Morgunblaðið - 05.06.1997, Side 24

Morgunblaðið - 05.06.1997, Side 24
24 FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Draumurmn o g veruleikinn Á norrænni bókmenntahátíð nýlega var sjón- um beint út í heim og að Jerúsalem, bæði borginni og draumnum. Böðvar Guðmunds- son rithöfundur kynnti vesturfarabækur sín- ar, en komst ekki hjá að mæta hefðbund- inni skammsýni danskrar menningarbölsýni í spumingum kynnisins, eins og Sigrún Davíðsdóttir heyrði. NORÐURLÖNDIN og Jerú- salem, fyrirheitna landið, voru til umræðu á bók- menntahátíðinni „Ord i Nord“, sem norræna bókmenntatímaritið Nor- disk litteratur og Politiken stóðu fyrir í Kaupmannahöfn í síðustu viku. Böðvar Guðmundsson rithöf- undur sat fyrir svörum, sagði frá verkum sínum á þann hátt sem honum er lagið og las upp og sama gerðu aðrir rithöfundar, meðal ann- ars hinn sænski Göran Tunström. En Jerúsalem, bæði borgin og tákn- ræn merking hennar sem fyrirhe- itna landið, og fyrirheit almennt virtist síður höfða til gesta en um- ræðuefnið í fyrra, sem var Norður- löndin og norræn ímynd. Samfara hátíðinni voru Jóni Karli Helgasyni einnig afhent norrænu blaða- mannaverðlaunin fyrir kynningu norræna bókmennta. Sjálfur segir hann að norrænar bókmenntir eigi ekki endilega að kynna vegna þess að þær séu norrænar, heldur bara eins og aðrar góðar bókmenntir. Hornherbergið var ramminn utan um upplestur Böðvars Guðmundssonar. Þetta er ritstjóraskrifstofa Politiken með Georg Brandes á veggnum og út- sýni yfir Ráðhústorgið og ef veg- girnir mættu tala hefðu þeir frá mörgu að segja. En þetta síðdegi á bókmenntahátíðinni var það Böðvar Guðmundsson, sem hafði frá ein- hveiju að segja og svaraði hann spurningum Janusar Kodals skálds. Það fyrsta sem Kodal datt í hug var að spyija Böðvar hvernig það væri að vera íslenskur rithöfundur og hafa sagnahefðina, vísast með íslendingasögur í huga, til að skrifa á móti. Böðvari hafði greinilega aldrei dottið í hug að hann hefði hefðina á móti sér og svaraði því að bragði að honum liði hið besta með hefðinni. Næsta áhyggjuefni Kodals var hvarf hins epíska ljóðs og hvort aðrir miðlar hefðu kannski komið þar í staðinn. Líklega spurði hann af því Böðvar er einnig skáld og kannski heldur Kodal að íslensk skáld gangi ekki til sængur án þess að gráta það að Edduhættir séu ekki lengur í öndvegi. En a.m.k. kippti Böðvar sér ekki upp við hvarf hins epíska ijóðs. Og hann kippti sér heldur ekki upp við áhyggjutal Kodals um að ljóðið hefði misst rím, stuðla og höfuðstafi. Og þegar Kod- al spurði hvað væri þá eiginlega eftir af ljóðinu varð Böðvari heldur ekki svarafátt og svaraði með glotti á vör: „Lýríkin er þó a.m.k. eftir.“ Böðvar hafði ekki hugsað út í hvort og hvernig skáld gætu end- urunnið fornan sess sinn, eins og Kodal spurði hvort þau gætu ekki gert og þar með hafði Kodal ekki fleiri atriði til að hafa áhyggjur af fyrir hönd skálda almennt og Böð- var komst að til að segja frá bókum sínum tveimur um íslensku vestur- farana og lesa upp úr þeim við góðar undirtektir áheyrenda. En kostulegt samtal Kodals og Böðvars var enn eitt dæmið um hvernig út- lendingum dettur sjaldnast neitt annað í hug varðandi íslenskar bók- menntir en hefðin og fornöldin. En það er bara ekki alltaf sem íslensk- ir rithöfundar geta svarað jafnvel fyrir sig og Böðvari tókst. Einn ís- lenskur áheyrandi hvíslaði því á eftir að spurningar Kodals staðfestu alla fordóma hans um það hvernig útlendingar litu á íslenskar bók- menntir og menningu. í samtali þeirra Böðvars og Kodals laust skemmtilega saman danskri menn- ingarbölsýni og íslenskri hnyttni og áhyggjuleysi yfir afdrifum menn- ingarinnar, enda hefur hún bjargað sér á íslandi í rúm þúsund ár. Norrænu blaðamannaverðlaunin eru veitt af Norrænu ráðherra- nefndinni til blaðamanna sem hafa lagt sig fram um að kynna norræn- ar bókmenntir. í ávarpi þegar hann tók við verðlaunum forðaðist Jón Morgunblaðið/Sigrún Davíðsdóttir BÖÐVAR Guðmundsson les úr bók sinni á ritstjóraskrifstofu Politiken með Georg Brandes á veggnum. Karl Helgason að vera málsvari norrænna bókmennta, heldur lagði áherslu á að það væri nær að huga að kynningu bókmennta almennt. Hins vegar lagði hann áherslu á að það væri þörf á að sinna norræn- um bókmenntum, því vélin sem knýr bókamarkaðinn gangi fyrir öðru en bókmenntagildinu. Það væri tilhneiging í fjölmiðlum til að sinna heldur dægurbókmenntum, sem væru studdar fjársterkum út- gefendum. Metsölubækur væru kynntar - af því þær væru met- sölubækur, en síður af því að þær væru metnar út frá bókmenntalegu gildi. ótt Jón Karl væri að taka á móti verðlaunum og hafi sjálfur setið í nefndum til að velja verðlaunahafa sagðist hann vera gagnrýninn á verðlaun, þegar bókmenntir væru annars vegar, því þar í fælist tilhneiging til að að fjalla um bókmenntir eins og íþróttavið- burð. Það væri ekki fréttnæmt að bók kæmi út, en hins vegar væri það fréttnæmt hvernig þær röðuð- ust í 1., 2. og 3. sætið. Verðlauna- hafínn Jón Karl vildi því gjarnan brýna fyrir sér og öðrum að greina bæri á milli verkanna sjálfra og svo þeirrar vélar, sem að baki kynningu þeirra lægi, þegar íjármagnið réðj oft meiru en bókmenntagildið. Jerúsalem hefur verið á dagskrá víða undanfarið, meðal annars í, mynd Bille August, Jerúsalem, byggðri á bók Selmu Lagerlöf. En Jerúsalem getur einnig verið tákn draumsins og útópíunnar og draumsins og stjórnmálanna, eins og andans menn ræddu á tveimur umræðufundum á bókmenntahátíð- inni. Og efnið gaf einnig tilefni til að ræða tengsl stjórnmála og trúar- bragða. Ástráður Eysteinsson pró- fessor í bókmenntum og fulltrúi Íslands í ritnefnd Litteratur i Nord- en var ekki sannfærður um að val á umræðuefni hefði tekist sérlega vel og benti á að aðsókn að um- ræðufundunum hefði verið minni en í fyrra, þegar sjáif Norðurlöndin voru umræðuefnið. Nýtt tölublað tímaritsins er ný- komið út og Ástráður er ekki í vafa um að tímaritið, með greinum á dönsku, sænsku og norsku, auk þess sem sem hver grein er þýdd á ensku, sé gott framtak til að gefa yfirlit yfir norrænar bókmenntir. Þátttakan í ritnefndinni segir hann þó að hafi verið sér ofurlítil stað- festing á hve Dönum, Svíum og Norðmönnum sé tamt að líta á Norðurlöndin sem þessi þijú lönd eingöngu, þar sem bæði ísland, Finnland og önnur málsvæði liggi gjarnan handan við sjóndeildar- hringinn. í ritinu nú er fjallað um bækur Böðvars, Híbýli vindanna og Lífsins tré, Hjartastað Steinunnar Sigurð- ardóttur og Kyijálaeiði Hannesar Sigfússonar og stuttlega sagt frá ellefu öðrum bókum. Smíðis- gripir í Skotinu í SÝNINGARAÐSTÖÐUNNI Skotinu í Félagsmiðstöð aldr- aðra, Hæðargarði 31, stendur nú yfir sýning á smíðisgripum eftir Leif Sigurðsson. Leifur fæddist 1921 á Stokkhólma í Skagafirði og ólst þar upp. Hann lærði renni- smíði og starfaði við það en hefur fengist við margs konar sköpun í gegnum tíðina og eru elstu verkin frá því árið 1945. Síðastliðin ár hefur hann m.a. nýtt sér aðstöðu og félagsskap sem býðst við útskurð í félags- miðstöðvunum og eru á sýn- ingunni verk unnin í tré og málma. Útskornir og renndir munir, s.s. loftvogir, klukkur, skrín og lampar úr reyniviði, birki og mahóníi og marghátt- uð málmsmíði, s.s. skartgripir, neftóbaksdósir, ístöð, beislis- stangir og svipur gerð úr ýms- um málmum og góðmálmum. Langflesta munina hefur Leif- ur hannað og smíðað út frá eigin hugmyndum. Sýningin stendur til 21. júní og er opin þegar félagsmið- stöðin er opin, alla virka daga kl. 10-16. Kirkjusýning framlengd SÝNING Kirkjulistahátíðar 1997 á hugmynd að nýjum myndverkum í kirkjur hefur verið framlengd til 10. júní. Þarna eru sýndar tillögur listamanna að myndverkum í nýjustu kirkjur Reykjavíkur- prófastsdæma ásamt skýring- um arkitekta á kirkjubygging- um sjálfum. Sýningin er unnin þannig að mynd af módeli af tillögunni er skönnuð inn f mynd úr kirkjunni. Sýning í Ferstiklu REBEKKA Gunnarsdóttir er með sýningu á litlum vatnslita- myndum í Ferstikluskála í Hvalfirði. Þetta er sjöunda einkasýn- ing hennar, síðast sýndi hún í Jónshúsi í Kaupmannahöfn 1994. Myndirnar eru allar til sölu. Sýningin verður til l.júlí. habitat K R I N G L U N N I /

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.