Morgunblaðið - 22.05.1997, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
á móti hefðbundnari i sínu rappi.
Andi Bobs heitins Marleys var
á staðnum í LaugardalshöU þetta
kvöld, þvi mikið ber á reggii i
tónlist Fugees. Upphafslag tón-
leikanna var og úr smiðju Marl-
eys, bráðgóð endurútsetning
Wyclefs á No Woman No Cry,
þar sem hann flutti sögu af lífinu
í Kingston yfir í Brooklyn án
þess að misfellu væri að finna. í
því lagi og enn frekar síðar á
dagskránni, var greinilegt hve
hann hefur kynnt sér Marley, því
ýmsir tónleikataktar voru þaðan
fengnir, handarhreyfingar og
raddbeiting.
Wyclef, Lauryn og Praz tóku
sér drjúgan tíma til að byija tón-
leikana, óðu úr einu í annað,
sýndu hversu snjöll þau væru í
rappinu og hvað þau kynnu af
lögum eða réttara sagt Iagabút-
um; gáfu sögulegt yfirlit tónlist-
arstrauma úr Karíbahafi og und-
irstrikuðu þannig hversu rappið
hefur mikið sótt þangað. Þannig
var reyndar mestalla tónleikana,
tæpt á óteljandi hugmyndum og
lögum, ekki síst þegar Wyclef
kynnti lög af væntanlegri sóló-
skifu sinni, Staying Alive kom
þar við sögu og Guandanamera.
í svo fjölbreyttri tónleikadag-
skrá vakti mesta hrifningu tón-
leikagesta Killing Me Softly, sem
vonlegt er, en litlu minni önnur
þekkt lög flokksins, Nappy
Heads, Fugeela, Ready or Not
og Vocab. Ahorfendur fengu því
mikið fyrir sinn snúð og
skemmtu sér greinilega hið
besta, ekki síst í danskeppninni
sem brast á óforvarandis um
miðbik tónleikanna. Þeir vildu
meira og fengu, tvö kraftmikil
aukalög þar sem rappið var í
algleymingi, og lok tónleikanna,
þegar hleypt var af sprengjum
og pappírssnifsum dreift yfir við-
stadda, voru viðeigandi loka-
punktur á fjölþættri skemmti-
dagskrá.
Árni Matthíasson
Kátar í
London
VINKONURNAR og samstarfs-
konumar Drew Barrymore og Co-
urtney Cox voru kátar á Lundúna-
framsýningu kvikmyndarinnar
„Scream" á dögunum. Þær leika
saman í myndinni, en Drew ætti
sérstaklega að hafa ástæðu til að
brosa, þar sem Amor litli hefur
skotið ástarörvum sínum ansi ná-
lægt henni upp á síðkastið. Hún
er núna að leika í myndinni „Every-
one Says I Love You“ og mótleikar-
inn Luke Wilson er svo heppinn
að hafa unnið hjarta hennar.
FIMMTUDAGUR 22.MAÍ1997 63
Ný sending frá Libra
Glœsileg sending af buxna- og pilsdrögtum
ásamt miklu úrvali af heilum og tvískiptum
kjólum. Stœrðir 36-48.
Einnig mikið úrval af sumarfatnaði m.a.
gallafatnaður, silkibolir og bómullarfatnaður.
Opið á laugardögum
frá kl. 10-14
OTfÐarion
Reykjavíkurvegi 64 • Hafnarfirði • Sími 565 1147
SKÓLAVIST
Söngskólinn í Reykjavík
1997-98
Almenn deild
Umsækjendur hafi einhverja undirstöðumenntun í tónlist (nám eða söngreynslul
og geti stundað námið að nokkru leyti í dagskóla.
Framhaldsdeild: Einsöngvara- og söngkennaranám
Unglingadeild: Aldurstakmark 14 ár
Tónmennt: tónfræði og nótnalestur, - einsöngur og samsöngur
Umsækjendur hafi lokið 8. stigi í söng með framhaldseinkunn,
ásamt hliðargreinum er því fylgja og geti stundað fullt nám í dagskóla.
IMámskeið: Kennsla utan venjulegs vinnutíma
Fyrir söngáhugafólk á öllum aldri. Tónmennt, einsöngur og samsöngur „á léttu nótunum".
Umsóknarfrestur um skólavist veturinn 1997-98 er til 23. maí.
Inntökupróf fara fram mánudaginn 26. maí frá kl. 13.00.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu skólans að Hverfisgötu 45, simi 552-7366,
þar sem allar upplýsingar eru veittar daglega frá kl. 10-17.
Skólastjóri
Cagney
og Lacey
saman
áný
MARGIR muna eftir spennu-
þáttunum um Cagney og Lac-
ey, lögreglukonumar knáu.
Leikkonumar sem fóru með
aðalhlutverkin heita Tyne
Daly og Sharon Gless og hér
sjást þær alsælar eftir að hafa
veitt verðlaunum viðtöku í
New York á dögunum.
Sumarsprengj a
Frakkar
Litir. Hvítt, beige, svart
S-M-L
ÁðurJ
Nú aðeins 7.900
Sumarkjólar Bolir Bolir Leggings/stutt pils
S‘M'L'XL Áðuri^ óðurMfll óður im
Áður w Nú 1.990 Nú 990 Nú 1.990
NÚ 2-990 f -AAV , ’
Laugavegi 44, Kringlunm
O.fl. o.fl. frábær sumartilboð Sendum ípóstkröfu