borgarráð sjá til þess að
undirbúningi verði flýtt svo fram-
kvæmdir geti hafist nú í haust.
Guðrún
Ágústsdóttir
Borgarráð vildi með
þessum hætti leggja
sitt af mörkum til að
flýta framkvæmdum,
en eins og kunnugt er
þá eru þessar vega-
framkvæmdir, sem
metnar eru á um 170
milljónir króna, á
verksviði ríkisins.
Samflokksmenn
samgönguráðherrans í
borgarstjórn hafa án
efa reynt eins og þeim
var frekast unnt að fá
ráðherra til að skilja
nauðsyn málsins.
Enda hafa þeir lýst
þeirri skoðun sinni í
tillögu í skipulags- og
umferðarnefnd. Ljóst er nú, að sá
þrýstingur hefur ekki dugað. Það
eru því sameiginleg vonbrigði bæði
Samkomulag sveitarfé-
laga, segir Guðrún
Ágústsdóttir, um
forgangsröðun í vega-
framkvæmdum er nú
í uppnámi.
meirihluta og minnihluta að sam-
gönguráðherra skuli með þessum
hætti sýna hug sinn til borgarbúa.
Þessi gjörð hans bitnar þó mest á
íbúum í Grafai-vogs- og Borgar-
holtshverfum.
Höfundur er formaður skipulags-
og umferðarnefndar í Reykjavík.
GQC
plasthúðun
• Fjölbreytt vandaö úrval af efnum
• Fullkomnar plasthúöunarvélar
• Vönduö vara - betra verö
SÆ J- ftSTVHlDSSON HF.
= = Skiptiolli 33.105 Reykjavik. simí 533 3535
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
Itölsk gæði og tíska frá
Diego Bellini
Tegund: 3690
Verð: 7.995,-
Stærðir: 37-41
Litir: Brúnir
og bláir
Tegund: 12080
Verð: 6.995,-
Stærðir: 35-42
Litir: Svartir, bláir
og brúnir
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS 5% STAÐGREIÐSLUAFSLATTUR
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN ^
SÍMI 551 8519
STEINAR WAAGE
SKOVERSLUN
SlMI 568 9212 •#“