Morgunblaðið - 05.06.1997, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 05.06.1997, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR HÚSIÐ hefur verið endurbyggt í þeirri mynd sem það var árið 1890. Að innan hefur húsið verið innréttað með hlið- sjón af lýsingu frá árinu 1873 en þá var það auglýst til sölu. Allt timburverk í húsinu, strik á gluggum, brjóstþil, hurðir og frágangur lofta er upprunalegt en þar sem lítið var vitað um val á litum og veggfóðri var miðað við mynd- ir af heimilum í Reylgavík frá því um síðustu aldamót. Morgunblaðið/Ól.K.M. ÁRIÐ 1950 voru við afgreiðslu í Verslun Ingibjargar Johnson þær Gunnhildur Guðmundsdóttir, Guðrún Guðmundsdóttir, Unnur Magn- úsdóttir, Jóhanna Guðlaugsdóttir, Lovísa Eiríksdóttir og Anna Valdi- marsdóttir, sem jafnframt var verslunarsljóri. Sagði Lovísa að versl- unin hafi þá verið á tveimur hæðum. Til sölu voru efni og fatnaður en á neðri hæð var undirfatnaður, hanskar og snyrtivörur. Húsið sem áður stóð við Lækjargötu 41 Reykjavík endurbyggt í Árbæjarsafni Verslun fram til ársins 1980 HÚSIÐ sem stóð við Lækjargötu 4, hefur verið gert upp og opnað á ný í Árbæjarsafni. Elsta hluta hússins má rekja til þess að Gustav Ahrens, þýskur timbur- maður, fékk úthlutað lóð við Lækinn árið 1852 og var hún með fyrstu lóðum, sem bærinn seldi. Síðar var byggt við húsið og það stækkað og þrátt fyrir ýmsa atvinnustarfsemi í húsinu var þar rúm fyrir tvær til þrjár fjöl- skyldur. Þar bjó biskupinn um sinn eftir að hann fluttist til Reykjavíkur, þar var eitt fyrsta kaffihúsið, Verslunarmannafé- lag Reylyavíkur var stofnað í húsinu og Verslunarskóli rekinn í tvo vetur. Þar var síðan sam- felldur verslunarrekstur frá aldamótum fram til ársins 1980 þegar Hagkaup hætti að reka þar verslunfyrir unglinga. í yfirliti Árbæjarsafns yfir sögu hússins kemur fram, að fjölskylda Gustavs Ahrens hafi verið fyrstu íbúar hússins en hann var í hópi þeirra manna S WISSCARE pour G I V E N C H Y sem settust hér að eftir að hafa unnið við byggingu Dómkirkj- unnar. Arið 1856 keypti Helgi G. Thorderson biskup húsið þeg- ar hann flutti frá Laugarnesi og var húsið þá kallað biskupshúsið. Biskup bjó í húsinu til dauðadags árið 1867 en ritari hans var Jón Árnason þjóðsagnasafnari, sem einnig bjó þar. Miðstöð félags- og menntamála Eftir fráfall Helga gekk húsið í arf til barna hans en árið 1875 eignaðist Bjarni Bjarnason frá Esjubergi húsið. Ingibjörg, dótt- ir Bjarna og Kristinar Bjarna- dóttur konu hans, settist að í húsinu ásamt manni sínum Þor- láki Ó. Johnson árið 1876. Árið 1886 opnaði Kristín Bjarnadóttir eitt fyrsta kaffihús bæjarins í Lækjargötu 4. Hét það Café & Conditori Hermes og varð þar brátt miðstöð félagsmála og mennta í bænum en þangað vöndu embættis- og mennta- menn komur sínar. Verslunarmannafélag Reykja- víkur var stofnað árið 1891 í kaffihúsinu Hermes og var Þor- lákur Ó. Johnson einn stofnenda þess. Notaði hann kaffihúsið undir starfsemi verslunarskóla, sem komið var á fót árið 1890 og var þar starfræktur í tvo vetur. Af öðrum félögum sem stofnuð voru í húsinu má nefna stúkuna Einingu árið 1885 og sjómannafélagið Báruna, sem stofnað var árið 1894. Heild- verslun Ó. Johnson & Kaaber var stofnuð í húsinu árið 1906 en það mun vera næst elsta heildverslun landsins. Var Ólafur, sonur Ingi- bjargar og Þorláks, annar aðal- stofnandi fyrirtækisins og var það starfrækt í húsinu um al- langt skeið. Ingibjörg Johnson stofnaði hannyrða- og vefnaðarvöru- verslun í húsinu skömmu fyrir aldamótin 1900. Við fráfall Ingi- bjargar tóku dætur hennar við versluninni og síðan aðrir úr fjölskyldunni og var verslunin rekin fram til ársins 1960. Af fyrirtækjum sem síðar voru í húsinu má nefna Flugfélag ís- Iands á árunum 1946-1962 og Hagkaup sem rak þar verslun frá 1964-1980. Enginn niðurstaða hjá kenn- urum FUNDI fulltrúa Kennarasam- bands íslands og Hins íslenska kennarafélags og viðsemjenda þeirra lauk hjá ríkissáttasemj- ara um hádegisbil í gær án þess að samningar næðust. Nýr fundur var ráðgerður klukkan 9 í morgun. Samningafundur kennara hafði staðið frá því klukkan 10 á þriðjudagsmorgni eða í rúma 26 tíma. Töldu samningamenn ráðlegt að fá hvíld áður en næsta lota yrði tekin, hugsan- lega lokatörnin. Af öðrum hópum sem fund- uðu hjá sáttasemjara í gær má nefna starfsfólk í veitingahús- um, hjúkrunarfræðinga, póst- og símamenn, þjónustufólk hjá feijunni Heijólfi, náttúrufræð- inga og flugfreyjur. Vinnustaðasamningur samþykktur í einni verslun Hagkaups Kynning í dag, fimmtudag, kl. 14-18 I Kynnum nýja Natural Glow kremið. Krem, sem kallar fram náttúrulegan Ijóma húðarinnar, eykur sólbrúnku, uinnur gegn öldrun húðar og er rakagefandi. Spennandi kaupauki. «3> APÓTEK AUSTURBÆJAR Háteigsvegi 1, s. 562 1044. Vaktavinna til að draga úr álagi og auka framleiðni STARFSFÓLK verslunar Hagkaups við Eiðistorg hefur samþykkt með 85% atkvæða fyrirtækjasamning sem samninganefnd þess gerði við fyrirtækið. Samningurinn felur í sér vaktavinnuskipulag þar sem fólk vinnur annars vegar 6 tíma og hins vegar 7 tíma vaktir og fær jafnhá laun fyrir 12-15% minni vinnu en áður, að sögn Arnar Kjartanssonar sölustjóra Hagkaups. Samningurinn öðlast gildi 1. sept- ember og gildir út samningstíma á aimennum vinnumarkaði en þó eru ákvæði um endurskoðun eftir íjóra mánuði og einnig eftir eitt ár. Eftir fjóra mánuði er jafnframt ætlunin að útfæra sams konar samninga fyrir aðrar verslanir Hagkaups í ljósi fenginnar reynslu. 6 og 7 tíma vaktir Örn Kjartansson segir að samn- ingurinn feli í sér byltingu á vinnu- skipulagi með vaktavinnufyrirkomu- lagi og dragi úr yfirvinnu verslunar- fólks sem hafi unnið hvað lengstan vinnudag allra launþega. Annars vegar vinnur fólk 6 tíma vaktir frá kl. 9-15 og frá 15-21 og hins vegar 7 tíma vaktir frá 8-15 eða 15-21.45. Örn segir að þeir sem muni ganga styttri vaktirnar skili 165 klst. vinnu í mánuði en þeir sem ganga lengri vaktirnar 186 klst. á mánuði. Órn segir að fólk muni áfram eiga kost á einhverri aukavinnu á álagstímum og um helgar ef það kýs. Örn segir að markmið fyrirtækis- ins með samningnum sé að ná fram vissu hagræði og ávinningnum af því sé skipt milli starfsfólksins og fyrirtækisins. Með nýja kerfinu vilji Hagkaup draga úr álagi og auka framleiðni starfsfólks með styttri vinnudegi en Örn vildi ekki upplýsa hver kostnaðarauki yrði af samn- ingnum. „Við teljum að starfsmaður sem vinnur 6-7 tíma vakt muni vinna betur og skila viðskiptavinum betri þjónustu en starfsmaður sem er á 15. eða 16. tíma á vinnudeginum. Á þennan hátt getum við boðið jafn- góða þjónustu klukkan 9 og klukkan 20, hvort sem er um virka daga eða helgar. Þetta er hægt þegar fyrir- tæki og starfsmenn fá að ræða sam- an og taka tillit til þess hveijar að- stæður eru í hveiju fyrirtæki fyrir sig,“ segir Örn Kjartansson. Launakerfi verður einnig nokkuð breytt með samningnum, þannig að í stað þess að byijunarlaun verði greidd fyrsta árið kemur nýtt þrep eftir þriggja mánaða starf með Morgunblaðið/Þorkell ÖRN Kjartansson. sölustjóri Hagkaups, og Steinar Órn Sigurðsson, trúnaðarmaður starfsmanna. frammistöðumati og fastráðningu sem felur í sér talsverða launahækk- un fyrir þá sem standast frammi- stöðumat. Föstu starfsfólki í versluninni verður fjölgað en fólki í hlutastörfum fækkað og segir Örn að fyrirtækið vilji með breytingunum renna stoð- um undir það að fólk geri verslunar- starf að framtíðarstarfi. Samningurinn gildir fyrst ein- göngu á Eiðistorgi, sem Hagkaups- menn telja hæfílega stóran vinnu- stað til að halda utan um verkefnið en þar starfa 40-50 manns. Vinnutími styttist Steinar Örn Sigurðsson, trúnaðar- maður starfsmanna Hagkaups á Eiðistorgi, sagði að starfsfólk væri viljugt að prófa að vinna samkvæmt nýju fyrirkomulagi og enginn fast- ráðinn starfsmaður hafi greitt at- kvæði gegn samningnum heldur aðeins fólk í hlutastörfum sem ynni í aukavinnu á kvöldin og um helgar. Hann sagði að fólk sæi fyrir sér að þessi samningur færði styttri vin- nútíma og hærri laun. Hann segir að varla sé nokkur fastráðinn maður í versluninni með skemmri vinnuviku en 60 klst á mánuði. Útreikningar fyrirtækisins sýna hins vegar að starfsmaður með 220-230 klukku- stunda vinnu í mánuði skili sam- kvæmt nýja kerfinu 186,5 klukku- stundum á mánuði fyrir svipuð laun. Steinar sagði að í samningnum væri líka ákvæði um frammistöðu- mat og námskeiðahald og ábata- kerfi sem skipti fastráðið fólk miklu máli og gefi því tækifæri til að vinna sig upp innan fyrirtækisins. Gunnar Páll Pálsson hjá VR, sem sat samningafundi starfsmanna og Hagkaups ásamt fulltrúa VSÍ, sagði að VR liti svo á að með þessum fyrsta fyrirtækjasamningi væri gerð heiðarleg tilraun til þess að auka verulega framleiðni í verslun í land- inu. i i L I l
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.