Morgunblaðið - 05.06.1997, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 05.06.1997, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 1997 21 ERLENT Ehud Barak kjörinn leiðtogi Verkamannaflokksins í ísrael Hyggst skáka Netan- yahu í öryggismálum Jerúsalem. Reuter. EHUD Barak, fyrrverandi hershöfð- ingi, var kjörinn ieiðtogi Verka- mannaflokksins í fyrradag og er þriðji forystumaður flokksins í 23 ár. Bar- ak, sem er 55 ára, starfaði innan hersins í 35 ár, var sæmdur fleiri orðum en nokkur annar hermaður í ísrael og stjómaði ijölmörgum leyni- legum aðgerðum hersins. Hann von- ast til þess að með þennan feril að baki geti hann skákað Benjamin Netanyahu forsætisráðherra í örygg- ismálum, sem réðu úrslitum um sigur Likud-flokksins í síðustu kosningum. Netanyahu, sem er 47 og gat sér einnig góðan orðstír sem hermaður, bar sigurorð af Shimon Peres, fyrr- verandi forsætisráðherra, í kosning- unum fyrir ári með loforðum um að standa vörð um öryggishagsmuni ísraela eftir mannskæð sprengjutil- ræði herskárra araba. Barak kvaðst í sigurræðu sinni vera sannfærður um að kjör hans væri fyrsta skrefið í átt að sigri Verkamannaflokksins í næstu kosn- ingum. Kosið verður ekki síðar en árið 2000 en Barak kvaðst vonast til þess að kosningunum yrði flýtt um eitt eða tvö ár. Hann áréttaði einnig að hann væri andvígur því að Verkamannaflokkurinn myndaði stjórn með Likud-flokknum. Hyggst feta í fótspor Rabins Barak lét af störfum innan hers- ins fyrir aðeins tveimur árum og varð þá innanríkisráðherra í stjórn Yitzhaks Rabins, fyrrverandi forsæt- isráðherra. Eftir að Rabin var myrt- ur árið 1995 tók Barak við embætti utanríkisráðherra af Peres. Kjör Baraks markar tímamót fyr- ir Verkamannaflokkinn, sem hefur verið undir stjórn Rabins og Peres í 23 ár. Rabin var formaður flokks- ins á árunum 1974 til 1977, Peres frá 1977 til 1992, þegar Rabin komst aftur til valda. Peres tók síðan við stjórnartaumunum eftir morðið á Rabin. Barak þykir að mörgu leyti gjör- ólíkur Peres, sem margir ísraelar telja að hafi sýnt of mikla linkind í öryggismálum. Jafnvel ekkja Rab- ins, Leah, hefur líkt honum við eiginmanninn sáluga, sem var her- foringi í sex daga stríðinu árið 1967. Barak minntist Yitzhaks Rabins við grafreit hans í gær og lofaði að halda áfram baráttu hans fyrir friði. „Yitzhak var yfirmaður minn í áratugi og lærifaðir. Eg leyfi mér að segja að hann hafi verið vinur minn síðustu 30 árin. Hann er mað- urinn sem kom mér í stjórnmálin," sagði Barak og kvaðst ætla að reyna að feta í fótspor Rabins. Barak hefur sagt að Israelum beri að taka „útreiknaða áhættu“ til að tryggja varanlegan frið. Hann sagði á blaðamannafundi á mánu- dag að ísraelar yrðu að virða sjálfs- ákvörðunarrétt Palestínumanna, en það gæti leitt til þess að þeir stofn- uðu sjálfstæjtt ríki á hluta þess land- svæðis sem ísraelar hernámu í stríð- inu við araba 1967. Var yfirmaður Netanyahus Barak fæddist í samyrkjubúi og nam eðlis- og stærðfræði við Hebr- eska háskólann í Jerúsalem og stundaði framhaldsnám við Stan- ford-háskóla í Kaliforníu. Barak var eitt sinn yfirmaður Netanyahus í úrvalssveit hersins og varð landsþekktur árið 1973 þegar hann tók þátt í leynilegri árás í Beirút, dulbúinn sem kona. Þrír af leiðtogum Frelsissamtaka Palestínu- manna (PLO) voru ráðnir af dögum í tilræðinu. „Hann hefur verið á vígvellinum í 35 ár og stjórnað tugum að- gerða,“ sagði Barak í sjónvarpsvið- tali fyrir tveimur árum og talaði um sjálfan sig í þriðju persónu. „Það hefur verið skotið á hann, ekki aðeins einu sinni, af nokkurra metra færi. Hann hefur skotið menn af svo stuttu færi að það sást í augnhvítu þeirra.“ Heimildarmenn innan hersins segja að Barak hafi skipulagt marg- ar af þeim aðgerðum sem beitt var til að kveða niður uppreisn Palest- ínumanna. Skömmu áður en hann lét af störfum fyrir herinn kvaðst hann stoltur yfir því að hafa látið vega tíu af tólf hættulegustu skæruliðum Palestínumanna. Er- lendir heimildarmenn segja að hann Reuter EHUD Barak, nýkjörinn leiðtogi Verkamannaflokksins í ísrael, ásamt konu sinni við leiði læriföður síns, Yitzhaks Rabins, fyrr- verandi forsætisráðherra. hafi stjórnað árás í Túnis þar sem skæruliðaforingi PLO, Khalil al- Wazir, betur þekktur undir nafninu Abu Jihad, var drepinn. Barak varð forseti herráðsins árið 1991 og stjórnaði fyrstu brottflutn- ingum ísraelskra hermanna frá her- numdu svæðunum samkvæmt frið- arsamningunum við PLO. Hann átti einnig þátt í friðarsamningnum við Jórdani árið 1994. Hann ræddi við yfirmann sýrlenska hersins en þær viðræður báru ekki árangur. Ferill Baraks innan hersins er þó ekki flekklaus. Um tíma átti hann undir högg að sækja vegna ásakana um að hann hefði yfirgefið hermenn, sem slösuðust á heræfingu, en hann kvaðst ekki hafa farið frá þeim fyrr en þeir hefðu verið komnir um borð í þyrlur þar sem læknar hefðu hlynnt að þeim. Barak var einnig gagnrýndur þeg- ar hann skýrði frá því árið 1991 að hermenn hefðu beitt þeirri aðferð að dulbúa sig sem araba. Herinn sagðist hafa skýrt frá þessu til að fyrirbyggja árásir araba, en þeir sem gagnrýndu Barak sögðu að hann hefði gert þetta opinbert af pólitísk- um ástæðum. Skjólstæðingur Peres í öðru sæti Um 70% skráðra félaga í Verka- mannaflokknum tóku þátt í leið- togakjörinu og Barak fékk 51% at- kvæðanna. Peres gaf ekki kost á sér en skjólstæðingur hans, Yossi Beilin, sem mótaði stefnu Verka- mannaflokksins í friðarmálunum, varð í öðru sæti í kjörinu, með 28% fyigi- Israelskir fjölmiðlar segja að Per- es hafi átt í erjum við Barak en forsætisráðherrann fyrrverandi reyndi að gera lítið úr þeim fréttum. „Það er engum vafa undirorðið að hann er hæfur maður og greindur, með mikla reynslu og ég sé ekkert því til fyrirstöðu að við störfum saman.“ Á FASTEIGNAMARKAÐI 75.000 króna inneign og 40.000 frípunktar h|á Húsasmiðjunni við ibúðarkaup hjá Ármannsfelli Ef þú festir kaup á íbúð frá Ármannsfelli býður Húsasmiðjan þér að opna reikning með mjög hagstæðum kjörum, sem fela m.a. í sér 75.000 króna inneign á reikningnum. Auk þess hlýtur þú 40.000 Mpunkta um leið og þú gengur frá kaupunum. Kaupendum stendurtil boða Framkvæmdalán Húsasmiðjunnarog aðgangur að þjónustufulltrúa sem sér um að aðstoða við fjármögnun og val á vörum. Þegar reikningshafar hafa velt einni milljón í gegnum reikninginn á 12 mánuðum, fá þeir 10.000 aukapunkta frá Húsasmiðjunni. Ármannsfell hf og Húsasmiðjan hafa sameinast um að hjálpa þér við íbúðarkaup og er það í fyrsta skipti á íslenskum fasteignamarkaði sem byggingarverktaki og smásali taka höndum saman um að bjóða nýjan og ferskan kost í íbúðarkaupum. w/ í boði eru rúmgóðar 3ja og 4ja herbergja íbúðir á glæsilegum útsýnisstað í Vættaborgum og Trölla- borgum. Allar íbúðir afhendast tilbúnar undir tréverk og málningu en án gólfefna, innréttinga, hurða, hreinlætis- tækja, Ijósa og raftækja í eldhúsi, þannig að kaupandinn hefur frjálsar hendur með að innrétta sína eigin íbúð. STOFIMAÐ 1965 Armannsfell hf. Leggur grunn að góðri framtíd HUSASMIÐJAN Sími: 525 3000 Hringdu I síma 577 3700
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.