Morgunblaðið - 05.06.1997, Síða 53

Morgunblaðið - 05.06.1997, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ1997 53 1 I j i 1 I i 4 ! 4 4 ( FRÉTTIR Morgunblaðið/Halldór FRÁ afhendingu námsstyrkja og athafnastyrks íslandsbanka. Viður kenningar fyrir ný- sköpun og góðan árangur Atvinnu- vegasýning Vestfjarða 1997 ATVINNUVEGASÝNING _ Vest- fjarða 1997 verður haldin í íþrótta- húsinu á Torfsnesi á ísafirði um næstu helgi. Um sextíu fyrirtæki af öllum Vestfjörðum taka þátt í sýningunni, stór og smá og úr hin- um ólíklegustu geirum atvinnulífs- ins. Sýningin verður opin laugar- daginn 7. júní kl. 10—18 og sunnu- daginn 8. júní kl. 13-18. I fréttatilkynningu frá undirbún- ingshópi sýningarinnar segir: „Sýn- ingin er haldin í skugga harðvítugs verkfalls sem lamar veigamikla þætti atvinnulífsins í ýmsum byggð- um Vestfjarða eins og allir lands- menn þekkja. Að vissu leyti má því segja að sýninguna beri upp á nokk- uð óheppilegan tíma en á hinn bóg- inn má einnig líta svo á að þetta sé einmitt rétti tíminn til þess að vekja athygli á þeirri fjölbreytni sem þrátt fyrir allt einkennir vest- firskt atvinnulíf og þá mörgu vaxt- arbrodda sem dafna um allan fjórð- unginn. I þeim anda eru einkunnarorð þessarar fyrstu atvinnuvegasýning- ar Vestfjarða, fjölbreytni, atorka, metnaður. Hún á að leiða Vestfirð- ingum sjálfum og landsmönnum öllum fyrir sjónir að margt er að gerast og margt framundan í vest- firsku atvinnulífi, þótt frekar mætti skilja af opinberri umræðu á síð- ustu árin að hér sé ekkert nema dauði, djöfull og vesældómur. Til- gangur sýningarinnar er ekki síst að efla trúna á framtíðina hér vestra. Markmið hennar er að sýna fram á að hér eru vissulega ekki öll sund lokuð heldur þvert á móti ýmsar leiðir opnar inn í blómlega framtíð." Fyrir sýningunni stendur At- vinnuþróunarfélag Vestfjarða hf. sem stofnað var í nóvember sl. Að félaginu standa fyrirtæki, einstak- lingar, félög, stofnanir og sveitarfé- lög á Vestfjörðum. Formaður stjórnar félagsins er Sigurðup Jóns- son, skipatæknifræðingur á ísafirði en framkvæmdastjóri er Elsa Guð- munsdóttir, hagfræðingur. Verk- efnisstjóri Atvinnuvegasýningar Vestijarða 1997 er Björn Garðars- son. NÁMSSTYRKIR og athafnastyrkur íslandsbanka voru nýlega afhentir. Veittir voru átta námsstyrkir, hver að upphæð 120 þúsund krónur og einn athafnastyrkur að ijárhæð 200 þúsund krónur. Alls bárust tæplega 200 umsóknir um styrkina. Markmið Islandsbanka með þess- um styrkjum er að veita námsmönn- um viðurkenningu fyrir frábæran árangur í námi og hvatningu til frek- ari átaka. Jafnframt er tilgangurinn að örva nýsköpun og frumkvæði meðal íslenskra námsmanna. Styrk- irnir eru veittir í tengslum við Menntabraut, námsmannaþjónustu íslandsbanka. ■ í úthlutunarnefnd áttu sæti: Ingj- aldur Hannibalsson dósent, Lúðvík Bergvinsson alþingismaður og Ás- mundur Stefánsson framkvæmda- stjóri og Birna Einarsdóttir, mark- aðsstjóri frá íslandsbanka. Námsstyrki hlutu eftirtaldir: Álf- heiður Hrönn Hafsteinsdóttir, 18 ára. Hún stundar nám í eðlisfræði- deild MR og í Tónlistarskóianum í Reykjavík. Álfheiður stefnir að því að ljúka einleikaraprófi í fiðluleik vorið 1998. Erling Erlingsson, 32 ára. Hann stundar nám við Stýri- mannaskólann í Reykjavík og hefur náð mjög góðum árangri í náminu. Guðbjörg Pálsdóttir, 31 árs. Hún stundar meistaranám í hjúkrun mik- ið slasaðra einstaklinga við Univers- ity of Maryland í Baltimore. Loka- verkefni hennar verður hópslysaá- ætlun fyrir ísland í heild. Gunnar Ólafur Kvaran, 25 ára. Hann er á síðasta ári í Kennaraháskóla íslands en tók hluta kennaranámsins í Nor- egi og kynntist þar útivistarkennslu í grunnskólum. Lokaritgerð hans mun fjalla um það efni. Gunnar ætlar að fara í framhaldsnám í norskum skóla sem sérhæfir sig í útivistarkennslu. Jón Birgir Jónsson, 25 ára. Hann stundar mastersnám í íjármálum og tölfræði við Stern School of Business í Bandaríkjunum. Kristjana Stefánsdóttir, 29 ára. Hún stundar djasskennaranám við Hil- versum Conservatorium í Hollandi sem er stærsta djassdeild Evrópu. Kristjana hefur lokið 8. stigi í söng frá Söngskólanum í Reykjavík. Ólöf Björg Steinþórsdóttir, 35 ára. Hún er í doktorsnámi við University of Wisconsin-Madison í kennslufræðum stærðfræðinnar. Mastersritgerð hennar fjallar um stúlkur og stærð- fræði, en áhugasvið hennar er tengt kynjamun í stærðfræði. Sjöfn Gunn- arsdóttir, 23 ára. Hún stefnir í dokt- orsnám í eiturefnafræði í Bandaríkj- unum. Athafnastyrkinn hlaut að þessu sinni: Guðberg K. Jónsson, 27 ára. Hugmynd hans er hönnun á sjálf- virku greiningartæki fyrir málrænt atferli (Automatic Vocal Analysis System). Guðberg er í doktorsnámi í hugfræði og samskiptaferli við Parísarháskóla. Hann er að hanna tölvuforrit sem er ætlað að verða sjálfvirkt margmiðlunar greiningar- tæki og á að greina í rauntíma- kvarða tíðni, tónhæð, styrk, byijun og enda á málrænu atferli. Til hlið- sjónar við hönnun forritsins er haft aðgengi við atferlisgreiningarforritið THEME og taugalífeðlislega mæli- tækið EMBLA. Tölvuforritið myndi aðallega nýtast háskólatengdum rannsóknarstofum en einnig hönn- uðum samverkandi kennslubúnaðar. Skógarganga í kvöld ÞRIÐJA skógarganga skógræktar- félaganna, Ferðafélags íslands og Búnaðarbankans um „Græna trefil- inn“ hefst í dag, fimmtudaginn 5. júní kl. 20 á vegum Skógræktarfé- lags Garðabæjar. Gert er ráð fyrir að menn komi akandi á eigin bílum eftir Reykjanes- braut til Hafnaríjarðar og aki til vinstri við kirkjugarðinn í átt að skóg- ræktasvæði Hafnfirðinga við Hval- eyrarvatn. Mæting og rútuferð verð- ur frá Mörkinni 6, húsi Ferðafélags- ins, kl. 20 og við skógræktargirðing- una í Gráhelluhrauni kl. 20.30 þar sem bifreiðum verður lagt. Þaðan » verður gengið yfír Gráhelluhraun, upp Setbergshlíðar, um Tjarnholt og lokaáfangi er við trjásýnisreitinn í Vífilsstaðahlíð. Þar bíður rúta sem ekur göngumönnum til baka í bílana við Gráhelluhraun. Staðkunnir leið- sögumenn frá skógræktarfélögunum og Ferðafélaginu verða með í för og segja frá því sem fyrir ber. Næsta ganga verður fimmtudag- inn 12. júní. Gengið verður um Víf- ilsstaðahlíð. -----» ♦ ♦----- Fræðslufundur um þjónustu við fjölskyldur geðsjúkra EYDÍS Sveinbjarnardóttir geðhjúkr- unarfræðingur heldur fyrirlestur um íjölskylduþjónustu á móttökudeildum fimmtudaginn 5. júní kl. 20 í félags- miðstöð Geðhjálpar, Tryggvagötu 9. í tengslum við rannsóknir Eydísar á högum aðstandenda geðsjúkra á íslandi mun hún reyna að gefa svör við eftirfarandi: Hvaða skipulagða . þjónustu fá aðstandendur geðsjúkra á mótttökudeildum? Er nauðsynlegt að bæta þá þjónustu eða skipuleggja betur? Hvað á að felast í þeirri þjón- ustu: fræðsla, streitustjórnun og/eða tilfinningalegur stuðningur? Hvað segja aðstandendui' sjálfir? Eydís mun einnig segja frá því hvað erlend- ar rannsóknir gefa til kynna varð- andi þjónustu við aðstandendur geð- sjúkra. Eydís Sveinbjarnardóttir er geð- hjúkrunarfræðingur og hjúkrunar- stjóri á barna- og unglingageðdeild. Hún vinnu að rannsóknum á þjón- ustu við fjölskyldur geðsjúkra sem er hluti af doktorsverkefni hennar. LOKAÐIR FJALLVEGIR 29. MAÍ 1997 50 km Vegagerðin og Náttúruverndarráð hafa sent frá sér upplýsingar um hvaða svæði á hálendinu eru lokuð allri umferð vegna snjóa og/eða aurbleytu. Vegir á skyggðu svæðunum eru lokaðir allri umferð þar til annað verður auglýst. Símar vegagerðarinnar eru: 563-1500 og grænt númer, 800-6315. Fj allahj ólaklúbburinn með námskeið Félag leiðsögu- i manna 25 ára FÉLAG leiðsögumanna heldur í til- efni af 25 ára afmæli sínu félags- mönnum og velunnurum félagsins afmælishóf í Kaffí Reykjavík föstu- daginn 6. júní kl. 18-20. I fréttatilkynningu frá félaginu segir: „í félagi leiðsögumanna eru ■ um 400 félagsmenn með 18 tungu- ’ mál á valdi sínu. Félagið starfrækir I atvinnumiðlun fyrir leiðsögumenn. ( Markmið félagsins er að vinna að þróun ferðaþjónustu og bættri leið- sögn á íslandi. Það lætur menntun- armál leiðsögumanna til sín taka og sinnir endurmenntun og sí- menntun félagsmanna." Rokkstokk í Reykjanesbæ I HUÓMSVEITAKEPPNIN Rokk- stokk verður haldin í Reykjanesbæ 11.-12. júlí. Keppnin mun fara fram víðsvegar um bæinn bæði á föstudag og laugardag. Aðalkeppn- in verður á laugardagskvöldið. Bestu hljómsveitirnar komast á geisladisk sem verður gefinn út eftir keppnina. Góð verðlaun verða i í boði og má þar nefna að besta hljómsveitin fær utanlandsferð í verðlaun á hljómsveitarhátíð, besti 1 trommuleikarinn, bassaleikarinn, gítarleikarinn, hljómborðsleikarinn, söngvarinn og frumlegasta hljóm- sveitin fá einnig verðlaun. Þátttökutilkynningar þurfa að hafa borist til félagsmiðstöðvarinn- ar Ungó í Keflavík, pósthólf nr. 396, póstnúmer 230, fyrir 15. júní 1997. Keppendur þurfa að greiða 1000 kr. fyrir hvern hljómsveitar- meðlim. Keppendur þurfa einnig að senda spólu með þremur frumsömd- um lögum auk myndar af hljóm- sveitinni. Hljómsveitin má ekki hafa gefið út geisladisk áður og aldurs- takmark í keppnina er 16 ár. Upplýsingar um keppnina má finna á internetinu á slóðinni www.ok.is/rokkstokk. Sjókajakmót í Flókalundi SJÓKAJAKMÓT Flóka Vilgerðar- sonar verður haldið í Flókalundi helgina 6.-8. júní. Mótið verður sett föstudagskvöld kl. 22 og verður farin miðnæturferð kl. 23 til klukkan 2 um Vatnsfjörð austanverðan og eyjar og sker Breiðafjarðar. A laugardeginum verður dagsferð um Rauðasand og Látrabjarg. Lagt verður af stað frá Flókalundi kl. 10. Um kvöldið kl. 23 verður siðan varðeldur í fjörunni viðFlókalund. Á sunnudeginum um kl. 10 verð- ur róið um Vatnsfjörð vestanverðan inn í botn og út að Brjánslæk. Kl. 15 verður kappleikur á sjókajak en mótslok eru áætluð kl. 17. LEIÐRETT Nafn féll niður í FORMÁLA minningagreina um Ágústu Rósu Andrésdóttur á blað- síðu 50 í Morgunblaðinu fímmtudag- inn 29. maí féll niður í upptalningu nafn yngsta sonar Jennýjar dóttur hennar, SigurðarÁma, f. 8.11.1978. Hlutaðeigendur eru innilega beðnir afsökunar á þessum mistökum. Eiríkur Hreinn og Ólöf I DÓMI um tónleika Óperukórsins í blaðinu 3. júní síðastliðinn mis- rituðust nöfn Eiríks Hreins Helga- sonar og Ólafar Kolbrúnar Harðar- dóttur. Beðist er velvirðingar á mis- tökunum. Bílvelta MISSAGT var í frétt í blaðinu á sunnudag af bílveltu á mótum Breið- holtsbrautar og Reykjanesbrautar sl. laugardagsmorgun að bifreið hefði verið ekið vestur Breiðholts- braut og beygt inn á Reykjanes- braut, þar sem hún valt. Hið rétta er að bifreiðinni var ekið norður Reykjanesbraut og beygt til hægri áleiðis austur Breiðholtsbraut. í beygjunni missti ökumaður vald á bifreiðinni með þeim afleiðingum að hún lenti utan í járnvegriði milli akbrautanna og síðan á járnstólpa skiltabrúar og valt síðan á toppinn. Tekið var blóðsýni úr ökumanni og farþega en ökumaðurinn sagðist ekki hafa neytt áfengis. Niðurstaða blóðprufu er enn ekki fengin. ÍSLENSKI fjallahjólaklúbburinn mun standa fyrir námskeiði í undir- búningi ferðalaga á reiðhjólum. Verður það haldið í kvöld, fímmtu- dagskvöld, kl. 20 í félagsaðstöðu klúbbsins að Austurbugt 3 við Reykjavíkurhöfn. Námskeiðið er öllum opið sem áhuga hafa á útivist. Sýndur verður ýmiskonar sérhæfður hjólreiðafatn- aður og annar búnaður sem reynst hefur vel við íslenskar aðstæður. Þar verður hægt að sjá ýmsar gerðir - taskna og tengivagna, og rætt verð- ur um kosti þeirra og galla. Þar verður til sýnis íslensk framleiðsla bögglabera og annarra fylgihluta sem auðvelda mönnum ferðalög um landið. Einnig er þetta gott tæki- færi til að fá upplýsingar um skemmtilegar hjólreiðaleiðir út um allt land, segir í fréttatilkynningu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.