Morgunblaðið - 05.06.1997, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 5. JÚNf 1997 33
AÐSENDAR GREINAR
Samkeppni þörf
á fjarskiptamarkaði
Reykvíkingar!
Munið borgarstjórnarfundinn
ídag kl. 17:00,
UM SIÐUSTU ára-
mót var Póst- og síma-
málastofnun breytt í
hlutafélag. Þeirri
formbreytingu ber að
fagna en fyrirtækið er
þó ennþá að fullu í eigu
ríkisins og því ber rík-
isvaldið ákveðna
ábyrgð á hlutafélag-
inu. Það er því nauð-
synlegt að ríkisvaldið
og yfirstjórn Pósts og
síma vandi til verka
þegar fyrirtækið hefur
samkeppni við önnur
fyrirtæki. Sé það ekki
gert og hefðbundnir
einokunartilburðir not-
aðir, dregur það úr trú almennings
á gildi þess að formbreyta ríkisfyrir-
tækjum í hlutafélög.
Óeðlileg samkeppni
Því miður hefur Pósti og síma
hf. ekki tekist sem skyldi að fóta
sig á samkeppnismarkaði og bera
níu úrskurðir frá Samkeppnisstofn-
un því glöggt vitni. Það hlýtur að
vera erfitt fyrir fyrirtæki á sam-
keppnismarkaði að keppa við hluta-
félag sem er að fullu í eigu ríkisins
og virðir ekki þær almennu sam-
keppnisreglur sem á markaðnum
gilda. Ennþá verra er þegar fyrir-
tækið, til viðbótar því að stunda
samkeppni við einkaaðila, sér um
að reka þá grunnþjónustu sem allir
keppinautar þess þurfa að nota.
Nýr úrskurður
Samkeppnisstofnunar
í nýjum úrskurði Samkeppnis-
stofnunar er tekið á Internetþjón-
ustu Pósts og síma og ýmsar at-
hugasemdir gerðar við þá þjón-
ustu. Þegar Póstur og sími hóf að
veita þessa þjónustu voru ýmsir
sem gerðu athugasemdir við að-
ferðir fyrirtækisins við þá sam-
keppni. Meðal annars voru gerðar
athugasemdir við að Póstur og sími
nýtti miklar tekjur af farsímaþjón-
ustu til 'að niðurgreiða kostnað við
Internetþjónustuna. Einnig voru
p-erðar athugasemdir við það að
Póstur og sími sagðist
hafa komið upp sér-
stökum innhringibún-
aði á landsbyggðinni
og gæti því boðið
lægra verð á sím-
kostnaði sem aðrir á
Internetmarkaðnum
áttu ekki möguieika á
að bjóða upp á.
Gagnrýni ekki tekin
til greina
Þrátt fyrir mikla
gagnrýni létu Póstur
og sími og samgöngu-
ráðherra hana sem
vind um eyru þjóta.
Svo langt var gengið
að réttu máli var hallað varðandi
innhringibúnaðinn til að losna und-
an frekari gagnrýni. í stað þess að
skýra rétt frá nýtti Póstur og sími
sér þá aðstöðu að hafa símkerfið í
Virk samkeppni er, að
mati Viktors B. Kjart-
anssonar, bezta trygg-
ingin fyrir lægra verði.
sinni eigu, bauð upp á sérstakan
símtalsflutning og seldi viðskipta-
vinum sínum þjónustuna á 1,12
krónur á mínútu á meðan önnur
Internetfyrirtæki þurftu að greiða
4,15 krónur fyrir sömu þjónustu.
Þetta eru vinnubrögð sem ganga
ekki upp í nútíma markaðssamfé-
lagi og eru ekki til þess fallin að
styrkja þá sem vilja beita sér fyrir
hlutafélagavæðingu í ríkiskerfinu.
Hvað er til ráða?
Til þess að tryggja virka sam-
keppni á póst- og fjarskiptamarkaði
þarf að skipta Pósti og síma upp í
nokkur smærri hlutafélög. Þannig
þyrfti grunnþjónustan að vera sér-
stakt hlutafélag sem sér um rekstur
allrar grunnþjónustu Pósts og síma
og selur öðrum fyrirtækjum aðgang
að símakerfinu. Stofna þyrfti sér-
Viktor B.
Kjartansson
stakt hlutafélag um rekstur tal-
símans, annað um farsímakerfin
NMT og GSM, og einnig sérstakt
hlutafélag um rekstur gagnaflutn-
ingsþjónustu Pósts og síma. A póst-
sviðinu þyrfti einnig að stofna sér-
stakt hlutafélag. Einhverjir kunna
að halda því fram að verð þjón-
ustunnar myndi hækka við þetta
en á móti því má benda á að að-
gerð sem þessi myndi efla virka
samkeppni og hún er besta trygg-
ingin fyrir lægra verði og meiri
gæðum.
Höfundur er varaþingmaður
Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesi.
sem útvarpað er
á Aðalstöðinni FM 90.9.
Practical 3ja dyra Hatcback. verð kr. 1.249.ooo
Kynntu þér einnig hinar 3 gerðirnar ítarlegar upplýsingar um
, . , , ,,,, . ^«,, r*. .*tt ft •» MAZDA eru a heimasiðu
i MAZDA 323 rjolskylaunni! okkar: ww.raesir.is
Umboðsmenn: Akranes: Bílás sf. • ísafjörður: Bílatangi ehf. • Akureyri: BSAh£ M HF
Egilsstaðir: Bílasalan Fell • Selfoss: Betri bílasalan • Vestmannaeyjar: Bifreiðaverkstæði Muggs skúlagötu 59, sImi sai 9550
Mörulisti RV
«97-199»
RV-starísvörur fyrlr alla vinnustaði
Hefur |íú séð nýja
vörulistann frá
Rekstrarvörum?
Vörulisti RV 1997-1998:
Ómissandi vinnubók við dagleg
innkaup!
Pöntunarsími 587 5554
i
örV9qf
á 2 Ve"«a n
Vlnn“mðum
Rekstrarvörur • Réttarhálsi 2*110 Reykjavík * Sími 587 5554 • Fax 587 7116