Morgunblaðið - 05.06.1997, Page 28

Morgunblaðið - 05.06.1997, Page 28
28 FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ Sumarfrí á hlandi Sunnudaginn 15.júní nk. verður sérblaðið Ferðalög helgað sumarfríum á íslandi. Veitt verður innsýn í hvað hægt er að gera í fríinu, hvort sem er fyrir einstaklinga, hópa, ævintýrafólk eða fjölskyldur. Litið verður á ýmsa ferða- og gistimöguleika og athyglisverðir áningarstaðir skoðaðir. Meðal efnis: • Siglingar • Hestaferðir • Jöklaferðir Gönguferðir • Tjaldsvæði • Sundstaðir • Fugla- og hvalaskoðun • O.fl. Þá verður undirbúningurinn fyrir fríið skoðaður, hvort sem eru gönguskórnir, fatnaðurinn eða bíllinn. Sumarbústaðaeigendur verða sóttir heim og rætt verður við ýmsa þaulreynda ferðalanga, umhirða umhverfisins skoðuð og girnilegar grilluppskriftir birtar. Sumarfrí á ísiandi - með í ferðalagið! í blaðinu verður stórt íslandskort með gagn- legum upplýsingum fyrir ferðamenn á faralds- fæti. Þar er einnig að finna krossgátur og annað efni fyrir börn og fullorðna, til gagns og gamans í fríinu. M Skilafrestur auglýsingapantana er til kl. 12.00 mánudaginn 9. júní. Allar nánari upplýsingar veita starfsmenn atiglýsingadeildar í síma 569 1111 eða í bréfasíma 569 1110. - kjarni málsins! AÐSEIMDAR GREIIMAR Er refsivert að aka bíl? Flestir mundu ekki hugsa sig mikið um ef þeir stæðu frammi fyrir því að svara of- angreindri spurningu, svarið væri eflaust á þá leið að undir venju- legum kringumstæð- um sé refsilaust að aka bíl ef ökumaður- inn er allsgáður með full réttindi og innan hraðatakmarkana. Þegar farið er að skoða þær álögur sem ríkið leggur á bíla og eldsneyti dettur mönnum hins vegar helst í hug að löggjaf- anum þyki eðlilegt að fólki sé refs- að fyrir að keyra bíl. Tökum dæmi af vörugjaldi af ökutækjum sem lagt er á bíla við innflutning. Ofurskattar ríkisins á ökutæki annó 1997, nema, að sögn Soffíu Kristínar Þórðar- dóttur í skattadags- grein, rúmum fjórtán milljörðum króna. Gjaldið, sem er á bilinu 30%-65%, ræðst af vélarstærð, því stærri vél þeim mun hærra er vörugjaldið. Hugsun löggjafans hefur án efa verið hin sama og alltaf, að krækja í hlutfallslega mest hjá þeim efna- mestu. En eins og yfiríeitt þegar ríkið ætlar að deila lífsgæðunum eftir geðþótta sínum með mis- þungum álögum verður niðurstað- an að stórum hluta önnur en til er ætlast. Stórar fjölskyldur líða helst fyrir gjaldið auk þess sem það dregur úr öryggi fólks í um- ferðinni, því smáir bílar eru yfir- leitt síður öruggir en stórir. Ef fólk kaupir að jafnaði minni bíla vegna stighækkandi vörugjalds af ökutækjum eftir stærð þeirra þýðir það ein- faldlega að fólk er að jafnaði í minna örugg- um bílum en ella. Lítum nú framhjá því hversu illa löggjaf- anum hefur tekist til við að hanna sérstaka skatta á ökutæki og skoðum helstu rök- semdina fyrir því að leggja á skatta af því tagi, en hún er í stuttu máli að þeir sem nota bíla greiði kostnaðinn sem bílunum fylgir, en sá kostnaður er aðal- lega nýbygging og viðhald vega. Samkvæmt fjárlög- um þessa árs eiga vörugjald af ökutækjum og almennt vörugjald af bensíni að skila ríkinu samtals 9.595 milljónum króna. Olíugjald, þungaskattur, og bifreiðagjald eiga svo að skila samtals 4.635 milljónum króna. Allt saman gerir þetta litlar 14.230 milijónir króna! Standist röksemdin um að sérstak- ar álögur séu á bíla vegna kostnað- arins sem þeir valda ætti vegagerð í ár því að kosta ríflega 14 millj- arða króna, en svo er alls ekki. Vegagerð í ár, þar með taldar nýframkvæmdir, viðhald, þjónusta o.s.frv., kostar „ekki nema“ 6.406 milljónir króna. Þetta þýðir að rík- ið hyggst í ár skattleggja bílnot- endur sérstaklega um tæpa átta milljarða króna, eða sem svarar um það bil 60.000 krónum á hvern bíl umfram það sem þarf til að standa straum af kostnaði vegna notkunar bílsins. Það þarf því vart að undra að stundum hvarfli að mönnum að það sé ekki aðeins ölvunar- eða hraðakstur, heldur allur akstur, sem er refsiverður, fyrst segja má að allir ökumenn séu í raun sektað- ir um stórar fjárhæðir á hveiju ári. Höfundur er í stjórn Heimdallar, FUS í Reykjavík. Soffía Kristín Þórðardóttir fyóenÍ^ Brúðhjón Allur boröbiinaður Glæsiletj tjjafdvara Briíðarhjtína listar VERSLUNIN Langavegi 52, s. 562 4244. sEHP,r40 VP-H65 sjónvarpsmyndavélin sEHP,r4G VP-K60 sjónvarpsmyndavélin er8mm, með14x-aðdrætti,einstaklegaljósnæm - aðeins 2 lux, fjórum mismunandi forstillingum á upptöku, þremur mismunandi myndáhrifum (Art Effect), dags/tíma, Edit- innsetningu og fjölmörgu fleira. J Auðveld í notkun - mikil sjálfvirkni. ^smÆ Sfcv**'- VP-K80 sjónvarpsmyndavélin er 8mm, með 16 x -aðdrætti, einstaklega Ijósnæm - aðeins 2 lux, með HiFi-stereo-upptöku, Edit- innsetningu, dags./tíma, þráðlausri fjarstýringu, fimm mismunandi forstillingum á upptöku, Macro- nærlinsu, innbyggðu Ijósi og fjölmörgu fleira. Auðveld í notkun - frábær sjálfvirkni. A Taktu Samsung- sjónvarpsmyndavé með í sumarfríið ! er Hi-8,12 x -aðdrætti, einstaklega Ijósnæm - aðeins 3 lux, þráðlausri fjarstýringu, dags./tíma, fimm mismunandi fastillingum á upptöku, þremur mismunandi myndáhrifum (Art Effect), Edit- innsetningu ogfjölmörgufleira.AuðveldíJ notkun -stórkostleg sjálfvirkni. mm Grensásvegi 11 Sími: 5 886 886

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.