Morgunblaðið - 05.06.1997, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 05.06.1997, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Veðurblíða á sjómannadag Þórshöfn - Veðurguðirnir sýndu á sér sparihliðina um síð- ustu helgi hér á Þórshöfn þegar hátíðahöid vegna sjómanna- dagsins stóðu yfir. Hiti var um 20 stig og hlýr sunnan andvari svo fólk hélt sig utan dyra og fjölmenni var á hafnarsvæðinu meðan skemmtidagskrá fór fram þar. Hátíðahöldin voru með nokkuð hefðbundnu sniði; á laugardegin- um var skemmtidagskrá við höfnina þar sem m.a. var keppt í stakkasundi og karadrætti, reiptogi og koddaslagur fyrir börnin var vinsæll. Það var einn- ig kraftakeppni þar sem keppt var um titilinn „sterkasti maður Þórshafnar" og var það Pólverji, búsettur á Þórshöfn, sem að þessu sinni hreppti titilinn. Slysa- varnakonur voru með kaffihlað- borð í húsi deildarinnar eftir skemmtidagskrá og var það vel sótt. Um kvöldið var fjölmennur dansleikur í félagsheimilinu Þórsveri. A sjómannadaginn var messa í Sauðaneskirkju og að henni lok- inni var farið í skemmtisiglingu. Hátíðahöldum lauk með fótbolta- keppni fyrir breiðan aldurshóp, þar sem bæði börn og fullorðnir spreyttu sig í boltanum. Veðrið á alltaf stærsta þáttinn í því að útiskemmtanir heppnist vel og er skemmst að minnast sjómannadagsins í fyrra þegar allri skemmtidagskrá var aflýst hér á Þórshöfn því norðan garri og kuldi næddi þá um byggðina. Sumarið er ioksins komið á Norð- urlandi. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir BÖRN i koddaslag á bryggjuplaninu á Þórshöfn. n /n n i r% uQnrtwm Ármúla 1, sími 588 2030 - fax 588 2033 Safamýri - sérinngangur Vorum að fá í sölu góða ca 75 fm 3ja herb. íb. á jarðh. Sérinngangur, forstofa, gott hol og rúmgóð stofa, 2 svefnherb. Hús í góðu ástandi nýtt gler o.fl. íbúðin getur verið laus fljótlega. Verð 6,9 millj. Iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði Til sölu gott og bjart ca 550 fm iðnaðarhúsn. við Mela- braut 19 (Suðurbrautarm.). Góð skrifstofa og starfs- mannaaðst. Mögul. á að skipta húsnæðinu upp í smærri einingar. Langtíma- leiga mjögul. Laust strax. - kjarni málsins! Morgunblaðið/Sigríður Ingvarsdóttir SERA Vigfús Þór Arnason afhendir hér Agli Rögnvaldssyni, formanni björgunarsveitarinnar Stráka á Siglufirði, Biblíu Gústa guðsmanns og mun hún verða um borð í Sigurvin. , .6'0\ Nafn Gusta guðsmanns tengt nýju björgunarskipi Siglufirði - Nýtt björgunarskip kom tii Siglufjarðar sl. föstudag. Eitt af markmiðum Slysavarnafélags ís- lands er að öflugt björgunarskip verði í hveijum landshluta og er þessu skipi ætlað að þjóna Norð- urlandi. Við hátíðlega athöfn, sem fram fór á Hafnarbryggju í tilefni af komu skipsins, var tilkynnt að það hlyti nafnið Sigurvin og litli björgunarbát- urinn fékk nafnið Gústi. En bátur sá er Gústi guðsmaður átti og gerði út til margra ára frá Siglufirði bar þetta nafn. Gústi guðsmaður er hálf- gerð þjóðsagnapersóna á Siglufirði og víðar en í samvinnu við drottin stýrði hann útgerð sinni til fjölda ára og allt það fé sem hann aflaði sendi hann til bágstaddra barna víðs- vegar um heiminn en sjálfur bjó Gústi í gömlum síldarbragga og veitti sér lítið sem ekkert. Á sunnu- dagsmorgnum mátti sjá hann á torg- inu á Siglufirði predika og kvrja sálma. Sr. Vigfús Þór Árnason, fyrrver- andi prestur á Siglufirði en núver- andi prestur í Grafarvogi, hélt ræðu við komu björgunarskipsins og af- henti gamla Biblíu sem Gústi átti og hafði beðið Vigfús um að varð- veita og fannst mönnum við hæfi að Biblía þessi yrði um borð í Sigur- vin. Sr. Bragi J. Ingibergsson, sókn- arprestur á Siglufirði, blessaði skip- ið. Áhöfn skipsins verður sjálfboða- liðar með mikla reynslu af sjó- mennsku. Þeir verða í stöðugri þjálf- un við leitar- og björgunarstörf á sjó. Með komu skipsins verður gjör- bylting í öryggi björgunarmanna og sæfarenda. Skipið var í rekstri hjá þýsku systurfélagi Slysavarnafé- lagsins áður en það var keypt hing- að til lands. Skipið er mjörg grunnrist og því hentugt til flutnings björgunar- manna á afskekkt svæði þar sem landleiðin er ófær eða sjóleiðin fljót- farnari. Hönnun skipsins gerir því kleift að komast á sjó við mjög erfið- ar aðstæður og sjóhæfni þess er mikil. Einnig er siglingaþol skipsins mikið sem er ómetanlegt við erfið leitarstörf. Kaup og rekstur þessa öfluga björgunarskips er fjárfrekt verk- efni þrátt fyrir að að baki standi fórnfúst starf sjálfboðaliða frá björgunarsveitum og slysavarna- deildum Slysavarnafélags Islands á Norðurlandi en kaup og rekstur þessa skips er samstarfsverkefni þessara aðila. Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason BRETARNIR Nigel Hanchard og dr. Henry Sanford ásamt Jósef Blöndal, sjúkrahúslækni í Stykkis- hólmi, og þátttakendur á námskeiði í stoðkerfisfræði sem haldið var í Stykkishólmi. Námskeið í stoðkerfis- fræði í Stykkishólmi Stykkishólmi - St. Fransiskusspít- alinn í Stykkishólmi stóð fyrir nám- skeiði í stoðkerfisfræði eða „Orthopedisk Medicin“ dagana 26.-30. maí sl. Námskeiðið er framhald frá námskeiði sem haldið var hér í fyrra. Á þessu námskeiði voru fengnir sérfræðingar á þessu sviði frá Eng- landi, þeir Nigel Hanchard, lektor í sjúkraþjálfun við háskólann í Aberdeen, og dr. Henry Sanford, sérfræðingur við Crownwell Hospit- al og St. Thomas Hospital í Lond- on. Auk þeirra kenndi Jósef Blön- dal, yfirlæknir á St. Fransiskus- spítalanum í Stykkishólmi. Þetta er sjötta námskeiðið sem St. Fransiskusspítalinn stendur fyr- ir á þessu sviði og hafa um 100 manns tekið þátt í námskeiðunum og þeir komið víða af að landinu. Námskeiðin eru ætluð fyrir lækna og sjúkraþjálfara. Það er Jósef Blöndal, sjúkrahús- læknir í Stykkishólmi, sem hefur skipulagt öll námskeiðin. Jósef er talinn standa framarlega í meðferð á baksjúklingum og hefur starf hans skilað góðum árangri. Deildin á sjúkrahúsinu sem annast baksjúkl- inga hefur verið fullnýtt síðustu ár og nú eru sjúklingar á biðlista.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.