Morgunblaðið - 23.05.1997, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 23.05.1997, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Sumarlistaskóli fyrir börn og unglinga starfar í sjöunda sinn Markmiðið að ýta undir sköpunargleði SUMARLISTASKÓLINN á Akur- eyri verður með starfsemi í sjöunda sinn nú í sumar, dagana 29. júní til 13. júlí. Hann er ætlaður börn- um og unglingum á aldrinum 10 til 16 ára. Aðalkennarar verða Örn Ingi Gíslason fjöllistamaður og Auður Bjarnadóttir listdansari og leikstjóri. Markmið Sumarlistaskólans er að ýta undir hvers konar sköpunar- gleði og leiðbeina nemendum á sem fjölbreyttastan hátt. Leiðbeint er með margs konar listgreinar, myndlist, leiklist og dans svo eitt- hvað sé nefnt. í sumar verður lögð töluverð áhersla á myndlistina, m.a. munu nemdendur skólans vinna að alvöru málverki sem þau geta hengt upp fyrir ofan leður- sófasettið í stofunni heima. Örn Ingi sagði að gaumgæfilega yrði fylgst með starfseminni á hveijum degi og ýmis atvik fest á fílmu en nemendumir fá spóluna senda heim fyrir jólin. Nemendur skólans hafa síðustu sumur unnið að veggmynd á físk- verkunarhús KEA í Hrísey, taka einn reit fyrir hvert sumar en þeir eru alls 18 þannig að verklok eru áætluð árið 2010. Bömin munu dvelja í Síðuskóla, en nemendur skólans koma víða að. Gjaldið er það sama og var á síðasta ári, 35 þúsund krónur og er innifalið í því gisting, fæði og allt efni. Námskeið fyrir fullorðna Síðasta sumar var á vegum Sum- arlistaskólans boðið upp á nám- skeið í myndlist fyrir fullorðna og verður það einnig í boði í sumar, dagana 31. júlí til 10. ágúst. Nem- endum á námskeiðinu býðst gisting og fæði í Oddeyrarskóla meðan á því stendur. Á þessu námskeiði er farin jeppaferð utan alfaraleiða, í fyrra var farið á Heljardalsheiði og leituðu nemendur fanga í stór- brotnu landslagi. Gert er ráð fyrir að nemendur á þessu námskeið vinni að einhvers konar listaverki fyrir Skinnaiðnað en fyrirtækið styrkti starfsemi skólans í ár. Landsmót í dansi Landsmót í dansi með um 160 þátttakendum, einkum af höfuð- borgarsvæðinu, verður haldið í íþróttahöllinni á Akureyri dagana 6. til 8. júní næstkomandi en að sögn Arnar Inga er um óbeina starfsemi á vegum Sumarlistaskól- ans að ræða. Morgunblaðið/Margrét Þóra NEMARNIR Björn Ágúst, Hjalti Steinn, Gísli, Hjálmar og Sigurð- ur, Þórarinn B. Jónsson, Sjóvá-Almennum, Bernharð Haraldsson skólameistari og Svavar Guðni Gunnarsson deildarstjóri. Sj 6 vá-Almennar VMA fær bíl ÞÓRARINN B. Jónsson umboðs- maður Sjóvár-Almennra á Akur- eyri færði Rafdeild Verkmennta- skólans á Akureyri bifreið að gjöf, en hún verður notuð við kennslu í deildinni. „Ég vona að billinn muni koma í góðar þarfir við kennslu hér í skólanum,“ sagði Þórarinn. Svavar Guðni Gunnarsson deildarstjóri rafdeildar sagði að þetta væri fyrsti bíllinn sem deildin eignaðist, áður hefði ver- ið notast við hluta úr bílum við kennsluna. „Það munar miklu að hafa allan bílinn, þetta er heill og nýlegur bíll með nýtísku vél sem er nauðsynlegt fyrir alla skóla sem kenna bifvélavirkjun," sagði Svavar Guðni. ) I ) í I > I i I í i Undirbúningur Frissa fríska leikanna á lokastigi Kosningar til búnaðarþings Leikgleðin ífyrirrúmi UNDIRBÚNINGUR fyrir Frissa fríska leikana, sem fram fara á Akureyri dagana 6.-8. júní nk. er langt kominn. Það er Hesta- mannafélagið Léttir sem stendur fyrir leikunum fyrir alla hesta- krakka. Búist er við að á þriðja hundrað þátttakendur víðs vegar af landinu á aldrinum 6-16 ára mæti til leiks. Frissa fríska leikamir eru ekki settir upp sem keppni heldur er þar leikgleðin í fyrirrúmi. For- svarsmenn leikanna hafa fundið fyrir miklum áhuga um allt land en skráning þátttakenda er hafin hjá öllum hestamannafélögun- um. Dregið verður úr öllum þátt- tökunúmerum og fær einn hepp- inn þátttakandi hest í vinning, ÞENNAN glæsilega hest hlýtur einn heppinn þátttakandi í vinning á Frissa fríska leikunum á Akureyri í byijun júní. sem gefinn er af Sigrúnu Brynj- arsdóttur og fjölskyldu. Hjá Hestamannafélaginu Létti hefur verið rekið öflugt barna- og unglingastarf í gegnum tíð- ina. í byijun árs hlaut félagið m.a. viðurkenningu frá Hesta- iþróttasambandi íslands fyrir gott starf í þágu unga fólksins. I kvöld, föstudag, er stefnt að því að halda með unglingana í fjöruna við Brávelli norðan Ak- ureyrar og kenna þeim undir- stöðuatriði sundreiðar. Hátíðin Halló Akureyri á að vera til sóma Hafa á eftirlit með unglingum MÖGULEIKAR verða kannaðir á meira samstarfi við ýmsa aðila í Reykjavík og öðrum sveitarfélög- um til að koma í veg fyrir að ungl- ingar undir lögaldri séu eftirlits- lausir á Akureyri meðan hátíðar- höldin Halló Akureyri standa yfír um næstu verslunarmannahelgi. Þeir sem að málinu koma, ferða- þjónustufólk og Upplýsingamið- stöðin á Akureyri höfðu frumkvæði að fundi vegna hátíðarhalda um komandi verslunarmannahelgi, en á hann mættu m.a. bæjarstjóri, sýslumaður, fulltrúar úr bæjar- stjóm og bæjarráði, fulltrúar á fé- lagsmála-, tækni-, og umhverfís- sviði Akureyrarbæjar ásamt full- trúum slökkviliðs, íþróttafélaga, skáta og björgunarsveita sem og fulltrúar úr veitinga- og ferðaþjón- ustugeira. Áfram Halló Akureyri Voru fundarmenn sammála um að sameinast í framkvæmdum og skipulagi um verslunarmannahelg- ina til að hún yrði til vegsemdar og sóma fyrir þá sem að henni koma, en nokkur gagnrýni kom fram á hátíðina Halló Akureyri sem haldin var um síðustu verslunar- mannahelgi. Samstaða er ríkjandi um að hátíðin gangi áfram undir nafninu Halló Akureyri, en fram höfðu komið hugmyndir um að skipta um nafn á hátíðinni. Á fundinum var farið yfir skipu- lag, sameiginlega stjórnun, for- vamamál og ferlimál innanbæjar ásamt umræðum um skipulagningu tjaldsvæða, skemmtanahald, af- þreyingu, hreinlætis- og umhverfís- mál. Þeir sem að hátíðinni standa eru sammála um að efla almenna gæslu og löggæslu og auka barna- og unglingastarf. Þá verða athug- aðir möguleikar á að efna til frek- ara samstarfs við aðila í Reykjavík og öðrum sveitarfélögum til að koma í veg fyrir að unglingar und- ir lögaldri séu eftirlitslausir á Akur- eyri meðan á hátíðarhöldunum stendur. Morgunblaðið/Hólmfríður Lundinn lét sér fátt um finnast FJÖLMENNI var á bjargi í Grímsey í gær en þar var hið besta veður, stillt og bjart. Eyjan skartaði sínu fegursta miðað við árstíma. Fuglinn söng hástöfum í bjarginu og auðfundið að nú er vorið komið. Lundinn er að byija að verpa. Að undanförnu hafa bæði heimamenn og að- komumenn verið að siga í bjarg- ið og búið að tína þúsundir eggja. Lét lundinn sér fátt um finnast þó verið væri að síga í nágrenni við hann. Tveir listar eru í 1 ••• • * • P* 5* kjon í Eyjafiroi \ Eyjafjarðarsveit. Morgomblaðið. TVEIR listar verða í kjöri til búnað- arþings hér í Eyjafirði, K-listi og M-listi. Kosið verður 13. júní næst- komandi. K-listi er skipaður þeim Pétri Ó. Helgasyni, Hranastöðum, Hauki Halldórssyni, Þórsmörk, Svönu Halldórsdóttur, Melum, og Stefáni Magnússyni, Fagraskógi. Á M-lista er Þórður R. Þórðar- son, Hvammi, Benedikt Hjaltason, Hrafnagili, Birgir Arason, Áuðnum, og Rósant Grétarssyni, Kálfagerði. Pétur Ó. Helgason, efsti maður K-lista, sagði að þau atriði sem list- inn stæði fyrir væru að gæta hags- muna íslensks landbúnaðar sem atvinnugreinar í sem víðustum skilningi, en þar stendur vitaskuld hæst að bæta afkomu þess fólks sem þennan atvinnuveg stundar en hún er nú engan veginn viðunandi. „Við viljum efla starfsemi búnað- arsambanda en þau gegna mikil- vægu hlutverki fyrir bændur. Þá viljum við einnig að kannað verði til hlítar náin samvinna eða samr- uni leiðbeininga, rannsókna og kennslu, en það er liður í því að kanna hvort hægt er að fá enn betri nýtingu á því fjármagni, sem ríkið leggur til landbúnaðar, en nú er. Að lokum viljum við leggja öllum málum lið sem gætu orðið til þess að landbúnaður á íslandi hljóti þann virðingarsess sem honum ber í okk- ar þjóðfélagi.“ Styrkja samstöðu bænda Þórður R. Þórðarson sagði M-list- ann nýjan valkost en aðstandendur hans væru nokkrir bændur í Eyja- firði sem vildu bjóða fram krafta sína til að ná fram bættum kjörum bænda. Meðal annars þyrfti að styrkja samstöðu bænda til að for- ystan geti komið fram sem sterkari heild. Gera þurfí kröfu til stjórn- valda um að mörkuð verði skýr stefna til lengri tíma varðandi það starfsumhverfi sem íslenskum bændum er ætlað að starfa við. Það umhverfí yrði að vera bæði neytend- um og bændum vinsamlegt. -----» ♦ ♦-- Lands- banka- hlaupið LANDSBANKAHLAUPIÐ fer fram á Akureyri á morgun, laugar- daginn 24. maí, og hefst það kl. 13. Skráning fer fram í Landsbank- anum við Strandgötu 1 á Akur- eyri, Brekkuafgreiðslu, Kaupangi við Mýrarveg og afgreiðslunni á Svalbarðseyri. Hlaupið hefst við afgreiðslu bankans við Strandgötu og eru þátttakendur beðnir að mæta hálftíma fyrir hlaupið, kl. 12.30. Öll börn sem fædd eru árin 1984, 1985, 1986 og 1987 geta tekið þátt í hlaupinu, óháð búsetu. Forstöðumannaskipti í Hvítasunnukirkjunni FORSTÖÐUMANNASKIPTI verða í Hvítasunnukirkjunni á Akureyri á sunnudag, 25. maí kl. 15.30. Hjónin Ester K. Jakobsen og Vörður Leví Traustason sem ver- ið hafa forstöðuhjón safnaðarins í nærfellt 17 ár eru á förum en þau taka við forstöðu Hvíta- sunnukirkjunnar Fíladelfíu í Reykjavík. Kveðjusamkoma verður haldin af þessu tilefni og ný forstöðuhjón, Katrín Þor- steinsdóttir og G. Theodór Birg- isson boðin velkomin og sett inn í starfið, en þau hafa verið for- stöðuhjón Hvítasunnukirkjunnar á ísafirði síðustu fjögur ár. Sam- komunni verður einnig útvarpað á FM-89,7. I \ \
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.