Morgunblaðið - 05.06.1997, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 05.06.1997, Qupperneq 48
48 FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 1997 MIIMIMINGAR MORGUNBLAÐIÐ t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HELGA KRABBE, fædd 25.8.1904, átti hægt andlát í Viborg 2. júní 1997. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Birte og Desmond Deakin, Kirsten og Tony Overton, Ole og Evalyn Gad. Útförin fer fram frá Viborg Kirkegárdskapel laugardaginn 7. júní kl. 15.30. t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURGEIR BENEDIKTSSON fyrrverandi brunavörður, Hæðargarði 35, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstu- daginn 6. júní kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Gigtarfélag íslands. Ingibjörg Sigurgeirsdóttir, Einar B. Sigurgeirsson, Bára Angantýsdóttir, Elín B. Sigurgeirsdóttir, Guðbjörn Magnússon, Sígríður Sigurgeirsdóttir, Halldór Valdimarsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og jarðarför elskulegrar móður okkar, tengdamóður og ömmu, MÁLFRÍÐAR BENEDIKTSDÓTTUR, Stóru-Sandvík, Sandvíkurhreppi. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Sjúkra- húss Suðurlands fyrir góða hjúkrun og umönnun hinnar látnu. Benedikt Jóhannsson, Lára Hjördís Halldórsdóttir, Hannes Jóhannsson, íris Sigrid Guðmundsdóttir, Sigríður Kristín Jóhannsdóttir, Samúel Smári Hreggviðsson, Magnús Jóhannsson, Margrét Ófeigsdóttir og barnabörn. t Hugheilar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar og tengda- föður, ÓSKARS KRISTJÁNSSONAR rannsóknarlögreglumanns, Lækjarási 14. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Heimahlynningar Krabbameins- félags íslands og deildar 7A á Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Guð blessi ykkur öll. Emilía Björg Möller, Arna Óskarsdóttir, Anna Margrét Óskarsdóttir, Valdemar Haukur Hilmarsson, Emilía Björg Óskarsdóttir, t Þökkum af alhug alla þá samúð, hlýhug og virðingu, sem okkur var sýnd, við andlát og út- för elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, dóttur og systur, GUNNAR HÖNNU ÁGÚSTSDÓTTUR, Miðtúni 11, Höfn, Hornafirði. Gunnlaugur Sigurðsson, Sigurður Gunnlaugsson, Melkorka Gunnlaugsdóttir, Kristbjörg Gunnarsdóttir, Ágúst Jónsson, Jóna Ágústsdóttir, Anna Ágústsdóttir og fjölskyldur þeirra. OLAFUR HELGASON + Ólafur Helga- son fæddist á Isafirði 2. desember 1924. Hann lést á heimili sínu í Reykjavík 24. maí siðastliðinn og fór útför hans fram frá Dómkirkjunni 3. júní. Ljóst varð seint í aprílmánuði sl. að veikindi Ólafs voru miklu alvarlegri en tal- ið hafði verið. Ekki bar á því að honum væri brugðið. Mið- vikudaginn 30. apríl sl. kom hann í félagahópinn til spilamennsku eins og ekkert hefði ískorist. Þegar einn félaganna, sem ekki vissi um aðstæður, spurði hann hvernig hon- um liði, svaraði Ólafur honum hik- laust hvernig komið væri. Hann færi hvorki í aðgerð né fengi sér- stök lyf. Ólafur var þarna að kveða upp úr um sinn líklega dauðdaga án þess að bregða. Vitnar þetta um karlmennsku hans og æðru- leysi. Komi það sem koma skal. Leiðir okkar hafa legið saman samfellt frá 1940. Tengsl milli fjöl- skyldna byrjuðu þó miklu fyrr. Afar okkar feðramegin voru nánir vinir. Helgi, faðir Ólafs og bræður, Ásmundur og Guðmundur, voru heimamenn í Laufási afa míns Þór- halls um tíma eftir aldamótin á skólaárum sínum hér í Reykjavík. Það va_r þó ekki þetta sem dró okkur Ólaf saman. Kristín, systir Ólafs, var frá upp- hafi í árgangi okkar 1938 í Mennta- skólanum í Reykjavík og Ólafur bættist við eftir gagnfræðapróf 1940. Fór hann í stærðfræðideild en ég í máladeild. Að sjálfsögðu voru það gáfnaljósin sem treystu sér til að fara í stærðfræðideildina. Þrátt fyrir það voru böndin ávallt sterk. Ólafur fór í nám til Kaup- mannahafnar strax eftir stríð í raungreinar. Síðan í hagfræði í Prag. Hann var róttækur á þeim árum en var reyndar hafinn yfir pólitík eftir það. Var á togara og síld á sumrin þar til hann fór í bankann. Þegar hann festi ráð sitt við bekkjarsystur okkar, Sigríði Helgadóttur, árið 1953 var hann kominn í Utvegsbankann hér í Reykjavík og átti þar skjótan frama. Var snemma orðinn yfir- maður ábyrgðadeildar bankans _og starfaði þar m.a. með Jakobi Ár- mannssyni, sem nú er látinn. Ólaf- ur og Jakob voru einna gleggstu bankamenn, sem ég hef starfað með. Jukust nú samskipti okkar Ólafs verulega báðir komnir á hlið- stæða hillu, ég Landsbankamegin, hann í Utvegsbanka. Háði það á engan hátt vináttu okkar, þó að bankarnir hefðu elt grátt silfur allt frá 1904. Meira af því átti eftir að koma í Ijós er fram í sótti. Ólafur var skipaður útibússtjóri í Útvegsbankanum í Vestmanna- eyjum árið 1968. Naut hann sín mjög í því starfi og var hann fá- dæma vinsæll í Eyjum. Var fróð- iegt og gaman að heyra Ólaf greina frá reynslu sinni í störfum í Vest- mannaeyjum. Það merkilega var, að hann með þessu var að greina frá þeim vettvangi, sem við alls ekki vissum þá að yrði stærsti sam- starfsvettvangur okkar Ólafs nefni- lega við að hjálpa Vestmannaeying- um yfir gostímann í Heimaey. Stóð það starf frá 1973 til 1976 fyrir okkar sem bankamenn og liðsmenn Rauða krossins. Ólafur var jafn- framt framkvæmdastjóri Viðlaga- sjóðs (Villa frænda) og var t.d. sá aðili, sem af opinberri hálfu studdi við útgerð og fiskvinnslu Eyja- manna hér á fastalandinu meðan á gosinu stóð og hélt utan um allan vélbúnað Eyjamanna, sem tekinn var niður í heild og fluttur í geymsl- ur hér í Kópavogi og Keflavík. Þessu var öllu skilað til Eyja fyrir næstu vertíð 1974 og var það fyrst og fremst verk Ólafs, að það tókst. í gosbyijun var Ein- ar Guttormsson, hér- aðslæknir Eyjamanna, formaður Vestmanna- eyjadeildar Rk. Fannst honum ekki yit í öðru en að skipa Ólaf form- ann Vestmannaeyja- deildar strax eftir að gosið hófst, ekki á fundi. Einar bara skaust inn til Ólafs hér í Reykjavík og skipaði hann formann og því tók hann vel. Samstarf okkar á þessu sviði stóð í nokkur ár. Eftir þetta kölluðu Vestmanna- eyingar okkur bankavaldið sem við stóðum vel undir, held ég? Ólafur kom aftur í aðalbankann, fyrst sem eftirlitsmaður útibúa, og varð síðan fljótlega bankastjóri. Því starfi hans lauk 1987 eftir að hann var settur af með kollegum sínum eftir árekstrarmál við stjórnvöld. Þetta var kallað Hafskipsmálið sem kannski var notað til þess að kalla fram einkavæðingu viðskipta- bankakerfisins. Um þetta vil ég ekki dæma en ég fylgdjst með at- burðarás frá sjónarhóli Ólafs. Hann og félagar hans fengu fulla upp- reisn með sýknudómi. Ólafur var ekki bugaður, langt í frá. Hann tók upp kennslu í stærðfræði við Fjöl- brautaskólann í Garðabæ og átti þar gott starf. Kannski ofaukið atriði í minningargrein þá finnst mér Útvegsbankinn oft hafa verið haldinn meira umburðarlyndi gagn- vart erfiðum viðskiptaaðilum sínum en gerðist vestar í götunni. Sam- hliða kistulagningu Utvegsbankans fylgdi einstæð löggjöf um ríkis- ábyrgðir skuldamála og t.d. erfða- réttarmál starfsmanna o.fl. allt í mildum tón, eins og ráðamenn hefðu viljað bæta ráð sitt. Ólafur var hörkugreindur, óborganlegur félagi og hvers manns hugljúfi. Kímni hans og gleði var allsráðandi í öllum sam- skiptum við aðra. Hann var gríðar- iega vel að sér, glöggur og vel Ies- inn. í sjötugsafmælisgjöf færðum við spilafélagarnir honum hefilbekk að gjöf, að hans ósk. Hve mikið hann notaði bekkinn veit ég ekki, en þessi ósk gat boðað að kannski færi félagi okkar einhvern tíma að setjast í helgan stein. Við áttum ótal veiðiferðir saman félagarnir. Aldrei snerti Ólafur byssu en hann var natinn við silungsveiðar. Út- hald hans var einstakt í hveiju sem hann tók sér fyrir hendur. Það var dásamlegt að heimsækja Sigríði og Ólaf á heimili þeirra í Karfavogi. Heimilisbragurinn var einstaklega hlýr og skemmtilegur. Samrýndari ijölskyldu hefi ég ekki kynnst, Sigríður er enn starfandi við Þjóðarbókhlöðuna í framhaldi starfs síns við Landsbókasafnið en hún býr að mikilli menntun, m.a. í slavneskum málum. Okkar kæ- rasti bróðir, félagi og samheiji, Ólafur Helgason, er allur. Við reyn- um að taka því með reisn. Ég skrifa þetta líka fyrir bekkjarfélaga, spila- félaga, bankakollega, fyrir Rauða kross menn úti í Eyjum og hér á fastalandinu með samúðarkveðju til Sigríðar, barna þeirra og fjöl- skyldu og eftirlifandi systkina hans, Kristínar og Guðmundar. Minningin um blessaðan Ólaf verð- ur okkur kær. Okkar er hamingjan að hafa notið hans um áratugi. Björn Tryggvason. Ólafur Helgason, fyrrum aðstóð- arbankastjóri í Útvegsbankanum, er látinn. Hann helgaði bankanum alla sína starfskrafta. Faðir hans, Helgi Guðmundsson, hafði verið einn af bankastjórum Útvegsbank- ans og án efa hefur það valdið því, að Ólafur réðst til starfa í bankanum. Hvað sem því líður kom fljótlega í ljós, að það var bankan- um hið mesta happ, því Ólafur var hinn ágætasti starfsmaður, fljót- virkur og sérlega töluglöggur mað- ur. Mun hann hafa byijað í ábyrgðadeild bankans, varð þar síð- ar yfirmaður deildarinnar og vegna mikilla hæfileika sinna og þekking- ar á hinum ýmsu þáttum banka- starfsins var hann ráðinn áðstoðar- bankastjóri og síðar einn af aðal- bankastjórum bankans. Get ég full- yrt, að því var almennt fagnað af öðru starfsliði bankans. Útvegs- bankinn átti því láni að fagna, að meðal starfsmanna hans voru menn, sem sköruðu fram úr. Ein- hvern mesta stærðfræðing má nefna Gunnlaug G. Björnson (d. 1988), sem lengi var forstöðumað- ur sjávarútvegslánadeildar bank- ans og síðar skipulagsstjóri hans. Af þeim sem vit höfðu á var Ólafur Helgason ekki talinn honum langt að baki. Ólafur gat stundum verið nokk- uð snöggur upp á lagið en yfirleitt var létt yfir honum og skemmtileg- ur í viðræðum _ enda maðurinn bráðskarpur. Er Ólafur fór á eftir- laun tók hann að sér kennslu í nokkur ár í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ og kenndi stærðfræði. Þar mun hann, eins og í bankanum hafa verið á réttri hillu. í bankanum var viðbrugðið hversu fljótur Ólafur var að setja sig inn í hin ýmsu mál, sem jafnan koma upp í banka- starfsemi og þá gott til hans að leita. Góðar gáfur og skarpskyggni reyndust Ólafí vel í starfi, hann var hjálpsamur samstarfsfólki sínu og ötull j starfi og vann banka sínum vel. Ólafur barst ekki mikið á og var alla tíð tággrannur og léttur á sér og heilsuhraustur þó ekki væri hann mikið fyrir sportið. En skák- íþróttina kunni hann að meta og góður skákmaður var hann alla tíð og keppti jafnan fyrir bankans hönd á innanbankamótum. Okkur eldra samstarfsfólki úr Útvegsbankanum bregður illa við er fólk á svipuðum aldri, svo og yngra, er kallað burt svo skyndi- lega, og að okkur finnst, of snemma - en um það tjáir ekki að fást. Við höfum misst margt úr okkar röðum á undanförnum mánuðum og síðustu árum. Með Ólafi er horf- inn mikill ágætis maður, sem við munum minnast með virðingu og söknuði og þökkum fyrir góð kynni. Fyrir hönd eldra samstarfsfólks í Útvegsbankanum leyfi ég mér að senda eftirlifandi eiginkonu hans, börnum og öðrum nákomnum okk- ar inniiegustu samúðarkvepjur. Munum við jafnan minnast Ólafs Helgasonar sem eins ágætasta starfsmanns gamla Útvegsbank- ans. Gunnar Svanberg. Kær vinur okkar og samstarfs- maður í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ er fallinn frá. Enn á ný er hoggið skarð í hópinn en aðeins eru þijár vikur síðan annar góður félagi féll frá. Við stöldrum við í erli hvunndagsins og minnumst þeirra með söknuði. Ólafur hóf kennslu í Garðabæ fyrir níu árum með margþætta starfsreynslu að baki. Hann vann strax hug okkar allra, bæði starfs- fóiks og nemenda, með hlýju við- móti og leiftrandi skopskyni sínu. Fljótlega varð hann ómissandi í félagslífi starfsmanna, sannkallað- ur „sjéntilmaður“ sem naut þess að veita vel, spjalla, dansa og skemmta sér. Ólafur var heims- borgarinn í hópnum. Fyrir ári fóru starfsfélagar úr Fjölbrautaskólanum í Garðabæ í náms- og kynnisferð um Normandí í Frakklandi. Ólafur var þá nýstig- inn upp úr alvarlegum veikindum en lét það ekki aftra sér frá þátt- töku. Notaleg er minningin er við sátum með honum fram á frönsku sumarnóttina og hlýddum á hann segja frá ferðum sínum um heiminn og kynnum af litríku fólki, innlendu sem erlendu. Augun neistuðu og dulúðugt bros lék um varir hans, var hann að skálda eða var þetta rauveruleiki kryddaður kjarnyrtri
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.