Morgunblaðið - 05.06.1997, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 05.06.1997, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ1997 49 MINNINGAR________ ÁGÚSTA RÓSA ANDRÉSDÓTTIR ÓLAFUR ÓLAFSSON frásagnargáfu? Ólafur var vel heima á öllum sviðum, í hagfræði, heimspeki, stjórnmálum og listum. Frakklandsferðin verður okkur öll- um ógleymanleg og við fundum fyrir nálægð Ólafs er við fórum nú ári seinna í vorferð um héruð Borg- arfjarðar. Ölafs er sárt saknað í Fjölbrauta- skólanum í Garðabæ. Við sendum fjölskyldu hans okkar innilegustu samúðarkveðjur. Aðalbjörg, Margrét, Sigríður Sig. Sposkur svipur, góðlátleg kímni og með „glimt i ojet“ er mynd mín og minning um frænda minn Ólaf Helgason, Olla öðru nafni. Hann var bróðir móður minnar, sem lést fyrir tæpu ári. Það er skammt stórra högga á milli þegar ástvinir hverfa af leiksviði lífsins með svo stuttu millibili. Ég minnist stunda á bernsku- heimili mínu, með Olla í farar- broddi, leiftrandi frásagnargáfu hans og gamansemi sem hreif alla. A slíkup stundum skipti aldur ekki máli. Ég, barnið, vakti, hlustaði, skynjaði og ferðaðist með Olla um heim hugarflugsins. Það eru forréttindi að hafa alist upp í návist Olla og notið persónu- leika þessa skarpgreinda manns sem var heiðarlegur, hafði ákveðn- ar skoðanir og gott hjartalag. í dag, þegar ég kveð minn kæra frænda, er mér efst í huga þakk- læti fyrir að hafa kynnst slíkum manni, að eiga í sálu minni sjóð dýrmætra minninga í öllum regn- bogans litum. Blessuð sé minning Ólafs Helgasonar. Þórhildur Björnsdóttir. En handan við fjöllin og handan við áttimar og nóttina rís turn ljóssins þar sem tíminn sefur. Inn í frið hans og draum er fórinni heitið. Þannig lýkur Snorri Hjartarson ljóði sínu Ferð. Nú hefur einn sam- ferðarmaður okkar lokið farsælli lífsgöngu sinni, Ólafur Helgason er allur. Leiðir okkar Ólafs lágu saman í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ fyr- ir tæpum áratug. Kennarar og nemendur skólans voru heppnir að hafa hann sín á meðal því hann gat auðgað umhverfið með nærver- unni einni saman, hæverskur, glað- sinna og góðviljaður. Hann var ald- ursforsetinn í skólanum og liðnir tímar vöknuðu til lífsins þegar hann rifjaði upp gengin spor. Hann rifj- aði stundum upp náttúruhamfar- irnar í Vestmannaeyjum 1973 þar sem hann stóð í eldlínunni en hann miklaðist ekki yfír eigin verkum heldur hvíldi æðruleysi, yfirvegun og skopskyn yfir allri frásögn hans. Það var sérstök reynsla að heyra Ólaf segja frá fyrri tíð. Hann var til dæmis viðstaddur vígslu Mar- karfljótsbrúar árið 1934, þá korn- ungur drengur. Og hann sagði frá skólaárum sínum í Menntaskólan- um í Reykjavík þegar nemendur þurftu að víkja fyrir breska setulið- inu. Síðan tóku námsár í Kaup- mannahöfn við með sínu litríka mannlífi. Fyrir réttu ári fór hópur kennara úr skólanum í kynnis- og skemmti- ferð til Frakklands og Ólafur var í hópnum. Þar var hann hrókur alls fagnaðar og alls staðar vel að sér hvort sem rætt var um hetjur úr þjóðarsögu Frakka eða lista- menn og skáld. „Balsac dó úr keffí- eitrun," sagði hann einn daginn. „Það stóð í sögubókinni minni sem ég las á sínum tíma,“ bætti hann við og kímdi. Við vorum öll þakklát fyrir að hafa þetta ljúfmenni á meðal okkar. Nú er langri ferð lokið. Turn ljóssins rís fyrir handan þar sem tíminn sefur. Og þar geymum við minningarnar um drengskapar- manninn Ólaf Helgason. Bjarki Bjarnason. + Ágústa Rósa Andrésdóttir fæddist á Bakka í Bjarnar- firði í Strandasýslu 15. nóvem- ber 1915. Hún lést á Sjúkra- húsi Akraness 22. maí síðast- liðinn og fór útför hennar fram frá Akraneskirkju 29. mai. Ólafur Ólafsson fæddist á Svarfhóli í Stafholtstungum 8. júni 1944. Hann lést á Sjúkra- húsi Akraness 16. mars síðast- liðinn og fór útför hans fram frá Akraneskirkju 24. mars. Kveöjan eftir æviveg er i fáum línum. . Fáein orð og fátækleg flækt í huga mínum. (D.D.) Mig langar að minnast í fáum orðum tengdamóður minnar og mágs sem bæði létust úr sama ill- víga sjúkdómnum með stuttu milli- bili. Éinhver hefði kannski bætt orðinu fyrrverandi inn í þetta upp- haf en ég leit aldrei svo á að eitt- hvað hefði breyst í okkar vináttu og eins og Ólafur heitinn sagði við mig: „Við höldum áfram að vera mágar.“ Kynni okkar Ágústu hófust fyr- ir alvöru fyrir rúmum tuttugu árum þegar ég fór að venja komur mínar til og tók síðan upp sambúð við og kvæntist dóttur hennar. Eins og flestir Akurnesingar var ég búinn að þekkja Gústu í Mjólk- urbúðinni lengi, þessa lágvöxnu, dökkhærðu konu sem afgreiddi alla með bros á vör. Ágústa var Strandamaður að ætt og hafði miklar taugar til æskustöðvanna. Því miður átti ég þess ekki kost að fara með henni þegar hún fór sína síðustu ferð norður á Strandir og gekk upp í rústir Gíslabalabæj- + Jósef Sigurbjörnsson fædd- ist á Minni-Reykjum í Fljót- um í Skagafirði hinn 11. júní 1908. Hann lést á Hrafnistu, Reykjavík hinn 11. maí síðast- liðinn og fór útför hans fram 23. maí. Við höfum nú þegar kvatt hann afa okkar í hinsta sinn. Margar minningar um hann eigum við í hugum okkar. Hann var okkur systkinunum afar kær. Við minn- umst þeirra fjölmörgu samveru- stunda er við áttum með honum. Við eldri systurnar komum oft til afa og ömmu í Miðtúnið. Þang- að var gott að koma og margt sér til gamans gert. Nokkru eftir að amma dó flutti afi inn á heimili foreldra okkar. Það var lán fyrir okkur systkinin að fá hann inn á heimilið, séstaklega þau yngri. Þau nutu þess að hafa hann hjá sér fyrstu æviárin. Alltaf hafði hann nógan tíma til að tala við okkur, spila og fara með vísur og þulur sem við lærðum. Hann fylgdist alltaf náið með því sem við vorum að gera, vildi hag okkar sem best- an. Skoðanir hans voru ákveðnar og lét hann þær óspart í Ijós við okkur. Sveitin, þar sem hann ólst upp, arins og gaf þar samferðafólkinu kaffi og hefði ég þó gjarnan viljað vera í því ferðalagi. Um árabil kom Gústa einu sinni á ári í heimsókn til okkar í sveitina og var þá gjarnan ýmislegt spjall- að. Ekki síst var rætt um vísur sem þurftu ekki nauðsynlega að vera fínheflaðar. Mér er minnisstætt eitt kvöld þegar Gústa var háttuð og kom fram um það leyti sem ég var að fara að sofa og það endaði með tveggja tíma spjalli yfir rúg- brauði og síld. Það reyndi mikið á Ágústu í langvarandi veikindum Ólafs sonar hennar og ótrúlega erfiðri baráttu hans við þennan sjúkdóm sem engu virðist hlífa. Fyrstu kynni mín af Ólafi voru í barnaskóla og alla tíð síðan vorum við kunnugir, um tíma vinnufélagar og enn síðar mágar. Það sem mér er minnisstæðast í fari Ólafs var einstök vandvirkni hans og snyrtimennska og þar sem Óli hafði lagt hönd að var erfitt að gera betur. Eftir að Ólafur byij- aði aftur í hestamennskunni rædd- umst við oft við og áttum svolítil viðskipti saman. Það var oft rætt um verð á hrossakjöti lifandi eða dauðu og hin ýmsu tilboð í gangi og allskonar aukabónusar svo sem viskýflöskur sem áttu að greiðast við hvert unnið mót og önnur afrek gæðingsins, misstórar eftir stærð mótsins. Slíkir samningar voru Ólafi að skapi enda held ég að honum hafi aldrei fundist bráð- nauðsynlegt að vera sammála síð- asta ræðumanni. Ekki eingöngu til að þrasa heldur til að heyra rök viðmælandans, vega þau og meta og finna mótrök eftir því sem við varð komið. Blessuð veri minning þeirra. Dagbjartur. var honum kær. Það var fræðandi fyrir okkur að hlusta á hann lýsa lífinu í sveitinni. Sveitina hans þekkjum við systkinin vel. Síðustu æviárin dvaldi afi á Hrafnistu í Reykjavík. Blessuð sé minning hans. Allt eins og blómstrið eina upp vex á sléttri grund fagurt með fijóvgun hreina fyrst um dags morgunstund, á snöggu augabragði af skorið verður fljótt, lit og blöð niður lagði, - líf mannlegt endar skjótt. (Hallgr. Pét.) Hanna, Berglind, Hörður og Asrún. Við bræðurnir fórum oft í heim- sókn til langafa okkar upp á Hrafn- istu. Hann gaf okkur alltaf eitt- hvað gott og stundum fór hann með vísur eða þulur fyrir okkur. Við kveðjum hann með vísunni sem hann vildi að við lærðum. Ég var í skóla vænsta barn og vildi margt um læra. Nú legg ég út á lífsins hjarn með litla geislann skæra. Halldór og Vignir. BRIPS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Sumarbrids 1997 - Eggert og Eyþór náðu 69,39% skori FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ 30. maí var mikið skorað í sumarbrids og Eggert Bergsson og Eyþór Hauks- son náðu hæsta skori sem komið hefur í sumarbrids til þessa og eru því með vinninginn í Hornafjarðar- leiknum sem stendur eða þar til einhveijir slá þetta met. Verðlaunin fyrir hæstu skor í sumar eru ferð, gisting og keppnisgjald á Horna- fjarðarmótið í lok september. Fimmtudaginn 29. maí spiluðu 22 pör Mitchell-tvímenning, meðal- skor 216. Úrslit urðu þessi í N/S: Þórður Sigfúss. - Vilhjálmur Sigurðss. jr. 264 Gylfi Baldursson - Sverrir Ármannsson 256 Guðjón Bragason - Helgi Bogason 252 I NV: ísak Ö. Sigurðss. - Halldór M. Sverriss. 275 JónasRóbertsson-FriðrikEgilsson 255 Siguijón Karlsson - Heimir Hálfdánarson 248 Föstudaginn 30. maí spiluðu 26 pör Mitchell, meðalskor 312. Þar urðu efstir í N/S: Eggert Bergsson - Eyþór Hauksson 433 Vilhjálmur Sigurðss. - Þráinn Sigurðss. 328 Jakob Kristinss. - Magnús E. Magnúss. 328 í A/V: Kristján Jónasson - Guðmundur Karlsson 415 Páll Þór Bergsson - Guðlaugur Sveinsson 390 Guðmundur Baldurss. - Guðbjöm Þórðars. 340 Á eftir tvímenningnum var spiluð útsláttarsveitakeppni eins og alltaf á föstudagskvöldum Þar tóku þátt II sveitir og til úrslita spiluðu sveit- ir Hjördísar Siguijónsdóttur og Vil- hjálms Sigurðssonar jr. og eftir æsi- spennandi leik varð sveit Vilhjálms Sigurðssonar jr. sigurvegari. í sveit með Vilhjálmi spiluðu Gunnlaugur Sævarsson, Knútur Finnbogason og Jökull Kristjánsson en í sveit Hjör- dísar voru auk hennar Ólöf Heiður Þorsteinsdóttir, Jakob Kristinsson og Magnús E. Magnússon. Sunnudagskvöldið 1. júní var spilaður Monrad-barómeter með 14 pörum, meðalskor 168. Þar urðu efstir: Halldór M. Sverriss. - ísak Ö. Sigurðss. 204 ÁronÞorfmnsson-RúnarEinarsson 195 Guðlaugur Nielsen - Baldur Bjartmarss. 191 Jón Stefánsson - Sveinn Sigurgeirsson 189 Monrad-barómeter er alltaf spil- aður á sunnudögum og miðvikudög- um og spilamennska hefst alltaf kl. 19. Bronsstigameistari vikunnar var Vilhjálmur Sigurðsson jr. með 75 bronsstig og hlaut að launum mat fyrir tvo á veitingastaðnum Lauga-Ási. Aukaverðlaun vikunnar sem dregin voru úr öllum nöfnum vik- unnar fékk Sturla Snæbjörnsson en hann fékk í verðlaun 16 tomma pitsu frá Hróa hetti og frítt spila- gjald. Silaður var Mitchell-tvímenning- ur þriðjud. 27.5 ’97. 30 pör mættu og urðu úrslit N-S: Ingibjörg Halldórsd.- Sigvaldi Þorsteinsson395 Sæmundur Bjömss. - Böðvar Guðmundss. 387 Gunnar Sigurbjörnsson - Sig. Gunnlaugss. 366 Halla Ólafsd. - Garðar Sigurðsson 336 A-V: Hannes Alfonsson - Einar Elíasson 396 ErnstBackman-LárusHermannsson 377 Þórarinn Ámason - Þorleifur Þórarinsson 371 Karl Adolfsson - Eggert Einarsson 369 Meðalskor 312 Spilaður var Mitchell-tvímenn- ingur föstud. 30.5. ’97. 30 pör mættu, úrslit N-S: VilhjálmurSigurðsson - Þórður Jömndsson393 Eysteinn Einarsson - Sævar Magnússon 374 Rafn Kristjánsson - Oliver Kristófersson 361 Sæmundur Bjömss. - Böðvar Guðmundss. 347 A-V: Ólafur Ingvarsson - Jóhann Lúthersson 360 Baldur Ásgeirsson - Magnús Halldórsson 355 FróðiPálsson-CymsHjartarson 337 Björg Pétursd. - Guðmunda Þorsteinsd. 336 Meðalskor 312 Bridsmót Vals Silfturstiga-bridsmót Vals var haldið að Hlíðarenda mánudaginn 14. og 21. apríl með þátttöku 27 para. Keppnisform var tölvureikn- aður Mitchell-tvímenningur, keppn- isstjóri var Jakob Kristinsson. Lokastaðan var eftirfarandi, 7 efstu hlutu silfurstig. Staðan eftir 2 lotur: RagnarJónsson-MuratBerdar 761 Bernódus Kristinss. - Georg Sverriss. 725 HalldórM. Sverriss. - Erlendur Jónss. 717 Birgir Ö. Steingrímss. - Þórður Bjömss. 711 Jónas Eliass. - Ólafur Jóhanness. 692 Magnús Sverriss. - Eðvarð Hallgrimss. 689 BjömÁmason-AlbertÞorsteinsson 669 Handrit afmælis- og minningargreina skuiu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvu- sett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins f bréfasíma 5691115, eða á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar þar um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallinubil og hæfilega linulengd — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Skilafrestur minningar greina Eigi minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnudagsblaði ef útför er á mánudegi), er skilafrestur sem hér segir: I sunnudags- og þriðjudagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. í mið- vikudags-, fimmtudags-, föstudags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Ber- ist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÞORGEIR MAGNÚSSON, Garðarsbraut 32, Húsavík, verður jarðsunginn frá Húsavíkurkirkju föstu- daginn 6. júní kl. 14.00. Sigríður Jónsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. + Útför bróður okkar, JÓNS GUÐMUNDSSONAR bónda, Fjalli, fer fram frá Skálholtskirkju laugardaginn 7. júní kl. 14.00. Sigríður Guðmundsdóttir, Guðfinna Guðmundsdóttir. JÓSEF SIG URBJÖRNSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.