Morgunblaðið - 05.06.1997, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 05.06.1997, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 1997 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Bókasöfn - Harley Davidson hugans FRELSI er eitt þeirra orða sem víða verður á vegi okkar nútímamanna á Vest- urlöndum. Það er orðið eitt af lykilorðum nú- tímans; frelsi til sam- keppni, frelsi til að njóta, frelsi til að velja milli sjónvarpsrása, vörutegunda og ég veit varla hvers. I huga manna í Bandaríkjun- um varð Harley David- son-mótorhjólið tákn- mynd þess frelsis sem bandarískt samfélag Hólmkell byggðist á. Banda- Hreinsson ríska draumavélin var hjólið sem hægt var að setjast á og aka hvert þangað sem hugann lysti. í mínum huga eru almennings- bókasöfn draumavélar hugans eða eins og Þórarinn Eldjárn segir: „Bók í hönd og þér halda engin bönd“ og skáldið Jónas orti um „að sitja kyrr í sama stað og samt að vera að ferðast". Það hefur nefnilega verið til sýndarveruleiki mun lengur en tölvutæknin og í raun mun magnaðri því hann tak- markast einungis af ímyndunarafli hvers og eins. Um leið og bók eða blað er opnað, forrit ræst, mynd- band skoðað eða hlustað á tónlist fara hughrifin af stað, aflvélar hugans eru ræstar og haldið hvert sem er. Eitt af kennimerkjum banda- ríska tölvurisans Microsoft er í lauslegri þýðingu þannig: „Hvert viltu fara í dag?“ en sömu spurning- ar getur bókavörður spurt lánþega sem kemur inn á safn hans. Og ekki bara hvert, heldur líka hvern- ig. Hvort viltu bruna eftir upplýs- ingahraðbrautinni og hlusta um leið á Jim Morrisson syngja „Kilier on the road“ meðan vefsíðurnar þjóta hjá, allar með ótal möguleik- um til að heimsækja fleiri spenn- andi staði. Eða má bjóða þér að setjast í þægilegan stól á kyrrlátum stað með bókina „Með hægð“ eftir Milan Kundera og við getum kallað það kyrrlátan sveitaveg og þú ferð gangandi, kæri lánþegi, og þér gefst tóm til að íhuga hvert orð og velta við hveijum steini í textan- um. Kannski viltu eitthvað þarna á milli eða annars eðlis. Hvernig á að gera upp gamla kommóðu eða hvenær á ég að klippa birkið í garðinum mínum? í sýndarveruleika hugans gengurðu á vit sérfræðinganna sem leynast á blaðsíðum bókanna og tímarit- anna eða á stafrænu formi mynd- banda eða geisladiska. Almenningsbókasöfn eru nefni- lega ekki bara safn bóka, þau bjóða marga aðra miðla en prentað mál, s.s. myndbönd, geisladiska og al- net. Þau eru líka opinberar þjón- ustustofnanir sem eiga sér það háleitast markmið að þjóna þeim sem til þeirra leita og jafnvel líka þeim sem ekki komast á staðinn, á sama hátt og pizzustaðir og kjör- búðir senda þau vöruna heim. Þeir sem eiga erfitt með lestur geta fengið hljóðsnældur, smábörnin harðspjaldabækur o.s.frv. Munurinn er sá að bókasöfnin bjóða uppá næringu andans. Nær- ingu sem ekki verður að aukakíló- um eða veldur bijóstsviða, en getur aukið stöðugt á þá auðlind sem er nýbúið að uppgötva að er til á Is- landi og heitir íslendingar. Þessi auðlind hefur það umfram allar aðrar slíkar að hún eykst og vex um leið og hún er notuð. Við á íslandi eigum allflest þess kost að njóta þess frelsis sem felst í því að koma inn á bókasafn og ferðast þangað sem hugurinn girnist að fara. Þó er það ekki ein- hlítt og sum sveitarfé- lög hafa kosið að leggja áherslu á aðra þjónustu en þá að styðja frelsi andans í formi góðra alrnenn- ingsbókasafna. í þeim byggðum er því miður erfitt að komast á bak á góðum Harley. Það er hinsvegar mikið gleðiefni að rík- isstjórn sú, er nú situr við völd, hefur sýnt almenningsbókasöfn- um mikinn áhuga og gert sér grein fyrir þeim möguleikum sem þau hafa sem upplýsingamiðstöðvar fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Stefna menntamálaráðuneytisins í þessu efni er skýr og ekki mun standa á okkur bókavörðum að gera það sem þarf til sinna því verkefni sem okkur er ætlað í Bókasöfnin, segir Hólmkell Hreinsson, bjóða upp á næringu andans. upplýsingasamfélaginu. Eitt af því er að veita öllum almenningi að- gang að sem flestu. Ég treysti mér ekki fyrir hönd starfsfélaga minna að segja að við getum veitt aðgang að öllu alltaf alls staðar, en ég leyfi mér hinsvegar að full- yrða að við getum veitt aðgang að mjög mörgu oft og víða. I Bandaríkjunum hafa menn lengi vitað með sjálfum sér að almenn- ingsbókasöfn eru einn af horn- steinum lýðræðisins. Hugmyndin er sú að til þess að taka virkan þátt í lýðræðinu verði borgararnir að hafa aðgang að sem mestum og bestum upplýsingum til að geta myndað sér skoðanir. Upplýs- ingarnar fá menn á bókasafninu. Sama á við á Norðurlöndum og í seinni tíð eru menn farnir að ræða mikilvægi þess að bókasöfnin komi í veg fyrir að íbúar landanna skipt- ist í tvo hópa; þá sem hafa greiðan aðgang að upplýsingum og hina sem ekki hafa það. Það er gjarnan talað um upplýsingaríka og upp- lýsingafátæka í því sambandi. Bandaríkjamenn vita svo vel um þessa staðreynd að Bill Clinton for- seti hefur hvað eftir annað nefnt mikilvægi hennar í stefnuræðu sinni, og menntun og upplýsingar virðist vera eitt af stóru málunum í bresku þingkosningunum. Nú mætti ætla að svo stórkost- legir möguleikar, sem atmennings- bókasöfnin bjóða uppá, hljóti að kosta stórfé. Velta slíkra andans orkuvera hljóti að vera milljarðar á ári, eitthvað nálægt því sem um er að ræða í stóriðju. Svo er aldeil- is ekki. Þjónusta almenningsbóka- safna er greidd af sveitarfélögum og ef skoðað er hvað öll þessi þjón- usta kostar íbúa á Akureyri, þá er það rétt um 1.600 krónur á ári, eða minna en mánaðaráskrift að dagblaði. Hér eru viðeigandi og sönn kjörorðin „mikið fyrir lítið“ því á bókasöfnunum bíða Harley- arnir þess að hver sem er komi, setjist á bak og láti hugann bera sig hvert sem er, hvernig sem er, hvenær sem er. Býður einhver bet- ur? Höfunilur er amtsbókavörður á Akureyri. Missir að eignast fatlað barn! F.v.: Fjóla Stefánsdóttir, Ingibjörg G. Júlíusdóttir, Auðbjörg Geirsdóttir, Þorbjörg A. Arnadóttir og Hulda Rafnsdóttir. AÐ EIGNAST fatlað barn er flestum foreldrum mikið áfall. Þeir upplifa missi þegar fötlunin greinist vegna þess að þeir misstu heilbrigða barnið sem þeir væntu. Sorg er allt- af tengd missi, flestum tekst að vinna úr henni á heilbrigðan hátt og læra að búa við hana. Fjölskyld- an syrgir ástand barnsins og allt það sem það fer á mis við í lífinu. Foreldrarnir hafa fengið nýtt og óvænt hlutverk og verkefnin sem því fylgja eru óþijótandi. I mörgum tilfellum er um að ræða endurtekn- ar sjúkrahúslegur eða heimsóknir til lækna eða annarra í heilbrigðis- kerfinu. Segja má að foreldrar og barn séu oft meira og minna inni á sjúkrahúsinu fyrstu æviár barns- ins. Því er mikilvægt að heilbrigðis- starfsfólk hafi þekkingu og skilning á aðstæðum og líðan íjölskyldna fatlaðra barna til að mæta þörfum þeirra sem miðast við sérhæfa fötl- un barnsins. Það er mikið álag fyr- ir foreldra að horfa upp á börn sín veik hvað eftir annað og jafnvel í lífshættulegu ástandi. Við þessar aðstæður eru foreldrarnir auðsær- anlegir. Þess vegna er mjög mikil- vægt að heilbrigðisstarfsfólk hafi í huga að allt sem það segir og öll þess framkoma mun hafa meiri áhrif en undir venjulegum kringum- stæðum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í rannsókn höfunda, sem er lokaverkefni til B.Sc.-gráðu í hjúkr- unarfræði, og fjallar um reynslu foreldra barna með fötlun af sam- skiptum við heiibrigðisstarfsfólk. Rannsóknin var byggð á viðtölum við fimm mæður fatlaðra barna með ólíka fötlun. Allar áttu þær það sameiginlegt að hafa haft tíð samskipti við heilbrigðisstarfsfólk vegna fötlunar barnanna. Fyrstu fréttirnar í heildina litið var reynsla mæðr- anna af samskiptum við heilbrigðis- starfsfólk nokkuð góð. Þó er ýmis- legt sem betur mætti fara. Mæðurn- ar voru sammála um að helst skorti upplýsingai' um ástand barnsins, meðferð og þá þjónustu sem foreldr- ar ættu rétt á vegna fötlunar barns- ins. Einnig fannst þeim vanta að þeim væri veittur andlegur stuðn- ingur þegar þær þyrftu á að halda. Niðurstöður þessarar rannsóknar benda til þess að oft sé illa staðið að frumgreiningu fötlunarinnar og hvernig foreldrunum er sagt frá því að barnið þeirra sé ekki heilbrigt. Mæðurnar töluðu um að fréttunum hefði verið slengt framan í þær en mikilvægt er að færa þeim fréttirn- ar á nærgætinn hátt því foreldrar barna með fötlun eru í miklu tilfinn- ingalegu uppnámi á því tímabili þegar fötlun greinist. Fagaðilanum er vandi á höndum að bera fram slíkar upplýsingar og því er mikil- vægt að hann hafi í huga hvað sagt er og hvernig það er sagt. Grundvallaratriði er að þróa traust og umhyggju gagnvart foreldrun- um og segja fréttirnar á jafningja- grundvelli. Lykilatriði er að vel sé staðið að þessu því upplifun foreldr- anna af þeirri stund sem þeim er sagt frá fötlun barnsins segir mikið til um hvernig áframhaldandi sam- skipti verða við heilbrigðisstarfs- fólk. Vilja heyra sannleikann Upplýsingamiðlun er veigamikill þáttur í starfi heilbrigðisstarfs- manna. Þegar gefa þarf foreldrum barna með fötlun upplýsingar snýst það ekki einungis um að heilbrigðis- starfsmaður þekki og setji fram staðreyndir heldur þarf að aðlaga upplýsingarnar að þekkingu og reynslu foreldranna svo þeir skilji þær. Mæðurnar vildu fá að heyra sannleikann um ástand barnsins og hvers þær gætu vænst af meðferð Sorg er alltaf tengd missi, segja Auðbjörg Geirsdóttir, Fjóla V. Stefánsdóttir, Hulda Rafnsdóttir, Ingibjörg G. Júlíusdóttir og Þor- björg A. Arnadóttir, en flestum tekst að vinna úr henni og búa við hana. en lögðu áherslu á að það væri ekki sama hvernig hlutirnir væru sagðir. Þegar verið er að fræða um mikilvæg atriði eins og t.d. lyflagjöf barns þarf að gefa sér nægan tíma, sjá til þess að gott næði sé og að- staða til að bregðast við upplýsing- unum. Foreldrar hafa þörf fyrir von því hún auðveldar þeim að lifa með sorginni. Því skal ekki einblína ein- ungis á erfiðleikana varðandi með- ferð eða framtíð barnsins eins og: „Hann eða hún mun aldrei geta ...“ frekar ber að horfa á það jákvæða í fari barnsins. Ennfremur fannst mæðrunum mikilvægt að fá skrif- legar upplýsingar því takmörk væru fyrir því hvað þær gætu munað af upplýsingum. Eru „sérfræðingarnir" Bæði foreldrar og heilbrigðis- starfsfólk eru sérfræðingar í umönnum og meðferð barnsins en hvort á sinn hátt. Foreldrar meta ástand barnsins og hvað sé því fyr- ir bestu en heilbrigðisstarfsfólk sér málið frá faglegu sjónarmiði. Því er afar mikilvægt að þessi sjónar- mið mætist á miðri leið í samstarfi foreldra og heilbrigðisstarfsfólks. Mæðurnar töluðu um að þær þekktu barnið og sjúkdómseinkenni þess best. Því ætluðust þær til að hlust- að væri á þær og það virt að þær væru með barnið allan sólarhring- inn. Mæðurnar voru sammála um að þær hefðu myndað gagnkvæmt traust við það heilbrigðisstarfsfólk sem þær hefðu mest samskipti við og í þeim tilvikum væri reynsla þeirra viðurkennd. Þegar sama fag- fólkið annast Ijölskyldu skapar það samfellu og stöðugleika í umönnun barnsins og auðveldar foreldrum að ræða reynslu sína og líðan við einhvern sem þeir þekkja og treysta. Stuðningur mikilvægur Því fylgir bæði gleði og sorg að eiga fatlað barn. Hver þroskaáfangi sem mæðurnar töldu sjálfsagðan hjá heilbrigðum börnum, t.d. fyrstu skrefin eða að rífa út úr skápum, er mikill sigur hjá fatlaða barninu. En algengt er að tilfinningar eins og kvíði, streita og óöryggi gagn- vart ástandi barnsins og umönnun- arhlutverki foreldranna komi fram. Margt hefur áhrif á það hvernig foreldrar aðlagast breyttum að- stæðum tengdum fötlun barnsins. Þeii' hafa oft á tilfinningunni að heilbrigðisstarfsfólki finnist þeir vera „erfiðir foreldrar" vegna þess að þeir eiga það til að bregðast of harkalega við eða ekki samkvæmt aðstæðum að mati heilbrigðisstarfs- fólks. Ástæða þess getur verið að foreldrarnir eru undir stöðugu álagi þar sem þeir mæta erfiðleikum og skilningsleysi. Þá er stuðningur mikilvægur bæði frá aðstandendum og ekki síst heilbrigðisstarfsfólki. Þegar barn leggst inn á sjúkrahús getur það hafa verið lengi veikt heima og foreldrarnir orðnir þreytt- ir og kvíðnir yfir ástandi barnsins. Mæðurnar vildu leggja áherslu á að þeim væri boðinn stuðningur og ekki væri horft fram hjá því þegar þeim liði illa andlega. „Það sem heftir þroska þinn efldi minn“ Fram kom í viðtölunum að tengslin milli mæðranna og fatlaða barnsins væru mjög sterk. Eftir fæðingu fatlaða barnsins breyttust framtíðaráætlanir foreldranna og líf þeirra fór að snúast í kringum barn- ið. Fæðing fatlaðs barns styrkti fjöl- skyldurnar sem einingu, kenndi þeim að meta lífið á annan hátt og að ekkert væri sjálfsagt í lífinu. Þær höfðu öðlast aðra og meiri lífssýn. Mæðurnar töluðu um að þær hefðu sjóast með árunum. Með því áttu þær við að reynslan hefði kennt þeim að þær þyrftu að vera ákveðn- ar ef þær ætluðu að fá sínu fram- gengt. Það er lýsandi fyrir styrk þessara mæðra að til að takast á við álagið og komast í gegnum erf- iðleikana reyndu þær að búa sig undir það versta en vona það besta. Óli Lófar þínir svo mjúkir iljar gerðar til gangs augun sem þekkja mig ekki enn beðið eftir fyrirmælum sem aldrei bárust ókunnar leiðir rofnar af óþekktu meini Það sem heftir þroska þinn efldi minn Allt sem þú gafst mér: þú kynntir mig Sorginni og Voninni og kenndir mér að ekkert er sjálfsagt Ég gaf þér ekkert nema lífið (Þórarinn Eldjárn.) Höfundar eru nýútskrifaðir hjúkrunarfræðingar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.